Morgunblaðið - 08.01.1991, Qupperneq 20
20
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. JANÚAR 1991
Persaflóadeilan:
Avarp George Bush, forseta Bandaríkjanna:
Lýðræðinu stendiu* dagvax-
andi ógn af Saddam Hussein
Reuter
Norman Schwarzkopf, yfirmaður herliðs Bandaríkjanna í Saudi-
Arabíu, kannar herliðið ásarnt Fahd, konungi landsins á sunnu-
dag. Var þetta í fyrsta skiptið sem konungur kynnir sér viðbún-
að liðsaflans frá því Pers/aflóadeilan blossaði upp með innrás Ir-
aka í Kúveit 2. ágúst.
Washington. The Daily Telegraph.
GEORGE Bush Bandaríkjafor-
seti sagði í útvarpsávarpi er
hann flutti á laugardag að Irak-
ar yrðu að kalla herlið sitt heim
frá Kúveit fyrir 15. janúar.
Hundsaði Saddam Hussein, for-
seti íraks, þessa kröfu yrðu
afleiðingarnar hörmulegar.
James Baker, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, kom í
gær til Lundúna en hann hefur
meðferðis bréf frá Bush forseta
til Saddams sem hann mun af-
henda utanríkisráðherra Iraks
í Genf á morgun, miðvikudag.
Bandarískir embættismenn
segja að i bréfinu, sem er ritað
á arabísku, sé Saddam forseta
tjáð að fari hann ekki að sam-
þykktum Sameinuðu þjóðanna
verði land hans lagt í rúst.
Bush lagði í ávarpi sínu einkum
áherslu á afleiðingar þess ef her-
sveitum Saddams yrði ekki komið
frá Kúveit. Yrði írökum gefinn
meiri tími tii að undirbúa átök í
Mið-Austurlöndum yrði enn meiri
fórna krafist. „Með hverjum degi
sem líður færist Saddam Hussein
nær því markmiði sínu að þróa
efna- og kjamorkuvopn og eld-
flaugar sem borið geta slíkan
vopnabúnað. Við megum engan
tíma missa. Með degi hveijum
eykst sú ógn sem lýðræðinu í
heiminum stendur af Saddam
Á sunnudag var „Dagur hers-
ins“ haldinn hátíðlegur í írak og
var ræðu Saddams sjónvarpað af
því tilefni. Forsetinn skrýddist
einkennisfatnaði herforingja og
bar svarta húfu á höfði er hann
ávarpaði þjóðina en ræðan, sem-
var um 30 mínútna löng, ein-
kenndist einkum af sögulegum og
trúarlegum tilvísunum og her-
skáum yfírlýsingum forsetans.
Innlimun Kúveit
óafturkallanleg
Saddam sagði að sú ákvörðun
íraka að innlima Kúveit væri óaft-
urkailanleg. Irakar gerðu því ekki
tilkall til landsins heldur væri það
staðreynd að Kúveit væri nú hér-
að í Irak. Herafli landsins væri
búinn undir að verja landið í sögu-
legum bardögum. írakar innlim-
uðu Kúveit sex dögum eftir inn-
rásina 2. ágúst.
Forsetinn sagði það fagnaðar-
efni í hugum allra araba að dagur
hersins í írak skyldi haldinn há-
Husseffi," sagði forsetinn m.a.
Bush gaf hins vegar til kynna að
Bandaríkjamenn myndu ekki
nauðsynlega ráðast á írak strax
í næstu viku en þann 15. þessa
mánaðar rennur út frestur sá sem
Sameinuðu þjóðirnar hafa veitt
írökum til að kalla_ innrásarliðið
heim frá Kúveit. Irökum hefði
tíðlegur við þessar aðstæður.
Daginn bæri upp á sama tr'ma og
Palestínumenn á hernámssvæð-
unum berðust fyrir sjálfstjórn.
