Morgunblaðið - 21.02.1991, Blaðsíða 29
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUÐAGUR 21. FEBRUAR 1»I
8£
29
Leikfélag Akureyrar:
_
A annað þúsund sjá Ætt-
armótið um helgina
HÁTT á annað þúsund manns munu sjá gleðileikinn Ættarmótið,
eftir Böðvar Guðmundsson um helgina, en fimm sýningar verða á
verkinu og er þegar uppselt á fjórar þeirra. Þegar sýningum á verk-
inu lýkur eftir helgi hafa um 7.300 manns séð leikritið hjá Leikfé-
lagi Akureyri og er þetta ein besta aðsókn sem sögur fara af hjá
félaginu. Einungis söngleikurinn My Fair Lady hefur dregið að sér
fleiri áhorfendur. Ekkert lát er hins vegar á vinsældum Ættarmóts-
ins, miðar á sýningar helgarinnar seldust upp á örskömmum tíma,
þannig að reynt verður að koma á sýningum síðar.
frumsýnt um jólin. Að loknum þeim
fimm sýningum sem verða um helg-
ina verða sýningar orðnar 34 talsins
og áhorfendur alls um 7.300. Það
er einungis söngleikurinn vinsæli
My Fair Lady sem sýndur hefur
verið oftar, en 54 sýningar voru á
því verki. Ættarmótið hefur slegið
út söngleikinn Piaf, sem næstur
kom í aðsóknarröðinni.
Sigurður Hróarsson leikhússtjóri
hjá Leikfélagi Akureyrar sagði að
leikhúsfólk væri harla ánægt með
viðtökurnar og vissulega væri súrt
í broti að þurfa að hætta sýningum
nú, en öðru væri ekki við komið þar
sem frumsýna ætti söngleikinn
„Kysstu mig, Kata“ um miðjan
mars.
Ættarmótið hefur verið sýnt fyr-
ir fullu húsi allt frá því það var
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Þjónustumiðstöð sem nú er í byggingu á milli tveggja fjölbýlishúsa fyrir aldraða við Víðilund hefur
stækkað umtalsvert frá því sem upphaflega var ráðgert.
Þjónustumiðstöð fyrir aldraða við Víðilund:
KOSTNAÐUR við byggingu þjónustumiðstöðvar við fjölbýlishús sem
byggð voru fyrir aldraða við Víðilund er orðinn mun meiri en gert
var ráð fyrir, en reiknað er með að kostnaður verði um 115 milljón-
ir króna þegar upp verður staðið. Þá hefur miðstöðin stækkað um
100 fermetra frá því sem samþykkt var í bæjarsljórn þegar ákveðið
var að fara út í byggingarframkvæmdir. Nokkrar umræður urðu
um bygginguna á fundi bæjarstjórnar í fyrradag, en fyrir fundinum
lá greinargerð um málið.
Á síðasta ári var unnið við bygg-
inguna fyrir 32 milljónir króna og
á ijárhagsáætlun þessa árs er gert
ráð fyrir að nota 46,5 milljónir
króna. Kjallarar undir húsunum
tveimur verða einnig nýttir sem
þjónusturými og kostnaður við kaup
á þeim er um 17 milljónir króna.
Þá er áætlað að veija þurfí um 21
milljón króna vegna frágangs bæði
í kjöllurunum og einnig á lóðinni.
Fyrstu hugmyndir gerðu ráð fyrir
450 fermetra húsi, en bæjarstjórn
samþykkti síðan byggingu um 600
fermetra húss, fermetramir urðu
um 700 og að viðbættum kjöllurum
beggja húsanna er þjónusturýmið
um 1.200 fermetrar.
Sigurður J. Sigurðsson formaður
bæjarráðs sagði á bæjarstjórnar-
fundi að Akureyringar væru oft
djarftækir í hugmyndum, þegar
unnið væri við hönnun hugsuðu
menn eins og þeir væru í milljóna-
borg, en þegar að framkvæmdum
kæmi yrði mönnum ljóst að íbúar
bæjarfélagsins væru 15 þúsund.
Bjöm Jósef Amviðarson bæjar-
fulltrúi Sjálfstæðisflokks sagði við
umræðurnar að svo virtist sem að
enn einu sinni hefðu framkvæmdir
farið úr böndunum svo óþolandi
væri. Af þessu gætu menn lært að
ekki væri fysilegt að verkefni sem
þetta væri í of margra höndum.
Hluti vandans væri sá að of margir
menn með of mikið vit á hlutunum
kæmu nálægt verkefnum sem unn-
in væm á vegum bæjarins. Það
hefði ævinlega verið feimnismál að
ræða um þau verkefni sem fara úr
böndunum, en slík mál væri ekki
endalaust hægt að láta yfir sig
ganga.
Björn Jósef yarpaði fram þeirri
tillögu að eftirlitsmenn á vegum
Úttekt gerð á eigna- og
skuldastöðu bæjarsjóðs
Bæjarstjórn Akuréyrar sam-
þykkti á fundi sínum í fyrradag
tillögu frá Jakobi Björnssyni
bæjarfulltrúa Framsóknarflokks
þess efnis að gerð yrði úttekt á
skuldastöðu bæjarsjóðs, en í
framhaldi var samþykkt að gera
samantekt á eigna- og skulda-
stöðu og þróun mála síðustu tíu
ár.
