Morgunblaðið - 08.01.1991, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. JANÚAR 1991
9
Fræðslufundur
verður í félagsheimili Fáks, Víðivöllum, fimmtudag-
inn 10. janúar kl. 20.30. Ingimar Sveinsson frá
Hvanneyri flytur erindi um fóðrun folalda. Ómar
Smári Ármannsson og Sturla Þórðarson frá lögregl-
unni í Reykjavík ræða um öryggismál hestamanna.
Aðgangseyrir er kr. 200,- fyrir utanfélagsmenn.
Félagar vinsamlega framvísið félagsskírteini við inn-
ganginn.
Fræðslunefndin.
E
I/ELKOMINÍ TESS
Útsala - Útsala
40% afsláttur af öllum vörum.
Opið virka daga 9-18, laugardaga 10-12.
TESS
v NEt
NEÐST VIÐ
DUNHAGA,
S. 622230.
KARATE!
SANKU-DO-KAI
Námskeið fyrir byrjendur og lengra komna hefjast í Árseli
í Árbæ mánudaginn 14. janúar nk.
Kennf verður:
13 ára og yngri: 19.00—20.00, mánud. og
miðvikud.
13.00-14.00, laugord.
Fullorðnir: 20.00-21.30, mánud. og miðvikud.
14.00—15.30, laugard.
Þjálfori er V. Carrasco 2. dan.
Innritun á staðnum.
Upplýsingar í síma 673593
eitir kl. 18.00 daglega.
KIBITEDHLD
FYLKIS
NT hjálpað
Vorið 1989 urðu harð-
ar umræður á Alþingi um
málefni Sigló hf. Blönd-
uðust málefni NT inn í
þær umræður. f þing-
ræðu 11. maí 1989 sagði
Friðrik Sophusson, þing-
maður Sjálfstæðisflokks-
ins, að skýrsla Rikisend-
urskoðunar leiddi i ljós,
að 12. desember 1988
hafi Ólafur Ragnar
Grimsson ijármálaráð-
herra ritað Gjaldheimt-
unni bréf, þar sem fjár-
málaráðuneytið sam-
þykkti að gefa NT eða
Nútímanum 8,5 milljónir
króna, eins og Friðrik
orðaði það. Hann vísaði
þar til eftirgjafar á upp-
söfnuðum dráttarvöxtum
og innheimtukostnaði á
skuld fyrirtækisins við
ríkissjóð en höfuðstóllinn
yrði greiddur. 13. des-
ember 1989, dagiim eftir
að ijármálaráðherra rit-
ar Gjaldheimtunni, sam-
einast Nútiminn Vífil-
felli, sem létti þannig af
sér sköttum. Spurði Frið-
rik fjármálaráðherra,
hvort hann hefði vitað
um þessar ráðagerðir,
þegar hann gaf eftir 8,5
miljjónimar.
Ólafur Ragnar tók til
máls að lokinni ræðu
Friðriks og sagði: „Hitt
vil ég svo segja alveg
skýrt og afdráttariaust
að ég hafði ekki hug-
mynd um það að fáum
dögum síðar væri verið
að seþ'a gjaldþrotatap
Nútímans öðru fyrirtæki
til að skapa því grund-
völl til skattaívilnana.
Það er sannleikur máls-
ins af minni hálfu.“
Birgir ísl. Gunnarsson,
þingmaður Sjálfstæðis-
flokksins, sagði inn af-
skipti Ólafs Ragnars af
skuldum Nútimans, að
hami fengi ekki betur séð
en að það sé „algjört eins-
dæmi að svo stór hluti
af skuld sem hér um
ræðir hafi verið felldur
niður“. , Hann spurði
hvaða framsóknarmenn
hefðu farið á bakvið ráð-
herrann.
Ólafur Ragnar Grímsson Finnur Ingólfsson
Fyrirgreiðslupólitík
Um þær mundir sem þingmenn fóru í
jólaleyfi kom til harðra deilna milli Páls
Péturssonar, formanns þingflokks fram-
sóknarmanna, og Olafs Ragnars
Grímssonar, fjármálaráðherra og for-
manns Alþýðubandalagsins. Þeir deildu
um það hvernig ráðherrann hefði staðið
að því að selja fyrirtækið Þormóð ramma
í Siglufirði. Inn í þessar deilur var dregið,
hvernig fjármálaráðherra tók á fjárhags-
vandræðum bókaforlagsins Svart á hvítu
og NT, blaðsins sem 'framsóknarmenn
gáfu út í stað Tímans. Svaraði Ólafur
Ragnar árásum Páls Péturssonar nú með
því að segja að framsóknarmenn hefðu
komið aftan að sér við fyrirgreiðslu til NT.
