Morgunblaðið - 19.12.1990, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 1990
1
Himgrið er skipu-
lagt af kerfinu
Stærsta mafían er í Kreml
sig í núverandi sessi með aðstoð
hers og lögreglu. Ég heyrði það á
mörgum að hersveitirnar sem voru
dregnar til Moskvu í september
voru ekki þar til að stinga upp kart-
öflur, eins og sagt var. Þær eru enn
í borginni og meira er af herbílum
og slíku á götunum en nokkru sinni
fyrr.“
Illska og hatur út í stjórnvöld
„Það er óskapleg spenna í loft-
inu, fyrst og fremst reiði og von-
brigði, að ég segi ekki vonleysi,
yfir fólki. Við þær aðstæður getur
allt gerst. Fólkið er fullt af illsku
og hatri út í ríkjandi stjórnvöld,
ekki síst Gorbatsjov. Þeim sem hafa
skipulagt þetta hungur hefur tekist
að veita illsku fólksins yfir á hann
og þessa nýju stjórnarstefnu. Þótt
enginn segði það þá lá í loftinu hjá
sumum sem ég talaði við að það
„Það er mikið talað um mafíur
þarna. Menn sem selja vörur á göt-
um úti verða víst að greiða vemdar-
tolla til einhverrar mafíu. En kunn-
ingjar mínir hafa sagt við mig að
stærsta mafían sé í Kreml. Margt
af því sem mér var sagt frá virðist
ekki á færi hvers sem er. Heil naut-
gripahjörð á leið til slátrunar í
Moskvu hvarf úr járnbrautarlest.
Hræin fundust skotin úti í skógi.
800 þúsund tonn af hveiti voru
eyðilögð í Kazakstan með því að
láta ekki skera það í tæka tíð. Mér
er sagt að samyrkjubú í Lettlandi
hafi boðið fram vélar og mannafla
til að koma í veg fyrir að þessi
mikla uppskera eyðilegðist en því
var í engu svarað fyrr en allt var
komið í eindaga. Sú mafía sem
stendur á bak við slíka hluti er
auðvitað öflugri en venjulegur
glæpaflokkur. Þetta minnir á það
sem sagt hefur verið um hungurher-
ferð Stalíns í Úkraínu 1927. Ef
maður spyr sig: Hveijum kemur
þetta illa?,.þá er það fyrst og fremst
Gorbatsjov og þessari nýju stefnu.
Almenningur fyllist reiði og von-
leysi því menn vita að það er til
Ein hinna fögru kirkna í Sagorsk, sem Rögnvaldur kallar Skalholt
Rússlands.
- segir séra Rögnvaldur Finnboga-
son sem verið hefur tíður gestur í
Sovétríkjunum undanfarin ár
„ÞAÐ sem af er þessum vetri hefur veður verið milt og hvergi er
farið að sverfa að fólki nema í Volguhéruðunum, Sverdlovsk og
nágrenni. Það gerir enginn ráð fyrir því að 'menn falli úr hungri,
það þarf meira að koma til. Fólk þarna er svo vant harðrétti að það
reynir að búa sig undir það versta og margir Moskvubúar hafa reynt
að verða sér úti um landskika og ræktað þar garðávexti. Ástandið
er sagt vera miklu skárra úti á landi. Það eru fyrst og fremst
Moskva og Leningrad, sem hafa orðið fyrir barðinu á þessum skorti
lífsnauðsynja, þessu skipulagða hungri. Hungrið er skipulagt af
kerfinu, það er skipulagt að láta matinn hverfa á Ieið til Moskvu
og Leningrad. Þetta eru andbyltingaröfl sem eru að reyna að koma
Gorbatsjov fyrir kattarnef og ætla með stuðningi hers og lögreglu
að hverfa aftur til ógnarsljórnarinnar sem var.“
Þannig kemur ástandið í Sov-
étríkjunum nú séra Rögnvaldi Finn-
bogasyni fyrir sjónir. Hann er ný-
kominn úr 8. ferð sinni austur þang-
að á síðustu 6 árum.
nægur matur. Þeir sem græða eru
þeir sem vilja allar breytingar og
umbætur á braut. Þeir sem sjá
framtíð sinni ógnað og vilja tryggja
Kvikmyndagerðarmaðurinn Júlí Tsjerníatín afhendir séra Rögnvaldi
Finnbogasyni spólur með heimildarmynd sem þeir gerðu í félagi um
trúarlíf í Sovétríkjunum.
hefði verið betra hérna áður fyrr.
