Morgunblaðið - 08.01.1991, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. JANUAR 1991
23
Reuter
Serrano kjörinn
forseti Gvatemala
Samkvæmt tölum sem birtar voru í Gvatemalaborg þegar 75% at-
kvæðanna í seinni umferð forsetakosninganna höfðu verið talin hafði
íhaldsmaðurinn Jorge Serrano, sem er heittrúaður mótmælandi, yfir-
burðastöðu, eða 68,3% atkvæðanna á móti 31,7% fylgi keppinautar-
ins, blaðaútgefandans Jorge Carpio, sem er rómversk-kaþólskur.
Myndin sýnir Serrano fagna sigri ásamt stuðningsmönnum sínum.
Kjörsókn var mjög dræm. Aðeins um 30% þeirra 3,2 milljóna sem
voru á kjörskrá, neyttu kosningaréttar síns.
29 farast í óveðri
á Bretlandseyj um
St. Andrews. Frá Guðmundi Heiðari Frimannssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
29 manns létust í óveðri, sem
gekk yfir írland og Bretland sl.
laugardag og aðfaranótt sunnu-
dags. Veðrið var að mestu geng-
ið niður í gær.
Sl. laugardag gekk mikið hvass-
viðri yfir Irland, Wales, alla vestur-
strönd Englands og Suður Skot-
land. 29 manns fórust af völdum
veðursins.
Mestur varð mannskaðinn á ír-
landi. í Portsmuna létust^ manns
í langferðabíl, þegar tré féll ofan á
hann. í Limerick lést maður vegna
rafstraums, sem hann fékk úr
raflínum, sem lágu slitnar á jörð-
inni eftir veðurofsann. í Galway
létust 2 menn, þegar steinveggur
féll undan veðrinu ofan á bíl, sem
þeir sváfu í. Allir þessir bæir eru í
vesturhluta íriands.
Einn lést í Ballybrack, setn er í
austurhluta írlands, og einn lést á
Norður-írlandi.
4 sjómenn drukknuðu þegar olíu-
skipið Kimya, skráð á Möltu, sökk
í Caemarfon-flóa um 20 km undan
norðvesturströnd Wales. 6 manna
er saknað af skipinu. Tveir björguð-
ust. Eins úr áhöfn breska togarans
The Greenland er saknað, eftir að
stórsjór svipti burt stýrishúsinu.
í Skotlandi er eins manns saknað
eftir að hann fór að vitja um björg-
unarbáta í höfninni í Girvan á vest-
urströnd Skotlands. Ungur drengur
lést í Suður-Wales, þar sem hann
var að leik nálægt heimili sínu,
þegar múrsteinahlaði féll ofan á
hann. Eins manns er saknað í Man-
chester, eftir að hann fauk í bíl
sínum út í skipaskurð. Hjón frá
London, sem vom á göngu á einni
bryggjunni í Brighton á suðurströnd
Englands, tók út, þegar mikil alda
reið yfir. Þau eru talin af.
í gær voru miklar truflanir á
samgöngum í suður- og miðhluta
Skotlands vegna mikillar snjókomu.
Veðurfræðingar búast við rysjóttu
veðri næstu vikuna að minnsta
kosti.
Sálfræöistöðin
Námskeið
Sjálfsþekking - Sjálfsöryggi
Á námskeiðinu kynnast þátttakendur:
• Hvaða persónulegan stíl þeir hafa í samskiptum
• Hvernig má greina og Skilja samskipti
• Hvernig ráða má við gagnrýni
• Hvernig finna má lausnir í árekstrum
• Hvernig læra má samskipti sem auka sjálfsöryggi
Leiðbeinendur
eru
sálfræðingarnir
Steinþórsdóttir og Guðfinna Eydal.
Innritun og nánari upplýsingar
VISA ® í símum Sáltræðistððvarinnar: SH
hii 62 30 75 og 21110 kl. 11-12. EUHOCARD j
NÝTT 0G GLÆSILEGT ÆFINGASVÆÐI
JÚDÓDEILD
JUDO
NÝ BYRJENDANÁMSKEIÐ
ERU AÐ HEFJAST
álfari er Michal Vachun fyrrverandi
þjálfari tékkneska landsliðsins.-
“7 Innritun og frekari upplýsingar
alla virka daga frá kl. 16—22
isima 627295
Vika á Flórída fyrir
*
29.800,- kr.
- Sólargeisli ískammdeginu -
Ótrúlegt en satt! Úrval-Útsýn býður örfá útsölu-
sæti til Orlandó í Flórída á völdum brottförum
nú í janúar og febrúar. Hafðu samband strax!
VERÐDÆMI:
*1. Tveir fullorðnir og tvö börn (undir 12 ára) sam-
an í herbergi á Hótel Econolodge í Orlando í
eina viku. Samtals 119.200,- kr. eða 29.800,- kr.
á mann að jafnaði.
2. Tveir fullorðnir á Hótel Econolodge í eina viku.
Samtals 79.800,- kr. eða 39.900,- kr. á mann.
Flugvallarskattur er ekki innifalinn í verðdæmunum.
Takmarkað
sætaframboð
URVAIUTSYN
Pósthússtræti 13 Álíabakka 16
sími 26900 sími 603060