Morgunblaðið - 12.12.1990, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. DESEMBER 1990
31
Reuter
35 bíða bana íbardaga í blökkumannahverfi
Stuðningsmenn Afríska þjóðarráðsins (ANC) bera burt lík félaga síns sem beið bana í átökum stuðnings-
manna ANC og farandverkamanna úr röðum zúlúmanna í blökkumannahverfinu Thokoza við Jóhannesar-
borg í gær. Að minnsta kosti 35 menn biðu bana í átökunum og 50 særðust. Mikil spenna ríkir milli fylk-
inga blökkumanna og voru átökin í Thokoza-hverfinu sögð hafa blossað skyndilega upp og að því er virtist
án tilefnis. Her- og lögregla skakkaði leikinn og jók síðan viðbúnað í hverfinu til þess að reyna að koma í
veg fyrir frekari bardaga.
Walesa ætlar að fórna
sér í þágii þjóðarinnar
Varsjá. Reuter.
LECH Walesa sór þess sárt í gær
og við lagði fyrir framan altari-
stöflunni um svörtu guðsmóður-
ina, þjóðargersemi Pólverja í
borginni Czestochowa, að gefa
sig óskiptan að forsetastarfinu
og fórna sér í þágu þjóðar sinnar.
Hann vann yfirburða sigur í for-
setakosningunum sl. sunnudag
og fór til Czestochowa til þess
að biðjast fyrir við helgiskrín
hinnar kaþólsku þjóðar þar.
Ferðabann hefur verið sett á
Stanislaw Tyminski, mótfram-
bjóðanda hans, vegna óhróðurs
sem hann er sagður hafa haft í
frammi í kosningabarátunni.
Tyminski hyggst halda úr landi
í dag.
Tyminski sagði blaðamönnum frá
því í gær að sér hefði borist stefna
frá saksóknara í borginni Nowy
Sacz í suðurhluta Póllands. Þar er
hann kvaddur til yfirheyrslna næst-
komandi mánudag. Hins vegar
sagðist hann engar upplýsingar
hafa fengið um að hann hefði verið
settur í ferðabann. Kvaðst hann
ætla heim til Kanada í dag en sagð-
ist reiðubúinn að snúa aftur til
Póllands um helgina til að mæta í
yfirheyrslu hjá yfirvöldum í Nowy
Sacz.
Tyminski er sakaður um að hafa
breitt út óhróður um ráðamenn er
hann sagði á kosningafundi í Nowy
Sacz að Tadeusz Mazowiecki for^
sætisráðherra væri landráðamaður.
Varðar það við lög frá 1932 og
verði hann sekur fundinn gæti hann
átt yfir höfði sér allt að átta ára
fangelsi. Gagnrýndi Tyminski þenn-
an málatilbúnað í gær og sagði það
skjóta skökku við ef hið nýfijálsa
ríki ætlaði að sækja sig til saka á
grundvelli lagabálks frá Stalínst-
ímanum fyrir verknað sem þætti
fyllilega eðlilegur í kosningabaráttu
í lýðræðisríkjum. „Verði hins vegar
lagst gegn því að ég fari úr landi
mun ég hlíta því þar sem ég er lög-
hlýðinn rnaður," sagði Tyminski.
Kosningasigur koiíimúnista í Serbíu:
Slóvenar taldir munu segja
sig lögum við Júgóslavíu
rrad. Reuter.
ENTUR sigur kommúnista,
i nefna sig sósíalista, í kosn-
m í Serbíu á sunnudaginn
linn auka líkurnar á að Sló-
3. og fleiri sambandsríki
i segja sig úr lögum við
Júgóslavíu. Leiðtogi sósíalista,
Slobodan Milosevic, fékk sam-
kvæmt fyrstu tölum rúm 60%
atkvæða í forsetakjöri og komm-
únistar meirihluta í mörgum
kjördæmum þegar í fyrri um-
Nýr sambandssáttmáli Sovétríkjanna:
Rússar setja skil-
yrði fyrir samþykkt
Moskvu. Reuter.