Aðrir, s.em sjá lengra, gera sér von-
ir um að þetta séu fæðingahríðir
nýrra tíma og ekki verði aftur snú-
ið.“
Séra Rögnvaldur hefur verið að
safna að sér efni í bók um kirkju-
starf og trúarlíf á þessum tímum í
Sovétríkjunum. „Erindi mitt núna
var fyrst og fremst að leita eftir
fersku efni til að nota í bók um
þennan tíma og sérstaklega kirkj-
una. Ég átti viðtöl við fjölda fólks,
innti það eftir afstöðu þess til kirkj-
unnar og trúmála yfirleitt, ekki
bara kristinnar kirkju heldur ann-
arra trúarbragða. Einnig fékk ég
tvo vini mína sem vinna við sjón-
varpið í Moskvu, annar sem kvik-
'myndaleikstjóri og hinn sem kvik-
myndatökumaður, til að hjálpa mér
að gera heimildarmynd um trúarlíf
í Moskvu. Það var mjög merkileg
reynsla."
Kröfuspjöld í stað helgimynda
„Minn áhugi á Sovétríkjunum er
ekki síst tengur orthodox-kirkjunni.
Þessi kirkja hefur sérstöðu um
marga hluti. Öll list Rússa er tengd
kirkjunni frá upphafi og fram til
þessa dags. Byltingin olli engum
skörpum skilum þrátt fyrir að henni
hafi verið stefnt gegnt öllu ríkjandi
þjóðskipulagi þá tók hún margt í
arf frá kirkjunni. 1. maí og 7. nóv-
ember-göngurnar eru framhald af
gömlu helgigöngunum þar sem
menn báru ekki rauða borða og
kröfuspjöld heldur helgimyndir,
íkona, og grafhýsi Leníns er eins
konar samnefnari allra helgiskrína
Rússlands. Ef þú kemur inn á hótel
eða í nútímabyggingar í Moskvu
sérðu víða í þakhvelfingum þessar
myndir sem þú finnur í kúpli allra
kirkna, nema þar kemur Lenín í
staðinn fyrir Krist og námumenn
og bændur með hamar og sigð í
stað fyrir helga menn með kross-
mark.
Ég fór meðal annars til Sagorsk
og Yolapolamsk, tveggja bæja norð-
an og vestan við Moskvu sem fræg-
ir eru vegna kirkna og klaustra.
Sagorsk er Skálholt Rússa. Ég á
rússneskan kunningja sem heitir
Petrím og er metrópólít eða næst-
æðsti maður rússnesku kirkjunnar,
og hann gerði allt sem hann gat
til að þetta yrði mögulegt. Við feng-
um til dæmis að kvikmynda helgi-
myndasafnið í Sagorsk, þar sem
alls ekki ej leyft að draga upp
myndavél. í Volapolamsk er verið
að byggja upp nýtt klaustur og þar
hefur verið komið upp ýmsum
stofnunum á vegum kirkjunnar til
dæmis barnaheimili þar sem börn
frá Ameríku og Evrópu dveljast
ásamt rússneskúm börnum og
kertasteypu sem á að sjá rússnesku
kirkjunni fyrir kertum og býflugna-
búi í tengslum við það. Það starf
miðast við að sjá öryrkjum úr
stríðinu í Afganistan fyrir starfi við
hæfi.“
Kirkjunnar bíða
ótrúleg verkefni
„Það er nýmæli að kirkjan geti
starfað að slíkum málum; hún er
T.S. Eliot.
Sverrir Hólmarsson
Eyðiland Eliots á íslensku
IÐUNN hefur gefið út ijóðabálkinn Eyðilandið eftir bandaríska skál-
djöfurinn T.S. Eliot í þýðingu Sverris Hólmarssonar.
í kynningu útgefanda segir:
„Þetta er það verk Nóbelskáldsins
sem mest jók hróður þess og varð
þegar við útkomuna afar umdeilt,
hneykslaði marga og heillaði aðra,
og er eitthvert þekktasta bókmennta-
verk síðari tíma á sviði ljóðlistar.
Eyðilandið eða The Waste Land
hefur haft meiri og langærri áhrif á
skáldskap nútímans en flest önnur
ljóð. Ljóðmál bálksins þykir einkar
margrætt og auðugt og skáldið seil-
ist víða til fanga í tíma og rúmi.
