Morgunblaðið - 19.12.1990, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 19.12.1990, Qupperneq 11
11 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 1990 Vísindi alþýðunnar Bókmenntir Sigurjón Björnsson Islensk þjóðmenning VII Alþýðuvísindi Raunvisindi og dulfræði Ritstjóri: Frosti F. Johannsson Bókaútgáfan Þjóðsaga, Reykja- vík, 1990, 345 bls. Jafnt og þétt sígur áfram útgáfa hins mikla og einstæða ritverks, íslensk þjóðmenning. Eldhuginn Hafsteinn Guðmundsson útgefandi lætur hvergi deigan síga þótt aldur færist yfir og róður sé þungur og ritstjórinn, Frosti F. Jóhannsson, heldur fast um stjórnvöl og agar höfunda sína. Áreiðanlega veitir ekki af hvoru tveggju: eldhuga og aga. Þessi útgáfa hófst árið 1987 með fyrsta bindi ritverksins, Uppruni og umhverfi. Næsta bindi, það sjötta í ritröðinni, Munnmenntir og hók- menning, kom út árið eftir (1988), og í fyrra kom fimmta bindið, Trú- arhættir. nú birtist sjöunda bindið, Alþýðuvísindi. Eru þá eftir sex bindi, því að tíu verða þau alls. Ritið er þegar farið að slaga hátt í tvö þúsund blaðsíður og má því ætla að það verði nálægt fimm þúsundum blaðsíðna um það er iýk- ur. Alþýðuvísindi er styst þeirra rita sem út eru komin, enda höfundir fæstir, fimm talsins, nema í síðasta riti þar sem þeir voru einungis tveir. Hér skrifa: Árni Björnsson þjóð- háttafræðingur um Tímatal, Jon Hnefill Aðalsteinsson dósent um Spádóma, Jón Steffensen prófessor um Aiþýðulækningar, Páll Berg- þórsson veðurstofustjóri um Veður- spár og Þorsteinn Vilhjálmsson prófessor um Kaunvísindi á miðöid- um. Bersýnilega er valinn maður í hveiju rúmi enda bera ritgerðirnar þess merki. Þorsteinn fjallar aðallega um stjörnufræðilega og landfræðilega þekkingur fyrr á öld á öldum eink- um að því er viðvíkur siglingum manna yfir úthafið. Vikið er að tímatalsumbót Þorsteins surts og rannsóknum Stjörnu-Odda á gangi sólar. Meginefni ritgerðar Árna Björnssonar er um íslenskt tímatal og þróun þéss. Er það ýtarlegt og vandað yfirlit. Jón Steffensen grein- .ir frá helstu sjúkdómum sem hrjáð hafa íslendinga og lækningum á þeim. Er þar víða komið við og mikill fróðleikur saman dreginn. Jón Hnefill ijallar um helstu spá- dóma og greinir þá sundur í tegund- ir. Vitnar hann í mörg rit og tekur dæmi til skýringar. Þá er að lokum mikil ritgerð Páls Bergþórssonar um veðurspár. Fjallar hann þar um hvernig menn spáðu um veður af skýjafari og ýmsum öðrum fyrir- bærum (ljósfyrirbærum, veður- hljóðum o.fl.). Þessi grein er mikils- verð að því leyti að höfundur leitast ávallt við að reifa þau veðurfræði- legu rök sem að baki liggja. Er grein Páls frábærlega vönduð og skepmtileg aflestrar. Á undan ritgerðunum fer kynn- ing á höfundunum. Hver ritgerð hefst á efnisúrdrætti. Ritgerðirnar eru settar upp með svipuðum hætti. Blaðamaður á spretti, bankaræningi, morð Bókmenntir Jóhanna Kristjónsdóttir Leó E. Löve: Fórnarpeð Útg. ísafold 1990 Leó Löve sendi frá sér sína fyrstu bók í fyrra, spennusögu sem vakti töluverða athygli og fékk góða dóma. Hann lætur ekki deigan síga og sendir frá sér nýja bók og þar er nú aldeilis ekki lognmolla í kring- um neinn og margt að gerast. í upphafi er einhver þijótur að þjálfa fjóra unga pilta í að fram- fylgja skrítnum fyrirmælum, færa galókunnugum dömum blóm með dularfullum orðsendingum og margt fleira. Það gæti verið að það vaki fyrir.