Morgunblaðið - 19.12.1990, Page 36

Morgunblaðið - 19.12.1990, Page 36
36 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 1990 Morgunblaðið/Karl Sigurgeirsson Endastakkst á Holtavörðuheiði Vöruflutningabifreið úr Fljótum í Skagafirði rann útaf veginum og endastakkst norðan til í Holta- vörðuheiði síðdegis á mánudag. Bílstjórinn var að forða árekstri, en fólksbifreið hafði stansað á miðj- um veginum vegna dimmviðris. Má teljast heppni að ökumaðurinn, Jón- mundur Pálsson, skyldi sleppa óskaddaður frá óhappi þessu, því ökumannshús bíisins lagðist saman. Strand Erlings KE 45 við Hornafjarðarós: Skipstjórinn taldi sig vera 0,4 sjómíl- ur frá Borgarboða Keflavík. SKIPSTJÓRINN á Erlingi KE 45 sem steytti á Borgarboða við Horna- fjarðarós og sökk þriðjudaginn II. desember taldi sig hafa verið um 0,4 sjómílur frá boðanum þegar báturinn steytti á honum. Þetta kom fram við sjópróf hjá bæjarfógetanum í Keflavík í gær. Þar kom fram að Erling KE 45, sem var 328 lesta stálskip, sigldi með 8-9 sjómilna hraða þegar hann strandaði. Um borð í Erlingi voru 13 skipveijar sem fóru í tvo gúmmíbáta og var bjargað um borð í Þorstein GK 16 frá Grindavík. Skipstjórinn á Þorsteini GK kom ásamt fyrsta stýrimanni sem kom einnig fyrir sjóréttinn og skýrði upp í brú í sömu svifum. Tvö ólög hann frá því að nokkrum dögum riðu yfir bátinn sem brutu hurð á áður hefði hann kastað á síldartorfu stýrishúsi og mikill leki kom að skammt frá boðanum og þegar þeir honum í vélarrúmi. Vélstjórarnir hefðu verið að draga nótina hefði keyrðu lensudælur með mestu hann séð ólag við bátinn. Hann mögulegum afköstum, en þær hefði þá gert staðarákvörðun með höfðu ekki undan lekanum og fljót- lóran og radar og fengið aðrar nið- lega drapst á aðalvél og ljósavél. urstöður en sjókortið sýndi. Hann Fram kom að greiðlega hefði geng- hefði síðar rætt við skipstjóra á ið að ná og komast í flotgallana sem Homafjarðarbátunum Sigurði Þor- voru geymdir í klefa á aðaldekki. leifssyni, Skinney og Vísi og hefðu Einnig kom fram að skipstjórinn á þeir fengið svipaðar niðurstöður Erling et' þaulvanur skipstjórnar- með sínum tækjum. maður með 27 ára reynslu að baki Við sjóprófin kom fram að skip- og vel kunnur strandlengjunni fyrir stjóri og annar vélstjóri voru í austan. brúnni þegar báturinn strandaði BB TVær stúlkur slösuðust TVÆR stúlkur voru fluttar á er af gerðinni Ford Fiesta, hafnaði sjúkrahús eftir að bíll valt við Arn- í skurði, sem skilur að akbrautir arneshæð síðdegis í gær. Nokkur fyrir umferð í gagnstæðar áttir, og hálka var þegar slysið varð. Það valt. Meiðsli stúlknanna voru ekki varð með þeim hætti að bíllinn, sem talin alvarleg, að sögn lögreglu. Umræður í neðri deild: Ágreiningfur stjórnarliða um frumvarp um tryggingagjald ÓLAFUR Ragnar Grímsson fjár- málaráðherra mælti í gær fyrir frumvarpi um sérstakt trygginga- gjald. Það er ljóst að ekki er enn full samstaða um frumvarpið inn- an ríkisstjórnarflokkanna. Páll Pétursson segir frumvarpið í nú- verandi mynd ekki alveg það, sem um hafi verið samið. Frumvarpið gerir ráð fyrir sér- stöku tryggingagjaldi sem komi í stað fimm mismunandi gjalda sem lögð hafa verið á fyrirtæki; komi í stað launaskatts, lífeyristrygginga- gjalds, slysatryggingagjalds, vinnu- eftirlitsgjalds