Morgunblaðið - 12.12.1990, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. DESEMBER 1990
Slökkvilið Reykjavíkur:
Ástandið ekki viðunandi
-segir í úttekt Hrólfs Jónssonar, varaslökkviliðsstjóra
HRÓLFUR Jónsson, varaslökkviliðsstjóri, hefur nýlokið við að
gera úttekt á Slökkviliði Reykjavíkur og skilað af sér skýrslu þar
um. Hann telur að ástand mála hjá Slökkviliði Reykjavíkur sé
ekki viðunandi. í skýrslunni Ieggur hann til nokkrar breytingar
sem óneitanlega hafa aukin kostnað við rekstur Slökkviliðsins í
för með sér.
Hrólfur leggur til að byggð
verði ný slökkvistöð í austurhluta
borgarinnar og segir að ekki sé
unnt að stækka núverandi stöð í
Árbæ þar sem lóðin sé of lítil. Ef
byggt verði í austurhluta borgar-
innar megi leysa húsnæðisvanda
aðalstöðvarinnar með því að færa
hluta starfseminnar í nýja stöð.
Samfara því að byggja nýja stöð
vill Hrólfur að slökkviliðsmönnum
á vakt verði fjölgað úr 16 í 22-24,
Gnúpur GK
með met verð
í Þýskalandi
GNÚPUR GK seldi 70,5 tonn I
Bremerhaven í Þýskalandi á
mánudag fyrir 4,59 marka, eða
169,37 króna, meðalverð. Þetta
er hæsta meðalverð í mörkum,
sem íslenskt skip hefur fengið
í Þýskalandi en Már SH fékk
4,35 marka meðalverð fyrir 189
tonn í Bremerhaven 20. mars
1989.
Seld voru 70,5 tonn úr Gnúpi
GK í Bremerhaven á mánudag
fyrir samtals 11,9 milljónir króna,
þar af 53 tonn af karfa fyrir
167,39 króna meðalverð, 10 tonn
af þorski fyrir 176,17 króna með-
alverð og 3 tonn af ufsa fyrir
180,80 króna meðalverð.
Ástæðan fyrir þessu háa verði
í Bremerhaven er lítið framboð,
m.a. vegna lélegra aflabragða í
Norðursjó og hér við land undan-
farið.
enda séu störf slökkviliðsmanna
nú mun fjölbreyttari en áður var.
Vegna þessa er ekki óalgengt að
aðeins séu sex menn tiltækir á
aðalstöð ef eldútkall kemur.
Slökkvistöðin í Árbæ er einnig oft
mannlaus að degi til.
„Sjúkraflutningamir hafa stöð-
ugt orðið umfangsmeiri í starfí
slökkviliðsmanna og það hefur
ekki verið fjölgað hjá okkur frá
því 1973 en á sama tíma hefur
íbúum á svæðinu fjölgað um
22.000. Það gefur auga leið að
það þarf að sinna íbúm með sjú-
krabílum og öðru en það hefur
stöðugt gengið á styrk liðsins,“
sagði Hrólfur.
I úttektinni er einnig lagt til að
starfsemi þyrlu Landhelgisgæsl-
unnar og neyðarbíls verði sam-
tengd. „Þyrlan er á vegum Land-
helgisgæslunnar og verður það
áfram. Hún er hins vegar mönnuð
læknum sem eru á bakvakt allan
ársins hring. Þyrlan var kölluð út
um 80 sinnum á síðasta ári en það
hefði ekki þurft að senda lækni
með henni nema 25-30 sinnum.
Það kostar rúmlega þrjár og hálfa
milljón að reka þessar bakvaktir
vegna þyrlunnar og þama held ég
að megi spara nokkurt fé.
Ef beðið er um þyrlu til aðstoð-
ar yrði haft samband við lækninn
sem er á neyðarbílnum. Hann
myndi síðan meta það hvort þyrlan
þyrfti að fara og þá hveijir færa
með henni. Þeir menn sem væra
á neyðarbílnum, ættu allir að geta
sigið niður úr þyrlunni. Ef þyrlan
getur lent þá færi læknirinn úr
neyðarbílnum með og Reykvíking-
ar yrðu þá að búa við það að eng-
inn læknir væri á neyðarbílnum
þann tíma sem útkallið tæki.“
Hrólfur sagði að ef þessartillög-
Guðjón Hjörleifsson, bæjarstjóri,
flutti ávarp en síðan afhenti Auróra
Friðriksdóttir, formaður HUN-
nefndarinnar viðurkenningarskjöl
og blóm. Viðurkenningu fyrir
snyrtilegustu fasteignina árið 1990
fengu Gylfí Siguijónsson og Lilja
Þorsteinsdóttir. Safnaðarheimili
■Landakirkju og kirkjan fengu viður-
kenningu sem snyrtilegasta fyrir-
ur hans næðu fram að ganga,
hefðu þær í för með sér aukin
kostnað. Hann sagði að það kost-
aði 150 milljónir að reka slökkvi-
stöðina og reikna mætti með að
kostnaðurinn ykist um 25-30 millj-
ónir.
