Morgunblaðið - 08.01.1991, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐiUDAGUR 8. JANUAR 1991
15
eldrar bjuggu á Álftanesi og í Ási
við Hafnarfjörð. Amma Sólveigar hét
einnig Sólveig Gunnlaugsdóttir og
bjó hún einnig í Sviðholti. Hún var
hálfsystir Björns yfirkennara Gunn-
laugssonar á Bessastöðum.
Ingólfur var yngstur 8 systkina,
sem öll eru látin. Hin voru Sigurður
Jóel, trésmiður, f. 1887 d. 1914,
Ásgeir Guðlaugur, trésmíðameistari
og síðar framkvæmdastjóri Bæjarút-
gerðar Hafnai'fjarðar, f. 1890 d.
1965, Gunnlaugur Stefán bakara-
meistari og síðar kaupmaður, f. 1892
d. 1985, Ingibjörg Helga tvíburasyst-
ir Gunnlaugs, f. 1892 d. 1961, Frið-
finnur Valdimar, múrarameistari og
síðar bóndi, f. 1895 d. 1967, Valgerð-
ur, sem lést á fjórða ári, og Þorberg-
ur Tryggvi, trésmíðameistari, f. 1900
d. 1980.
Stefán faðir Ingólfs, lést árið
1906, er Ingólfur var aðeins 4ra ára.
Eldri bræðurnir urðu þá að snúa sér
að því að vinna fyrir heimilinu, nám-
ið var aðeins í lágmarki. Á sama
hátt hóf Ingólfur, eins og hinir bræð-
urnir, að vinna fyrir heimilinu um
leið og aldur og geta leyfði. — Gunn-
laugur, bróðir hans, hafði numið
bakariðn hjá Olgeiri Júlíussyni, bak-
arameistara, föður Einars Olgeirs-
sonar, fyrrverandi alþingismanns, í
brauðgerð Einars Þorgilssonar í
Hafnarfirði. — Ingólfur hóf þá nám
hjá bróður sínum, Gunnlaugi, í bak-
araiðn og lauk þar sveinsprófi.
Þeir bræður báðir sneru frá
bakstrinum, Gunnlaugur yfir í út-
gerð, iðnað og kaupmennsku, en Ing-
ólfur hóf nám í múrsmíði hjá Frið-
finni, bróður sínum, sem orðinn var
múrarameistari. Ásgeir og Tryggvi
voru trésmiðir og þeir bræður tóku
að sér húsbyggingar, bæði í Hafnar-
firði og annars staðar. Ekki fóru
þeir Ingólfur og Tryggvi með hinum
bræðrum sínum, þegar þeir byggðu
sjúkrahúsið á ísafirði. Þeir bræður
töldu útilokað að skilja móður og
systur sínar einar eftir í Hafnarfirði.
Þeir voru hins vegar allir saman við
ýmsar stórbyggingar í Hafnarfirði á
næstu árum þar á eftir, svo sem
katólska sjúkrahúsið, barnaskólann,
ráðhúsið og Sólvang, svo einhver
dæmi séu ' nefnd. Ingólfur var
múrarameistari á Sólvangi, en þar
dvaldi hann síðasta æviár sitt og lést
þar.
Ingólfur útskrifaði marga nema í
múrsmíði. Hann starfaði við múr-
verkið fram undir 7 5 ára aldur. Hann
var orðlagður fyrir vandvirkni, dugn-
að óg útsjónarsemi og ósérhlífni. —
Eitt sinn var ég vitni að því, er Ing-
ólfur var að leggjá i gólf í húsi, að
rafvirki hússins, sem jafnframt var
rafvirki í öðru húsi, þar sem aðrir
múrarar voru að verki við gólfílögn,
spurði Ingólf, hversu marga poka af
sementi hann hefði notað í gólfílögn-
ina. Hann fékk svar við því. Þá upp-
lýsti rafvirkinn, að hinir múrararnir
hefðu næstum notað helmingi meira
magn af sementi í svipaða gólfstærð.
Ekki var svo að skilja, að sementið
væri ótæpilega sparað í lögnina hjá
Ingólfi, heldur hitt að daginn fyrir
ílögnina notaði hann eina eða tvær
klukkustundir til þess að finna hæsta
punktinn í gólfinu og var síðan lagt
í gólfið út frá þvi, lítil lögn var lögð
yfir viðmiðunarpunktinn. Á þennan
hátt sparaði hann húsbyggjendum
ekki svo lítið fé.
Ég sagði áður, að Ingólfur hefði
verið sérstaklega duglegur og ósér-
hlífinn. Ég man ekki eftir að hafa
séð mikið duglegri mann við vinnu.
