Morgunblaðið - 08.01.1991, Side 28
28
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKDTI/AIVINNUIÍF ÞRIÐJUDAGUR 8. JANÚAR 1991
LAUSBLAÐA-
MÖPPUR
frá Múlalundi...
... þær duga sem besta bók.
Múlalundur
SÍMI: 62 84 50
Kvikmyndaiðnaður
Hvert fyrirtæki verður
að hafa sitt sérsvið
— sagði Sigurjón Sighvatsson framkvæmdastjóri Propaganda Film í
Los Angeles m.a. á fundi Amerísk-íslenska verslunarráðsins
Skrifstofutækni
Fyrir aðeins kr. 4750' á mánuði.
Námið kemur að góðum notum í atvinnuleit. Einungis
eru kenndar námsgreinar sem nýtast þegar út á
vinnumarkaðinn er komið. Til dæmis:
Bókfærsla
Tölvubókhald
Ritvinnsla
Tollskýrslugerð
Verslunarreikningur
Verðiö miðast við skuldabréf til tveggja ára. ^
Tölvuskóli Islands
Sími: 67 14 66, opið til kl. 22
SIGURJÓN Sighvatsson fram-
kvæmdastjóri og einn aðaleiganda
Propaganda Film t Bandaríkjun-
um flutti erindi á fundi Amerísk-
íslenska verslunarráðsins, sem
haldinn var á Hótel Sögu síðastlið-
inn föstudag. Hann sagðist finna
oft fyrir því þegar hann talaði við
ungt fólk hér á landi, að það héldi
að ekkert mál væri að flytja úr
landi og stofna fyrirtæki. „Eg
held að það geri sér ekki grein
fyrir því, að ég hef eytt 12 árum
í Bandaríkjunum og allan tímann
verið í tengslum við kvikmynda-
iðnaðinn í Hollywood," sagði Sig-
uijón. „Þar af eyddi ég 5 árum í
skóla og fékk þannig staðgóða
þekkingu á bandarísku þjóðlífi og
kvikmyndaiðnaði."
Hann benti m.a. á að tilhneiging
væri á íslandi að álíta að bankafyrir-
greiðsla væri mun auðveldari í
Bandaríkjunum en hér á landi. Þetta
sagði hann vera rangt. Hann og
meðeigandandi hans, Steve Golin,
sem einnig er framkvæmdastjóri fyr-
irtækisins, hefðu byrjar með tvær
hendur tómar og hefðu ekki átt í
neina banka að venda. Hann sagði
Nýtt skrifstofutækninám
Morgunblaðið/Þorkell
STJÓRNANDINN —
Siguijón Sighvatsson var gestur
á fundi Amerísk íslenska versl-
unarráðsins sl. föstudag.
það einnig ómetanlegt við stofnun
fyrirtækisins að hafa verið í sam-
vinnu við bandarískan aðila, sem
þekkti ekki bara kvikmyndaiðnaðinn
betur en hann sjálfur heldur einnig
siði og venjur fólksins. „Öll viðskipti
byggjast að sjálfsögðu á leikni í
mannlegum samskiptum," sagði
hann.
Siguijón rakti sögu fyrirtækisins
og sagði að velta þess hefði sexfald-
ast á þeim fjórum árum, sem það
hefði verið til. Ekki væri búist við
frekari veltuaukningu, enda væru
eigendurnir ánægðir með stærð fyrir-
tækisins eins og það væri nú. Mest
hefði aukningin verið milli áranna
1988-90 vegna markvissrar út-
þenslu. Hagnaður hefði hins vegar
verið í öfugu hlutfalli við veltuna.
Á árinu 1988 var stigið það stóra
skref að skipta fyrirtækinu í nokkur
smærri dótturfyrirtæki. Sagði Sigur-
jón að mörg kvimyndafyrirtæki
hefðu farið flatt á því að fara sjálf út
í alla framleiðsluþætti. Propaganda
hefði tekið þá ákvörðun að skipta
fyrirtækinu í sjálfstæðar rekstraein-
ingar og hefja samstarf við aðra
aðila tii að dreifa áhættunni og fá
inn meira rekstrarfé. „Við fórum á
stúfana og leituðum uppi unga og
efnilega menn eða keyptum okkur
inn í fyrirtæki með vaxtarbrodda,“
sagði hann.
