Morgunblaðið - 21.02.1991, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 1991
17
„Mannúð“ sósíalisinans
og heilbrigðiskerfið
eftir Ólaf Örn
Arnarson
í forystugrein Þjóðviljans mið-
vikudaginn 13. febrúar sl. ræðir
Á.B. um heilbrigðiskerfið og er
tilefnið grein, sem undirritaður
birti í Morgunblaðinu 9. febrúar
sl. Á.B. ræðir þar nokkuð um til-
lögur heilbrigðisnefndar Sjálf-
stæðisflokksins, sem lagðar verða
fyrir landsfund flokksins í næsta
mánuði. Ljóst er að Á.B., veit ekki
hvaðan á hann stendur veðrið því
að hann gerir heilbrigðisnefndinni
upp ýmsar hugmyndir, sem hann
mótmælir síðan harðlega og telur
bera vott um litla mannúð! Á.B.
fellur í þá gryfju að telja lækna,
lyfjafræðinga og aðra starfsmenn
miðpunkt heilbrigðiskerfisins en
gleymir alveg fólkinu (sjúklingun-
um), sem greiðir fyrir þjónustuna
og allt snýst um.
Þörf endurmats
En hvers vegna er þörf endur-
mats á heilbrigðisþjónustunni?
Vegna þess að stefna undanfar-
inna ára hefur leitt til samdráttar.
í þjónustu vegna niðurskurðar á
fjárveitingum. Jafnframt hefur
miðstýring ríkisvaldsins aukist
mjög verulega og ljóst að fyrir-
myndin er sótt til sósíalismans.
En hvernig hefur þeim þjóðum
vegnað sem hafa haft sósíalis-
mann að leiðarljósi? Hvergi í hin-
um vestræna heimi er heilbrigðis-
þjónusta jafn ömurleg og í Austur-
Evrópu. Þar er þjónustan ekki
aðeins léleg heldur mikill ójöfn-
uður ríkjandi. Yfirstéttin fær góða
þjónustu á sínum sérspítölum en
almenningur má sætta sig við bið-
raðir og lélega þjónustu. Enda er
það svo að meðalaldur í löndum
sósíalismans er nærri 10 árum
styttri en gerist í Vestur-Evrópu.
Kannski þekkir Á.B. þetta kerfi
af eigin raun? Tvö nágrannalönd
hafa tekið upp ríkissósíalisma í
heilbrigðiskerfum sínum, þ.e.
Bretland og Svíþjóð. í báðum þess-
um löndum hafa kerfin siglt í
strand og lausnin hefur verið sú
að skapa nýtt kerfi við hliðina, sem
er fjármagnað af einstaklingum
sem fá þá góða þjónustu, ef þeir
hafa efni á. Þetta er í örstuttu
máli sú „mannúð“ sem sósíalism-
inn hefur haft í för með sér. Er
þetta sú fyrirmynd sem við sækj-
umst eftir?
Hugmyndir um
endurskipulagningu
Hveijar eru þá hugmyndir Sjálf-
stæðisflokksins um endurskipu-
lagningu heilbrigðiskerfisins? Til
grundvallár hugmyndunum er að
tryggingahugtakið verði ráðandi.
Samkvæmt því ákveðum við að
greiða í sameiginlegan sjóð, sem
er afmarkaður frá öðrum þáttum
ríkisrekstrarins og tryggir fólki
eðlilega og fyrirfram skilgreinda
þjónustu þegar það þarf á að
halda. í dag greiðum við fyrir
þessa þjónustu í sköttum okkar
sem lagðir eru á eftir efnum og
ástæðum. Hugmyndin er sú að það
haldist áfram og allir landsmenn
verði tryggðir á þennan hátt. Því
eiga allir rétt til sömu þjónustu
án tillits til efnahags.
Jafnframt þessu er lagt til að
rekstur heilbrigðisþjónustunnar
geti verið á ýmsum höndum, ein-
staklinga, félagasamtaka, sveitar-
félaga þar sem það á við og leit-
ast við að gera þjónustuna sem
hagkvæmasta. Greiðsluhluti sjúkl-
inga verði alltaf ákveðið hlutfall
af verði þjónustunnar þannig að
greiðandinn geti ávallt séð hver
raunverulegur kostnaður er. Gildi
þetta t.d. um sérfræðiþjónustu og
lyf. Sett verði hámark þess sem
hver einstaklingur greiðir þannig
að þeir sem mest þurfa á hjálp
að halda verði verndaðir gegn
skakkaföllum.
