Morgunblaðið - 21.02.1991, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 1991
13
Rit um bóka-
safn í eitt-
hundrað ár
I LOK síðasta árs kom út á veg-
um Héraðsbókasafns Kjósar-
sýslu bókin Bókasafn í 100 ár.
Saga Lestrarfélags Lágafells-
sóknar og Héraðsbókasafns
Kjósarsýslu 1890-1990. Magnús
Guðmundsson sagnfræðingur
tók saman.
í bókinni er rakin saga bóka:
safns í Mosfellssveit "í eina öld. í
fyrstu er saga lestrarfélagsins
sögð, en það félag gegndi víðtæku
menningarhlutverki í áratugi, um
leið og það fóðraði m.a. tilvonandi
nóbelsskáld á bókmenntum. Þá er
greint frá stofnun héraðsbókasafns
árið 1956 og bóklestri Mosfellinga.
Að lokum er sagt frá því hvernig
bókasafnið þróaðist í menningar-
miðstöð með víðtæka upplýsinga-
þjónustu fyrir skóla og almenning.
Auk þess sem saga bókasafns í
Mosfellssveit er sögð er víða komið
inn á sögu almenningsbókasafna á
íslandi. Einnig er fjallað um sögu
skemmtanahalds og félagslífs í
Mosfellssveit því forsvarsmenn
lestrarfélagsins voru brautryðjend-
ur á því sviði. Þannig er bókin öðr-
um þræði hluti af menningar- og
byggðarsögu Mosfellssveitar. Fjöl-
margar ljósmyndir prýða bókina
og er hún til sölu hjá útgefendum,
Héraðsbókasafni Kjósarsýslu,
Markholti 2, 270 Mosfellsbæ.
(Fréttatilkynning)
■ HREPPSNEFND Eyrarsveit-
ar hefur sent frá sér ályktun þar
sem segir að Grundfirðingar mót-
mæli harðlega þeim hugmyndum
sem fram hafa komið um að bæta
loðnuskipum upp samdrátt í loðnu-
veiðum með því að færa þeim þorsk-
veiðiheimildir og skorar á sjávarút-
vegsráðherra að láta slíkar hug-
myndir að engu verða. Grundfirð-
ingar benda á að engin loðnuskip
eru gerð út frá Snæfellsnesi og til-
færslur á þorskveiðiheimildum yfír
á loðnuskip gera það að verkum
að þorskkvóti væri eingöngu færður
burt af svæðinu, við slíkt verður
ekki unað. Þá vara Grundfirðingar
við hugmyndum um að hagræðing-
arsjóður verði notaður í þessu sam-
bandi, þar sem það er skilningur
Grundfirðinga að hagræðingarsjóð-
ur eigi að koma til ef bæta þarf
úr vanda einstakra byggðarlaga
sökum kvótataps. í þessu tilviki sem
hér um ræðir virðist tilgangurinn
fyrst og fremst sá að gæta hags-
muna einstakra útgerða loðnuskipa.
■ GEÐHJÁLP félag fólks með
geðræn vandamál, aðstandenda
þeirra og velunnara heldur fyrir-
lestur í kennslustofu á 3. hæð geð-
deildar Landspítalans fímmtu-
dagskvöldið 21. febrúar kl. 20.30.
Efni: Heimahlynning heildræn
umönnun og fjölskylduaðhlynn-
ing. Fyrirlesarar eru starfsfólk
heimahlynningar Krabbameinsfé-
lags íslands. Allir velkomnir.
(Fréttatilkynning)
Qjörbreyttur og glæsilegur
Verð frá kr. 869.000,- stgr.
crauih
Lyftarar
Gæði og gott verð
UMBOÐS- 03 HEILDVERSL UHIN
BlLDSHÖFÐA 16S/MI672444 TELEFAX672S80
I