RÚSSNESKA þingið samþykkti í
gær tillögu þess efnis að Rússar
gangi til samninga og hugsanlegr-
ar undirritunar nýs sambandssátt-
mála fyrir sovéska ríkjasamband-
ið að uppfylltum ákveðnum skil-
yrðum.
Rússneska þingið setti það sem
skilyrði fyrir undirritun sáttmálans
að hann tryggði að sjálfsforræði
Rússlands og eigin stjórnarskrá lýð-
veldisins yrði virt. Flest sovésku lýð-
veldanna hafa sagt sáttmálann óað-
gengilegan óbreyttan og ristir þar
dýpst ágreiningur um einkavæðingu
og yfirráð yfir auðlindum.
Míkhaíl Gorbatsjov Sovétforseti
vill að lýðveldin undirriti sáttmálann
þegar í stað svo að hann geti stigið
næstu skref í átt til samræmds mark-
aðsbúskapar. Samkvæmt því samn-
ingsuppkasti sem fyrir liggur
Moskvustjórnin eiga síðasta orðið í
öllum málum.
Eystrasaltsríkin þijú og Georgía
hafa lýst yfir því að þau muni ekki
samþykkja sambandssáttmálann en
þau hafa krafist fulls sjálfstæðis.
Borís Jeltsín, forseti Rússlands,
gagnrýndi sovétstjórnina í rússneska
þinginu í gær fyrir að reyna knýja
sáttmálann í gegn fyrir áramót, sam-
kvæmt frásögn /níer/ax-fréttastof-
unnar. Núrsúltan Nazerbajev forseti
Kazakhstan gagnrýndi einnig hvern-
ig sovétstjórnin hefði haldið á málum
í sambandi við hinn nýja sambands-
sáttinála. Hann sagði á blaðamanna-
fundi í gær að fyrst hefði átt að fá
þingum lýðveldanna hann til umfjöll-
unar og samþykktar og síðan hefði
Moskvuvaldið átt að samþykkja
hann. I reynd hefði verið öfugt að
farið þar sem miðstýringarvaldið í
Moskvu hefði fyrst samþykkt hann
og ætlaði síðan ,að neyða hann
óbreyttann upp á lýðveldin. „Tilraun-
ir til að stjórna að ofan í þessu efni
munu ekki bera ávöxt," sagði Naz-
erbajev.
ferðinni en hin seinni verður 23.
desember. Milosevic hefur hald-
ið mjög á lofti herskárri þjóð-
ernisstefnu og sagt að komi til
klofnings muni Serbar krefjast
landsvæða er nú heyra til öðrum
sambandsríkjum.
Serbía er fjölmennasta sam-
bandsríkið og telja aðrar þjóðir
Júgóslavíu, einkum Slóvenar og
Króatar, sem eru næstfjölmennast-
ir, að Serbar vilji ráða lögum og
lofum í landinu. Einnig er ljóst að
Milosevic og stuðningsmenn hans
eru flestir mótfallnir því að skrefið
frá ríkisforsjá kommúnismans til
markaðsbúskapar og lýðræðis verði
stigið til fulls eins og ákveðið hefur
verið í Króatíu og Slóveníu. Kosn-
ingar voru einnig á sunnudaginn í'
Svartfjallalandi þar sem íbúar eru
flestir náskyldir Serbum og virðast
úrslitin hafa verið jafnvel enn þá
hagstæðari kommúnistum þar.
Helstu andstæðingar Milosevics,
annars vegar öfgafullur þjóðernis-
sinnaflokkur undir forystu Vuks
Drascovics og hins vegar Lýðræðis-
flokkurinn, sem er miðjuflokkur,
sökuðu stjórnarflokk Milosevics um
kosningasvik en erlendir stjórnar-
erindrekar vísuðu því á bug.