þessum dularfulla manni að gera sér piltana undirgefna eða hvað? Samtímis er blaðamaðurinn Logi leiddur til sögunnar. Hann vinnur á Morgunpóstinum og þar er fúll fíll fréttastjóri og eiginlega óskiljanlegt að svona vænn drengur eins og Logi skuli vinna á svona Bók um ÚT ER komin bókin Herstöðin, félagslegt umhverfi og íslenskt þjóðlíf eftir Friðrik Hauk Halls- son. í fréttatilkynningu segir að í bókinni séu helstu niðurstöður af Jólasýning í Gallerí Borg HENGDAR hafa verið upp í Gallerí Borg við Austurvöll myndir eftir Karólínu Lárusdótt- ur, Louisu Matthíasdóttir, Krist- ján Davíðsson og Erró. Þá eru í kjallaranum til sýnis og sölu úrval verka gömlu meistar- anna, þar má nefna Jóhannes S. Kjarval, Gunnlaug Blöndal, Jón Stefánsson, Kristínu Jónsdóttur, Ásgrím Jónsson, Þorvald Skúlason, Sigutjón Ólafsson, Snorra Arin- bjarnar, Gunnlaug Scheving og Jón Engilberts. Athylgi er vakin á því að Gallerí Borg er opið á Þorláksmessu frá kl. 14-22 og þá verður ijúkandi jólaglóð á boðstólum. (Fréttatilkynning) sorpblaði. Logi er hamingjusamlega giftur Sólveigu og tveggja barna faðir og auk þess að vera mikill og góður fjölskyldumaður er hann áhugamaður um fuglaskoðun. Einn daginn þegar hann liggur í leyni að leita eftir að taka upp sérstök fuglahljóð við styttu Jónasar í Hljómskálagarðinum berast önnur hljóð inn á bandið. Þar eru komnir' þeir Matthías alþingismaður og Jónas kvótasölustjóri og eru að leggja á ráðin um stórkostlegt svik- amál sem Logi skilur strax að kem- ur allri þjóðinni við og það verður að upplýsa hana um málið hið skjót- asta. Síðan er allt í einu framið banka- rán í Kópavogi og þar eru fimm menn að verki, allir eins klæddir, en það er greinilegt að höfuðpaur- inn hefur vélað piltana ijóra til að taka þátt í þessu og samviskan segir til sín og eftir að einn þeirra hefur setið inni gefa hinir sig fram og vantar nú ekkert nema aðal- glæponinn. En þá vantar að sönnu ansi mikið. herstöð mannvísindalégum rannsóknum höfundar. „Bókin fjallar um eitt vandmeð- farnasta og víðtækasta mál lýðveld- isins, herstöðvamálið; það snertir alla þætti daglegs lífs á Suðurnesj- um og þróun íslensks samfélags og ríkisvalds frá stríðsbyijum. Það er einnig alþjóðlegra en önnur deilu- mál, þar sem það er beinlínis tengt ástandi heimsmála. En eðli sínu samkvæmt snertir herstöðvarmálið einkum römmustu taug þjóðarinn- ar: Spurninguna um tilveru og til- gang hennar, sjálfskilning og af- komu, og er í þeim skilningi djúp- tækasta mál lýðveldisins. Það er loks lykillinn að sérstökum við- brögðum íslendinga við öðrum menningarheimi (og nýjum tímum) og þar með að sérkennum íslensks þjóðlífs," segir m.a. í kynningu. Höfundur bókarinnar er félags- fræðingur að mennt og hefur síð- astliðin tíu ár lagt stund á rann- sóknir, aðallega um íslensk málefni við háskólann í Bielefeld, Vestur- Þýskalandi. Bókin er 556 blaðsíður að stærð með 15 yfirlitstöflum. Hún er