Morgunblaðið - 08.01.1991, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 08.01.1991, Blaðsíða 1
56 SIÐUR B 5. tbl. 79. árg.__________________________________ ÞRIÐJUDAGUR 8. JANÚAR 1991 Prentsmiðja Morgunblaðsins Haiti: Stj órnar her inn hratt valdaráni Port-au-Prince. Reuter. STJÓRNARHER Haiti batt í gær enda á byltingu Rogers Lafontants fyrrum innanríkisráðherra í stjórn Jean-Claude Duvaliers forseta og yfirmanns illræmdra dauðasveita hans með áhlaupi á forsetahöliina píu klukkustundum eftir valdaránið. Hersveitir réðust inn í forsetahöll- ina kl. 9.30 í gærmorgun að stað- artíma og yfirbuguðu Lafontant eft- ir hálftíma skotbardaga þar sem byltingarleiðtoginn særðist á hendi. Mikill fögnuður braust út á Haiti þegar útvarpsstöðvar skýrðu frá handtöku Lafontants. Dönsuðu hundruð þúsunda stuðningsmanna Jean-Bertrands Aristides, prestsins Nýr flokkur í Albaníu Vínarborg. Reuter. ALBÖNSK yfirvöld leyfðu í gær stofnun og starfsemi nýs flokks stj órnarandstæðinga þar í landi, Umhverfisflokks- ins, að sögn hinnar opinberu fréttastofu ATA. Umhverfisflokkurinn er ann- ar flokkur stjórnarandstæðinga sem fær leyfi til að starfa í Albaníu en stjórn Ramiz Alia forseta og leiðtoga kommún- istaflokksins leyfði starfsemi Nýja lýðræðisflokksins nokkr- um dögum fyrir jól. Um helgina var komið að hluta til móts við kröfur Nýja lýðræðisflokksins þegar stjórn Alia ákvað að náða rúmlega 200 pólitíska fanga. sem kosinn var forseti í síðasta mánuði, af fögnuði á götum bæja og borga. Ráðgert hefur verið að Aristides taki við völdum í byrjun febrúar. Lafontant lét til skarar skríða í fyrrinótt en taiið er að í sveit hans sem réðst á forsetahöllina hafi ein- ungis verið 15 vopnaðir menn. Eftir tveggja stunda bardaga kom hann fram í ríkisútvarpinu og skýrði frá því að hann hefði tekið við forseta- starfi af Ertha Pascal Trouillot. Samkvæmt upplýsingum bandaríska utanríkisráðuneytisins tók hann Trouillot í gíslingu en sagt var í gærkvöldi að hana hefði ekki sakað. Reuter Stuðningsmenn Aristides kjörins forseta Haiti fagna misheppnuðu valdaráni Rogers Lafontants sem var innanríkisráðherra í valdatíð Jean-Claude Duvaliers einræðisherra. Rauði herinn sendir liðsauka til Eystrasaltsríkjanna: Tugþúsundir hermanna fram- fylgja tilskipun Gorbatsjovs Óttast að ákvörðunin leiði til átaka og valdatöku hersins í Eystrasaltsríkjunum Moskvu. Reuter. SOVÉSKAR herflugvélar hófu í gær að flytja tugþúsundir her- manna til Eystrasaltsríkjanna, Ukraínu og Kákasuslýðvelda til þess að framfylgja því að íbúar þeirra gegni herkvaðningu, að því er varnarmálaráðuneytið í Moskvu skýrði frá í gær. Ráða- menn ríkjanna líta á þessa ákvörðun sem ögrun og óttast að hún kunni að leiða til átaka. Bandaríski sendiherrann í Moskvu gekk í gærkvöldi á fund Edúards Shevardnadzes utanrík- isráðherra Sovétríkjanna og lét í ljós vonbrigði og áhyggjur Banda- ríkjastjórnar vegna þessara her- flutninga. í yfirlýsingu ráðuneytisins sagði að yfirmenn hersveitanna hefðu Bandaríkjamenn útiloka að framlengja frest íraka til að fara frá Kúveit: Arafat segir að PLO beijist með Irökum íraskir hermenn flýja á sex þyrlum til Saudi-Arabíu Baghdad. Washington. London. Iteuter. Daily Telegraph. JAMES Baker utanríkisráðherra Bandaríkjanna sagði eftir viðræður við Geoffrey Howe utanríkisráð- herra Breta í London í gær að frestur sá sem Öi’ygg- isráð Sameinuðu þjóðanna (SÞ) hefði sett Irökum til að hverfa með her sinn frá Kúveit yrði ekki fram- lengdur en hann rennur út eftir viku, 15. janúar nk. í gærkvöldi sagði Yasser Arafat leiðtogi Frelsissam- taka Palestínumanna (PLO) að samtökin myndu berj- ast með