Morgunblaðið - 12.12.1990, Qupperneq 38
38
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. DESEMBER 1990
Nýtt - Nýtt
Mjólkursamlag KEA:
Leikjatölva
Yffir 50
geróir af leikjum
Aulaiiiig í innvcgimii mjólk
upp á eina milljón lítra
PdDiOii
MUN MEIRI mjólk hefur borist Mjólkursamlagi KEA á þessu ári
miðað við það síðasta, en aukningin nemur 5,35%. Tekið hefur verið
á móti um milljón lítrum meira á fyrstu ellefu mánuðum þessa árs
en gert var á því síðasta. Síðustu tvo mánuði, október og nóvember
hefur einnig borist óvenjumikil mjólk til samlagsins.
Geislagötu 14,
600 Akureyri.
Sími 96-21300.
Hólmgeir Karlsson framleiðslu-
stjóri Mjólkursamlags KEA á Akur-
eyri sagðist telja að aukning innveg-
innar mjólkur á þessu ári mætti fyrst
og fremst rekja til þess að bændur
voru mjög hvattir til að auka fram-
leiðslu sína í kjölfar umræðna um
að upp gæti komið mjólkurskortur.
Þá hafi bændum einnig verið heimilt
að nýta 15% af kvóta yfírstandandi
ODYR JOLAGJOF!
I LEIT AÐ SANNLEIKANUM
Katie MacDonald rannsóknarblaðamanni var vel kunnugt um hættuna
sem fylgdi starfi sínu. Náinn vinur hennar Sam Bradford, sem hafði
sama starfa, lét lífið þegar hann var í þann mund að fletta ofan af miklu
hneykslismáli. Dauði hans var sagður slys, en Grant Elliot einkaspæjari
frá Chicago var á öðru máli.
Katie slóst í lið með hinum myndarlega einkaspæjara til að hjálpa hon-
um að sanna kenningu sína... en hún tók ekki persónuleg áhrif hans á
sig með í reikninginn. Brátt voru þau Grant flækt í net ástríðunnar og
banvænan svikavef að auki. En þá komst Katie að lygum Grant. Af
hverju hafði hann ekki sagt henni sannleikann, þegar hann vissi hvaða
hug hún hafði borið til Sam.
LIFSTIÐARDOMUR -- V ^
Linda Miller hafði aldrei kynnst raunverulegri skelfingu fyrren hún varð
vitni að moröi. Nú fylgdi skelfingin henni við hvert fótmál.
Tækist FBI manninum Michael Rosen að vama því að hún yrði myrt, var
næsta öruggt að framburður hennar yrði til þess að sakfelia einn vold-
ugasta glæpahöfðingja undirheimanna. En heill her leigumorðingja
fylgdi þeim hvert sem þau fóru, hvergi var í öruggt hús að venda og eng-
um manni að treysta.
Það var lán í óláni að Michael og Linda skyldu alltaf vera upp á kant inn-
byrðis, því meðan þannig stóð á gekk Linda þess dulin — um stUndar-
sakir — hve framtíðarhorfur hennar voru skuggalegar.
KRAFTAVERK
Sam Reese var á flótta. Hánn var að reyna að flýja þær byrðar sem
grimm örlög höfðu lagt á styrkar herðar hans. En þá rakst hann á Kate
Morgan. Hún var fögur, munúðarfull og ástrík. Hún var einmitt það sem
Sam þurfti mest á að halda, — og helst að flýja.
Kate veitti því eftirtekt að kynleg atvik tóku að eiga sér stað er Sam
skaut upp kollinum í litla sveitabænum þar sem hún bjó. Sár greru og
daufir tóku að heyra. Traustvekjandi návist Sams, innbyrgður kraftur,
voru líka sem smyrsl á hrjáða sál hennar.
Kate tókst það verk á hendur að sýna þessum ókunna manni, sem grætt
hafði kramiö hjarta hennar, að kraftaverkin yrðu ekki flúin, — né heldur
ástin.
1. hei,tfcí:i;
LEIÐIN HEIM
Líf Önnu Fitzgerald var í stöðúgri hættu. Að minnsta kosti ef einhver kæmist
að því að hún hét í raun og veru Roseanna Jensen. Á táningsaldri strauk hún
að heiman. Lífið á götunúm var verra en hana hafði órað fyrir. En hún hafði lifað
af og nú var hún orðin kona. Fullvaxin kona sem hafði þörf fyrir ástina. Bara ef
maöurinn sem hún elskaði og þarfnaðist hefði verið einhver annar en Grady
Clayton. Hann var allt of áberandi í samfélaginu og lagði sjálfan sig og frama
sinn á stjórnmálasviðinu i hættu með sambandi sínu við Önnu. Fortið hennar
gat auðveldlega varpað skugga og skömm á mannin sem hún unni.
Krista og Rosie. Tvær systur tengdar órjúfanlegum böndum þó að þær gætu
ekki verið saman. Hittast þær nokkurn tímann aftur?
2. bók afþremur um systurnar Kristu, Rosie og fóstursystur þeirra.
4 í pakka á kr. 1.750,-
■ ALLT STAKAR SÖGUR
ásútaáfan Glerárgötu 28 - 600 Akureyri - Sími 96-24966
verðlagsárs á því síðasta og það
hafi þeir gert í ríkum mæli. Taldi
Hólmgeir að ef 15% heimildin yrði
ekki við lýði á næsta ári myndi
eflaust fara svo að margir bændur
yrðu búnir með fullvirðisrétt sinn
snemma næsta sumar.