prent- uð í Bielefeld, Vestur-Þýskalandi. Útgefandi er forlag höfundanna, Akureyri. Leó Löve Á ritstjórnarskrifstofu Morgun- póstsins gerist Logi óþolinmóður yfir því að fíllinn fúli vill ekkert gera og kemur loks upp úr kafinu að hann hefur eyðilagt segulbands- upptökuna og það verður meiri háttar áfall fyrir Loga sem ákveður að fara á stúfana og afla sér sem gleggstra upplýsinga. En alls staðar er brugðið fyrir hann fæti. Og vel á minnst, eitt morð er framið og látið líta út sem sjálfsmorð rétt í leiðinni og það bendir flest til að Jónas kvótastjóri hafi skipulagt það enda er hann öllu meira illmenni en þingmaðurinn sem er bara dálít- ið spilltur og gráðugur en kannski besta skinn inn við beinið. Þegar Logi er síðan handtekinn og ákærður fyrir að vera bankaræn- ingi númer eitt fer fjörið svo endan- lega úr böndunum og verður ekki farið út í að rekja þráðinn eða rétt- ara sagt þræðina meira að sinni enda væri það að æra óstöðugan. ímyndunarafl höfundar er óbeisl- að svo að hann hleypur eiginlega út um of víðan völl. Plottin eru hreinlega of mörg og tekst ekki að spinna þræðina saman í lokin svo að útkoman verði sannfærandi og heilleg. Þó vottar fyrir persónusköp- un, m.a. í fúla fíl og Loga og alþing- ismaðurinn og kvótastjórinn eru haglega gerðar skissur líka. Frá- sagnargleði og hugmyndaflug er gott og gilt en samt verður að gæta hófs svo allt ruglist ekki út og suður. En ég gat skemmt mér yfir þess- ari sögu þó mér gremdist að Leó Löve skuli ekki h^fa vandað sig meira og valið úr. Hann hefur góða ritgáfu og skrifar fjörlegan stíl og hefur auga fyrir ýmsu smálegu sem skiptir máli. Hann ætti að nýta sér rithæfni sína betur en hér er gert. Hafsteinn Guðmundsson Gerð er grein fyrir heimildum og fyrri ritum. Meginmál er í nokkrum köflum með greinilegum millifyrir- sögnum og síðast eru lokaorð. Mik- ið myndefni fylgir: ljósmyndir, teikningar, töflur og línurit. Fylgir oft mikill texti. Á eftir ritgerðúnum fer efnismikill úrdráttur allra greina á ensku og að lokum koma skrár sem í þessu bindi eru um 60 bls. (Skrá um prentuð rit, óprentaðar Frosti F. Jóhannsson heimildir og heimildamenn; atriðis- orðaskrá; nafnaskrá), Þetta er svo sannarlega vandað og veglegt rit eins og hin fyrri. Hallast þar hvergi á: fræði- mennska, framsetning, frágangur og einstök smekkvísi í hvívetna. Vant er að sjá hvernig betur má gera. Þetta er rit sem maður hlakk- ar til að lesa vandlega þegar tóm gefst til. MYNDIR ÚR LMPÉTURS EGGERZ FYRRVERANDISENDIHERRA - GAMAN OG ALVARA PÉTUR EGGERZ Pétur Eggerz segir hér fyrst frá lífi sínu sem lítill drengur f Tjarnargötunni í Reykjavík, þegar samíelagið var mótað af allt öðrum viðhorfum en nú tíðkast. Síðan fjallar hann um það, er hann vex úr grasi, ákveður að nema lögfræði og fer til starfa í utanríkis- þjónustunni og gerist sendiherra. Pétur hef- ur kynnst miklum fjölda fólks, sem hann segir frá í þessari bók. Fyrri bækur Péturs Eggerz, Minningar ríkisstjórarítara og Létta Ieidin Ijúfa, vöktu mikla athygli á sínum tíma og urðu metsölu- bækuf. SKUGGSJÁ BÓKABÚÐ OLIVERS STEINS SF
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.