og iðngjalds í Atvinnu- leysistryggingasjóð. í frumvarpinu kemur fram að Atvinnuleysistryggingasjóður fær í sinn hlut sem nemur 0,15% af gjald- stofni og Vinnueftirlit ríkisins sem nemur allt að 0,08% af gjaldstofni og skuli þetta hlutfall ákveðið fyrir eitt ár í senn með reglugerð sem félagsmálaráðuneyti setji. Tekjum af tryggingargjaldinu umfram fyrr- greint skal varið til að fjármagna lífeyris- og slysatryggingar almanna- trygginga. Um hlutdeild opinberra byggingasjóða í tryggingagjaldi færi eftir ákvæðum laga um Húsnæði- stofnun ríkisins og ákvæðum láns- fjárlaga og fjárlaga hveiju sinni. Tryggingagjaldið skal nema 4,25% af gjaldstofni en í frumvarpinu eru brábirgðaákvæði sem kveða á um að við innheimtu á árinu 1991 og álagningu 1992 skuli trygginga- gjaldið vera 6% af gjaidstofni og af sérstökum. gjaldflokki skuli gjaldið vera 2,5%. Við innheimtu á árinu 1992 og álagningu 1993 skal trygg- ingagjaldið í almennum gjaldflokki vera 4,75% af gjaldstofni og 3,75% í sérstökum gjaldflokki. Þessi ákvæði eru til þess að gefa þeim atvinnu- greinum þar sem skattbyrði af launa- tengdum gjöldum eykst nokkurn aðlögunartíma, s.s. í landbúnaði og fiskvinnslu. Ætlað er að tekjur ríkissjóðs auk- ist um 500 milljónir króna við gjald- töku þessa. Á undan áætlun Tryggingagjaldið var 3. mál á dagskrá 27. fundar neðri deildar í gær. — En það komst ótvírætt fyrr á dagskrá. Friðrik Sophusson (S- Rv) kvaddi sér hljóðs til að ræða þingsköp. Hann greindi frá því að stjórnarandstaðan í fjárhags- og við- skiptanefnd hefði verið einstaklega fús til samstarfs um skjóta af- greiðslu þessa máls, hefði þetta mál verið til umfjöllunar í nefndinni áður en það hefði verið lagt fram í þing- inu og komið til nefndar. Friðrik taldi aðfinnsluvert hve seint ríkisstjórnin hefði lagt þetta frumvatp fram og skammur tími gefíst til að fjalla um það. Friðrik þótti furðu gegna að nú hefði Páll Pétursson formaður fjárhags- og við- skiptanefndar upplýst að ekki væri fullur einhugur um þetta frumvarp í ríkisstjórnihni. Sjávarútvegsráð- herra hefði ekki viðurkennt frum- -varpið í þessum búningi og ekki kannast við að gjaldið ætti að jafn- ast milli greinanna. Friðrik sagði að varla væri hægt að vinna að þessu frumvarpi fyrr en úr því fengist skor- ið hvernig frumvarpið ætti að vera. Af þessum ágreiningi leiddi að frum- varpið fengist varla afgreitt fyrir jól. Ólafur Ragnar Grímsson fjár- málaráðherra greindi frá því að frumvarpið væri samhljóða áliti nefndar um skattlagningu fyrirtækja og einnig verið til umræðu í sérs- takri ráðherranefnd og verið kynnt í þingflokkunum ríkisstjórnar. Þetta væri ljóslega stjórnarfrumvarp. Ræðumaður greindi einnig frá því að upphaflega hefði verið rætt um að tengja þær breytingar sem i frum- varpinu fælust við breytirtgu; endur- skoðun á aðstöðugjaldi en unnið •væri að þeirri endurskoðun í sam- vinnu við Samband íslenskra sveitar- félaga. E.t.v. ætti að tengja þessa áfanga um jöfnun tryggingagjaidsins við breytingar á aðstöðugjaldinú og þess vegna ætti ekki að orða þessa áfþnga eins og gert væri í frumvarp- inu heldur tengja við þá vinnu sem væri framundan við aðstöðugjaldið. Eðlilegt væri að málið færi