Morgunblaðið - 12.12.1990, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 12.12.1990, Qupperneq 30
30 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. DESEMBER 1990 Björn Engholm Þýskir jafnaðarmenn: Engholm nýtt leiðtogaefni Bonn. Reuter. yfir að hann gefi ekki kost á sér BJÖRN Engholm, forsætisráð- herra Slésvíkur-Holtsetalands, tilkynnti á mánudag að hann ætlaði að gefa kost á sér við formannskjör í flokknum í maí næstkomandi. Engholm gaf þessa yfirlýsingu eftir fund í flokksstjórninni þar sem ósigurinn í þingkosningunum 2. desember síðastliðinn var til umræðu. Hans-Jochen Vogel nú- verandi formaður hefur lýst því FELL Mosfellsbæ KF.Þ. Húsavík KF.B. Borgarnesi PERLA Akranesi EMBLA Hafnarfirði Schiesser® áfram eftir landsfund í maí. Einnig þykir sýnt að Oskar Lafontaine, forsætisráðherra Saarlands og mótframbjóðandi Helmuts Kohls kanslara, á ekki upp á pallborðið hjá kjósendum á landsvísu. Eng- holm sem þykir hafa mikla per- sónutöfra hefur fram til þess vísað á bug vangaveltum um að hann láti brátt til sín taka í landsmála- pólitíkinni. Þ.Þ0R0RÍMSS0N&C0 Ármúla 29, Reykjavík, sími 38640 Ottinn við ftóttamanna- straum að anstan vex Sovésk stjórnvöld hóta leynt og ljóst að opna ianda- mæri sín til þess að knýja á um matvælaaðstoð Vínarborg. Reuter. STJÓRNVÖLD víða í Vestur-Evrópu eru farin að búa sig undir flóðbylgju flóttamanna frá Sovétríkjunum og Austur- Evrópuríkjum. Sovésk stjórnvöld sem áratugum saman brugðust illa við kröfum að vestan um ferðafrelsi til lianda borgurum þeirra eru nú leynt og ljóst farin að hóta því að opna landamæri sín til þess að 'knýja á um matvælaaðstoð. Æðsta ráðið hefur ekki enn tekið ákvörðun um slíkt og eru uppi raddir innan þess um að fresta því fram á sumar. Erfitt er að spá um það hve mikill flóttamannastraumurinn verður. Sumir tala um 500.000 sovéska flóttamenn um leið og landamærin opnast og aðrir um allt að þtjár milljónir. Vaclav Havel forseti Tékkóslóvakíu seg- ist óttast að 17 milljónir manna flýi Sovétríkin eftir áramót. En þótt Sovétmönnum verði veitt ferðafrelsi er ekki þar með sagt að þeir komist svo auðveld- lega úr landi. Vestræn ríki gætu tekið upp á því að reisa nýja múra til að stemma stigu við straumnum. Pólveijar sem líklega yrðu hvað mest fyrir barðinu á flóttamannabylgjunni hafa þegar eflt landamæra- vörslu í austri til að vera við öllu búnir. Sömu sögu er að segja frá Finnlandi og Tékkósló- vakíu. „Það eru mörg ungmenni í Austur-Evrópu haldin þeirri ranghugmynd að rétturinn til að yfirgefa landið sé sá sami og rétturinn til að fá að fara inn í annað land;“ segir Jonas Wid- gren embættismaður hjá Flótta- mannastofnun Sameinuðu þjóð- anna. 1,3 milljónir manna fluttust frá Austur-Evrópu til Vestur- Evrópu árið 1989. Búist er við að fjöldinn á þessu ári verði svip- aður. Sérfræðingar segja að möguleikar fyrir flóttamenn á því að fá löglega vinnu séu litlir og Vestur-Evrópuríki eigi erfitt með að taka við fleirum. Tékkóslóvakía, Pólland og Ungveijaland munu fyrirsjáan- lega verða fyrst vör við flótta- mannastraum frá Sovétríkjun- um. Ráðamenn í þessum löndum bera sig illa vegna þess fjölda Rúmena sem flúið hefur land undanfama 11 mánuði og segj- ast ófærir um að taka á móti fjölda Sovétmanna. „Það er hægt að sjá fyrir sér svo hrika- legar aðstæður að flóttamanna- straumurinn breyti skilyrðum og eðli vestrænnar menningar,“ segir Jan Langos, innanríkisráð- herra Tékkóslóvakíu. Um 60.000 Rúmenar búa nú í örbirgð í Póllandi og hafa yfir- völd þar uppi áform um að vísa þeim úr landi. Tékkar og Ung- veijar ráðgera að setja upp flóttamannabúðir fyrir- Sovét- menn og telja að yfirgefnar búð- ir Rauða hersins gætu nýst til þess arna. Það er nú mikið hitaefni í austurrískum stjórnmálum hvað gera eigi við 7.000 Rúmena þar í landi sem ekki hafa enn fengið innflytjendaleyfi en sumir vilja vísa þeim á brott. Einnig hafa hermenn tekið sér stöðu á landa- mæranum við Ungverjaland og Tékkóslóvakíu til að halda flóttamönnum í burtu. Af Norðurlandaþjóðum er það að segja að Finnar hafa ákveðið að aflétta ekki skilyrðum um vegabréfsáritun Sovétmanna og ætia að taka slíkt upp að nýju gagnvart Búlgörum og Rúmen- um. Svíar hafa lýst því yfir að þeir taki ekki við fólki sem flýr Sovétríkin af efnahagsástæðum. Fólksflutninqar frá Austur-Evrónu 1.80.000 flóttamenn frá Júgóslavíu og Póllandi 2. 345.000 frá Austur- Þýskalandi 3. 365.000 frá A-Evrópu til Póllands 4.150.000 sovéskir gyðingar flytja til Israels 1990 5.17.000 6.380.000 7. Pólverjar innflytjendur afþýskum koma til uppruna Ungverja- flytja til lands Þýskalands irja kynnu aö neita 60 þús. Rúmenum um hæli 8. Austur- 9.160,000 ríkismenn Sovéskir senda e.t.v. gyðingar burt 7.000 flytja til Rúmena ísraels —■■Bf II iMI r Grrf GMD OG ÞJÓÐARSÁTTIN Úrval óborganlegra skopmynda PrenthúsiÖ Faxafeni 12, sími 678833
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.