Morgunblaðið - 21.02.1991, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. FEBRUAR 1991
15
íslensk dægurtónlist
Á mörgum stöðum í greininni er
reynt að gera íslenska poppara sér-
staklega tortryggilega. Það sé lið
sem ekki eigi mikla samleið með
menningunni. Ekki veit ég hvað
svona málflutningur á að þýða en
ég bendi á að svokölluð alþýðutón-
list er óhjákvæmilegur hluti af
hverju menningarsamfélagi. Og það
er ódrengilegt að tala um þennan
þátt samfélagsins í niðrunartóni eins
og gert er í greininni. Og hvað er
á móti því að opinberum fjármunum
verði varið til söluátaks þeirra, þótt
það væri hvorki meira né minna en
0,0005% af fjárlögum íslenska ríkis-
ins. En það er sú tala sem Samtök
tónskálda og textahöfunda í allri
hógværð hafa farið fram á en tekjur
ríkisins af starfsemi þeirra nema
enn mörgum tugum milljóna króna.
Það hefur hins vegar aldrei stað-
ið til að popptónlistin yrði eitt af
aðalverkefnum skrifstofunnar. Öðru
nær. Og mín skoðun hefur alltaf
verið sú að þessa almennu kynning-
arstarfsemi á íslenskri menningu
erlendis eigi að starfrækja án beinna
tengsla við söluátak vegna íslenskr-
ar alþýðutónlistar erlendis. Það hef-
ur hvergi verið gefið í skyn að þessu
ætti að blanda saman og er því hér
annað hvort um að ræða misskilning
eða eitthvað annað sem ekki verður
nefnt hér í þessari grein. Þaðan af
síður mun kynningarstarfsemi sem
þessi hafa með sjávarafurðir að
gera eins og einnig er gefið í skyn
í greininni enda þótt að því megi
færa gild rök að fiskverkun og fisk-
veiðar sé einnig hluti af íslenskri
menningu a.m.k. gildur þáttur
íslenskrar verkmenningar, þó að
þorskurinn sé ekki talinn til vand-
ræða vel gefinn.
Höfundur er
menntamálaráðherra.
Nýstúdentar úr dagskóla.
Dúxinn í Breiðholti
kom úr öldungadeild
Fjölbrautaskólanum í Breið-
holti var slitið 20. desember sl.
í Fella- og Hólakirkju. í dag-
skóla fengu 127 nemendur af-
hent lokaprófsskírteini en í
kvöldskóla 54 og skiptast þeir
þannig:
Dúx skólans var Sigríður Jak-
obsdóttir og kom hún úr kvöld-
skóla. Hún hlaut einnig verðlaun
fyrir góðan námsárangur á stúd-
entsprófi í bókfærslu, íslensku,
sagnfræði og þýsku. Fjórir aðrir
nýstúdentar hlutu verðlaun fyrir
góðan námsárangur á stúdents-
prófi í einstökum greinum. Sigur-
björg Siguijónsdóttir hlaut verð-
laun fyrir góðan námsárangur í
ensku, frönsku, þýsku og dönsiu.
Sonja Björg Guðfinnsdóttir hliut
verðlaun í sagnfræði og íslensKu.
Sigutjón Jónsson hlaut verðlaun
í eðlisfræði, jarðfræði, efnafræði
og stærðfræði og Sigríður Lára
Heiðarsdóttir hlaut verðlaun í
ensku og frönsku. Skólameistar-
inn, Kristín Arnalds, flutti skóla-
Nýstúdentar úr kvöldskóla.
slitaræðu, óskaði útskriftarnem- brautaskólanum í Breiðholti slitið
um til hamingju og sagði Fjöl- í 30. sinn.
nýtt
Þeir rækta kaffijurtina af aldagamalli hefð við bestu
aðstæður í frjósömum fjallahlíðum Colombiu.
Við veljum bestu baunirnar þeirra.
Þú færð ilmandi nýbrennt Colombiakaffi í
stjörnuflokki nánast beint úr kvörninni - njóttu þess.
* KAFFIBRENNSLA AKUREYRAR HF
FAG
kúlu- og
rúllulegur
<KlNG
p EVNslA
þjóN'
USTA
peKi
FÁLKINN
SUÐURLANDSBRAUT 8
SÍMI 84670
%
w