Ljóðunum fylgja athugagreinar
skáldsins, þar sem tilvísanir eru
skýrðar og raktar til bókmennta for-
tíðar og samtíðar.
Þýðing Sverris Hólmarssonar birt-
ist hér ásamt enskum frumtextum
Ijóðanna, auk þess sem Sverrir ritar
um skáldið og ljóð þess og gerir ítar-
lega grein fyrir hvorutveggja."
Bókin er prentuð í Odda hf.
Fyrsta hljómplata
Viðars Gumiarssonar
VAKA-HELGAFELL hefur gefið út geisladisk og hljómplötu með
söng Viðars Gunnarssonar óperusöngvara undir titlinum I fjarlægð.
Þar syngur Viðar fjölbreytt íslensk einsöngslög en Jónas Ingimundar-
son leikur á píanó.
Þetta er í fyrsta sinn sem Vaka-
Helgafell gefur út tónlist á hljóm-
plötum en fyrirtækið hefur til þessa
lagt áherslu á útgáfu bóka og tíma-
rita ásamt rekstri bókaklúbba.
Á plötunni flytja þeir Viðar og
Jónas 20 kunn íslensk einsöngslög
eftir mörg fremstu og þekktustu
tónskáld þjóðarinnar: Árna Björns-
son, Árna Thorsteinsson, Eyþór
Stefánsson, Karl 0. Runólfsson,
Markús Kristjánsson, Sigvalda
Kaldalóns og Sveinbjörn Svein-
bjömsson.
Meðal einsöngslaganna á plöt-
unni í fjarlægð má nefna Sverri
konung, Enn ertu fögur sem forð-
um, Nótt, Vorgyðjan kemur, Frið á
jörðu, Rósina, Bikarinn, Þótt þú
langfömll legðir og Ásareiðina.
Viðar Gunnarsson, bassasöngv-
ari, starfar nú sem ópemsöngvari
við Ríkisópemna í Wiesbaden í
Þýskalandi og er þar á samningi til
tveggja ára. Veturinn 1989 og 1990
var hann ráðinn hjá Kammeróper-
unni í Vínarborg og hlaut þar frá-
bærar viðtökur er hann söng hlut-
verk Sarastros í Töfraflautunni eftir
Mozart. Það hlutverk söng hann
einnig í óperuhúsi keisarahallarinn-
ar í Vínarborg síðastliðið sumar er
Töfraflautan var þar sett á svið.
Viðar stundaði söngmám við
Söngskólann í Reykjavík frá 1978
til 1981, þar sem Garðar Cortes var
aðalkennari hans. Að loknu 8. stigs
prófi fór hann til framhaldsnáms í
Svíþjóð þar sem hann dvaldist í þtjú
,ár og nam söng hjá dr. Folke og
Gunvor Sallström í Stokkhólmi. Þá
hefur Viðar notið handleiðslu Erik
Werba, Helene Karusso og Kastas
Paskalis á söngnámskeiðum.
Viðar Gunnarsson hefur haldið
sjálfstæða tónleika hér á landi og í
Svíþjóð. Hann hefur sungið með
Sinfóníuhljómsveit íslands, Islensku
hljómsveitinni og verið einsöngvari
með kórum hérlendis og erlendris.
Þá hefur hann sungið mörg óperu-
hlutverk hjá íslensku ópemnni þar
á meðal í Carmen, II Trovatore,
Aidu, Don Giovanni og Brúðkaupi
Fígarós. í Þjóðleikhúsinu hefur hann
farið með hutverk í óperunum
Viðar Gunnarsson óperusöngvari.
Grímudansleik, Tosca og Ævintýr-
um Hoffmanns.
Jónas Ingimundarson hefur hald-
ið ljölda einleikstónleika auk þess
sem hann hefur leikið með mörgum
söngvumm á tónleikum og hljóm-
plötum. Þá hefur hann leikið einleik
með Sinfóníuhljómsveit íslands og
komið fram víða erlendis sem píanó-
leikari og kórstjori.
Upptökustjórn og tæknivinnu við
þessa fyrstu plötu Viðars Gunnars-
sonar annaðist Bjami Rúnar Bjarna-
son, tónmeistari, en framleiðsla
geisladisks og plötu fór fram hjá
Sonopress í Þýskalandi. Dreifingu
annast Skífan. (Fréttatilkynning)