Morgunblaðið - 12.12.1990, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. DESEMBER 1990
49
Sérkennilegar
starfsaðferðir
Við viljum taka heils hugar undir
sjónarmið sem fram koma í grein
Svanfríðar Jónsdóttur, sem birtist í
blaðinu 27. nóv. sl.
Þar er að gefnu tilefni spurt hver
sé stefnan í menntun hjúkrunar-
fræðinga hér á landi. Eins og kunn-
ugt er var ákveðið fyrir nokkrum
árum að gera breytingar á hjúkr-
unarnámi og var þá Hjúkrunarskóii
íslands lagður af en námið vistað á
svonefndu háskólastigi.
Auðvitað breyttist starfið ekkert
við þessa ráðstöfun, enda lýtur það
sínum lögmálum um framþróun eins
og önnur störf burtséð frá því hvar
og hvernig staðið er að grunnnám-
inu; starfið hlýtur að móta námið
en námið ekki starfið.
Þeirri undarlegu bábilju hefur
verið haldið á lofti um nokkurt skeið
að hjúkrunarstarfið hafi eitthvað.
breyst í eðli sínu við það eitt að
grunnnámið var fært á háskólastig.
A þeim forsendum hafa sumir fyllst
mikilli hugulsemi gagnvart okkur
sem sóttum okkar nám eftir gömlu
aðferðinni, rokið upp til handa og
fóta og fundist það hin mesta nauð-
syn að við bættum tveggja ára
grunnnámi við okkar grunnnám og
því er þá gjarnan bætt við, að ef
við gerðum það ekki þá séum við
tæpast gjaldgengar og voðinn vís
fyrir stéttina.
Okkur finnst að nær væri að
meta að verðleikum þá menntun og
reynslu sem við höfum nú þegar
aflað okkur og betra væri að beina
kröftunum að því að efla sérnám
hjúkrunarfræðinga eftir grunnnám
og þá með alla hjúkrunarfræðinga
í huga.
Okkur er ekki kunnugt um að
nokkur stétt hafi fyrr látið sér detta
í hug að senda þá sem hafa lokið
fullgildu námi á sínum tíma til þess
að lesa það námsefni á skólabekk
sem kennt er hveiju sinni. Það væri
t.a.m. hláleg aðstaða sem upp kæmi
ef læknum með áralanga reynslu
væri boðið upp á setjast á ný í
læknadeildina með nemunum þar,
vegna þess að námsefnið er nú tals-
vert breytt frá því að þeir stunduðu
þar nám eða ef verkfræðingur sem
stjórnað hefur stórframkvæmdum
yrði að setjast aftur á skólabekk
með þeim sem eru að læra grund-
vallaratriði í fræðunum.
Auðvitað sjá allir að engum dett-
ur slík endaleysa í hug og hvers
vegna ættu þá hjúkrunarfræðingar
ein stétta að ástunda slíka flónsku.
Krafa tíinans hlýtur að vera sú
að gera okkur öllum auðveldara að
auka sérþekkingu okkar en ekki
leggja stein í götuna eins og
Svanfríður bendir réttilega á í grein
sinni. Það er að okkar dómi verð-
ugra viðfangsefni en að elta reynda
hjúkrunarfræðinga með námsefni
nemenda sem nú afla sér grunn-
menntunar i faginu.
Aslaug Hauksdóttir,
Bóthildur Steinþórsdóttir,
Ragnheiður Sigurðardóttir,
Kristín Viktorsdóttir,
Ingunn Ingvarsdóttir,
Helga Guðjónsdóttir,
Guðrún Þór
Sigríður Þorsteinsdóttir,
Anna Harðardóttir.
Greinarliöfundar eru ljósmæður
með iijúkrunarfræði sem
grunnnám.
Blómlegt starf Þjóð-
ræknisfélagsins
AÐALFUNDUR Þjóðræknisfé-
lags íslendinga var nýlega hald-
inn í Reykjavík. A fundinum kom
fram að starfsemi félagsins hefur
verið með miklum blóma að und-
anförnu og nær hún til íslend-
ingafélaga víða um heim og þús-
unda íslendinga, sem eru búsettir
erlendis.
Nú er undirbúningur að skrán-
ingu íslendinga erlendis á lokastigi
og er gert ráð fyrir að vinna við
það viðamikla verkefni heljist í byij-
un næsta árs. Hafin er gerð sjón-
varpsfréttaþátta sem eru sérstak-
lega ætlaðir íslendingum sem eru
búsettir erlendis og eru þeir gerðir
í samvinnu við Ríkisútvarpið-Sjón-
varp.
I ráði er að reisa íslenskan torfbæ
í Nýja íslandi í Kanada og standa
vonir til þess að framkvæmdir geti
hafist á næsta vori. í sumar komu
um tvö hundruð manns frá Kanada
og Bandaríkjunum til íslands og
annaðist Þjóðræknisfélagið að hluta
mótttöku þess hóps. í undirbúningi
er að halda ráðstefnu um þjóðrækn-
ismál með þátttöku fulltrúa íslend-
ingafélaga og verði hún snemma á
næsta ári.
Á árinu var undirritaður sérstak-
ur samstarfssamningur við Þjóð-
ræknisfélagið í Vesturheimi og er
ráðgert að gera fleiri slíka sam-
starfs- og þjónustusamninga við
önnur félagasamtök íslendinga
beggja vegna hafsins. Þjóðræknisfé-
lagið hefur annast miiligöngu fyrir
íslendingafélög, meðal annars í
sambandi við útvegun kynningar-'
efnis, skemmtikrafta, fyrirlesara
o.fl.
Stjórn Þjóðræknisfélagsins var
öll endurkjörin á aðalfundinum. Jón
Ásgeirsson er formaður og aðrir í
stjórn eru Kristbjörg Ágústsdóttir,
Jón Ármann Héðinsson, Baldvin
Jónsson og Teitur Lárusson. í vara-
stjórn eiga sæti Guðjón Einarsson,
Unnur Konráðsdóttir og Magnús
Siguijónsson. Skrifstofa félagsins
er í Hafnarstræti 20 í Reykjavík.
h ert alltof
i kflllfsri með Boíkerji
Pósts og símfl
Þú hríngir ur
tónvalssíma...
C
...og boöin birtast
á skiá boötœkisins
Þú kannast eflaust við hvað erfitt er að ná í
sumt fólk. Það er á þönum út um allan bæ,
% er »einhverstaóar í húsinu” en enginn veit
nákvæmlega hvar, eða það vinnur
í nýbyggingum eða annars staðar þar sem enginn sími er.
Þetta vandamál er auðleyst með Boðkerfi Pósts og síma.
Þú hringir bara í boðtæki þess sem þú vilt ná sambandi við
og á boðtækinu sér viðkomandi í hvaða símanúmer
hægt er að ná í þig. Einfalt, ekki satt?
Nú hafa boðtæki stórlækkað í verði þannig að
einstaklingar jafnt sem fyrirtæki geta auðveldlega
haft gagn af þessari nýju þjónustu.
BOÐKERR
PÓSTS OG SlMA
Kynntu þér kosti Boðkerfisins hjá söludeildum Pósts og
síma og á hjá öðrum seljendum boðtækja. Ef þú óskar
sendum við þér bækling heim endurgjaldslaust.
PÓSTUR OG SÍMI
Viö spörurn þér sporin
Gullfalleg listaverkabók og vönduð hljómplata
r ^, frá Sigfúsi Halldórssyni
REYKHOLT Faxafeni 12, sími 678833
I/