Morgunblaðið - 21.02.1991, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 21.02.1991, Blaðsíða 2
MORGUNBLAÐIÐ FIMMÍUDÁGÚR 21. FEBRÚAR 1991 Forsætisráðherra Eistlands: ísland ísbijótur í bar- áttu Eystrasaltsríkja Sammála Jeltsín að Gorbatsjov beri að segja af sér „ÉG ER sammála Boris Jeltsín," sagði Edgar Savisaar, forsætisráð- herra Eistlands, í samtali við Morgunblaðið um þá yfirlýsingu Jelts- íns, að Gorbatsjov Sovétforseti eigi þegar í stað að segja af sér embætti. Hann sagði ennfremur að fyrirhuguð vantrauststillaga harðlínumanna á Jeltsín á rússneska þinginu muni hafa mikil áhrif. „Við eigum samt ekki gleyma því, að það eru líka til rússneskir lýðræðissinnar sem hafa viss áhrif. Ræða Jeltsíns á þriðjudag þýðir að lýðræðissinnar eru að láta til sín taka að nýju,“ sagði Savisaar. Savisaar og Lennart Meri, ut- anríkisráðherra Eistlands, komu til íslands frá Stokkhólmi síðdegis í gær og tók Steingrímur Hermanns- son, forsætisráðherra, á móti þeim í flugstöð Leifs Eiríkssonar. Savisaar sagði við fréttamenn við komuna til landsins að Eistlending- ar hefðu verið í sambandi við ís- lenska ráðamenn og nú væri kom- inn tími til að hefja viðræður milli landanna og stilla betur saman strengi. „Island hefur hjálpað mikið í baráttu Eystrasaltslandanna og verið eins og ísbijótur á Norður- löndunum. Það hefur líka greitt fyrir stuðningi frá öðrum Evrópu- ríkjum,“ sagði hann. Savisaar sagði að erindi þeirra til Islands væri að samræma sjónar- mið landanna en stuðningur Islands hefði verið ómetanlegur og átt sinn þátt í að stöðva valdbeitingu sovét- hersins í Eystrasaltsríkjunum, „vegna þess að það var ísland sem hjálpaði Eystrasaltslöndunum við að stöðva það Demóklesarsverð sem fellt var á þessi lönd í janúar. Nú er stund milli stríða og við viljum nota tímann til að styrkja sambönd- in við önnur lönd,“ sagði hann. Hann sagði einnig að viðurkenn- ing íslands á sjálfstæði Litháens hefði haft jákvæð áhrif á baráttu Eistlands. „Við teljum að önnur ríki muni fylgja í fótspor Islendinga,“ sagði hann. Edgar Savisaar og Lennart Meri munu í dag eiga viðræður við Stein- grím Hermannsson, forsætisráð- herra, og Jón Baldvin Hannibals- son,_ utanríkisráðherra. Heimsókn þeirra til íslands lýkur á morgun. Morgunblaðið/Þorkell Edgar Savisaar, forsætisráðherra Eistlands (t.v.), og Lennart Meri, utanríkisráðherra (t.h.), komu til íslands frá Svíþjóð síðdegis í gær. Tók Steingrímur Hermannsson, forsætisráðherra, á móti ráðherrunum í Leifsstöð. Nýbyggingar: Byggingamenn kenna hús- bréfum um trega íbúðasölu Barn datt og klemmdist í rúllustiga ÞAÐ óhapp varð í verslunar- miðstöðinni í Mjóddinni um hálffimmleytið í gær að barn klemmdist í rúllustiga. Mun barnið hafa dottið í stiganum og klemmst við það. Barnið var flutt á slysadeild en meiðsli þess reyndust minni- háttar. Fulltrúar frá Vinnueftirlitinu voru kallaðir á staðinn, eins og venja er þegar svona mál koma upp. Við athugun þeirra á stig- anum reyndist hins vegar allt vera í lagi. Að sögn lögreglunnar kemur það fyrir af og til að fólk klemm- ir sig í rúllustigum og er þar oft um böm að ræða. UM 200-250 íbúðir, fokheldar eða lengra komnar í byggingu, eru óseldar á höfuðborgarsvæðinu, samkvæmt könnun sem Lands- samband iðnaðarmanna hefur gert. Byggingamenn segja þennan fjölda óseldra íbúða endurspegla sólutregðu, sem stafi aðallega af því hve húsbréfakerfið sé dýrt fyrir kaupendur en ekki af því að verð á þessum íbúðum sé of hátt. í könnuninni kom fram, að meiri- hluti þeirra byggingameistara, sem eiga óseldar íbúðir, telur söluhorfur þeirra góðar, nú þegar mesti sölu- tíminn fer í hönd og að nægur fjöldi áhugasamra