Morgunblaðið - 21.02.1991, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 21.02.1991, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTiR FIMMTl.'DAGUR 21. FEBRÚAR 1991 45 ÍÞRÓTTIR UNGLINGA / FIMLEIKAR Morgunblaðið/KGA Ungt félag á uppteið Fimleikafélag Keflavíkur var stofnað 1985 og þetta unga félag átti tíu keppendur á Unglingamótinu á laugardag. Fimm stúlkur unnu það afrek að komast í hóp þeirra 32. keppenda sem unnu sér þáttökurétt í Meistaramótið á sunnudag Þær eru frá vinstri: Jane Petra Gunnarsdóttir, Ólafía Vilhjálmsdóttir, Sigrún Gróa Magnúsdóttir, íris Dröfn Halldórsdóttir og Ósk Daníelsdóttir. Þær eru á myndinni ásamt tékkneskum þjáifara sínum, Stanislav Mikuláss. Það er athyglisvert að þær kepptu allar í flokki 13-16 ára á 4. þrepi á laugardaginn. Jane Petra varð hlutskörpust í þeim flokki og náði hæstu einkunn sem gefin var á mótinu, 9.65 stig fyrir stökk yfír hest. Á sunnudeginum varð íris Dröfn efst fimmenn- inganna en hún hafnaði í 6. sæti. Morgunblaðið/Frosti Dagmar Pétursdóttir og Tinna Margrét Rögnvaldsdóttir úr Ármanni sögð- ust vera nokkuð ánægðar með mótið en þær kepptu á laugardaginn. Þær sögðu að gólfæfingar og stökk væru skemmtilegustu keppnisgreinarnar og samsinntu því að framtíðarmarkmiðið væri að komast í landsliðið. Árangur næst ekkián æfinga ÍÞRÚmR FOLK ■ Viktor Kristmannssonog Geir Gunnarsson úr Ármanni voru yngstu keppendur Unglingamóts- ins. Þeir eru báðir fæddir 1984 og því á sjöunda aldursári. Unnur D. Karlsdóttir úr KR, var yngsta stúlkan en hún er fædd 1983. ■ Sigurbjörg Ólafsdóttir, Stjörnunnináði hæstu einkunn á áhaldi sem gefin var í keppninni á 1. þrepi. Hún fékk einkunnina 9,5 fyrir stökk á hesti. Það dugði henni þó ekki til sigurs, hún datt í gólfæf- ingunum og fékk aðeins 6,75 stig fyrir þær. ■ Hiidur Einarsdóttirúr Björk kom mjög á óvart á unglingamótinu á laugardag með því að vinna sigur í sínum flokki á 3. þrepi. Hildur hafði nefnilega aldrei keppt áður á 3. þrepi og því áttu fæstir von á því að hún mundi ná sæti á meist- aramótinu. ■ Ármenningurinn, Þórir Garð- arssonog Jón Sæmundsson, Gerplu, unnu öruggustu sigrana á unglingamótinu. Þórir sem keppti í 4. þrepi, tíu ára og yngri hlaut 10.75 stigum meira en sá sem varð í 2. sæti. Jón taldist einnig nokkuð öruggur sigurvegari því að hann fékk 10.65 stigum meira enn sá sem næstur kom í keppni á 3. þrepi, 16 ára og yngri. ■ Nína Björg Magnúsdóttiríré. Björk hefur þegar náð tilskildum lágmörkum til að keppa á Evrópu- móti unglinga en hún mun þó ekki taka þátt. Nína hefur litla móta- reynslu og Evrópumótið verður mjög sterkt á þessu sinni því marg- ir keppenda nota það sem undirbún- ingsmót fyrir Ólympíuleikana. Nína mun hinsvegar líklega verða meðal keppenda á móti í Þýskalandi í haust. ■ Steinunn Ketilsdóttirsem keppti á 1. þrepi þarf ekki að fara langt til að ráðgast við Hlín Árna- dóttir, þjálfara sinn utan æfinga- tíma. Þær eru mæðgur. ■ Ingibjörg Guðmundsdóttir, Björkv arð fyrir því óhappi á laugar- daginn að lenda illa í afstökki á tvíslá og meiðast á hné. - segir Hlín Árnadóttir, þjálfari Bjarkar Þegar á heildina er litið eru miklar framfarir hjá stúlkun- um. Þær stúlkur sem ætla að standa sig vel þurfa bæði að leggja hart að sér við æfingar og skipuleggja tíma sinn vel, annars ná þær ekki árangri," sagði Hlín Árnadóttir, þjálfari hjá Björk og unglingalands- liðinu sem