„Það má líka nefna í sambandi
við aukningu á innveginni mjólk, að
fóður er afar gott nú og einnig eru
aðstæður allar mjög ákjósanlegar,“
sagði Hólmgeir.
Mjólkursamlagið tók á móti
19.934.395 lítrum af mjólk á fyrstu
ellefu mánuðum ársins, en á sama
tíma á síðasta ári 18.917.638 lítrum,
eða um milljón lítrum meira. Heildar-
aukning mjólkur er 5,37% yfir.allt
tímabilið, en ef er litið til síðustu
tveggja mánaða er aukningin meiri
á milli mánaða. í október var tekið
á móti 9,3% meiri mjólk í samlaginu
en í október í fyrra og 7,3% meira
í nóvember miðað við sama mánuði
á síðasta ári.
Hólmgeir sagði að gerðir væru
undanrennuostar til útflutnings úr
allri umframmjólk, en úr þeirri mjólk
sem bændur framleiddu innan 15%
fullvirðisréttarins, sem færa mátti á
milli verðlagsára, eru gerðir feitir
ostar. Nokkru meiri birgðir eru til
af slíkum ostum en venja er og taldi
Hólmgeir ekki ólíklegt að eitthvað
af honum yrði flutt út.
Morgunblaðið/Trausti Þorsteinsson
Starfsmenn Sæplasts skoða fyrstu kúlurnar úr vélum fyrirtækisins
Framleiðsla hafinn á trollkúlum
Dalvík.
SÆPLAST hf. á Dalvík er nú að
hefja framleiðslu á trollkúlum í
verksmiðju sinni á Dalvík. Kúlur
þessar voru áður framleiddar af
Plasteinangrun á Akureyri, en
Sæplast keypti fyrirtækið fyrr á
þessu ári. Til að byrja með starf-
rækti Sæplast verksmiðju Plast-
einangrunar á Akureyri, en
ákveðið er að leggja starfsemina
þar niður og flytja hana til Dalvík-
ur.
Sprautusteypuvélarnar sem fram-
leiða kúlurnar voru fluttar til Dalvík-
ur í síðustu viku og hefur verið unn-
ið að því að setja þær upp í verk-
smiðju Sæplasts. Tvær vélanna eru
ekki nein léttavara, en þær vega um
30 tonn hvor um sig. Auk þeirra eru
svo nokkrar minni. Vélarnar eru al-
sjálfvirkar og þarf ekki marga starfs-
menn til að fylgjast með þeim. Steypa
þær hvorn helming kúlunnar fyrir
sig en þær eru síðan settar saman í
sérstakri vél. Vélarnar geta framleitt
margar gerðir af kúlum og ýmsar
stærðir. Mikil eftirspurn hefur verið
eftir trollkúlum og telja forsvars-
menn fyrirtækisins að möguleiki sé
á að auka verulega sölu á framleiðsl-
unni.
Stöðug aukning hefur verið hjá
fyrirtækinu í framleiðslu plastkerja
og bretta fyrir fiskiðnaðinn. Fram-
leiðslan hefur hlotið mikla viðurkenn-
ingu, en um 50% hennar fer til sölu
erlendis. Fyrirhugað er að auka sjálf-
virkni í framleiðslu keijanna og að
ná auknum afköstum.
Mikill uppgangur hefur verið hjá
Sæplasti á þessu ári og er ljóst að
hagnaður af rekstri félagsins er veru-
legur. í vor var Sæplast hf. gert að
almenningshlutafélagi og var hlutaf-
éð aukið í félaginu. Bréffn seldust
öll á góðu verði og mun gangverð
þeirra nú vera um sjöfalt nafnverð.
Fréttaritari.
■ KARLAKÓR Akureyrar,
Geysir, efnir til Luciuhátiðar í
Akureyrarkirkju, annað kvöld og
einnig á laugardagskvöld, 15. des-
ember. Luciuhátíðin hefst kl.
20.30 bæði kvöldin. Sigríður
Helga Agústsdóttir, sópran fer
með hlutverk Luciunnar og Oskar
Pétursson, tenór syngur einsöng.
Hljóðfæraleikarar eru Guðrún A.
Kristinsdóttir, píanó, Helga
Kvam, hljómborð og Jóhann Bald-
vinsson, orgel. Söngstjóri er Roar
Kvam, en gestir á Luciuhátíðinni
er Kór Lundarskóla ásamt Elín-
borgu Loftsdóttur söngstjóra.
■ HLJOMSVEITIN Súld heldur
útgáfutónleika á Uppanum í kvöld
og einnig annað kvöld og hefjast
tónleikarnir um kl. 22 bæði kvöldin.
Tilefni hljómleikanna er að kynna
nýútkominn geisladisk hljómsveit-
arinnar, Blindflug, en á honum eru
tíu lög eftir meðlimi hljómsveitar-
innar, en hana skipa þeir
Steingrímur Guðmundsson,
trommur, Lárus Grímsson, hljóm-
borð og flauta, Páll Pálsson, bassi,
Tryggvi Hiibner, gítar og Martin
Van der Valk, slagverk.
#\
ÚTGEFANDI: (SLENSK SPIL HF.
DREIFING: f^XTT
VERÐBREFASPILIÐ
^ T M SNJALLT SPIL FYRIR F<
F0RSJALT F0LK