Morgunblaðið - 12.12.1990, Qupperneq 40
40
MORGUtyBfcAÐIÐ; MIPVIKUDAGUR. 12, RKSKMBKR 1990
Risaskref fram á við
Hljómplötur
Árni Matthíasson
Það er eitt helsta undur síðari
tíma poppsögu hve Bubbi Mort-
hens hefur náð að halda vinsæld-
um sínum. Á þeim rúmu tíu árum
sem liðin eru síðan hann sendi
frá sér ísbjamarblús hefur hann
sent frá sér 25 breið-. og smásk-
ífur, sem selst hafa í vel á annað
hundrað þúsund eintökum. Ekki
er nóg með það, því 26. breiðsk-
ífan, Sögur af landi, sem hér
verður gerð að umtalsefni, hefur
þegar þetta birtist selst í yfír
7.000 eintökum og ævisaga
Bubba er söluhæsta bók jóla-
markaðarins.
Hljómplatan nýja, Sögur af
landi, skipar sér á bekk með
bestu plötum Bubba og á henni
stígur hann risaskref fram á við
í textagerð. Aðal bestu textanna
er að þeir segja sögu og draga
upp myndir nánast áreynslulaust,
þó sumstaðar sé formið full-
þröngt og rím langsótt og stirt.
Sem dæmi um afbragðstexta má
nefna Síðasta örninn, sem rekur
síðustu ár Einars Benediktsson-
ar, Synetu, sem rekur sjóslysið
átakanlega við Skrúðinn, Blóð-
bönd, Sú sem aldrei sefur, heim-
sóknina í hóruhúsið Gula flam-
ingóann. Fjólubiátt flauel, aftur
á móti, er texti sem hefði getað
ræst vel úr ef ekki væru þar fínna
línur eins og „I myrkinu augu
þín æla ljósi". Annar texti sem
ekki gengur upp, þar sem inni-
haldið ber formið ofurliði, er
Stúlkan sem starir á hafíð, „stór-
eyg, dáldið fött“. Þeir gallar sem
finna má með því að lesa textana
verða þó lítilvægir í samhengi
laganna, og Sögur af landi er í
raun afbragðs sungin ljóðabók.
Lagasmíðar eru sterkar á plöt-
unni og í heild er hún jafnbetri
en síðasta plata, Nóttin langa.
Rísa þar hæst áðurnefnd lög og
við þau má bæta Sonettunni sem
opnar plötuna.
Útsetningar á plötunni annast
Bubbi, Christian Falk og Hilmar
Örn Hilmarsson, þeir hinir sömu
og sáu um síðustu plötu. Þeir
hafa lagt til hliðar tölvutól að
mestu og halla sér meira að hefð-
bundinni hljóðfæraskipan en ná
þó að skapa sérstæðan blæ. Iðu-
lega er útsetningin þó nánast
hefðbundin, en þó bryddað upp
á ýmsu nýju, t.a.m. í uppafi Son-
nettunnar. í Gula flamingóanum
beita þeir snjöllum brögðum til
að ná fram stórskemmtilegum
New Orleans-blæ, með hálffölsk-
um blæstri og snjöllum bandeo-
neonleik. Eitt skemmtilegasta
Úti í heimi eru til svonefndar
hljóðverssveitir, þ.e. sveitir sem
sjást sjaldan á tónleikum, en lifa
frekar í hljóðveri og senda frá
sér glötur með reglulegu milli-
bili. íslenskur poppmarkaður er
það lítill að það er nánast ógjörn-
ingur fyrir tónlistarmenn að lifa
eingöngu af plötuútgáfu og ein-
um eða tvennum tónleikum á
ári. Þó eru alltaf nokkrar sveitir
og tónlistarmenn sem reyna fyrir
sér með slíkt og Possibillies er
meðal þeirra. Meðlimir sveitar-
innar, sem er í raun dúett Stef-
áns Hjörleifssonar og Jóns Ólafs-
sonar, hafa verið iðnir undanfar-
in ár í ýmsum sveitum, þeirra
helstri Bítlavinafélaginu, en hald-
ið lifandi hugarfóstri sínu, Possi-
billies. Sú sveit hefur þó ekki
sent frá sér nema eina breiðskífu
1985, að önnur plata sveitarinn-
ar, Töframaðurinn frá Ríga, kom
út fyrir stuttu.