til fjár- hags- og viðskiptanefndar og yrði rætt þar í samræmi við venjulegar venjur. Fjármálaráðherra sagði að flestir forystumenn þeirra megin- samtaka atvinnulífsins sem við hefði verið talað hefðu lýst sig fyigjandi þeim breytingum sem frumvarpið legði til. Fjármálaráðherra lagði áherslu á að frumvarpið yrði að lög- um fyrir áramót til að tefja ekki nauðsynlegar kerfisbreytingar og einnig væri það tekjuþáttur í fjár- lagafrumvarpinu. Steingrímur Hermannsson for- sætisráðherra vildi staðfesta að sjáv- arútvegsráðherra hefði lýst því, að miðað við það að ekki hefði náðst samkomulag um að afnema aðstöðu- gjaldið væri frumvarpið í öðrum bún- ingi en hann hefði gert ráð fyrir. Hins vegar væri rétt hjá íjármálaráð- herra að unnið hefði verið að málinu með þeim hætti sem íjármálaráð- herra hefði lýst. Sjávarútvegsráð- herra vildi að í stað þess að fastsetja tryggingagjaldið kæmi ákvæði til bráðabirgða sem lýsti álagningu og málið síðan tekið upp þegar sam- staða hefði tekist um aðstöðugjaldið. En það væri eindreginn vilji fram- sóknarmanna að hverfa frá aðstöðu- gjaldinu. Páll Pétursson (F-Nv) sagði rétt að frumvarpið hefði ekki verið í þeim búningi sem um var samið og það yrði að lagfæra annaðhvort með nýrri prentun eða það sem líklegra væri í' nefndinni. Þorsteinn Pálsson (S- Sl) gagn- rýndi að ijármálaráðherra ætlaði þinginu einungis tvo daga til að ijalla um svo veigamikið mál sem tengist einnig .annarri löggjöf. Og nú væri staðfest að ekki væri samkomulag um „þetta makalausa frumvarp" inn- an ríkisstjórnarinnar. Umræður um þetta frumvarp yrðu heldur ómark- vissar þegar ákvarðanir ríkisstjórri- arinnar lægju ekki fyrir. Hann vildi þvf að þetta mál yrði tekið af dag- skrá. Ólafur Ragnar Grímsson fjár- málaráðherra taldi fullkomlega eðli- legt að mæla fyrir frumvarpinu nú og veita því efnislega meðferð í nefnd. Hann vildi að það kæmi skýrt fram að frumvarpið lagt fpam í þeim búningi sem um hefði verið fjallað á vettvangi ríkisstjórnarinnar og stjórnarflokkanna allan tímann. Bún- ingi frumvarpsins hefði á engan hátt verið breytt. Friðrik Sophusson (S- Rv) sagði yfirlýsingar Páls Péturssonar og ffár- málaráðherra stangast á. Hann skýrði ágreininginn nánar, Fram- sóknarmenn héldu því fram að í stað 4,5% gjalds ætti að leggja það á í tveimur gjaldflokkum, 2,5% og 6%, með því væri gefið í skyn að Alþingi hefði ekki samþykkt annað en að gjaldflokkarnir yrðu tveir og það væri síðari tíma ákvörðun hvort þeir yrðu jafnaðir. Þetta væri spurning hvort frumvarpið væri kerfisbreyting í skattamálum eða smávægileg breyting til að ná í 500 milljónir í ríkissjóð. Páll Pétursson (F-Nv) sagði rétt að þeir hefðu séð frumvarpið í þess-1 um búningi en það hefði verið sam- þykkt í þingfiokki-framsóknarmanna með því fororði að einu atriði yrði breytt. Ákvörðun um fulla samræm- ingu þar til niðurstaða væri fengin í meðferð aðstöðugjaldsins. Þegar hér var komið sögu lauk þessari umræðu um „þingsköp" og gengið var til dagskrár og 1. mál tekið fyrir. Eiginleg umræða Ólafur Ragnar Grímsson fjár- málaráðherra mælti fyrir frumvarp- inu um tryggingagjald. Ráðherra gerði grein fyrir helstu efnisatriðum frumvarpsins. Rakti einnig nokkuð .forsögu þessa máls, t.d. hvernig