Þess vegna hrökk ég eilítið við um
jól fyrir nokkrum árum, þegar ég
var í heimsókn hjá Ingólfi, að hann
sagði við mig, að honum hefði fund-
ist, að Friðfinnur, bróðir hans, hefði
verið of vinnuharður. Ég vildi vita
nánar um þetta. Þá var það, að þeg-
ar Friðfinnur var foringi í múrara-
hópnum lét hann t.d. alla vinna til
kl. 4 á aðfangadag, síðan þurftu
þeir að hreinsa verkfærin, hjóla heim,
þvo sér og vera mættir inn í stofu
til ömmu Sólveigar fyrir kl. 6. Gamla
konan var ákveðin og þegar inn í
húsið hennar var komið, var ljóst,
að þar réði gamla konan, enda þótt
sumir synirnir væru bæði frekir og
fyrirferðarmiklir.
Ingólfur var mjög greiðvikinn
maður og mátti ekkert aumt sjá.
Sérstaklega barngóður var hann,
enda hændust börn að honum. Hann
barst aldrei neitt á. Það sem gladdi
hann mest, bæði um jól og við önnur
tækifæri, var að gefa gjafir. Hann
var alla tíð ókvæntur og barnlaus.
Hann og systir hans, Ingibjörg, hugs-
uðu um og bjuggu með móður þeirra
í gamla húsinu við Suðurgötu. Móðir
hans var blind og rúmföst síðustu
árin sem hún lifði. Hún lést 17. des-
ember 1952, á fimmtugasta afmælis-
degi yngsta sonar hennar, Ingólfs.
Liðin eru tæp 30 ár frá því, að
systir hans, Ingibjörg lést. Allan
tímann síðan bjó hann einn við Suð-
urgötuna. Hann eldaði sjálfur,
hreinsaði húsið og þvoði þvottana
sjálfur. Hann var mikið snyrtimenni.
Þótt Ingólfur færi ekki oft í kirkju,
var hann maður trúaður. Hann trúði
því og hlakkaði til að hitta aftur ijöl-
skylduna sína hinu megin. Það er
ljóst, að vel hefur verið tekið á móti
honum.
Ég bið frænda mínum allrar bless-
unar um leið og ég og fjölskylda
mín þökkum honum kærlega fyrir
samfylgdina.
Hrafnkell Ásgeirsson
Ja2L2.sk ó I i fyrír bort)
&
/
\T-
V
Innritun hafin á alla
stabina í símum
687701- 687801
Byrjum 10. janúar
Skóli fyrir stelpur og stráka á aldrinum 2ja—12 ára.
Jazzdans er skemmtileg og þroskandi hreyfing
fyrir hugann og líkamann; tími, sem byggir
á upphitun, dansi og leikrænni tjáningu.
Við höfum fengið Astu Olafsdóttur til að sjá um yngstu börnin á
aldrinum 2ja ára til 9 ára.
Sóley og Jón Egill sjá um kennsluna fyrir börnin á aldrinum 5—12 ára.
HAFNARFJÖRÐUR — KÓPAVOGUR
Sömu kennslu bjóðum við upp á í Hafnarfirði og Kópavogi. Barnajazz fyrir stelpur og
stráka á aldrinum 5 til 12 ára og unglinga 13 ára og eldri, kennum við jazz og funk.
Kennari verður Bryndís Einarsdóttir, sem kennt hefur í Dansstúdíói Sóleyjar síðustu 5 ár.
Nemendasýning verður haldin í maí fyrir alla nemendurna.
Vetrardagskrá Dansstúdíós Sóleyjar árið 1991
JAZZ
— NÚTÍM ABALLET — BALLET
Dansstúdíó Sóleyjar hefur frá stofnun lagt áherslu á að veita nemendum
á öllum aldri fltllkomna fagkennslu.
Markmiðið hefur ávallt verið að bjóða það nýjasta, sem er að gerast í dansheiminum
hverju sinni. Spor í þá átt er að fá hingað erlenda danskennara frá viðurkenndum skólum.
Gestákennarinn í vetur verður Shirlene Blake, sem var að Ijúka við mastergráðuna
í dansi og er þetta í þriðja skiptið sem hún heimsækir okkur í Dansstúdói Sóleyjar.
JAZZPANS
Jazzdans er góð og nauðsynleg líkamsþjálfun fyrir börn og fullorðna. Við
erum með byrjenda og framhaldshópa fyrir stelpur og stráka á öllum aldri.
\ ' x Kennarar: Shirlene Blake, Bryndís Einarsdóttir, Jón Egill Bragason
\ ' og Sóley Jóhannsdóttir.
NUTIMABALLET
Fyrir 16 ára og eldri. Bland af jazz og klass-
ískum ballet, sem tengir hug og hreyfmgu.
Kennari: Shirlene Blake.
BALLET
Balletkennsla fyrir 10 ára og eldri. Byrjendur og framhald.
Kennari: Shirlene Blake.
NAMSKEIÐ
4 mánaða önn
hefst lO.janúar.
SÓLEYJAR
oí —
.S B
c c
a
ss -f
= 1
o) .tí
p *-
£ S
Engjateigi 1 • Reykjavík ■ Símar 687801 & 687701