Morgunblaðið - 12.12.1990, Qupperneq 63
MORGUNBLAÐIÐ iÞRamfkMntSsmm 12. DESEMBEli 1990
63
HANDKNATTLEIKUR / 1. DEILD
Furðuleg
Morgunblaðiö/Þorkell
ÍÞRÚmR
FOLK
■ ÞORGILS Óttar Mathiesen er
eini íslendingurinn sem var valinn
í Norðurlandaúrvalið í handknatt-
leik, sem leikur tvo leiki gegn
heimsliðinu í Svíþjóð og Noregi.
Alfreð Gislason leikur með heims-
liðinu.
■ KJARTAN Einarsson, mið-
herji KA, gekk frá félagaskiptum
til IBK í gærkvöldi.
■ SHEFFIELD Wednesday hef-
ur óskað eftir því við Everton að
félagið fái Norman Whiteside til
liðs við sig. Ef að því verður mun
félagið borga Everton vissa pen-
ingaupphæð fyrir hvern leik sem
hann leikur með félaginu.
■ SOUTHAMPTON borgaði met-
upphæð fyrir írska miðvallarspilar-
ann Alan McLoughlin í gær.
Félagið borgaði Swindon milljón
pund fyrir þennan 23 ára leikmann.
Swindon varð að selja hann, þar
sem félagið skuldar tvær millj.
punda.
■ KRISTO Stoichkov, leikmaður
Barcelona, var í gær dæmdur í
tveggja mánaða bann og 385 þús.
ísl. kr. sekt fyrir að hafa stigið á
tær dómara í leik gegn Real
Madrid. Johann Cruyff, þjálfari
félagins, fékk eins leiks bann og
55 þús. kr. sekt fyrir slæma hegðun.
■ NEIL Webb var rekinn af
leikvelli þegar B-landslið Englands
gerði jafntefli, 0:0, við Alsír í gær-
kvöldi í Aisír. Þá var Bryan Rob-
son, fyrirliði liðsins, bókaður.
■ ÞRJU ár eru liðin síðan enskur
landsliðsmaður - var rekinn af
leikvelli. Tony Cottee var rekinn
VÍKINGAR önduðu léttar eftir
I að þeir lögðu Selfyssinga að
velli ígærkvöldi. Staðan f leik-
hleí var 13:5 fyrir Víkinga en
| gestunum tókst að minnka
muninn í eitt mark. Víkingar
náðu síðan að rétta úr kútnum
á lokamínútum leiksins.
Þetta var ótrúlegt. Við virðumst
vera eitt af þeim fjölmörgu
íslensku liðum sem getum ekki
haldið forustu sem við höfum náð.
Þetta hefur átt við
landsliðið legni og
greinilega okkur
líka“, sagði Guð-
mundur Guðmunds-
son þjálfari Víkinga eftir leikinn.
læikurinn hófst með miklum lát-
Skúli Unnar
Sveinsson
skrífar
i ÚRSLIT
I Víkingur — Selfoss 24:20
' Laugardalshöll, íslandsmótið i handknatt-
leik, 1. deild karla — VÍS-keppnin — þriðju-
daginn 11. desember 1990.
I Gangur Ieiksins: 1:0, 2:2, 3:4, 13:4, 13:5,
13:7, 14:9, 16:10, 16:12, 18:14, 18:17,
20:19, 22:20, 24:20.
Mörk Vikings: Birgir Sigurðsson 9, Bjarki
Sigurðsson 6, Karl Þráinsson 3, Alexej Trúf-
an 3/1, Hilmar Sigurgislason 2, Árni Frið-
leifsson 1.
Varin skot: Hrafn Margeirsson 14/1, Reyn-
ir Þ. Reynisson 3.
Htan vallar: 10 mínútur.
Mörk Selfoss: Einar Guðmundsson 7,
Gústaf Bjamason 5/1, Sigurður Þórðarson
4, Stefán Halldórsson 2, Einar G. Sigurðs-
son 1, Siguijón Bjamason 1.
Varin skot: Gísli Felix Bjarnason 11/1.
Utan vallar: Enginn
Dómarar: Ámi Sverrisson og Gunnar
Kjartansson.
Áhorfendur: 111 greiddu aðgangseyri.
Knattspyrna
I UEF A-BIKARINN:
I RSeinni leikur í þriðju umferð:
Leverkusen, Þýskalandi:
Bayer Leverkusen—Brondby.......0:0
IÁhorfendur: 10.000.
■ Brondby vann samanlagt 3:0.
Mógakó:
L Mónakó - Torpedo Moskva..........1:2
Ramon Diaz (83.) - Yuri Tishkov (70.),
Alexander Gitselov (86.). 10.000.
■Torpedo vann samanlagt 4:2
VINÁTTULANDSLEIKUR:
Alsír:
Alsfr - England B.................0:0
SKOTLAND:
Dunfermline - St. Mirren..........0:0
1*Motherwell - Hibernian...........4:1
Birgir Sigurðsson skorar eitt af níu mörkum sínum gegn Selfyssingum.
um og réðu leikmenn ekki við hrað-
an. Víkingar náðu þó fljótlega tök-
um á leiknum. Þeir löguðu varnar-
leik sinn og breyttu stöðunni úr 3:4
í 13:4 á sextán mínútna kafla. Það
lá því vel á aðdáendum liðsins í leik-
hléi.
Með mikilii baráttu og greinileg-
um vilja til að sýna hvað þeir gætu
náðu Selfyssingar smátt og smátt
að minnka muninn. Þeir gátu þó
ekki knúið fram sigur, enda hefði
það verið ósanngjarnt. Víkingar
voru sterkari.