Siguijón benti á að það væri meg-
inatriði þegar farið væri út í rekstur
fyrirtækis að þekkja þann markað
sem farið væri inn á. Þá lagði hann
á það áherslu að sérhvert fyrirtæki
yrði að finna sína sérstöðu. Propa-
ganda hefði lagt áherslu á að fram-
leiða öðru vísi l^vikmyndir og tónlist-
armyndbönd. Þeir kepptu ekki við
stóru fyrirtækin, heldur framleiddu
það sem þau þyrðu ekki að gera og
nefndi í því sambandi Wild at heart
eða Tryllt ást.. Hann sagði að þótt
Propaganda væri smátt fyrirtæki
væri það eina kvikmyndafyrirtækið
sem væri í einkaeigu í Hollywood.
Siguijón Sighvatsson sagðist að
lokum vilja gera orð vinar síns að
sínum. „Fyrirtæki eru eins og mann-
skepnan. Þau eiga sér takmarkað
lífshlaup. Lengd þess lífshlaups fer
fyrst og fremst eftir því hvernig fyr-
irtækið er skipulagt eða rekið.“
Þegar Siguijón hafði lokið erindi
sínu var hann m.a. spurður hver
væri möguleiki á að efla útflutning
íslenska kvikmyndaiðnaðarins. Hann
svaraði því til að alltof lítið fjármagn
væri lagt í kvikmyndagerð hér á landi
og alltof langur tími liði á milli kvik-
mynda. „Ef við viljum selja íslenska
mynd utan sem stjórnuð er af
íslenskú fólki verður að vera stöðugt
framboð, því annars leitar viðskipta-
vinurinn eitthvað annað. Það sama
gildir um framboð á fiski og kvik-
rnyndum," sagði hann.
Hugbúnaður
Eigendaskipti
á Tollara
ÍSLENSK forritaþróun hf. hefur
keypt öll réttindi hugbúnaðar á
forritinu Tollara af íslenskum
tækjum. Hátt á þriðja hundrað
íslensk fyrirtæki nota þetta toll-
kerfi, að sögn Hálfdans Karlsson-
ar framkvæmdastjóri Islenskrar
forritaþróunar. „Með kaupunum á
Tollara hyggst fyrirtækið styrkja
enn stöðu sína meðal innflutnings-
fyrirtækja," sagði hann. íslensk
tæki, sem um árabil hefur fengist
við tölvuinnfutning og hugbúnað-
argerð mun hins vegar leggja
frekari áherslu á hönnun tölvu-
stýrðra mælitækja.
Islensk forritaþróun, sem stofnað
var 1983 og hefur frá _ uphafi selt
viðskiptahugbúnaðinn Ópus hefur
aukið umsvif sín á undanförnum
misserum. Árið 1988 keypti félagið
öll réttindi til Peachtree hugbúnaðar-
ins frá Mícrótövunni hf. I fyrra sam-
einaðist íslensk forritaþróun Þekk-
ingu hf. sem var með ALLT hugbún-
aðinn. Að sögn Hálfdans hefur verið
unnið að sameiningu Opus og ALLT
hugbúnaðar og verður hið nýja kerfi
Ópusallt tilbúið til sölu innan fárra
vikna.
Tölvuskóli Reykjavíkur gerir þér kleift aö auka viö þekkingu
þína og atvinnumöguleika á skjótan og hagkvæman hátt
Á nýja skrifstofutækninámskeiðinu sem er alls 250 klst. langt eru teknir fyrir eftirtaldir áfangar:
TÖLVUGREINAR, PC TÖLVUR TÖLVUGREINAR MACINTOSH TÖLVUR VIÐSKIPTAGREINAR
Almenn tölvufræðí
PC-stýrikerfi •
- Ritvinnsla
- Töflureiknar og áætlanagerð
- Tölvufjarskipti
- Gagnasafnsfræðí
- Windows
Macintosh-stýrikerfi
- Umbrotstækni
- Ritvinnsla
- Viðskiptagrafík
TUNGUMÁL
Islenska
Almenn skrifstofutækni
Bókfærsla
Tölvubókhald
Verslunarreikningtir
Toll- og verðútreikningar,
innflutningur
HringiÖ ogfáiö sendan ókeypis bækling. Erum viÖ til kl. 22.
Launaforrit sem hentar fyrir alla
alménna launaútreikninga. Það
þarf aðeins að slá inn lágmarks-
upplýsingar, LAUN sér um allt
annað.
LAUN, sem er einnig þekkt sem
Rafreiknislaun er í notkun í
500 fyrirtækjum og mun vera
mest notaða launaforritið á
fslandi.
Athugiö aö LAUN sér um allt sem snýr afi stahgreifislu skatta.
LAUN fœst í næstu tölvuverslun.
Binar J. Skúíason hf.
Grensásvegi 10, 108 Reykjavík. Sími (91) 686933