Morgunblaðið - 19.12.1990, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKÚDAGUR 19. DESEMBER 1990
29
Fjölbrautaskóli Suðurnesja:
41 nemandi brautskráð-
ur í lok haustannar
Keflavík.
FJÖLBRAUTASKÓLI Suðurnesja brautskráði 41 nemanda við
hátíðlega athöfn í Ytri-Njarðvíkurkirlyu á sunnudaginn. Hópurinn
skiptist í 19 stúdenta, 13 af vélstjórabraut fyrsta stigs, 5 af tveggja
ára braut, 3 af iðnbraut og einn af atvinnulífsbraut.
í máli Ægis Sigurðssonar að-
stoðarskólameistara um starfsemi
skólans í vetur kom fram að þungt
væri í kennurum vegna kjaramála
og þess hefði gætt í starfsemi
skólans. Hann sagði að í vetur
hefðu 581 nemandi stundað dag-
skóla, 13 í öldungadeild, 16 í flug-
liðadeild og 80 í námsflokkunum.
Ægir sagði að ýmsar nýungar
hefðu verið reyndar við skólann í
vetur og hefði flestar gefist vel
en aðrar þyrfti að skoða því nokk-
uð væri um að nemendur stunduðu
námið illa. Hann sagði að á vorönn
yrði hafin kennsla í netagerð og
nýtt tölvunet yrði tekið í notkun
eftir áramót.
Hjálmar Árnason skólameistari
sagði að frá upphafi hefði skólinn
brautskráð 1.439 nemendur og að
um 10% af öllum íbúum Suður-
nesja væru nú með skírteini frá
Fjölbrautaskóla Suðurnesja. í
ræðu sinni minnti Hjálmar fyrrver-
andi nemendur á að þekking feldi
í sér ótrúlegt afl og ætlast væri
til að því væri mildilega beitt. Þar
væri rétt að minna á systurnar
þijár: tillitssemi, umburðarlyndi
og ábyrgð.
Sex nemendur hlutu viðurkenn-
ingu fyrir góðan námsárangur.
Ketill Heiðar Guðmundsson fyrir
árangur í stærðfræði og raun-
greinum, Þórdís Árný Siguijóns-
dóttir fyrir viðskiptagreinar, Bald-
vin Sigurðsson af vélstjórabraut,
Pétur Gauti Valgeirsson fyrir
námsárangur, Guðmundur Helga-
son í frönsku og Daníel Guðbjarts-
son fyrir glæsilegan árangur í
landskeppni í stærðfræði en Dan-
íel brautskráðist ekki nú. Við at-
höfnina lék Bjöllukórinn úr Garði
undir stjórn Mínervu Haraldsdótt-
ur.
BB
Sunnlensk
sveitarfélög:
Fjórðungn-
um veitir ekki
af samstöðu
, Self^si.
ÚRSÖGN Vestmanneyinga
úr Samtökum sunnlenskra
sveitarfélaga og Atvinnuþró-
unársjóði Suðurlands var
rædd á stjórnarfundi sam-
lakanna á mánudag, 17.
desember.
Stjórn SASS samþykkti eft-
irfarandi ályktun á fundinum:
„Stjórn SASS harmar að sveit-
arstjórnir í Suðurlandskjör-
dæmi skuli ekki bera gæfu til
að starfa saman sem ein heild
þar sem fjórðungnum veitir
ekki af allri hugsanlegri sam-
stöðu til að gæta hagsmuna
sinna. Jafnframt þakkar stjórn-
in Vestmanneyingum gott sam-
starf á liðnum árum.“
Stjórnin fól formanni og
framkvæmdastjóra SASS að
kalla fulltrúaráð samtakanna
saman til fundar við fyrsta
tækifæri til að ræða stöðu sam-
takanna í Ijósi breyttra að-
stæðna. Gert er ráð fyrir að sá
fundur verði í byijun janúar.
- Sig. Jóns.
Stjórn Dagsbrúnar:
Varað við afleiðing-
um iðgjaldahækkunar
STJÓRN Verkamannafélagsins
Dagsbrúnar hefur ályktað
vegna fyrirhugaðrar hækkunar
Sjóvá-Almennra á iðgjöldum
húseigendatryggingar. I álykt-
uninni segir að þessi ákvörðun
sé í andstöðu við markmið gild-
andi kjarasamninga og varar
stjórnin við afleiðingum þessar-
ar hækkunar.
í ályktuninni segir: „Stjórn
Verkamannafélagsins Dagsbrúnar
lýsir furðu sinni á þeirri ákvörðun
Sjóvá-Almennra að hækka iðgjöld
fyrir næsta tryggingatímabil um
50% fyrir húseigendatiyggingar.
Stjórnin bendir á að þessi
ákvörðun er í beinni andstöðu við
markmið gildandi kjarasamninga
og stríðir gegn þeim áformum allra
ábyrgra aðila að skapa hér þjóðfé-
lag stöðugleika. Stjórn Dagsbrún-
ar minnir á að hlutabréf í Sjóvá-
Almennum eru nú seld á nærri
sjöföldu nafnverði á verðbréfa-
mörkuðum og fyrirtækið rekið
með miklum gróða.
Ef auðugustu fyrirtæki í
landinu ætla að fara að hækka
gjöld sín um 50% á sama tíma og
kaup verkamanna hækkar ekki þá
er þetta hnefahögg og ögrun við
almenning í landinu.
Stjórn Dagsbrúnar skorar á
Sjóvá-Almennar að falla frá fyrir-
hugaðri hækkun og varar við af-
leiðingum þess, verði svo ekki
gert.“
----*-*-*---
Sj ó vá-Almennar:
VMSÍ mótmælir
fyrirhuguðum
hækkunum
FRAMKVÆMDASTJÓRN Verka-
mannasambands Islands sam-
þykkti einróma á fundi 14. des-
ember sl. að mótmæla harðlega
fyrirhugaðri 50% hækkun Sjóvá-
Álmennra á iðgjöldum húseigend-
atryggingar.
„Framkvæmdastjórn VMSÍ mót-
mælir harðlega þeirri ákvörðun Hús-
eigendatryggingar Sjóvá-Almennra
að hækka iðgjöld fyrir næsta trygg-
ingatímabil um 50%. Framkvæmda-
stjórnin telur þessa ákvörðun í beinni
andstöðu við markmið gildandi kjara-
samninga og stríða gegn þeim
áformum allra ábyrgra aðila að
skapa hér þjóðfélag stöðugleika og
forða sveiflum í verðlagi.
Framkvæmdastjórnin minnir á að
hlutabréf Sjóvá-Álmennra eru nú
seld á einna hæstu verði, enda fyrir-
tækið rekið með miklum hagnaði.
Framkvæmdastjórnin skorar á
Tryggingaeftirlit ríkisins að sam-
þykkja ekki þessa hækkun iðgjalda,"
segir í ályktun framkvæmdastjórnar
VMSÍ.
Nýstúdentar frá Fjölbrautaskóla Suðurnesja voru 19 að þessu sinni. Morgunblaðið/Björn Blöndal