Finnur Ingólfsson,
varaþingmaður Fram-
sóknarflokksins, talaði
síðastur í þessum umræð-
um og sagði, að fyrir-
greiðsla fjármálaráð-
herra til Nútímaus væri
ekkert einsdæmi, hefðu
slikir samningar verið
gerðir við 170 fyrii-tæki.
Þessu mótmælti Birgir
Isl. úr sæti sínu. Hann
sagði einnig, að fjármála-
ráðherra hefði ekki vitað
neitt um að stjórn Nú-
tímans hf. liefði haft í
hyggju að selja hlutafé-
lagið Vífilfelli.
Upprifjun
ráðheirans
Vegna árása Páls Pét-
urssonar út af Þormóði
ramma og umræðna um
fyrirgreiðslu til NT var
rætt við Ólaf Ragnar í
fréttum Stöðvar 2 23.
desember síðastliðinn og
sagði liaim meðal annars:
„Framsóknarmenn
fóru, eftir að fjármála-
ráðuneytið hafði fellt nið-
ur þessar skuldir, og
seldu Vífilfelli fyrirtæk-
ið. Það nefndu þeir aldrei
við mig og aldrei við
embættismenn fjármála-
ráðuneytisins heldur
kynntu málið eingöngu
sem venjubundinn afslátt
á skattaskuldum gagn-
vart fyrirtækjum sem
væru komin í þrot og það
kom mér þess vegna full-
komlega á óvart að þeir'
skyldu síðai’ fara og
hagnast með þeim hætti
að sejja Vífilfelli skuld-
iiuar og skapa þannig
skattahagnað fyrir Vífil-
fell og ef ég hefði vitað
það, að það hefði verið
ætlun þeirra forystu-
manna Framsóknar-
flokksins sem báðu um
þessa fyrirgreiðslu gagn-
vart NT, þá hefði ég aldr-
ei gert það.“
Hallur Hallsson frétta-
maður: „Áttu við að þú
hafir verið blekktur?"
Ólafur Ragnar: „Ja,
það var komið aftan að
mér, hvað þetta snertir.
Eg hef aldrei sagt það
áður, en fyrst það er ver-
ið að draga það mál imi
í þetta mál nú, þá tel ég
óhjákvæmilegt að segja
það að það var aldrei
orðað einu orði við mig
og var komið fullkom-
lega aftan að mér að fara
síðan og selja restina af
NT til að skapa skatta-
hagnað fyrir Vífilfell."
Ilallur: „Hveijir
blekktu þig?“
Ólafur Ragnar: „Ja, ég
ætla ekkert að segja það
sérstaklega, en Finnur
Ingólfsson var sá sem að
annaðist þessar viðræður
við mig og hvorki hann
né aðrir framsóknar-
menn sem að þessu máli
komu orðuðu það einu
orði að þeir ætluðu síðan
að selja þetta og grund-
valla þamiig skattahagn-
að fyrir Vífilfell."
Deilan um Þormóð
ramma er ekki til lykta
leidd. Hún hefur hins
breytt því að nú telur
Ólafur Ragnar að hefði
hann vitað að framsókn-
armenn ætluðu að selja
Vífilfelli NT myndi haim
aldrei hafa slegið 8,4
milljónir króna af skuld
NT við rikissjóð. Ætlar
ráðherrann að láta við
þessi orð standa eða
grípa til ráðstafana til
að vinda ofan af málinu?
ERLENDIR VISITOLUSJOÐIR
Fjárfestíd í helstu kauphölliim
heimsins með VIB
VIB býður nú viðskiptavinum sínum og öðrum fjárfestum
að taka þátt í ávöxtun hlutabréfa í helstu kauphöllum
heimsins í gegnum Verðbréfasjóði VIB. Erlendar eignir
nýrra Sjóðsbréfa eru ávaxtaðar í hlutabréfum erlendra
fýrirtækja með því sem næst sama vægi og fyrirtækin hafa í
hlutabréfavísitölum á viðkomandi markaði. Sjóðir sem
þessir nefnast vísitölusjóðir. Þegar er hafin sala á
Þýskalandssjóði og Evrópusjóði en síðar verða í boði
Bretlandssjóður og Ameríkusjóður. Verið velkomin í VIB.
VlB
VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF.
Ármúla 13a, 108 Reykjavik. Sími 68 15 30. Telefax 68 15 26.