þjálfað hefur fimleika í meira en tuttugu ár. „Áhuginn á fimleikum hefur ver- ið að aukast á síðustu árum og það er hægt að þakka það að miklu leyti bættri aðstöðu. Alls eru 220 stúlkur skráðar á æfingar hjá okkur og aðsóknin tók mikinn kipp þegar við fengum gryfjuna fyrir tveimur árum. Stærsti hópurinn er á aldrin- um 7-11 ára en við fáum krakka allt niður í fjögurra ára aldur. Þau yngstu mæta einu sinni í viku í svokallaðan, „leikfimileik." Morgunblaðið/KGA ÞaA war þröngt á þingi á ganginum fyrir framan búningsherbergi Laugardalshallarinnar þegar rúmiega 200 keppend- ur röðuðu sér upp fyrir lokaathöfn unglingamótsins. IMógaðgera hjá Sigrúnu Þær stúlkur og drengir sem leggja stund á fimleika þurfa að leggja mikið á sig og oft er lítill tími aflögu fyrir tómstundir. Sigrún Gróa Magnúsdóttir gefur sér þó tíma til að sinna píanónámi og fim- leikaæfingum auk þess sem hún er í grunnskóla. „Ég neita því ekki að ég er oft þreytt á kvöldin en ég hef mjög gaman af hvorutveggja og ætla halda áfram þó að þetta tvennt geti verið tímafrekt," sagði Sigrún. Guðmundur Þór Brynjólfsson. Góðaræfingar á svifránni Mér hefur alltaf gengið illa í svifránni, en að þessu sinni æfði ég hana vel fyrir mótið ásamt þjálfurum mínum og það skilaði ár- angri," sagði Guðmundur Þór Brynj- ólfsson frá Gerplu, sigurvegari í æf- ingum þriðja þreps á meistaramótinu. Guðmundur fékk hæstu einkunn sem gefin var á 3. þrepi karla fyrir æfingar sínar á svifránni, 9.35 stig. Ég get þó ekki sagt að ég hafi æft stíft fyrir mótið. Eg stunda nám í MR og það gefst frekar lítill tími frá skólanum til æfinga." - Hvernig stóð á því að þú byijað- ir í fimleikum? „Sem krakki hafði ég ákaflega gaman af því að standa á höndum, vinur minn sem æfði fimleika benti mér á að koma á æfingu og ég skellti mér með honum.“ Þijár stúlkur í sérflokki SIGURBJÖRG Óiafsdóttir úr Stjörnunni og þær Nína Björg Magnúsdóttir og Elvu Rut Jóns- dóttir úr Björk voru í nokkrum sérflokki í keppni í 1. þrepinu um helgina. Þær Sigurbjörg og Nína unnu báðar gull, Sigurbjörg sigraði á Unglingamóti Islands á laugardag en Nína hafði betur daginn eftir ■■■I þegar keppt var í FrostiB. Meistaramóti Eiðsson íslenska fimleika- skrifar stigans. Elva Rut komst á pall í báðum mótunum, hún hlaut silfur og brons. „Ég var ánægð með árangurinn fyrri daginn en á sunnudaginn gerði ég slæm mistök í stökkseríu. Næsta verkefni hjá mér er íslandsmótið en ég vil ekki gefa^of mikið upp um möguleika mína á því,“ sagði Sigurbjörg sem sagði tvíslánna vera í uppáhaldi hjá sér. „Ég var vondauf um að geta sigr- að á sunnudaginn því að Sigurbjörg var alltaf í forystunni," sagði Nína.„Ég byijaði að æfa gex ára og þjálfarinn okkar þá lét okkur byija strax á 1. þrepi. Til að ná árangri í fimleikum þar að æfa vel og við hjá Björk æfum sex sinnum í viku í 3-4 tíma í senn.“ „Það hefur alltaf verið mikill áhugi á fímleikum heima hjá mér. Elsta systir mín æfði og nú eru tvær yngri systir mínar komnar í fimleikana. Sjálf var ég að verða átta ára þegar ég fór á fyrstu æf- Sigurbjörg Ólafsdóttir frá Stjömunni í gólfæfmgum. Morgunblaðið/KGA inguna með tveimur vinkonum mínum,“ sagði Elva Rut sem sagð- ist ánægð með árangur sinn á mót- inu. Nína var ásamt Elvu Rut yngst af þeim keppendum sem tóku þátt í keppninni á 1. þrepi. Þær eru báðar ellefu ára.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.