kaupenda sé á mark- aðnum. Það sé þó háð því að fram- kvæmdin í húsbréfakerfmu yrði greiðari en verið hefur. Ingvar Á. Guðmundsson formaður Meistara- og verktakasambands byggingamanna sagði við Morgun- blaðið, að fjármagnskostnaður í hús- bréfakerfi væri svo mikill að fólk keypti frekar notað ódýrara húsnæði en nýtt. Afföll á húsbréfunum væru nú milli 14 og 15%, m.a. vegna þess að ríkið þyrfti að standa við skuld- bindingar úr gamla húsnæðiskerfinu og fengi til þess fjármágn frá lífeyris- sjóðunum, sem um leið drægju úr kaupum á húsbréfum. Jafnframt seldi ríkið skuldabréf og ríkisvíxla sem kepptu við húsbréfín á ijár- magnsmarkaði. „Þetta er fjármála- skollaleikur þar sem ríkið er sjálft að vinna gegn húsbréfakerfinu," sagði Ingvar. Hann sagði að samkvæmt athug- unum Meistara- og verktakasam- bands byggingamanna hefðu bygg- ingameistarar ekki lækkað verð á nýjum íbúðum í Reykjavík frá ára- mótum enda virtust kaupendur nýrra íbúða ekki setja verðið fyrir sig. -í könnun Landssambands iðnaðar- minna kemur fram, að verkefna- stáða fyrirtækjá í byggingariðnaði virfíist vera viðunandi miðað við árs- tíma, þótt það væri mismunandi eft- ir landshlutum. Ingvar Á. Guð- mundsson sagði að á árinu yrðu byggðar um 1.000 félagslegar íbúðir og samtök aldraðra létu einnig byggja mikið af íbúðum. Útlit væri því fyrir að 1.400 til 1.600 nýjar íbúðir yrðu byggðar á árinu, en af- kastagetan væri um 2.500 íbúðir þannig að verkefnin væru ekki næg. Staða prófessors í skurðlækningum við HÍ: Brynjólfur dregur sig til baka Á FUNDI í læknadeild Háskóla íslands í gær var lesið bréf frá Brynj- ólfi Mogensen, yfirlækni á bæklunardeild Borgarspítalans, þar sem hann dregur umsókn sína um stöðu prófessors í handlæknisfræðum við Háskóla Islands til baka. Búist er við að kosningar fari fram í læknadeild innan tveggja vikna milli umsækjenda um stöðuna. Við atkvæðagreiðslu í læknadeild í desembermánuði milli umsækjenda um stöðuna hlutu dr.med. Brynjólfur Mogensen og dr.med. Halldór Jó- hannsson, dósent við læknadeild HÍ, flest atkvæði. Er síðan var kosið á milli þeirra tveggja á fundinum hlaut Brynjólfur 31 atkvæði en Halldór 30 atkvæði. Einn seðill var auður og einn ógildur og að mati lögskýrenda taldist Brynjólfur ekki hafa hlotið tilskilinn meirihluta atkvæða. Varð því að kjósa aftur í læknadeild og við tvennar kosningar í deildinni í síðustu viku hlaut Halldór hins vegar nokkrum atkvæðum meira en Brynj- ólfur og í báðum tilvikum réttan helming greiddra atkvæða en ekki * Rannsóknaskipið Arni Friðriksson fer í loðnuleiðangur á laugardag: Mælt verður hversu mikíð er af loðnu austan við aðalgönguna Rannsóknaskipið Árni Friðriksson fer í loðnurannsóknaleiðangur við Suðausturland á laugardag og reiknað er með að skipið verði tæpar tvær vikur í leiðangrinum, að sögn Jakobs Jakobssonar l'orstjóra Haf- rannsóknastofnunar. „Skipið á fyrst og fremst að mæla hversu mikið er af loðnu austan við aðalgönguna, sem komin er vestur fyrir Vest- mannaeyjar," segir Jakob. Mokveiði var hjá loðnuskipunum við Grinda- vík og Ingólfshöfða í gær en þá var búið að veiða um 70 þúsund tonn af 182 þúsund tonna loðnukvóta. Rannsóknaskipið Bjami Friðriks- son kom úr loðnuleiðangri til Reykja- víkur á föstudag en skipið fór í sjó- rannsóknaieiðangur á þriðjudag og verður í honum í tvær vikur. Árni Friðriksson kom hins vegar til Reykjavíkur úr síidarmæiingum og loðnuleit á mánudagskvöld. Rann- sóknaskipin eru búin að sigla sam- tals 12 þúsund sjómílur frá áramót- um og hafa eytt oliu fyrir um 4 millj- ónir króna á þeim tíma. Keflvíkingur KE og Bergur VE lönduðu loðnu á Höfn í Hornafirði í gær en það er fyrsta loðnan, sem