„Þessir peningar þurfa ekki
endilega að koma beint úr Borgar-
sjóði. Við eram tiltölulega vel sett-
ir gangvart hinum almenna íbúa,
en þegar kemur að stærri málum
þá eram við illa settir. Ég tel því
ekki óeðlilegt að þeir aðilar taki á
sig hluta þess aukna kostnaðar
sem óneitanlega yrði.“
Hróflur segir að Slökkviliðið
þurfí oft að fást við ýmis eytur-
efni við hafnir og því telur hann
eðlilegt að Slökkviliðið fái hluta
hafnargjalda.
„Það hefur verið viðtekin venja
að líta á okkur sem ómaga sem
sitjum og geram ekkert nema þeg-
ar kviknar í. Vegna þessa hafa
menn talið erfitt að fá einhveijar
tekjur af slökkviliðinu. Þessum
hugsanagangi þarf að breyta.
Slökkviliðið var kallað 5920 sinn-
um út í fyrra og þar af vora brun-
ar í 3589 tilvikum þannig að það
má sjá að- við geram ýmsilegt
fleira en slökkva elda,“ sagði
Hrólfur.
Úttekt þessi var tekinn fyrir í
Borgarráði fyrir nokkru og sagðist
Hrólfur eiga von á því að einhver
afstaða yrði tekin fljótelga upp úr
áramótum.
Morgunblaðið/Þorkell
Sig^fús Halldórsson og Gísli Sigurðsson sýna að Kjarvalsstöðum
Málverkasýningar:
Gísli off Sifffús sýna
að Rjarvalsstöðum
GÍSLI Sigurðsson og Sigfús
Halldórsson opnuðu á laugar-
daginn málverkasýningu að
Kjarvalsstöðum. Sigfús sýnir
100 vatnslitamyndir og Gísli 55
olíumálverk.
Þetta eru tvær aðskildar sýn-
ingar embáðar hófust þær á laug-
ardaginn og lýkur á þorláks-
messu. Verkin verða til sýnis milli
klukkan 11 og 18 daglega.
Myndir Sigfúsar era helgaðar
Reykjavík og flestar málaðar árin
1989 og 1990. Ein pastelmynd
er þó frá árinu 1960 en það er
mynd sem Sigfús hefur ævinlega
með á Reykjavíkursýningum.
Þetta er mynd af Vilhjálmi skaldi
frá Skálholti.
Báðar þessar sýningar eru sölu-
sýningar.
Fimmtán tonna plastbátur strandaði við höfnina á Rifi:
Náðist lítið skemmdur á flot
STAPATINDUR SH 17, fimmtán tonna plastbátur sem gerður er
út frá Rifi, strandaði við höfnina þar í fyrrakvöld í mjög slæmu
veðri. Þrír menn voru um borð, þá sakaði ekki og náðu að ganga
þurrum fótum á land, eftir tveggja tíma bið. Báturinn náðist af
strandstað í gær og er lítið skemmdur.
Vestmannaeyjar:
Viðurkemiingar afhentar
Vestmannaeyj um.
HEILBRIGÐIS-, umhverfis- og náttúruverndarnefnd Vestmannaeyja
bauð til kaffisamsætis fyrir skömmu þar sem veittar voru viðurkenn-
ingar fyrir snyrtimennsku. Samsætið var í Safnaðarheimili Landa-
kirkju, en Safnaðarheimilinu og Landakirkju voru einmitt veitt viður-
kenning.
tækið og íbúar Birkihlíðar fengu
afhent blóm þar sem gata þeirra
var valin snyrtilegasta gata ársins,
og hefur þegar verið merkt sem
slík með þar til gerðum skiltum.
Allir viðstaddir þáðu síðan kaffí
og meðlæti í boði HUN-nefndarinn-
ar.