Hrafn Margeirsson varði vel og
þeir Birgir og Bjarki stóðu vel fyrir
sínu. Hilmar tók Einar Sigurðsson
úr umferð frá fyrstu mínútu og
gerði það vel. Hann riðlaði sóknar-
leik Selfyssinga ótrúlega mikið,
sérstáklega í fyrri hálfleik.
Einar Guðmundsson var at-
kvæðamestur gestanna og Gísli
Felix varði einnig ágætlega í fyrri
hálfleik.
Islandsmet
hjá Víkingum
Hafa unnið 19 deildarieiki í röð
Víkingur hefur unnið 19 leiki
í röð í deildarkeppninni í
handknattleik og er það íslands-
met. Liðið hefur unnið alla 16
leiki sína það sem af er þessu
íslandsmóti, auk þess sem það
vann síðustu þrjá leikina á síðasta
keppnistimabili, alls 19 leiki.
Keppnistímabilið 1979/1980
vann Víkingur alla leiki sína, eða
14 leiki, en þá vom 8 lið í 1.
deild: Árið á eftir gerði liðið jafn-
tefli við KA, 11:11, í 2. umferð
en árið á undan tapaði liðið fyrir
Val í síðasta leik. Víkingur vann
því 15 leiki í röð, sem var íslands-
met.
Valur tapaði aðeins einum leik
1988 gegn FH og var það tfyrri
umferð mótsins.
af leikvelli í leik með 21 árs lands-
liðinu í V-Þýskalandi. Þar á undan
var Ray Wilkins rekinn af leikvelli
í HM í Mexíkó 1986.
■ MICHEL Vautrot, sem kjörinn
var besti knattspyrnudómari heims
1988 og 1989, dæmir síðasta leik
sinn á morgun. Hann hyggst hætta
eftir viðureign Partizan Belgrad
og Inter Mílanó UEFA-keppninni
í Belgrad. Hann sagði í viðtali við
L’Equipe að dómarar hefðu legið
undir mikilli gagnrýni undanfarin
ár sem átti ekki rétt á sér. Hann
hefur dæmt tvívegis á HM, 1982
og 1990 og dæmdi úrslitaleik Evr-
ópukeppni landsliða 1988 er Hol-
lendingar sigruðu Sovétmenn.
Auk þess hefur hann dæmt 47 leiki
í Evrópukeppni félagsliða. Hann
sagði að versta minningin á ferlin-
um væri leikur Argentínu og
Kamerún í HM á Italíu er hann
gaf tveimur leikmönnum Kamerún
rauða spjaldið. „Ég fór eftir reglun-
um en það var ekki eins og ég vildi.“
KNATTSPYRNA / 1. DEILD
Þjálfarar velja
„lid ársins“
ÍÞRÓTTABLAÐIÐ fékk þjálfara
1. deildarliðanna í knattspyrnu
til að velja „lið ársins“ 1990.
Þetta er þriðja árið í röð sem
blaðið fær þjálfara í lið með
sér.
Sævar Jónsson, miðvörðurinn
sterki úr Val, var eini leikmað-
urinn sem fékk fullt hús atkvæða,
eða níu. Þjálfarar liðanna greiddu
sínum mönnum ekki atkvæði. „Lið
ársins" hjá íþróttablaðinu er þannig
skipað:
Markvörður:
Bjarni Sigurðsson, Val.........5
Varnarleikmenn:
Þorgrímur Þráinsson, Val........7
Jón Sveinsson, Fram.............4
Sævar Jónsson, Val..............9
Miðvallarspilarar:
Steinar Guðgeirsson, Fram.......6
Kristinn R. Jónsson, Fram.......5
Pétur Ormslev, Fram.............5
Rúnar Kristinsson, KR...........8
Hlynur Stefánsson, ÍBV..........5
Sóknarleikmenn:
Ragnar Margeirsson, KR..........7
Hörður Magnússon, FH............7
Aðrir leikmenn sem fengu atkvæði hjá
þjálfuruin voru:
Markverðir: Birkir Kristinsson, Fram 3,
Ólafur Gottskálksson, KR 2.
Vamarleikmenn: Kristján Jónsson, Fram
3, Luka Kostic, Þór 2, Helgi Björgvinsson,
Vlkingi 1, Sigui-ður Björgvinsson, KR 1.
Miðvallarspiiarar: Ormarr Örlygsson, KA
3, Aðalsteinn Aðalsteinsson, Víkingi, Ragn-
ar Gislason, Stjörnunni, Sveinbjörn Hákon-
arson, Stjörnunni og Ólafur Kristjánsson,
FH - tvö hver. Baldur Bragason, Val, Bald-
ur Bjarnason, Fram, Atli Helgason, Víkingi,
Hilmar Björnsson, KR, Pétur Arnþórsson,
Fram, Anton Markússon, Fram, Þorsteinn
Halldórsson, KR og Ingi Sigurðsson, ÍBV
- eitt hver.
Sóknarleikmenn: Jón Erling Ragnarsson,
Fram 4, Tómas Ingi Tómasson, ÍBV 3,
Andrej Jerina, ÍBV 2, Anthony Karl Greg-
ory, Val 1 og Pétur Pétursson, KR 1.
Þess má geta að þjálfararnir völdu Svein
Sveinsson, Fram, sem dómara ársins.
Sævar Jónsson fékk fullt hús at-
kvæða hjá þjálfurum 1. deildar.