mis- munun hefði aukist milli atvinnu- greina t.d. í álagningu launaskatts- ins. Hann greindi frá því að nefnd hefði verið skipuð í sumar til að end- urskoða gildandi lög um skattlagn- ingu fyrirtækja og væri þetta frum- varp að mestu leyti í samræmi við tillögur þessarar nefndar, nema að gert væri ráð fyrir því að innheimta sérstakt 0,5% álag á hærra þrepið á árinu 1991 og væri áætlað að það yki tekjur ríkissjóðs um 475 milljónir. Friðrik Sophusson (S-Rv) gagn- rýndi þann flýti sem Alþingi væri ætlað að hafa á í umijöllun um svo mikilvægt mál. Ræðumaður fór í gegnum ýmsa þætti frumvarpsins og taldi að nokkur atriði þyrfti að skoða nánar og lagfæra í nefnd. Friðrik sagði að tekjuauki ríkissjóðs nægði hvergi til að leysa þann fjár- lagahalla sem stefndi nú í að verða 6-7 milljat'ðar. Friðrik Sophussyni sýndist eins og nú væri málum eða frumvarpi fyrir komið, litlar líkur til að frumvarpið gæti fengið afgreiðslu fyrir jól. Ríkis- stjórnin yrði að bíta í það súra epli að frumvarpið kæmi of seint fram. Þórhildur Þorleifsdóttir (SK- Rv) gagnrýndi mjög asann við af- greiðslu þessa máls og taldi mjög tvíeggjað fyrir þingmenn að sam- þykkja slíkt. Þórhildur lagðist ekki gegn efnisinnihaldi frumvarpsins. Taldi að breikkun skattstofns og betri innheimta myndu færa ríkis- sjóði meiri tekjur. Ætla verður að Þórhildur sé meðmælt því að veita vissum atvinnugreinum aðlögun- artíma; „gleðilegt að sjá einstaka til- Iitssemi“. Ræðumaður hvatti til þess að almenningi, heimilunum, yrði sýnd sama tillitssemi. Guðmundur G. Þórarinsson (F- Rv) ræddi málið á breiðum grund- velli, margt væri til bóta en ýmislegt vekti upp spurningar um álitamál. T.d. að frumvarpið yki nokkuð skatt- byrði einstaklinga í einyrkjarekstri. Guðmundur ræddi einnig um að- stöðugjaldið sem væri í eðli sínu ranglátur skattur. Ræðumaður ræddi ennfremur almennt um ríkisrekstur- inn og nauðsyn þess að gera kerfis- bundinn uppskurð á útgjaldahlið ríkisrekstursins. Þorsteini Pálssyni (S-Sl) sýndist ýmislegt orka tvímælis í frumvarpinu. T.d. að álögur ykjust á nokkrar atvinnugreinar og skertust þar með möguleikar þeirra til að bæta kjör sinna starfsmanna. Einnig vakti hann athygli á því að nú væru 74 milljónir lagðar á bændur sem hefðu nú þegar gefið eftir af sínum hlut í kjarasamningum þjóðarsáttar. Þorsteinn sagði að þetta frumvarp ætti í vændum rækilega umfjöllun í nefnd. Forseti neðri deildar, Árni Gunn- arsson, greindi þingmönnum frá því að ekki væri sérstakur áhugi á því að halda kvöldfund en það mátti merkja af orðum hans að slíkur kvöldfundur stæði þingmönnum til boða ef umræðu færi ekki fljótlega að Ijúka. Umræðum lauk með nokkrum orðaskiptum milli Þorsteins Pálsson- ar og Þórhildar Þorleifsdóttur um „móralskar hugleiðingar" og hvort skattabreytingar, sérstaklega skattalækkanir til fyrirtækja, bættu kjör starfsfólksins. Gengið var til atkvæða og var samþykkt í fjórðu tilraun að vísa málinu til ijárhags- og viðskipta- nefndar. Formaður nefndarinnar, Páll Pétursson (F-Ne), sagði í sam- tali við Morgunblaðið að hann vonað- ist eftir að sæmilegur friður tækist um samþykkja frumvarpið í endan- legri mynd fýrir jólahátíðina.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.