Áður hafa verið fijálsar kosning-
ar í hinum ríkjunum fjórum; Kró-
atíu, Slóveníu, Bosníu-Herzegóvínu
og Makedóníu og guldu kommún-
istar afhroð í þeim öllum. Stjórn-
málaskýrendur telja að margir
kjósendur hafi, óttast að sams kon-
ar upplausn og í ýmsum öðrum
A-Evrópuríkjum tæki við ef stjórn-
arandstæðingar sigruðu. Aðrir
benda á að Milosevic hafi höfðað
mjög til þjóðernisvitundar Serba
og þannig slegið að nokkru vopnin
úr höndum andstæðinganna. Lýð-
ræðisflokkurinn og flokkur Dras-
covics, er varð annar í fosretakjör-
inu, munu vinna saman í seinni
umferð kosninganna í Serbíu.
Reuter
Armand
Hammer
látinn
Bandaríski auðkýfingurinn Ar-
mand Hammer lést á mánudag
92 ára að aldri. Hammer sem
var aðaleigandi og stjórnar-
formaður olíufélagsins Occid-
ental Petroleum Corp. gat sér
einkum orð fyrir viðskipti við
Sovétríkin. Þar hefur hann alla
tíð verið í miklum metum og
verið kunningi flestra Sovétlei-
toga frá og með Lenín.
ERLENT
Öllwn vinum, kunningjum og œttmennum
mínum, sem heiðruðu mig á 70 ára afmceli
mínu, sendi ég mínar bestu þakkir og óskir
um gleðileg jól og farsœlt nýtt ár.
Garðar Þormar.
HREINT LOFTINNANHUSS
Nýja DAIM-ION jónatækið gefur frá sér 4.000 milljarða negatívra jóna á sekúndu, sem eyða allri
innanhússmengun í lofti þannig að hún fellurá gólfið. Eðlilegt jónajafnvægi kemst þannig á og
loftið verður ferskt og hreint á ný.
m
DAN-ION gerir daglegt líf þitt
heilbrigðara og þrifalegra:
DAN-ION kemur í veg fyrir eða dregur úr
óþægindum í sambandi við eftiríarandi:
• Tóbaksreyk • Sykurmaur
• Húsdýrahár • Ólykt
• Sveppagró • Terpentínulykt
• Húðflyksur • Stöðulegt rafmagn
• Gervitrefjar • Vefnaðartrefjar
• Plöntufrjóduft • Ofnæmisorsakir
• Gerla • Uppgufunúrmálningu
Sölustaðir: Breiðholts Apótek, Álftabaka 1 -4. — Fönix hf., Hátúni 6. — H. G. Guðjónsson, Stigahlíð 45-47. — Ljós og orka hf.,
Skeifunni 19. - Lyfjaberg Apótek, Hraunbergi 4. - Ingólfs Apótek, Kringlunni. - Rafbúð, Egilsgötu 3. - Rafbúð, Bildshöfða 16.
— Rafbúð Vesturbæjar hf., Hringbraut 121, — Rafvörur sf., Langholtsvegi 130. — Reykjavikur Apótek, Austurstræti 16. -
Raftækni sf, Brekkugötu 7, Akureyri. - Einar Guðfinnsson hf., Bolungarvík. - G.H. Ijós, Garðatorgi 3, Garðabæ.
• Áheimilinu
• ígistihúsum
• íiðnaðarhúsnæði
• íveitingahúsum
• Ábarnaheimilum
• í ráðstefnusölum
• I tölvuherbergjum
• ískrifstofum
• ískólum
• Áhvildarheimilum
• ígróðurhúsum
1. Húsið
(skápurinn)
2. Jónunarrifa
3. Gaumljós
4. 220V/240V
Tvöföld einangrun
DAN-ION
ersamþykkt af Rafmagnseftirliti ríkisins