Töframaðurinn frá Ríga
minnir um margt á fyrri plötu
þeirra Stefáns og Jóns, hlaðið
popp með íburðarmiklum útsetn-
ingum, sem þarf töluverðrar
hlustunar. Ekki launar sú hlustun
alltaf fyrir sig, því ekki er laust
við að hugmyndir á bak við sum
laganna séu full fátæklegar þeg-
ar komið er inn úr skrúðinu. Þó
eru góðir sprettir á plötunni, en
hennar helsti galli er hve yfir-
bragð hennar er líflaust. Ráða
þar nokkru textamir, sem ágæt-
lag plötunnar með epískum tre-
gatexta.
Ekki ætla ég mér þá spádóms-
gáfu að segja fyrir um það hven-
ær vinsældir Bubba dvíni, enda
hafa margir helstu poppfræðing-
ar landsins spáð því hvað eftir
annað að hann væri ioks búinn
að vera. Það virðist þó ljóst að á
meðan hann getur sent frá sér
aðrar eins gæðaplötur og Sögur
af landi á hann eftir að vera
fremstur allra á íslenskum popp-
markaði.
lega eru ortir, en þeir eru miklir
angurværðar úðartextar, „nýró-
mantík víðernanna" án lífsháska
og spennu: „Þegar löngum degi
hallar fer lífið sér með ró / og
lágar raddir fara að tala / um
það sem gerðist það sem ekki
varð / og það sem gerðist aldrei
nákvæmlega.“ Hér vantar aðeins
ljóðræna úð Arons Eilífs.
Þeir Possibillies-félagar hafa
farið þá skynsemdarleið að fá til
liðs við sig ýmsa söngvara og
skilar þáð bestu lögum plötunn-
ar, eins og t.a.m. Haltu fast, sem
Björn Friðbjömsson syngur eink-
ar skemmtilega, Er vegur, þar
Jóhanna Steinunn Hjálmtýsdóttir
fer ágætlega með klénan texta,
„Gúmmíið grætur burt /
gírstöngina / nú finna fætur /
fjörkippina", og Tunglið mitt sem
Stefán Hilmarsson syngur vel,
en Sigurður Bjóla nær ekki að
gæða lagið Enn lífí. Vert er að
geta lagsins Menn eru mæður
nætur, sem leynir á sér og fimmt-
ánda lag disksins kemur
skemmtilega á óvart. Allur frá-
gangur á plötunni er til fyrir-
myndar, hljóðblöndun afar góð
og hljóðfæraleikur almennt. Um-
slagið hefur ömgglega fælt frá
einhverja kaupendur.
Eitthvað segir mér að meira
en fimm ár eigi eftir að líða í
næstu plötu Possibillies, og full-
ástæða til, ef ekki er meira í
kúnni en það sem heyrist á Tö-
framanninum frá Ríga.
Nýrómantík
víðernanna
Skín við sólu
Skagafjörður
Oddur Björnsson
Ljómar heimur
Skagfirska söngsveitin
Skagfírska söngsveitin er mætt —
á nýrri hljómplötu, þeirri fimmtándu
í röðinni. Og nú er megináherslan
lögð á íslensk lög, þ. á m. eftir
skagfírsk tónskáld. Þessi ágæta
söngsveit hefur starfað í tuttugu
ár samfleytt, og mér er nær að
halda að hún hafí ekki verið betri
í annan tíma, og satt að segja vek-
ur það undrun hvað hún hefur á
að skipa ágætu söngfólki — eru
mér þá efst í huga einsöngvararnir
(Fríður Sigurðardóttir, Guðmundur
Sigurðsson, Halla S; Jónasdóttir,
H'reiðar Pálmason, Óskar Péturs-
son, Sigurður Steingrímsson og
Svanhildur Sveinbjörnsdóttir) sem
fram koma á þessari plötu. Staðfest-
ir það almannaróm að Skagfirðingar
séu söngmenn góðir engu síður en
hestamenn, og meðal annarra orða
— var Stefán Islandi ekki úr Skaga-
firðinum (nema hvað!), og hvað um
ættir og uppruna stórsöngvarans
Kristjáns Jóhannssonar? Það liggur
við, þegar maður heyrir í þessu
ágæta söngfólki, að maður freistist
til að álykta að þetta sé engin tilvilj-
un!