„Bardaginn sem háður verður í
nafni frelsunar Palestínu verður
langur og við vitum að hann mun
kosta miklar fómir,“ sagði forset-
inn og bætti við að írakar ættu
í illdeilum við „ógnarstjómina í
Bandaríkjunum" og leppríki henn-
ar ísrael og önnur „illmenni" þeim
hliðholl. Markmiðið með stríðinu
sem vofði yfír væri það að frelsa
Palestínu og Golan-hæðirnar og
yrði það mikill heiður fyrir hina
réttsýnu að berjast gegn hersveit-
um trúvillinganna í þessum göf-
uga tilgangi.
Herafla íraka kvað -forsetinn
vera sem tákn um baráttu araba,
vonir þeirra og þrár. Her þessi
væri, biessunarlega, fær um að
mæta óvinum araba hvars sem.
hætta gæti skapast. Liðsmenn
írakshers væm óbilandi í sann-
verið veittur þessi frestur en dag-
setningin væri á engan hátt bind-
andi fyrir herafla Bandaríkja-
manna í Mið-Austurlöndum.
Þjóðin búin undir stríð
Fréttaskýrendur sögðu ávarp
forsetans hafa verið til þess fallið
færingu sinni ogmyndu þeir halda
baráttunni áfram án tillits til
þeirra fórna sem af þeim yrði
krafist. í ávarpi yfirmanna hersins
til Saddams forseta í tiiefni dags-
að búa bandarísku þjóðina undir
hugsanlegt stríð við Persaflóa.
Samkvæmt skoðanakönnun sem
vikuritið Newsweek birti um helg-
ina telur helmingur bandarísku
þjóðarinnar mjög líklegt að herliði
Bandaríkjanna verði beitt til að
hrekja íraka frá Kúveit. Rétt tæp-
ur helmingur þeirra sem þátt tóku
taldi að Bush forseti ætti að hefja
hernaðaraðgerðir gegn írökum
fljótlega eftir að frestur Samein-
uðu þjóðanna rennur út, á þriðju-
dag í næstu viku.
Sem fyrr sagði kom James
Baker, utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna, til Lundúna í gær til
viðræðna við starfsbróður sinn,
Douglas Hurd. Baker mun einnig
eiga viðræður við franska og
þýska ráðamenn áður en hann
heldur til fundar við Tareq Aziz,
utanríkisráðherra fraks, í Genf á
morgun, miðvikudag. Fréttaskýr-
endur segja að þetta muni að
líkindum reynast erfíðasta verk-
efni sem Baker hefur tekist á við
en hann þykir sérlega lipur og
úrræðagóður samningamaður.
Bush forseti hefur hins vegar fyr-
irskipað honum að fallast á engar
tilslakanir í Persaflóadeilunni.
Forsetinn sagði á föstudag að til-
gangurinn með fundinum í Genf
væri sá að gera írökum fullkomn-
lega ljóst að krafan um skilyrðis-
lausan brottflutning herliðsins frá
Kúveit stæði óhögguð. Þetta sjón-
ins var að finna svipaðar yfirlýs-
ingar. Óvinum íraka yrði veitt
ráðning sem seint myndi gleymast
og hersveitir Bandaríkjanna yrðu
grafnar í sandi Arabíu.
armið mun vera ítrekað í bréfi
því sem Baker hefur meðferðis frá
Bush til Saddam Hussein. Banda-
rískir embættismenn sögðu að í
því væru valkostir íraka ítrekaðir.
Annaðhvort virtu þeir samþykktir
Sameinuðu þjóðanna og flyttu
innrásarliðið á brott eða land
þeirra yrði „lagt í auðn.“
Samningaviðræður
útilokaðar
Fréttaskýrendur sögðu að þótt
Baker hefði í besta falli mjög tak-
markað svigrúm í viðræðum
sínum við Tareq Aziz væru á al-
þjóða vettvangi bundnar miklar
vonir við að hann gæti lagt fram
einhvers konar áætlun sem duga
myndi til að koma í veg fyrir styij-
öld í Mið-Austurlöndum. George
Bush tók hins vegar fram um
helgina að „leýnilegar samninga-
viðræður“ við íraka væru ekki á
dagskránni og kvað ekki koma til
greina að senda Baker á fund
Saddams forseta í Bagdad, höfuð-
borg íraks. Bandarískir embættis-
menn sögðu að Bush vildi ekki
að litið yrði svo á að fundurinn í
Genf á morgun væri upphaf frek-
ari viðræðna milli fulltrúa Banda-
ríkjanna og írak. Frekari funda-
höld myndu aðeins draga Persa-
flóadeiluna á langinn.
