Morgunblaðið - 08.01.1991, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. JANUAR 1991
7
5 MANNA FOLKSBILL
MEÐ VÖRUPALLI
MITSUBISHI
MOTORS
PICKÚPTRUCK
<0FTHE YEAR>
1990
FQUR WHEELER MAGAZINE
PALLBÍLL ÁRSINS
í U.S.A.
□ 70 ha. Dieselhreyfill
□ Aldrif
□ Burðargeta = 1200 kg.
□ Flatarm. vörupalls = 2,8 m2
□ Milligírkassi með tvö
niðurfærsluhlutföll
□ Rúmgóð og vönduð
innrétting
□ Nýtískulegt mælaborð-
þægileg stjórntæki
Verð kr. 1.320.000.- stgr.
Slökkvilið Reykjavíkur:
Utköllum fækkaði
miðað við fyrra ár
Beðið eftir snjó
í Bláfjöllum
„VIÐ þyrftum að fá hægviðri og klessusnjó,
þá fer allt í gang,“ sagði Þorsteinn Hjalta-
son umsjónarmaður skíðasvæðisins í Blá-
fjöllum. Að undanförnu hafa skíðamenn
rennt vonaraugum til fjalla en þrátt fyrir
snjókomu af og til hefur henni fylgt skaf-
renningur og fjúk á skíðasvæðinu.
„Barnalyftan var í gangi í tvo daga en það
vantar meiri snjó við stóru lyfturnar," sagði
hann. „Hlíðarnar líta vel út í fjarska og hingað
hafa menn komið og gengið ufn og jafnvel rennt
sér en gefist upp vegna harðfennis og svo er
þetta svo þunnt lag sem komið er af snjó.“
Ágætt færi er fyrir gönguskíði á láglendi en
ekki hefur verið hægt að leggja neinar brautir.
Á næstunni er von á nýjum snjótroðara af
stærstu gerð og sagði Þorsteinn að hann yrði
mikil búbót. Snjótroðaranum fylgir snjóblásari
sem mundi spara mikla vinnu við að moka frá
lyftum og öðrum húsum á svæðinu.
Sjö tilefnd
1 forvalið
SJÖ tilnefningar bárust í forval
Alþýðubandalagsins í Reykjavík
sem fer fram 19. janúar. Leitað
verður til fleiri flokksmanna um
þátttöku í forvalinu.
Eftirtalin voru tilnefnd: Auður
Sveinsdóttir landslagsarkítekt,
Birna Þórðardóttir blaðamaður,
Guðrún Helgadóttir alþingismaður,
Haraldur Jóhannsson hagfræðing-
ur, Ragnar Stefánsson jarðskjálfta-
fræðingur, Svavar Gestsson ráð-
herra og Þorvaldur Þorvaldsson iðn-
aðarmaður.
Hallur Páll Jónsson formaður
kjörnefndar sagði að verið væri að
leita til fleiri flokksmanna um þátt-
töku. í síðasta forvali fyrir alþingis-
kosningar tóku 13 manns þátt og
sagði Hallur að reiknað væri með
svipaðri þátttöku nú.
Skíðamenn geta enn ekki fjölmennt í Bláfjöll eins
og þegar þessi mynd var tekin.
Mesta tjón í eldsvoða varð hjá Pósti og síma
SLÖKKVILIÐ Reykjavíkur sinnti 821 útkalli á síðasta ári og var
það 33 útköllum færra en árið 1989. Mesta tjón af völdum elds á
árinu varð hjá Pósti og síma auk þess sem töluvert Ijón varð í Aust-
urveri, Seðlabankanum, Kleppsvegi 134, Byggðarenda 10, Laugavegi
35, Fríkirkjuvegi 9 og Síðumúla 3 til 5. Einn lést af völdum elds-
voða árið 1990 og einum var bjargað. Sjúkraflutningar voru 10.701
á árinu, þar af voru 3.206 vegna slysa og annarra neyðarflutninga.
Útköll þar sem slökkva þurfti éld
voru 323 árið 1990 en 335 árið
1989, þar af voru 32 sinueldar á
árinu en 76 árið 1989. Til útkalla
er talin öll aðstoð slökkviliðsins, svo
sem efnaleki, vatnsleki og losun úr
bílflökum. 22 var bjargað slösuðum
úr bílflökum og í 50 tilvikum var
verðmætum bjargað auk þess sem
tvisvar var dælt úr skipum. Önnur
aðstoð var veitt 104 sinnum.
Útköll í Reykjavík voru 712 á
árinu, flest í október eða 99 milli
kl. 18 og 21. Útköll í Kópavog voru
86, 11 í Mosfellsbæ, 7 á Seltjarnar-
nes en önnur útköli voru 5. Allt til-
tækt lið var hringt út tvisvar en
hluti liðsins 17 sinnum.
Á árinu voru staðnar 314 ör-
yggisvaktir víðsvegar um borgina
og brunaverðir fóru 69 kynnisferðir
í stofnanir og fyrirtæki á eldvarnar-
svæði slökkvistöðvarinnar. 1.428
börn heimsóttu slökkvistöðina þar
sem þeim voru kynnt grundvallar-
atriði í eldvörnum, auk þess sem
42 unglingar sóttu starfskynningu
á stöðinni. Átta námskeið voru
haldin á árinu fyrir starfsmenn
stöðvarinnar.
Eldvarnarskoðanir eldvarnareft-
irlitsins voru 2.400 á árinu og
haldnar voru 64 kennslu- og
slökkviæfingar með 1.786 starfs-
mönnum stofnana og fyrirtækja.
Skákmótið í
Hastings:
Helgi vann
Kosten í
9. umferð
HELGI Ólafsson vann Kosten
frá Bretlandi í 9. umferð
skákmótsins í Hastings.
Skákin varð alls 67 leikir og
fór tvívegis í bið. Helgi er í
4.-5. sæti á mótinu með 4,5
vinninga.
Helgi tapaði fyrir Murray-
Chandler frá Bretlandi í 8.
umferð mótsins. Efstur er Efg-
eníj Bareev frá Sovétríkjunum
með 6 vinninga af 9: Bent Lars-
en er í öðru sæti með 5,5 vinn-
inga og Guyla Sax frá Ungverj-
alandi er í 3. sæti með 5 vinn-
inga. Helgi og Chandler eru
jafnir með 4,5 vinninga.
Alþýðubandalag-
ið í Reykjavík: