Morgunblaðið - 31.01.1991, Side 21

Morgunblaðið - 31.01.1991, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 1991 21 Morgunblaðið/Frímann Ólafsson Gatnagerðaframkvæmdir í Grindavík. Við getum nú boðið lúxussiglingu á Karabískahafinu á hreint ótrúlega hagstæðu verði i samvinnu við hið þekkta skipafyrirtæki Carnivai Cruises. Flogið erfrá Keflavíktil Baltimore á miðvikudegi og þaðan áfram til Miami, þar sem dvalið er á góðu hóteli í tvær nætur. Þá er haldið í lúxussiglinguna á föstudegi og komið til baka á mánudegi. Dvalið í tvær nætur á Miami og síðan haldið heim á leið. Verðid ffyrir þessa frábæru fferð er aðeins frá 76.530,- Grindavík: Gangstéttalagning í byijun þorra Grindavík LAGNING gangstétta hefur að öllu jöfnu talist til sumarverka og heldur fátítt að slíkar framkvæmdir séu í gangi í byrjun þorra, um hávetur. Góðviðrið í Grindavík var þó í liðinni viku notað til að leggja gangstéttir í þeim götum sem urðu útundan í haust þegar byijaði að fiysta. Jón Gunnar Stefánsson sagði við Morgunblaðið að samkomulag hefði tekist við verktakann um að ljúka þessum gatnagerðarfram- kvæmdum en þær hefðu dregist lengra fram á haustið 1990 af ýmsum ástæðum. Allar gangstétt- arhellurnar voru komnar og stóðu á hafnarbakkanum og því hefði verktaki sóst eftir að ljúka verkinu nú heldur en að bíða vorsins. Að sögn Jóns er verið að ljúka við að leggja 4.000 fermetra í þessum áfanga og að því loknu mun vera lokið 'við nýsmíði gatna og gang- stétta í eldri hverfum bæjarins sem hafa staðið undanfarin 2-3 ár. „Það er ljóst að framkvæmdir bæjarins beinist í aðrar áttir á þessu ári og næstu árum svo sem sundlaugarframkvæmdir sem eiga eftir að taka vænan skerf af fram- kvæmdafé," sagði Jón Gunnar, „undirbúningsvinnu lýkur nú í febr- úar og útboð verður líklega á vor- dögum.“ FÓ Hafi fólk áhuga, er hægt að framlengja dvölina í Miami eða komast í lengri siglingar með skipum Carnival Cruise. Látið ekki happ úr hendi sleppa, því ótrúlega hagstæðir samningar okkar gera okkur kleift að bjóða þessar ferðir á þessu frábæra verði. mmi n iðs mi i n mnQ Austurstrætil7 Sfmar (91)622 011 & 62 22 00 Framsóknarflokkurinn á Vesturlandi: Davíð býðst til að víkja fyrir Sigurði VOLKSWAGEN AN VSK SÉRBÚINN SENDIBÍLL HENTUGUR FYRIR ALLAR STÆRÐIR FYRIRTÆKJA (gi) Sparneytinn 'H) Gangviss ® Þægilegur í notkun Auðveldur í endursölu DAVÍÐ Aðalsteinsson bóndi og fyrrv. alþingismaður á Arnbjarn- arlæk í Borgarfirði hefur boðist til að víkja úr öðru sæti á fram- boðslista Framsóknarflokksins á Vesturlandi, en að sögn Ernu Einarsdóttur, formanns kjör- dæmisráðs, gerir hann það í trausti þess Sigurður Þórólfsson í Innri Fagradal í Dölum taki það sæti. Svar hefur ekki borist frá Sigurði, sem nú er staddur er- lendis, en hann er væntanlegur til landsins í dag, fimmtudagi. Sigurður lenti í þriðja sæti þegar raðað var á lista Framsóknarflokks- ins á' Vesturlandi að undangengnu foi-vali, en hann hafnaði því sæti, og færðist þá Ragnar Þorgeirsson frá Rifi upp í þriðja sætið. Óán- ægja hefur veið meðal Dalamanna með að eiga ekki mann í efstu sætum á framboðslistanum, og sagði Erna Einarsdóttir að Davíð hefði boðist til að víkja fyrir Sig- urði í trausti þess að byggðatog- streita í kjördæminu yrði þar með úr sögunni. Stgr.verð kr. 727.080 Vsk kr. 143.080 = kr. 584.000 Fjöldi fyrirtækja hefur valið VW POLO ÁN VSK Tæplega 5.000 erlendir ríkisborgarar búsettir hér TÆPLEGA 5.000 erlendir ríkisborgarar áttu lögheimili Iier á landi þann 1. desember síðastliðinn, en alls eru hér búsettir 9.666 einstakl- ingar sem fæddir eru erlendis. Tæplega helmingur þessa Iióps á ríkisborgararétt á Norðurlöndum eða er fæddur þar. Samkvæmt upplýsingum frá Hagstofu Islands voru búsettir hér á landi 9.666 einstaklingar fæddir erlendis þann 1. desember, en það eru 3,8% landsmanna. Af þessum hópi eru flestir fæddir á hinum Norðurlöndunum eða 4.317, 2.819 annars staðar í Evrópu og 1.418 í Ameríku. 191 einstaklingur hér er fæddur í Afríku, 765 í Asíu og 153 í Eyjaálfu. Ef tekin eru einstök ríki, þá eru flestir þessara einstaklinga fæddir í Danmörku eða 2.153, í Bandaríkj- unum 1.129, í Svíþjóð 1.081, í Þýskalandi 844, 718 í Noregi, 680 í Bretlandi og 278 í Póllandi. Stór hluti þeirra, sem fæddir eru erlendis, eru börn íslenskra for- eldra, sem dvalist hafa erlendis við nám eða störf. Þann 1. desember áttu 4.812 erlendir ríkisborgarar lögheimili hér á landi. Þar af voru 1.578 Norður- landabúar, 1.698 frá öðrum Evróp- ulöndum, 861 frá Ameríku, 125 frá Afríku, 404 frá Asíu og 144 frá Eyjaálfu. Af einstökum þjóðum eru Danir flölmennastir eða 1.030, þá koma 717 Bandaríkjamenn, 454 Bretar, 319 Norðmenn, 310 þjóðveijar, 249 Pólveijar og 182 Svíar. í þessum tölum um erlenda ríkis- borgara eru erlendir sendiráðsmenn og varnarliðsmenn ekki teknir með, enda eiga þeir ekki lögheimili hér á landi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.