Morgunblaðið - 12.12.1990, Side 45

Morgunblaðið - 12.12.1990, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR12. DESEMBER-1990 v,i Þingrellir. Bandaríski herinn við lagnir kafbátavarna í Hvalfirði. djöfulgang, þrátt fyrir það að ver- öldin væri á öðrum endanum, stæði í ljósum logum, þrátt fyrir það ætlaði ég ekki að gefast upp fyrr en í fulla hnefana. Eins og allir aðrir hafði ég orðið a neita mér um alltof mikið vegna kring- umstæðna sem einn lítill einstakl- ingur hefur svo ótrúlega lítil áhrif á. En ég var ekki reiðubúinn að afneita sjálfum mér. Ég var ekki nógu hreinræktuð afurð fjölda- samfélags sem áttií stjóretyijöld um tilvistarforsendur mannlífsins til að standa eða falla eins og ein- hverjum öðrum þóknaðist. Ekki í einu og öllu. Ég var kvæntur maður. Ég átti ekki aðeins konu heima í Texas heldur líka ættingja og vini sem virtu mig. Með ærinni fyrirhöfn hafði ég getið mér orð og áunnið mér þjóðfélagsstöðu sem mér var annt um. En nú var það allt svo fjarlægt. Hér var ég. Á íslandi. Á yztu nöf. Líf mitt hafði umturnast rétt eins og veröldin og ég vissi ekki hvað biði mín. Á morgun gat ég sem hægast verið kominn í fremstu víglínu. Eins og hvert annað byssufóður, Ég viðurkenndi það hvorki fyrir sjálfum mér né öðrum, ekki þá. En ég var hrædd- ur. Ég get vel viðurkennt það núna: Af því að ég er orðinn svo gamall. Langt í burtu, hræddur, um- kringdur og þó einn. Og þá stend ég allt í einu frammi'fyrir ástinni, lífínu sjálfu. Þessum fögnuði sem fyllir mig og gerir mig sjálfan svo verðugan, svo dýrmætan, að ég sný vörn í sókn. Mer varð annt um að lifa. Eng- in uppgjöf og enginn lævís kvíði sem fylgdi mér eins og skuggi hveija stund. Hún var svo geislandi glöð og fögur. Full af því lífi sem mér fannst ég eiga rétt á að lifa. Hún var umkringd. Allir vildu eiga hana. Hún gat valið þann sem hún vildi. Hún valdi mig. Þar með var teningnum kastað. Upp kom sex_. Hæsti vimlingur í stöðunni. Ég var fertugur, hún þremur árum yngri. Hún heitir Guðlaug Sigurðardóttir og ég elska hana enn þrátt fyrir þær mótdrægu kringumstæður að hún skuli liggja á Elliheimilinu Grund, skammt frá Grímsstaðaholtinu þar sem Trípólíkampur stóð fyrir næstum hálfri öld, og að ég skuli eftir allt saman enn eiga heima í San Ántonio í Texas, í raðhúsinu þar sem Prospect-hæð þar sem ég lék mér í bernsku blasir við mér þegar ég lít út um stofugluggann. THOMSON *i\ HÁGÆÐA SJÓNVÖRP MIKIÐ ÚRVAL HAGSTÆÐ VERÐ iMS§S ^ SAMBANDSINS VIÐ MIKLAGARÐ SÍMAR 68 55 50 - 6812 66 KAUPSTADUR (MJÓDD 45 FRÁSAGNIR ÞEKKTRA MANNA ÆVIBROT efftir Dr. Gunnlaug Þórðorson Gunnlaugur hefur ávallt verið hress f fasi og talað tæpitungulaust I þessari bók kemur hann svo sannariega til dyranna eins og hann er klæddur. Rekinn úr skóla - Að upptifa dauðann - Ritari forseta íslands - Smiður á Lögbergi - Húðstrýktur fyrir kirkjudyrum. - Þetta eru nokkur lýsandi kaflaheiti sem segja meira en mörg orð um það hvers lesandinn má vænta. Fjöldi Ijósmynda prýðir bókina. A LANDAKOTI eftir Dr. Bjarna Jónsson yfirlækni Dr. Bjarni Jónsson var um áraraðir fremsti sérfræðingur islendinga í bæklunarsjúkdómum og meðferð höfuðslysa. Þetta er saga af merkri stofnun og liknarstarfi f nærri heila öld þar sem margir af fremstu læknum landsins koma við sögu. Bókina prýða 60 Ijósmyndir. SETBERG HVÍTA HÚSID / SÍA

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.