Þetta eru allt saman geðþekk
sönglög — og sum falleg, sungin á
„þjóðlega" vísu, þar á ég við að
sönggleðin ræður ríkjum, en
kannski í sumum tilvikum nokkuð
einhæft hraðaval, þar sem t.d. lag
og texti bjóða upp á meiri snerpu
og frískara tempó. Annars eru út-
setningarnar yfirleitt skemmtilegur,
og í tveimur lögum heyrist ágætur
trompetleikur (Gunnar Björn
Bjarnason) og óbóleikur (Guðrún
Másdóttir), og undirleikur Violetu
Smid er góður. Að lokum verður
Björgvin Þór Valdimarsson, stjórn-
andi kórsins, að fá sérstakt hrós —
áreiðanlega réttur maður á réttum
stað. Hljóðritun (gerð í Hafnarborg)
er góð, þótt hljómburður virðist
nokkuð yfirdrifinn — sem kannski
hentar þó ekki illa söng af þessu
tagi.
Nemendur ur Tonlistarskola Garðabæjar.
■ NEMENDUR Tónlistarskóla
Garðabæjar halda tónleika fyrir
Garðbæinga í dag, miðvikudag kl.
19.00 og á mánudaginn 17. des-
ember kl. 19.00. Tónleikarnir eru
haldnir í safnaðarheimilinu Kirkju-
hvoli í Garðabæ. Á tónleikunum
koma fram nemendur úr efri stigum
og syngja og leika saman á ýmis
hljóðfæri þekkt verk frá barokk-
tímanum til okkar daga. Einnig
verða leikjn jólalög og verk tengd
jólunum. Öllum er heimill ókeypis
aðgangur.
Verðbréfamarkaður á tímamótum
Ráðstefna
íA-sal Hótels Sögu kl. 161 dag
Kl. 16.00
Setning: Guðmundur H. Garðarsson, alþingismaður og
stjónarformaður Fjárfestingarféiags íslands hf.
Fundarstjóri: Þórður Magnússon, framkvæmdastjóri
fjármálasviðs Eimskips, stjórnarmaður í Frárfestingarfélagi
íslands hf. og stjórnarformaður Fjölþjóðasjóðsins.
Kl. 16.10
Skandinaviska Enskilda Banken og dótturfyrirtæki, skipulag og
starfssemi: Hugo af Petersens, framkvæmdastjóri Enskilda
Asset Management.
Kl. 16.25
Erlendir hlutabréfamarkaðir, 1920 -1990: Agnar Jón Ágústsson
hagfræðingur hjá Fjárfestingarfélagi íslands hf.
Kl. 16.40
Horfur á erlendum verðbréfamörkuðum: Davið Soden, yfirmaður
Norður-Ameríkudeildar Enskilda Asset Management.
Kl. 17.00
Lög og reglur um erlend verðbréfaviðskipti. Skattlagning
erlendra verðbréfa og kostnaður kaupenda:
Friðrik Jóhannsson, löggiltur endurskoðandi, forstjóri
Fjárfestingarfélags íslands.
Kl. 17.15
Frjálsar umræður.
(22?
FJÁRFESTINGARFÉLAG ÍSU\NDS HF.
HAFNARSTRÆTI 7,101 REYKJAVÍK. S. (91) 28566 • KRINGLUNNI. 103 REYKJAVÍK S. (91) 689700 • RAÐHÚSTORGI 3. 600 AKUREYRI S. (96) 11100