Morgunblaðið - 21.02.1991, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 21.02.1991, Blaðsíða 23
MORGUNBLÁÐE) FIMMTÚDAGUR 21. FEBRUARM991 23 Reuter Gríman aldrei langt undan Tvær tískusýningarstúlkur sýndu ný sundföt í Tel Aviv í ísrael í gær. Eins og komið hefur fram í fréttum að undanförnu skilja ísrael- ar nú sjaldnast gasgrímuna við sig. Hún er því orðin hluti af dag- legu lífi fólks og því kannski ekki óeðlilegt að sundföt séu vegin og metin með hliðsjón af því hvernig þau passi við slíkan höfuðbúnað. Samningaviðræður EFTA og EB: Nýjar tillögur um sam- eiginlegan EES-dómstól Brussel. Frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. Yfirsamninganefnd Evrópubandalagsins (EB) kynnti í gær nýjar hugmyndir um sameiginlegan dómstól fyrir Evrópska efnahagssvæð- ið (EES). Talsmaður yfirsamninganefndar Fríverslunarbandalags Evrópu (EFTA) sagði að tillagan væri mun aðgengilegri sem umræðu- grundvöllur fyrir EFTA. Nýja tillagan gerir ráð fyrir að sérhvert ríki EFTA skipi dómara við dómstólinn og dómstólar innan EFTA geti beðið um úrskurð EES-dómstólsins í atriðum sem varða samning- inn um Evrópska efnahagssvæðið. Á fundinum í gær hafði verið búist við tillögum frá EB til lausnar deilunum um greiðari aðgang fyrir sjávarafurðir á markaði Evrópubandalagsins en af því varð ekki. Með fundinum í gær lauk sjöundu samningalotu EFTA og EB um EES. Horst Krenzler, aðalsamn- ingamaður EB, sagði að loknum fundinum að nokkuð miðaði í sam- komulagsátt en ljóst væri að herða þyrfti róðurinn að mun ef ljúka ætti samningaviðræðunum á tilsett- um tíma fyrir lok júnímánaðar. Krenzler sagði að enn bæri mikið á milli í samningaviðræðunum. EFTA-ríkin tóku nýjum tillögum EB um sameiginlegan dómstól vel. í þeim er komið til fnóts við þá kröfu EFTA að sérhvert aðildarríki skipi dómara við dómstólinn sem mun starfa í nánum tengslum við Evrópudómstólinn í Lúxemborg. Umræðurnar um EES-dómstólinn eru skammt á veg komnar og ekki ljóst hvert hlutverk hans verður en EB hefur gert ráð fyr- ir að hann úrskurði einungis í ágreiningsmálum vegna EES- samningsins og dómstólar í EFTA-ríkjunum geti óskað eftir úrskurði hans um efni er varða efnahagssvæðið. Krenzler sagði þær tillögur sem EFTA-ríkin hefðu lagt fram í tvíhliða viðræðum um landbún- aðarmál hafa valdið vonbrigðum í herbúðum EB. Þá hvorki gengi né ræki í samningaviðræðum við Svisslendinga og Austurríkis- menn um ferðir flutningabif- reiða frá EB um lönd þessi. Af hálfu Evrópubandalagsins væri ljóst að viðunandi lausn á þeim málum væri forsenda fyrir því að unnt yrði að ljúka gerð EES- samningsins. Krenzler gat þess Deilur um framtíð Júgóslavíu: Slóvenar gera að tillögu sinni að tvö ný ríki verði mynduð liiuhlinna. Reuter. einnig að enn hefði ekki tekist að ljúka viðræðum um stofnanir vegna EES, verslun með sjáv- arafurðir og hugmyndir um sér- stakan EFTA-sjóð til lífskjara- jöfnunar innan fátækari ríkja EB. EB boðaði á síðasta fundi yfir- samninganefndarinnar að tillög- ur yrðu lagðar fram af þeirra hálfu til lausnar deilunum um verslun með sjávarafurðir. Ljóst er að þær til-lögur verða ekki lagðar fram fyrr en eftir miðjan næsta mánuð. Unnið er að því innan framkvæmdastjórnar Evr- ópubandalagsins að móta þessar tillögur í samráði við aðildarrík- in. Heimildarmenn Morgunblaðs- ins í Brussel herma að tillögurn- ar gangi enn sem komið er mjög skammt og gert sé ráð fyrir umtalsverðum veiðiheimildum innan lögsögu EFTA-ríkja fyrir greiðari aðgang að EB-mörkuð- um. ítrekað er af hálfu EFTA að viðunandi lausn á verslun með sjávarafurðir sé forsenda samn- ingsins um EES. ír Blomberq Ljubljana. Reuler. ÞING Slóveníu samþykkti í gær breytingar á stjórnarskrá lýðveld- isins sem kveða á um að framvegis skuli lög landsins vera æðri júgóslavneskum lögum. Þykir þetta mikilvægt skref í sjálfstæðis- baráttu Slóvena sem nú kveðast líta svo á að júgóslavneska ríkja- sambandið heyri í raun sögunni til. Á þinginu var einnig samþykkt áætlun í 11 liðum um hvemig stað- ið skuli að því að leysa Júgóslavíu upp. Forseti lýðveldisins, Milan Kucan, sagði að gengið væri að því sem vísu að ríkjasambandið Júgóslavía hefði liðast í sundur í efnahagslegum og