Morgunblaðið - 08.01.1991, Síða 41

Morgunblaðið - 08.01.1991, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. JANÚAR 1991 41 HJONABAND Stallone í hnappheldu þrátt fyrir bölbænir mömmu Jæja, þá er Sýlvester Stallone reiðubúinn að ganga upp að altarinu á nýjan leik og freista gæfunnar í heilögu hjónabandi með 22 ára gamalli snót að nafni Jennifer Flavin, en þau hafa vart sést utan í fylgd hvors annars síðustu mánuði. Sjálfur er Sly orðinn 44 ára gamall og á nokk- ur sambönd og hjónabönd að baki, það kunnasta með dönsku kyntröllkonunni Gitte Nielsen. Sly segist nú gerbreyttur og Jennifer sé sá örlagavaldur sinn. Áður hafi hann oftsinnis í hverri mynd sem hann gerði lagt líf sitt í hættu með því að leika sjálf- ur stórhættuleg áhættuatriði eins og að stökkva út úr þyrlum í 20-30 metra hæð, stökkva und- ir skriðdreka á fullri ferð og svo framvegis. Nú myndi ekkert slíkt hvarfla að sér, framvegis verði áhættuleikarar látnir svitna fyrir sínum launum. Þessu valdi ást hans á Jennifer. Jennifer þessi tekur i sama streng, hún sjái lífið í nýju og krystalstæru ljósi eftir að hún hitti fyrir draumaprinsinn sinn Sly Stallone. Hin litríka móðir Slys, Jackie Stallone, Sem lengi hefur baðað sig í frægðar- ljóma sonarins, hefur spáð því að þetta hjónaband Slys gangi ekki upp fremur en hitt. Þvi valdi að Jennifer sé ekki verðug að eiga Sly fremur en fyrirrennarar hennar. Auk þess séu þau ekki fallegt par þar sem Jennifer sé ekki nógu vel vaxinl .Og raunar sé ekki sú kona til sem sé nógu góð fyrir hann Sly sinn. Kunnugir telja hana ekkert meiria með þessu, þetta sé erg- elsishjal sem stafi af því að hún falli nú í skuggann af Jennifer sem bæði þykir greind og af- burðafalleg stúlka. Ekki nógu vel vaxin fyrir Sly? Sylvester er greini- lega ósam- mála mönnnu gömlu. POPP Kænskan malar gnllið Mikið er rætt um söngkonuna Madonnu þessi misserin. Hún ýmist hneykslar fólk eða heillar það nema hvort tveggja sé. Nú þykir mörgum aðdáunarvert hvernig henni hefur tekist að raka saman fé með því einu að gefa út plötu með uppdubbuðum gömlum lögum. Án þess að fylgja plötunni eftir með hjómleikaferðalagi. Án þess að koma nokkurs staðar fram opinber- lega og flytja efni plötunnar. Hún nefur einfaldlega vaf- ið Ijölmiðlum um fing- ur sér. Unnið djörf myndbönd með lögum sínum og spílað síðan út réttu spilunum í takt við viðtökurnar. Sum myndböndin hafa verið bönnuð víða fyrir vestan haf og alls staðar eru þau umtöluð. Aldrei hefur hún þénað jafn mikið fyrir jafn litla vinnu, nánast eingöngu út á kænsku og aðspurð brosir hún bara og segir ekkert. Madonna í aðalhlutverki í einu af myndbönd- unum umtöluðu. Þetta atriði þykir þó fremur ómerkilegt miðað við mörg önnur. COSPER Mig verkjar í hriéð þcgar ég er í þessari stellingu. Burt Lancaster er nú alvarlega sjúkur. KRANKLEIKI Burt Lancast- er þungt haldinn Gamla Hollywood-brýnið Burt Lancaster liggur nú þungt haldinn á sjúkrahúsi í Los Alamitos í Kaliforníu, en hann fékk hjarta- slag í byijun desember. I fyrstu var honum vart hugað líf, en hann er nú úr lífshættu. Læknar leikarans góðkunna segja hann magnlítinn hægra megin og auk þess eigi hann erfitt með mál. Óvíst sé hvort hann nái meiri bata en komið er. Það eru aðeins rúmir þrír mánuðir síðan Lancaster gekk að eiga Susan Scherer, 48 ára gamlan sjónvarps- „pródúsent“. Var það þriðja hjóna- band beggja. 1. leikvika - 5. jan. 1991 Röðin : 1XX-222-X11 -121 HVER VANN ? 685 79g kr 12 réttir: 0 raöir komu fram og fær hver: O-kr. 11 réttir: 8 raöir komu fram og fær hver: 21.431 - kr. 10 réttir: 151 raöir komu fram og fær hver: 1.135 - kr. Sprengivika og Tvöfaldur pottur >1 VÁKORTALISTI DagS. 08.01.199R Nr. 23 Kort nr 8300 8300 8300 8300 8300 8301 8301 1024 2104 1192 2209 1486 2105 1564 8107 2460 7102 0314 8218 0342 5103 Erlend kort (öll kort) 54-11 07** **** **** 5420 65** **** **** 5217 0010 2561 2660 5217 9840 0206 0377 5217 9500 0114 5865 Ofangreind kort eru vákort sem taka ber úr umferð. VERÐLAUN KR. 5.000,- fyrir þann sem nær korti og sendir sundurklippt til Eurocards. Úttektarleyfissími Eurocards er 687899. Þjónusta allan sólarhringinn. Klippið auglýsinguna út og geymið.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.