Fiskimjölsverksmiðja Homafjarðar hf. tekur á móti í vetur. Verksmiðjan greiðir 4 þúsund krónur fyrir t.onnið, eða sama verð og Hraðfrystihús Eskifjarðar hf., en Síldarverksmiðjur ríkisins (SR) á Reyðarfírði greiða 4.200 krónur fyrir tonnið, að sögn Hallgríms Haligrímssonar 1. stýri- manns á Keflvíkingi. Nú fást um 300 sterlingspund, eða 32 þúsund krónur, fyrir tonriið af venjulegu loðnumjöli og 340-350 bandaríkjadalir, eða um 19 þúsund krónur, fyrir tonnið af loðnulýsi, að sögn Jóns Reynis Magnússonar framkvæmdastjóra SR. Hins vegar fæst allt að 15% hærra verð fyrir gæðamjöl en venjulegt mjöl en hrá- efnið skiptir mestu máli varðandi gæðin. Jón Reynir segir að nú sé lít- il eftirspurn eftir loðnumjöli. Hins végar sé mikil eftirspum eftir gæða- lýsi í fiskafóður. Mjölnýtingin er nú um 17% og lýsisnýtingin 8%. Ef greiddar eru 4 þúsund krónur fyrir loðnutonnið er hráefnisverðið því tæp 70% af því afurðaverði, sem nú fæst. „Ef hrá- efnisverðið er hærra en 60% af skila- verði hafa menn enga peninga til að vinna þetta og afskrifa vélar og tæki,“ segir Jón Reynir. Frá því að veiðibanni var aflétt 13. þessa mánaðar hefur loðnu verið landað hjá öllum loðnuverksmiðjum á landinu, nema á Ólafsfirði, Siglu- firði, Raufarhöfn og í Sandgerði en SR á Siglufírði og Raufarhöfn bræddu loðnu í haust. Ætlunin er að taka á móti loðnu í Sandgerði á næstunni en ekki er búist við að verksmiðjan á Ólafsfirði bræði loðnu í vetur. SR á Seyðisfírði tók á þriðju- dagskvöld á móti fyrstu loðnunni eftir að verksmiðjan var endurbætt og vel gekk að bræða loðnuna, að sögn Jóns Reynis Magnússonar framkvæmdastjóra. Útgerðir loðnuskipanna Helgu II RE, Grindvíkings GK, Bjarna Olafs- sonar AK og Hákons ÞH eiga hlut í loðnuverksamiðjunni Hafsíld á Seyðisfirði. Þá á Fiskimjöl og lýsi hf. í Grindavík 80% í loðnuverksmiðjunni á Vopnafírði en Víkurberg GK og Háberg GK lönduðu loðnu á Vopna- fírði um helgina. tilskilinn meirihluta. Fyrirhugað var að kjósa í fjórða skipti milli Brynj- ólfs og Halldórs á fundi deildarinnar í gær en við upphaf hans las forseti deildarinnar, dr.med. Gunnar Guð- mundsson, fyrrgreint bréf Brynjólfs Mogensen. Brynjólfur Mogensen sagði þetta mál snúast um að skipuð hafi verið dómnefnd, eins og lög gerðu ráð fyrir, til að meta hvern umsækjenda hún teldi hæfastan til að skipuleggja stjórn og þróa kennslu í handlæknis- fræðum og efla vísindavinnu. „Dóm- nefndin mat mig hæfastan til þess- ara starfa en þegar búið var að kjósa ^fjórum sinnum án þess að niðurstaða fengist ákvað ég að nóg væri komið og dró mig til baka,“ sagði Brynjólf- ur. „Það er mitt mat að fyrst þessi háttur er hafður á, að dómnefnd er valin, sem leggur margra mánaða vinnu í að vega og meta umsækjend- ur, en síðan er ekki farið að niður- stöðu hennar heldur kosið á milli efsta og neðsta manns á lista henn- ar, þá tekur það ekki nokkru tali.“ Hann sagði að sér fyndist rétt, fyrst svona væri komið, að menn ■ endurmætu stöðúna og athuguðu hvort ekki fyndust fletir á málinu sem flestir gætu sætt sig við. „Ráð- herrar hafa í gegnum tíðina verið gagnrýndir fyrir að hafa ekki allaf gert eins og dómnefndir mæla með en nú fara deildarfulltrúar ekki eftir því sem dómnefndin segir. Um þetta er tekist." Halldór Jóhannsson sagðist ekki vera reiðubúinn að tjá sig um málið. Aðrir umsækjendur um stöðuna eru þeir dr.med. Einar Örn Björns- son, dósent og sérfræðingur á Há- skólaspítalanum í Lundi, dr.med. Jónas Magnússon, sérfræðingur á Borgarspítalanum, Gauti Arnþórs- son, dósent og yfírlæknir á Fjórð- ungssjúkrahúsinu á Akureyri, og dr.med. Gunnar Gunnlaugsson, MS.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.