í tillögu Jakobs er gert ráð fyrir
að fela Amari Ámasyni löggiltum
endurskoðanda Akureyrarbæjar, að
framkvæma samfara endurskoðun
reikninga fyrir árið 1990 og leggja
bæjarins myndu fylgjast með verk-
efnum af þessu tagi, frá upphafí
og til loka verksins. Með því móti
ætti m.a. að vera. unnt að koma í
veg fyrir að bæjarstjórn samþykkti
byggingu 600 fermetra húss sem
skyndilega yrði um 700 fermetrar.
Úr sýningu Leikfélags Akureyrar á Ættarmótinu.
Valbær selur Akureyrarbæ Arstíg 2:
Munum áfram fjárfesta í
atviimurekstri á Akureyri
- segir Baldvin Valdemarsson framkvæmdastjóri Valbæjar
fram með endurskoðuðum ársreikn-
ingi, sérstaka úttekt og mat á
skuldastöðu bæjarsjóðs Akureyrar,
stofnana hans, sjóða og fyrirtækjá
Vegna framkominnar tillögu var
lagt til í bæjarráði að endurskoð-
endum verði falið að gera saman-
tekt og umsögn um eigna- og skuld-
astöðu bæjarsjóðs og þróun þeirra
mála síðustu tíu árin. Sambærileg
athugun verði einnig gerð á rekstr-
argjalda- og tekjuþróun á framan-
greindu tímabili. Bæjarstjórn sam-
þykkti á fundi í fyrradag að úttekt
þessi yrði gerð.
BÆJARSTJÓRN Akureyrar
samþykkti í fyrradag kaupsamn-
ing við Valbæ hf. um kaup bæjar-
sjóðs á fasteigninni við Arstíg
2, en þangað mun Slökkvilið
Akureyrar flytja starfsemi sína.
Heildarkaupverð var 57,6 millj-
ónir króna, en hluti húsnæðis í
Kaupangi við Mýrarveg sem var
í eigu bæjarins gekk upp í kaup-
in. Þar er um að ræða 130 fer-
metra skrifstofuhúsnæði. Fram-
kvæmdastjóri Valbæjar segir að
félagið hafi hug á að nýta hluta
þess fjármagns sem fæst með
sölunni til fjárfestinga í atvinnu-
lífinu á Akureyri.
Valbær hf. var upphaflega sam-
eignarfélag og hét Valdemar Bald-
vinsson sf., en það fyrirtæki annað-
ist rekstur heildverslunar á Akur-
eyri um árabil. Valbær er nú eignar-
haldsfélag, sem m.a. hefur á stefnu-
skrá sinni að fjárfesta í atvinnu-
rekstri. Rekstur heildverslunarinn-
ar var seldur einum eigenda Val-
bæjar, Hólmgeiri Valdemarssyni og
stofnaði hann um það félagið
Valdemar Baldvinsson hf.
Baldvin Valdemarsson fram-
kvæmdastjóri Valbæjar sagði að
enn hefði ekki verið tekin ákvörðun
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Fasteignin Árstígur 2, scm bæjarstjórn Akureyrar hefur samþykkt
að kaupa af Valbæ hf. í húsinu verður slökkvistöð og hluti þess
mun nýtast fyrir aðra starfsemi á vegum bæjarins.
um hvernig því fé sem losnaði við
söluna yrði varið, en félagið hefði
þá stefnu að eiga ákveðið samval
eigna, með tilliti til áhættu og
ávöxtunar, þ.e.a.s. hluti eigna í
áhættulitlum verðbréfum og síðan
ákveðinn hluti í atvinnurekstri, en
slíku fylgdi alltaf viss áhætta.
„Þrátt fyrir að út frá hreinu arð-
semissjónarmiði sé skynsamlegra í
flestum tilfellum, að fjárfesta í at-
vinnurekstri í Reykjavík, þá viljum
við fjárfesta hér á Ákureyri. Mark-
aðurinn er að vísu nokkuð þröngur
í augnablikinu svo við flýtum okkur
hægt, en við erum þó að skoða
nokkur mál, sem gætu verið snið-
ug. Við höfum trú á að hægt sé
að snúna vörn í sókn og viljum
leggja okkar lóð á vogarskálina,"
sagði Baldvin.
Hann sagði að Valbæjarmenn
væru tilbúnir að fjárfesta í góðum
hugmyndum eða nýjum fyrirtækj-
um, „við viljum reyna að koma í
veg fyrir að góðar hugmyndir séu
sogaðar suður vegna þess mikla
aðstöðumunar sem fyrirtækin búa
við. Þeir sem fjárfesta á lands-
byggðinni taka mun meiri áhættu
og fórna oftast einhverri arðsemi,"
sagði Baldvin.
BEINT FLUG,
HUSAVIK - REYKJAVIK - HUSAVIK
mióvikudaga • laugardaga • sunnudaga
Farpantanir:
Húsavík 41140
Reykjavík 690200
fluqfélaq
nordurlands hf.
Húsið stækkaði um 100 m2
án vitundar bæjarstjórnar
Kostnaður verður um 115 milljónir sem er mun meira en áætlað var