Baker sagði í sjónvarpsviðtali
um helgina að ekki yrði blásið til
sóknar gegn írökum flyttu þeir
liðsaflann á brott. Richard Che-
ney, varnarmálaráðherra Banda-
ríkjanna, tók í sama streng og
sagði það ekki vera markmið
Bandaríkjamanna að skaða írösku
þjóðina. Irakar hefðu með skipu-
legum hætti freistað þess að upp-
ræta Kúveit og Bandaríkjamenn
ætluðu sér að frelsa landið. Ráða-
menn í Bandaríkjunum hefðu hins
vegar aldrei lýst yfir því að þeir
vildu leggja írak í rúst.
ísraelar hóta hefndum
David Levy, utanríkisráðherra
ísraels, sagði á fundi með frétta-
mönnum á sunndag að ummæli
Saddams forseta jafngiltu í raun
stríðsyfirlýsingu. Levy ítrekaði
fyrri ummæli ísraelskra ráða-
manna þess efnis að írökum yrði
refsað grimmilega réðust þeir á
Israel en Irakar hafa lýst yfir því
að gerð verði árás á Tel Aviv í
ísrael strax á fyrstu stigum hugs-
anlegra átaka. Levy sagði ræðu
Saddams afdráttarlausa og öfga-
fulla. Það væri með öllu ógerlegt
að segja til um hvað forsetinn
gerði á næstu dögum en á þriðju-
dag í næstu viku rennur út frest-
ur sá sem Sameinuðu þjóðirnar
hafa veitt írökum til að kalla liðs-
aflann heim frá Kúveit.
Levy sagði það liggja fyrir að
mjög yrði þrýst á ísraela að gefa
eftir herteknu svæðin er Persaf-
lóadeilan hefði verið leyst hvort
sem það gerðist á friðsamlegan
hátt eða með hervaldi. Utanríkis-
ráðherrann sagði stjórnvöld vera
að búa sig undir að sæta þessum
þrýstingi á alþjóðavettvangi en
rakti ekki nánar í hverju sá undir-
búningur fælist. Dagblöð í Israel
greindu hins vegar frá því að inn-
an utanríkisráðuneytisins væri
unnið að því hörðum höndum að
móta nýjar áætlanir um kosningar
á herteknu svæðunum, sem yrðu
undanfari samningaviðræðna um
sjálfsstjórn Palestínumanna.
Hundruð útlendinga héldu frá
Israel um helgina í ljósi vaxandi
stríðshættu í Austurlöndum nær.
Að minnsta kosti þijú flugfélög
hafa fellt niður frekari flug til
landsins og þýskum og sænskum
ríkisborgurum var um helgina
ráðlagt að halda á brott írá ísrael.
* A
Avarp Saddams forseta á Degi hersins í Irak:
Veijum Kúveit og frelsum
Palestínu úr höndum Israela
Bagdad, Jerúsalem. Reuter.
SADDAM Hussein, forseti íraks, sagði í sjónvarpsávarpi á sunnu-
dag að her landsins væri búinn undir langa og blóðuga styrjöld
til að verja Kúveit. Forsetinn lýsti jafnframt yfir því að stríð í
Mið-Austurlöndum yrði háð til að frelsa Palestínu úr höndum
ísraela. Utanríkisráðherra ísraels, David Levy, sagði að Saddam
forseti hefði með þessum orðum í raun sagt Israelum stríð á
hendur.
Keuter
Saddam Hussein, forseti Iraks, flytur sjónvarpsávarp sitt á sunnu-
dag.