Morgunblaðið - 12.12.1990, Side 51

Morgunblaðið - 12.12.1990, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. DESEMBER 1990 51 MELISSA örbylgjuofn k, 16.995 NOVA djúpsteikingarpottar frákr. 8.200 KITCHEN AID hrærivélar k, 22.686 MARK vasadiskó frákr. 2.200 ^ SAMBANDSINS HOLTAGÖRÐUM SÍMI 68 55 50 VID MIKLAGARD og allir gáfu sig fram. Með Þor- steini fóru þeir Runólfur Sigurðsson flugvélstjóri, Einar Guðlaugsson flugmaður og kaþólskur prestur, séra Cunningham. Þeir tóku með tvær lestir af skreið. Þeir reyndu að ná fjarskiptasambandi við stöðv- ar í Biafra, en án árangurs. Þegar flugvélarnar fóru yfír radíóvitann stutt frá Uli var skotið á þær úr loftvarnabyssum. Áfram reyndu flugmennirnir að ná sambandi við landstöðvar. Allt í einu var svarað og nú á tíðni Uli-flugvallar. Þor- steinn var viss um að hafa áður heyrt rödd þess sem talaði og bað hann að gera grein fyrir sér. í ljós kom að þetta var yfirmaður stöðvar flughersins. Sá sagðist hafa þekkt rödd Þorsteins og vitað að hann væri flugstjórinn sem hefði flutt konu hans og börn til Sao Tomé nóttina áður. Hann sagðist vera á Uga-flugvelli sem væri í höndum Biaframanna og óhætt væri að lenda, en þeir ættu í basli með að koma dísilrafstöð í gang til að kveikja brautarljósin. Hann bað flugmenn að hinkra á meðan stöðin væri ræst. Svo kviknuðu brautar- ljósin og þeir lentu án tafar. Þegar þeir óku inn á flugvéla- stæðið sáu þeir hóp Biafrafólks á ýmsum aldri, en enga Evrópumenn. Þeir ákváðu þó að taka fólkið með, enda óvíst hvaða örlög biðu þess. Til öryggis voru báðir hreyflarnir hægra megin hafðir í gangi, en síðar kom í ljós að sú ákvörðun bjargaði lífí bæði áhafnar og flótta- fólks. Áhöfnin, ásamt prestinum, henti skreiðinni út og lét síðan stiga síga niður. Nú upphófst mikil bar- átta að komast um borð í flugvél- ina. Þvaga myndaðist og tafði fyr- ir. Séra Cunningham hafði reynt að koma á reglu, en án árangurs. Hann klæddi sig í hvíta hempu því hann ætlaði út úr flugvélinni. Hann tróðst á móti þvögunni og var kom- inn hálfa leið niður þegar skathríð hófst á flugvélina. Áhöfnin var öll aftur í þegar þetta gerðist. Þor- steinn flugstjóri sagði þeim Einari og Runólfi að fara strax fram í, þeir yrðu að komast burtu eins fljótt og auðið væri. Þegar Þorsteinn hljóp fram eftir flugvélinni fann hann púðurlykt. „Þeir eru þá svona nálægt, alveg á næstu grösum," hugsaði hann. Þeir komu sér í sæt- in og hlé varð á skothríðinni. Um leið og Þorsteinn settist tók hann hemlana af og flugvélin byijaði að renna í áttina að brautinni. Þor- steinn E. Jónsson segir frá: . „Við getum ekki verið nógsam- lega þakklátir yfír því hversu vel Runólfí gekk að ræsa vinstri hreyfl- ana. En nú byijaði skothríðin aftur og nú fyrir alvöru og virtist aðal- lega beint að stjórnklefanum, enda komu nokkrar kúlur inn til okkar og oft munaði mjóu. Ég var t.d. að leggja höndina á bensíngjöfina þegar hluti af einu handfanginu hvarf og ég fékk smáflís í höndina. Önnur kúla kom í rúðuna rétt við höfuðið á Einari. Og áfram skutu þeir á flugvélina, aðallega að fram- anverðu og á stjórnklefann. Allt í 'einu mundum við eftir hurð- inni, hún var opin. Einar bauðst til að fara aftur í og loka. Á meðan settist Runólfur í sæti hans. Einar komst aftur að dyrunum; þrátt fyr- ir að flugvélin væri komin á ferð hékk fólk enn í dyrunum, en