Morgunblaðið - 19.12.1990, Page 42
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 1990
fttifatnaður
Barbour
lSt EPTIR UKIJV(
TILBOÐ
í DESEMBER
BARNABOX
HAMBORGARI, FRANSKAR, KÓK, BLAÐRA,
SÆLGÆTI O.FL.
kr. 390,-
NAUTAGRILLSTEIK
MEÐ BAKAÐRI KARTÖFLU, KRYDDSMJÖRI
OG GRÆNMETI
kr. 690.-
SVÍNAGRILLSTEIK
MEÐ BAKAÐRI KARTÖFLU, KRYDDSMJÖRI
OG GRÆNMETI
kr. 650.-
Síðasti skibdagur jólagetraunarinnar er föstudagurinn
21. desember. Fyrsti vinningur er helgarferð fyrir 2
til London með Flugleiðum.
Getraunaseðla mó fó ó veitingastöðum Jarlsins.
Þorvaldur og Andrea úr Todmobile.
Tónlist
Árni Matthíasson
Tvær frambærilegustu hljóm-
sveitir landsins um þessar mundir
eru án efa Todmobile og Nýd-
önsk. Sveitirnar sendu frá sér
sínar fyrstu breiðskífur fyrir
síðustu jól og vöktu þá nokkra
athygli fyrir þær og einnig fyrir
tónleika í íslensku óperunni, sem
þóttu með eftirminnilegustu tón-
leikum desember, sem þó er orð-
inn helsti tónleikamánuður ársins.
Fyrir þessi jól höggva sveitirnar
í sama knérunn; senda frá
sér breiðskífur og halda tónleika
í Óperunni.
Tónleikarnir í Óperunni voru
síðasta fimmtudag og daginn fyr-
ir tónleikana var orðið ljóst að
ekki fengu allir aðgang sem þess
óskuðu. Svo fór og að fjölmargir
urðu frá að hverfa. Nýdönsk hóf
leikinn líkt og í fyrra, en sveitin
kom öllu ákveðnari til íeiks í þetta
sinn en þá. Sveitarmenn, sem
styrktir voru af meðlimum Possi-
billies, þeim Jóni Ólafssyni og
Stefáni Hjörleifssyni, sem verða
víst fullgildir meðlimir um ára-
mót, sýndu ýmsa leikræna tilburði
á sviðinu til að undirstrika tónlist
sína og greinilegt að sveitin er
að komast í fremstu röð tónleika-
sveita. Hún náði og upp góðri
stemmningu og varða að taka
aukalag áður en áheyrendur
slepptu henni af sviðinu.
Todmobile byijaði dagskrána
með mikilli dulúð, sem vel var til
þess fallin að espa áheyrendur.
Þau Andrea, Þorvaldur og Eyþór,
sem skipa Todmobile, voru þó
afskaplega taugatrekkt þegar þau
Andrea stelpurokkar með fána í hárinu.
hófu leik sinn og þrátt fyrir góða
tilburði var fyrsta lagið óstöðugt
og það annað, hin geysiskemmti-
lega Pöddulag, andvana fætt.
Todmobile-meðlimir hertust þó við
mótlætið og drifu dagskrána
áfram. Andrea lék á als oddi og
skipti um föt nánast fyrir hvert
lag og uppskar árangur erfiðis
síns, því smám saman hrifu þau
áheyrendur með af mikilli fag-
mennsku og undir lokin var
stemmningin orðin rafmögnuð, en
sefjunin náði hámarki þegar sveit-
in lék Pöddulagið öðru sinni við
mikla hrifningu viðstaddra. Bráð-
skemmtilegir tónleikar og rós í
hnappagat' beggja sveitanna, þó
Todmobile hafi líklega vinninginn.
Nýdönsk
Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir
EFTIR JANUS GUÐLAUGSSON
ÁSGEIR SIGURVINSSON
VFB Stuttgart, V-Þýskalandi;
„Þegar ég var strákur var ég alltaf að
leika mér með boltann og reyna ný
tækniatriði. Þess vegna náði ég
góðum tökum á tækninni".
Þetta er góð bók.
tOUÚ
Bókaútgáfa
Sími: 91 - 62 33 70
Ljóðabók eftir Hlyn
Hallsson komin út
ÚT ER komin hjá forlagi höfund-
anna ljóðabókin Ljóð myndir
pappírsflugvélar eftir Hlyn
Hallsson.
í kynningu útgefanda segirm.a.:
„Hlynur er fæddur á Akureyri árið
1968. Hann jauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum á Akureyri 1988
en stundar nú nám í fjöltæknideild
Mjög góóir nælon undirkjólar og nælon
undirfatnaður til sölu.
Sími og fax 9049-221 -7400774 eðo
P.O.Box 660149,
D-5000 Köln 60, Þýskalandi.
Myndlista- og handíðaskóla Íslands.
Ljóð myndir pappírsflugvélar er
fyrsta ljóðabók höfundar. Hún inni-
heldur 37 ljóð ásamt jafnmörgum
myndum sem Hlynur hefur gert við
ljóðin. Öll eru þau samin á síðustu
tveimur árum.“
Bókin Ljóð myndir pappírsflug-
vélar er gefin út í 200 eintökum.
Þar af eru 100 tölusett og árituð.