Morgunblaðið - 19.12.1990, Síða 1
72 SIÐUR B
291. tbl. 78. árg.
MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 1990
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Atök á fulltrúaþinginu í Moskvu:
Ofstjórn Moskvu-
valdsins mótmælt
Fulltrúar frá Moldovu ganga af fundi
Moskvu. Reuter.
FULLTRÚÁR frá Mið-Asíulýðveldinu Úzbekístan og Moldovu réðust
harkalega á stefnu Míkhaíls S. Gorbatsjovs Sovétleiðtoga á fundi
fulltrúaþings Sovétríkjanna í gær. Moldovarnir gengu af fundi í
jnótmælaskyni við þá ákvörðun að fulltrúum minnihlutahópa í
Moldovu skyldi leyfð þingseta og forseti Úzbekístans sagði lands-
menn styðja kröfur nágranna sinna Kazhaka sem vísa á bug öllum
hugmyndum um skerðingu á völdum ríkisstjórna einstakra lýðvelda.
„Við erum að fara og komum
aldrei aftur,“ sagði Dúmítru
Matkovskíj, einn af fulltrúum
Moldova við fréttamenn. „Okkur et'
ekki leyft að útkljá fullveldismál
okkar. Við munum ekki undirrita
sambandssáttmálann, það kemur
ekki til mála núna,“ bætti hann
við. Minnihlutahópar Rússa og Gag-
auza í Moldovu hafa lýst yfir full-
veldi og kusu eigin fulltrúa á full-
trúaþingið í Moskvu. Um síðustu
heígi tóku 200.000 manns þátt í
mótmælaaðgerðum í Kíshínev, höf-
uðborg Moldovu, gegn tillögum
Sovétstjórnarinnar um nýjan sam-
bandssáttmála ríkisins; þess var
einnig krafist að engir Moldovar
tækju þátt í störfum fulltrúaþings-
ins í Moskvu.
Litháar sendu ekki fulltrúa til
Moskvu og auk þess hafa Lettar,
Eistlendingar og Georgíumenn sagt
að þeir muni ekki undirrita nýja
sáttmálann. í tillögum Sovétstjórn-
arinnar er að nafninu til gert ráð
fyrir að einstök lýðveldi fái aukið
vald í innanlandsmálum en jafn-
framt að Moskvustjórnin hafi
síðasta orðið. Gorbatsjov vill að
Pólland:
Olszewski
þjóðaratkvæði verði um tillöguna í
öllum lýðveldunum.
Forseti Kazakhstans, Nursultan
Nazarbajev, sagði í umræðum á
mánudag að lýðveldin ættu að
styrkja sambandið sín í milli áður
en þau hæfu samningaviðræður við
Moskvuvaldið um skiptingu valds.
Islam Karímov, forseti Úzbekístans,
fordæmdi í gær framferði Moskvu-
valdsins í lýðveldinu, sagði það
þjakað af mistökum í sambandi við
baðmullarrækt. Andstaða fulltrúa
Mið-Asíulýðveldanna er sögð mikið
áfall fyrir Gorbatsjov sem hefur átt
vísan stuðning meðal ráðamanna
þar.
Reuter
Auð sæti fulltrúa Moldova á fulltrúaþinginu í Moskvu í gær. Alls eiga um 2.200 manns að sitja þingið en
auk Moldovanna vantar þingmenn Litháens sem sögðust ekki vilja taka þátt í störfum erlends þings
og inættu ekki.
Bush segir engan árangur af tilraunum til að fá Iraka til friðarviðræðna:
Vonir um friðsamlega lausn
Persaflóadeilunnar dvína
Saddam segist hvergi fara frá Kúvæt fyrr en vandi Palestínumanna er leystur
Nikósíu. Brussel. Ankara. Reuter.
hættir stjórn-
armyndunar
Varsjá. Reuter.
JAN Olszewski kvaðst í gær hafa
hætt stjórnarmyndunarviðræð-
um vegna ágreinings við Lech
Walesa, nýkjörinn forseta Pól-
lands, sem hafði valið hann sem
næsta forsætisráðherra Pól-
lands.
„Vegna alvarlegs ágreinings á
milli mín og nýkjörins forseta um
hvernig ríkisstjórn
beri að rriynda hef
ég nú beðist undan
því að mynda nýja
stjórn,“ sagði
Olszewski og vildi
ekki greina nánar
frá ágreiningnum.
Olszewski er 60
ára gamall lög-
fræðingur, var
lengi veijandi and-
ófsmanna á valdatíma kommúnista
og ráðgjafi verkalýðshreyfingarinn-
ar Samstöðu er hún var stofnuð
1980. Walesa fól honum að mynda
nýja stjóm eftir afsögn Tadeusz
Mazowieckis forsætisráðherra, sem
beið ósigur fyrir Walesa og kaup-
sýslumanninum Stanislaw Tym-
inski í nýafstöðnum forsetakosning-
um.