írökum kæmi til átaka við Persaflóa. Arafat Arafat sagði að vildu Bandaríkja- menn og bandamenn þeirra beijast við íraka vegna innrásarinnar í Kú- væt, „þá segi ég velkomnir, vel- komnir, velkomnir í stríð“. Yfirlýs- ingu þessa gaf hann á útifundi með Palestínumönnum í Baghdad og voru yfirmenn úr íraska hernum og hátt- settir embættismenn viðstaddir. „ír- ak og Palestína eiga sameiginlegan málstað. Við munum standa hlið við hlið og eftir stríðið mikla munum við biðjast fyrir saman í Jerúsalem," sagði Arafat og steytti báða hnefa við mikinn fögnuð viðstaddra. í gær flýði ótilgreindur fjöldi her- manna úr framlínusveitum íraska innrásarliðsins í Kúveit á sex her- þyrlum til Saudi-Arabíu þar sem þeir báðu um hæli sem pólitískir flóttamenn. James Baker er nú á ferð um Evrópuríki þar sem hann ræðir við ráðamenn um stöðuna við Persaflóa. Hvarvetna hefur fullum stuðningi verið heitið við afstöðu Bandarikja- stjórnar í deilunni við íraka. í kvöld kemur Baker til Genfar í Sviss en þar fer fundur þeirra Tareqs Aziz utanríkisráðherra íraks fram á morgun. Er fundurinn síðasta von um að takast megi að afstýra styrj- öld við Persaflóa. Eftir fundinn í London í gær sögðu Baker og Howe að einungis tafarlaus heimkvaðning íraska innrásarliðsins frá Kúveit gæti komið í veg fyrir átök. „Það er í valdi Saddams Hussein hvort friður haldist. Boltinn er hjá honum,“ sagði Baker. í gær lögðu utanríkisráðherrar Norðurlandanna til að írakar yrðu beittir auknum þrýstingi til að þeir yfirgæfu Kúveit ella yrði styrjöld ekki umflúin. Lögðu þeir til að stofn- aðar yrðu nýjar eftirlits- og friðar- gæslusveitir SÞ til að leysa þau verk- efni sem sköpuðust í sambandi við brotthvarf íraska hersins frá Kúvæt. Yitzhak Shamir forsætisráðherra ísraels sagði i gær að arabaríki sem þátt tækju í hinum fjölþjóðlega her sem saman væri kominn á Persa- flóasvæðinu vegna innrásarinnar í Kúveit hefðu samþykkt að ísraelar hefðu fullan rétt til að svara hugsan- legum árásum íraka á ísrael. Sjá einnig fréttir á bls. 20. fengið fyrirmæli um að gera við- hlítandi ráðstafanir til að tryggja að ungir menn sem kvaddir hefðu verið í Rauða herinn gegni kalli. Er hersveitunum ætlað að framfylgja forsetatilskipun Míkhaíls Gor- batsjovs Sovétforseta frá í síðasta mánuði þess efnis að enginn íbúi Sovétríkjanna að Eystrasaltsríkjun- um meðtöldum væri undanþeginn herskyldu í Rauða hernum. Lennart Meri utanríkisráðherra Eistlands sagði að ákvörðunin um að senda hersveitir til að neyða menn í herinn ætti sér ekki hliðstæðu í nútímanum og yrði að fara allt aftur á 18. öld til þess að finna dæmi þess að gerð- ur væri út hópur manna til þess að þvinga einstaklinga til herþjónustu. Samkvæmt upplýsingum sem ráðuneytið birti í gær hefur þeim fækkað sem sinnt hafa herkvaðn- ingu i ríkjum sem hvað lengst hafa gengið í kröfum um úrsögn úr sov- éska ríkjasambandinu. Þannig hefðu aðeins 10% tilkvaddra gegnt kalli í Georgíu og 12,5% í Litháen. Sagði ráðuneytið að þessi þróun stofnaði vörnum landsins í óvissu þar sem nauðsynleg endurnýjun ætti sér ekki stað í hernum. Leiðtogum Ey strasaltsríkj anna var tilkynnt um ákvörðun várnar- málaráðuneytisins og var Vytautas Landsbergis forseta Litháens tjáð að þangað yrði send a.m.k. ein her- deild fallhlífarhermanna en í sveit af því tagi eru venjulega um 10.000 menn. í yfirlýsingu forsætisráðu- neytisins í Lettlandi sagði að Fjodor Kúzmín hershöfðingi yfirmaður sov- éska hersins í Eystrasaltsríkjunum hefði sagt að „nokkrar deildir fall- hlífarhermanna" yrðu sendar til Eystrasaltsríkjanna eða tugþúsundir hermanna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.