pólitískum skilningi. Lagði forsetinn til að samningaviðræður um skiptingu landsins yrðu hafnar þegar í stað. í máli hans kom fram að Slóvenar vildu að Júgóslavíu yrði skipt upp í tvö ný ríki. í öðru ríkinu samein- uðust þeir sem vildu lúta mið- stýrðri sambandsstjórn. Hitt ríkið yrði hins vegar laustengt bandalag þjóða eða öldungis sjálfstætt ríki. Færi það eftir því hvort fleiri þjóð- ir en Slóvenar vildu mynda slíkt ríki. Á morgun, föstudag, koma leiðtogar lýðveldanna sex saman til fundar og stefna Slóvenar að því að kynna þeim þessa tillögu. Kuran tók fram að samþykktu hin lýðveldin ekki tillögu þessa yrðu Slóvenar sjálfir að ákvarða hvern- Græningjaflokkur Þýskalands: Sendinefnd móðgar ísraela lorúanlom Rontor ^ ^ ing tiyggja bæri sjálfstæði ríkis- ins. Ekkert hefur miðað í viðræðum leiðtoganna að undanförnu um framtíð Júgóslavíu. Slóvenar kröfðust þess upphaflega að Júgó- slavía yrði framvegis laustengt bandalag sjálfstæðra ríkja og var sú stefna mótuð er endi var bund- inn á alræði kommúnista í landinu i fijálsum kosningum í fyrra. Yfir- völd í Serbíu, sem er stærst lýð- veldanna, vilja að Júgóslavía verði áfram miðstýrt sambandsríki. í Króatíu hafa yfirvöld hins vegar hótað úrsögn úr ríkjasambandinu og stigið markviss skref í átt til sjálfstæðis líkt og Slóvenar. 7 gerðir. iottverð-greiðslukjör Elnar Farestveát&Co.hf BORGARTUNI28, SÍMI622901. L*IA 4 stoppar vM dymar Jerúsalem. Reuter. ÍSRAELSKIR embættismenn sniðgengu sendinefnd þýska græningjaflokksins í ísrael í gær eftir að ísraelska dagblaðið Jerusalem Post hafði eftir ein- um talsmanna flokksins, Ilans Christian Ströble, að eldflauga- árásir Iraka á Israel væru rök- rétt afleiðing af stefnu Israela gagnvart Palestínumönnum og arabaríkjunum, þ.á m. írak. Þegar Ströble kom til Israels á þriðjudagskvöld sagði hann að ekki hefði verið rétt haft eftir sér. ísraelska utanríkisráðu- neytið og mannréttindasamtök í landinu hættu engu að síður við fundi með græningjunum, sem fyrirhugaðir höfðu verið í gær. í yfirlýsingu utanríkisráðuneyt- isins sagði: „Við höfðum í hyggju að hitta fulltrúa Græningjaflokks- ins, sem nú eru í heimsókn í ísra- el. í ljósi viðtals við talsmann flokksins, þar sem hann réttlætir eldflaugaárásir íraka á ísrael, sjáum við hins vegar enga ástæðu til að hefja viðræður við þá.“ Ströble sagði við komu sína til ísraels: „Við fordæmum harðlega eldflaugaárásirnar á ísrael.“ Aðrir sendinefndarmenn sögðu að hver sá sem styddi árásirnar yrði rekinn úr flokknum. Talsmenn tveggja stærstu stjórnmálaflokka Israels, Likud- flokksins og Verkamannaflokks- ins, gáfu skýrt til kynna að græn- ingjarnir væru ekki velkomnir í heimsókn í þinghúsið. Shevah Weiss, þingmaður Verkamanna- flokksins og fórnarlamb nasistaof- sókna í Þýskalandi á tímum síðari heimsstyijaldarinnar, hvatti þing- menn á þriðjudag til að hundsa sendinefndina. BDMRE BOMAG er leiðandi framleiðandi á þjöppum og völturum. Við eigum eftirfarandi tæki á lager og til afgreiðslu STRAX: Svíar hætta við lok- un kjarnorkuvera Stokkhólmi. Rcuter. SÆNSKA stjórnin hefur ákveðið að fresta áætlunum um Iokun kjarnorkuvera og mun þess í stað veita 3,7 milljörðum sænskra króna, jafnvirði 36,3 milljarða ÍSK, til þróunar annarra öruggra orkugjafa. Rune Molin iðnaðarráðherra sagði í gær að lokun kjarnorku- vera yrði að ráðast af því hvernig áform um orkusparnað gengju fram og af framförum í þróun mengunarlausrar orkuframleiðslu. Ennfremur yrði þeim ekki lokað fyrr en raforkuframleiðsla með nýjum orkugjöfum yrði samkeppn- isfær við kjarnorkuna í verði. Með ákvörðun sinni hefur sænska stjórnin fallið frá þeirri stefnu sinni að loka tveimur kjarn- orkuverum á árunum 1995 og 1996. Hins vegar stendur enn sú ákvörðun sænska þingsins að öll- um 12 kjarnorkuverum Svíþjóðar skuli lokað í í síðasta lagi árið 2010. Kjarnorkuverin framleiða um 45% af þeirri raforku sem Svíar nota. f VÉLHNALLA meö bensínvél, 60 og 71 kg. JARÐVEGSÞJÖPPUR meö bensín- eöa dieselvél, 92,137 og 168 kg. VALTARA, tveggja kefla meö dieselvél, 670 kg. ÓTRÚLEGA HAGSTÆTT VERO ! Ráðgjöf - Sala - Þjónusta Skútuvogur 12A- Reykjavík - S 82530

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.