VERULEGA þótti draga úr
möguleikum á friðsamlegri lausn
Persaflóadeilunnar í gær er ír-
akar hótuðu því að fara ekki fet
með innrásarher sinn frá Kúvæt
fyrr en lausn hefði verið fundin
á málum Palestínumanna. Enn-
fremur sagði Saddam Hussein
Iraksforseti í samtali við tyrk-
neska sjónvarpið, að tilgangs-
laust væri fyrir sig að senda
Tareq Aziz utanríkisráðherra til
fundar við George Bush Banda-
ríkjaforseta í Washington ef það
væri einungis ætlun Bush að Iesa
þar upp sainþykktir Öryggisráðs
Sameinuðu þjóðanna (SÞ).
í sjónvarpsviðtalinu sagði Sadd-
am að engra Ulslakana væri að
vænta af hálfu íraka í Kúvæt með-
an mál Palestínumanna væru
óleyst. Ekki hefur verið ljáð máls á
þeirri tilraun hans að tengja þessi
deilumál. í fyrrakvöld sagði Baker
að Saddam kynni að reyna að villa
fyrir og flækja deiluna um Kúvæt
með því að draga hluta innrásarliðs-
ins til baka skömmu fyrir 15. jan-
úar en þá rennur út frestur sem
SÞ hafa gefið þeim til að kalla lið
sitt heim. Eftir þann tíma hefur SÞ
heimilað að hej-valdi verði beitt til
þess að koma írökum frá landinu.
Utanríkisráðherrar Evrópu-
bandalagsríkjanna (EB) höfnuðu í
gær viðræðum við Aziz sem óskaði
eftir því sl. sunnudag að koma til
Rómar til viðræðna við fulltrúa EB
í þessari viku, en ítalir fara nú með
forystu í málum bandalagsins.
James Baker utanríkisráðherra
Bandaríkjanna hvatti ráðherrana
fyrr í gær til viðræðna við íraka
en þeir sögðust ekkert vilja við
Aziz tala fyrr en hann hefði farið
til fundar við Bush Bandaríkjafor-
Moskvu. Reuter.
LETTNESKIR embættismenn
héldu því fram í gær að harðlínu-
kommar og menn úr sovéska
hernum hefðu staðið fyrir
sprengjutilræðum á þremur stöð-
um í Ríga, höfuðborg Lettlands,
í fyrrinótt í þeim tilgangi að
gefa hernum ástæðu til þess að
hrifsa völdin í Eystrasaltsríkinu.
Sprengjur sprungu á þremur
stöðum í Ríga, við skrifstofuhús
einnar deildar lettneska kommún-
seta.
Bush sagðist í gærkvöldi vera í
sömu sporum og fyrir þremur mán-
uði er hann hóf tilraunir til þess
að fá ít'aka til beinna friðarvið-
ræðna. ítrekaði hann að afstaðan
til innrásar þeirra í Kúvæt væri
óbreytt. írakar yrðu að vera farnir
með hvern einasta hermann og her-
gögn sín frá landinu á miðnætti 15.
istaflokksins, við hús yfirmanns
sovéska hersins í borginni og við
Lenín-minnismerki. í síðustu viku
áttu samskonar sprengjutilræði sér
stað í borginni, m.a. nærri stöðvum
öryggislögreglunnar KGB og höf-
uðstöðvum lettneska kommúnista-
flokksins.
í yfirlýsingu sem skrifstofa lettn-
eskrar sendinefndar í Moskvu sendi
frá sér sagði, að tilræðin væru verk
afla sem andsnúin væru lettnesku
janúar ellegar kölluðu þeir yfir sig
að vera neyddir burt með hervaldi.
Roland Dumas. utanríkisráðherra
Frakklands sagði í gær að færu
írakar ekki frá Kúvæt á tilskildum
tíma yrðu átök ekki umflúin.
Saudi-Arabar hættu útflutningi
á flugvélabensíni og dísilolíu í gær
til þess að safna birgðurn vegna
hugsanlegra átaka í Kúvæt.
þjóðinni og tilraunum hennar til að
endurheimta sjálfstæði sitt. Emb-
ættismaður í Ríga sagði atburðina
minna á brunann í gamla þinghús-
inu í Berlín, Reichstag, árið 1933,
sem Adolf Hitler hefði notað sem
yfirskin til að láta handtaka
pólitíska andstæðinga, og á sviðsett
mannrán á sovéskum hermönnum
í Lettlandi sem Jósef Stalín notaði
sem tilefni til að innlima Eystra-
saltsríkin í Sovétríkin 1940.
Ols/.cwski
Lettneskir embættismenn um sprengjutilræði í Ríga:
Kommúnistar ætla
hernum að hrifsa völd