ekki var um annað að gera en losa hend- ur þess til að geta lokað hurðinni. Við beygðum til hægri út á flug- brautina og hófum flugtakið við- stöðulaust. Gerðist þetta allt í svo miklum flýti að margt sem nauð- synlegt er að gera fyrir flugtak varð útundan. Við vorum t.d. komn- ir langleiðina niður eftir brautinni og flugvélin að nálgast flugtaks- hraða þegar Runólfur varð þess var að stýrislásarnir voru enn í sam- bandi og með snarræði sínu hefur hann vafalaust bjargað lífi okkar allra. Svo var vélin allt í einu komin í loftið og þá var eftir að komast að því hvort hún væri flughæf. Byijað var á að loka gluggum, stilla kæliblöðkur (á hreyflunum) og ýmislegt annað sem venjulega er gert fyrir flugtak. Einar og Runólf- ur fóru nú hvor í sitt sæti, en svo var farið að athuga mælitækin: Skyldi vera kominn hættulegur bensínleki? Eða olíuleki? Skyldu stýrisvírar eða stýrisfletir vera al- varlega skemmdir? Önnur framrúð- an var brotin eftir skothríðina svo við urðum að fljúga á lítilli ferð. Smám saman kom í ljós að flugvél- in myndi haldast á lofti og komast á leiðarenda. Þessir tveir ungu flugliðar, sem voru með inér í áhöfn, höfðu staðið sig með stökustu hugprýði við mjög erfiðar aðstæður og ég er stoltur af þeim. Aftur í var séra Cunning- ham önnum kafinn við að hlúa að þeim sem særst höfðu í skothríðinni og fékk hann vasahnífínn minn lán- aðan til að ná kúlu úr handlegg á manni. Þótt nokkrir hefðu særst var enginn í lífshættu. Sennilega vegna þess að flest fólkið var aftur í þeg- ar skothríðin hófst.“ Þeir Þorsteinn, Einar, og Runólf- ur komust farsællega til Sáo Tomé. Þetta var síðasta ferð hjálparflug- vélanna til Biafra sem gafst upp daginn eftir. ★ GBC-Pappirstætarar Þýsk framleiðsla Ýmsar stærðir og gerðir fáanlegar OTTO B. ARNAR HF. Skipholti 9-105 Reykjavík Símar 624631 / 624699 Bók sem lætur engan ósnortinn 3 ODYRASTIR ‘Þúert að verða ofseinn ef þú cetCar aðfá myncCa tö/qi oy myncCirfyrirjóC aCCt að verða uppyantað Ljósmyndastofan Mynd sími 5 42 07 Barna- og íjölskylduljósmyndir síml 1 26 44 Ljósmyndastofa Kópavogs sími 4 30 20 Lifðu er frásögn fjögurra barna móöur, sem veiktist af krabba- meini og hvernig hún öðlaðist styrk til að takast á við sjúkdóminn. Mari Lornér hefur tvisvar heimsótt ísland og talað á fundum um sorg og sorgarviðbrögð, haldið erindi fyrir hjúkrunarfólk og talað í kirkjum. Pöntunarsími (91) 25155 Spennusaga um baráttuna milli góðs og ills, myrkurs og Ijóss. Petta er sagan sem heldur þér við efnið frá fyrstu til sfðustu blaðsíðu. Baráttan við heimsdrottna myrkursins fellur vel inn f þá umræðu um dulræn fyrirbæri, andlega vakningu og nýja öld, sem hefur verið svoáberandi á Islandi undanfarið. Pessari bók sleppir þú ekki fyrr en þú. hefur lokið við að lesa hana. Spennubókin í ár! Hugljúfjólagjöj Sagan sem þú gefur —þegar þú vilt gteðja Ástin kemur segir frá lífi landnema ÍAmerfku á síðustu öld, starfi þeirra,sorgum, ástoggleði. Líkt og islensku Vesturfararnir á sinni tíð, er þetta fátækt fóik sem vinnur hörðum höndum við að sjá sér og sínum íarborða, en lífshamingja þess er bundin öðrum gæðum en þeim sem við eigum að venjast í dag. Þetta er frábærlega falleg ástarsaga, sem heldur athygli lesandans óskiptri írá byrjun til enda. Ástarsagan í ár! 1(91)25155

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.