Grímur
„Það var blindbylur, snjókoma
og hvasst," sagði Oskar Finnsson,
skipstjóri á Stapatindi, í samtali
við Morgunblaðið í gær um
ástandið á strandstað í fyrrakvöld.
Báturinn strandaði um kl. 21.30
og skipveijar vora komnir frá
borði upp úr miðnætti. „Við þráuð-
umst við um borð í um það bil tvo
tíma,“ sagði Óskar og bætti við
að þeir hefðu vonast eftir að bátur-
inn losnaði sjálfkrafa.
Stapatindur fór upp í fjöru aust-
an Hólmkelsár, við ármynnið. Var
að beygja fyrir svokallaða Tösku
á leiðinni inn í höfnina á Rifí, en
snjókoman var svo mikil að áhöfn-
in missti sjónar áf innsiglingarljós-
unum í höfninni og því fór sem fór.
Talsverður öldugangur var í
fjöranni og sjór gekk yfir bátinn
eftir að hann strandaði. „Það var
þó ekki svo rosalegt, því hann fór
strax þáð ofarlega í fjörana.
Skorðaðist þar og stóð á þurru,“
sagði Óskar.
Veður var gott vestra í fyrra-
dag, en um níu leytið skall á hríð
og hvessti mjög, og „veðrið var
vitlaust í nótt. Snjó kyngdi niður
og það var bálhvasst," eins og
lögreglumaður orðaði það við
blaðamann. Reynt var að koma
spotta úr varðskipi, sem kom á
staðinn, yfir í Stapatind en það
tókst ekki vegna veðurs. Því var
beðið þar til í gær, er veður var
orðið gott á ný, og dró Þorsteinn
SH Stapatind út á flóðinu eftir
hádegi. Bátamir eru báðir í eigu
Nesvers.
„Það er alltaf einhver hætta
fyrir hendi þegar svona gerist, en
hún var ekki ekki mikil. Við biðum
rólegir eftir að björgunarsveitar-
mennirnir kæmu, og ég vil nota
tækifærið og skila þakklæti til
þeirra,“ sagði Óskar við Morgun-
blaðið, en það vora björgunarsveit-
armenn frá Hellisandi og Ólafsvík
sem komu á staðinn.
Skemmdir á bátnum urðu ekki
alvarlegar að sögn skipstjórans.
„Það á eftir að skoða þær betur,
en vonandi komumst við út sem
fyrst,“ sagði Óskar. I áhöfn Stapa-
tinds voru, auk hans, Björgvin
Þorvarðarson og Úlfar Jónsson.
Elly Ameling heldur jóla-
tónleika fyrir Barnaheill
Lilja Þorsteinsdóttir og Gylfí Siguijónsson taka við viðurkenningar-
skjalinu.
F.T.T.Y Ameling ljóðasöngkona
frá Hollandi og píanóleikarinn
Dalton Baldwin munu halda jóla-
tónleika í Háskólabíói á vegum
samtakanna Barnaheill sunnu-
daginn 16. desember kl. 14.
Undirbúningurtónleikanna hefur
staðið frá því í sumar þegar Elly
Ameling lét í ljós ósk sína að koma
hingað til landsins „og syngja fyrir
börnin“ eins og hún orðaði það og
um leið styðja starf samtakanna
Barnaheilla sem stofnuð vora fyrir
rúmu ári.
Einnig mun kór Öldutúnsskóla,
undir stjórn Egils R. Friðleifssonar,
taka þátt í tónleikunum og Lúðra-
sveit Laugarnesskóla, stjórnandi
Stefán Stephensen, flytja jólalög í
anddyri Háskólabíós á undan tón-
leikunum. Á efnisskrá verða vel-
þekkt lög eftir Schubert, Brahms
og Hugo Wolf ásamt jólalögum frá
ýmsum löndum. Síðast á dagskrá
munu listamenn og áheyrendur
syngja Heims um ból. Sviðið verður
jólalegt og er skreyting þess í hönd-
um starfsfólks Blómavals.
Miðar eru seldir á skrifstofu Sin-
fóníuhljómsveitar íslands í Há-
skólabíói og einnig við innganginn
við upphaf tónleikanna. Eimskip
hefur styrkt þessa tónleika þannig
að allur ágóði rennur óskiptur til
starfa Barnaheilla.
Við hvetjum alla að koma á þessa
tónleika, hlýða á fallegan söng og
Elly Ameling ljóðasöngkona
komast í jólaskap um leið og gott
málefni er styrkt.
(Fróttatilkynning)