Hlutverk ráðuneytis og opin-
berra aðila verði fyrst og fremst
fólgið í stefnumörkun, setningu
staðla, og eftirlits með gæðum
þjónustunnar.
Framtíð heilbrigðiskerfisins
Framtíð heilbrigðiskerfisins
hlýtur að vera undir því komin að
hún geti mætt þeim auknu kröfum
sem verða gerðar til hennar. Ekk-
ert fæst ókeypis og því er mikil
þörf á því að greiðandinn og neyt-
andinn fylgist vel með þvi hver
kostnaður er við hina einstöku
þætti. Aðhald á þennan hátt er
heilbrigðisstarfsmönnum og
stjórnendum mjög nauðsynlegt til
þess að allrar hagkvæmni sé gætt
og sem mest fáist fyrir féð sem
til er lagt. Lausnir sósíalismans
hafa hvergi dugað og skýrt dæmi
um ranga stefnumörkun er hug-
mynd heilbrigðisráðherra um ný-
skipan lyfjamála. Dettur nokkrum
heilvita manni í hug að ríkisbákn
og miðstýring komi til með að
draga úr kostnaði við lyf? For-
senda fyrir lækkun lyfjakostnaðar
er að losa um höft, auka sam-
keppni og taka upp hlutfalls-
Ólafur Örn Arnarson
„Dettur nokkrum heil-
vita manni í hug að rík-
isbákn og miðstýring
komi til með að draga
úr kostnaði við lyf?“
greiðslur sjúklinga. Um leið og
verðið er orðið hagsmunamál fyrir
sjúklinginn munu læknar gæta
þeirra hagsmuna og ávísa ódýr-
ustu lyfjunum í hæfilegum
skömmtum.
Sú stefna ríkissósíalisma, sem
núverándi ríkisstjórn hefur fylgt
leiðir til ófarnaðar og hefur þegar
gert. Hún er byggð á hugmyndum
um Heilbrigðisstofnun íslands sem
komu fram fyrir um áratug og
hlutu slæmar móttökur. Engu að
síður hafa hugmyndafræðingar
hennar komið ár sinni svo fyrir
borð í kerfinu að það er verið að
framkvæma þessa stefnu án þess
að almenningur geri sér grein fyr-
ir afleiðingunum. Það er því nauð-
synlegt að hér verði söðlað um og
eini stjórnmálaflokkurinn sem hef-
ur burði til þess er Sjálfstæðis-
flokkurinn.
Höfundur er yfirlæknir á St.
Jósefsspítala.
HÁSKÓLI ÍSLANDS
ENDURMENNTUNARNEFND
BANDALAG HÁSKÓLAMANNA
JAFNRÉTTISNEFND
STJÓRNUN: NÁMSKEIÐ FYRIR KONUR
28. febrúar - 13. apríl
ÞATTTAKENDUR:
Námskeiðið er ætlað konum, bæði
þeim, er nú þegar gegna stjórnunar-
störfum, og öðrum, er áhuga hafa á
stjórnun.
TILGANGUR:
Að auka hæfni þátttakenda sem stjórn-
endur og undirbúa konur undir stjórnun-
arstörf með því að kenna þeim og kynna
vinnuaðferðirog hugmyndirá nokkrum
lykilsviðum stjórnunar.
Skráning fer fram í móttöku Tæknigarðs,
694923 og 694924.
LEIÐBEINENDUR:
HallgrímurGuðmundsson, stjórnsýslufr. og bæjarstjóri,
Álfheiður Steinþórsdóttir, sálfræðingur,
Sálfræðistöðinni sf.,
Bjarni Ingvarsson, vinnusálfræðingur,
Tryggvi Sigurbjarnarson, ráðgjafarverkfræðingur.
TÍMIOGVERÐ:
Á fimmtudögum kl. 15.00-18.30 og tvo laugardaga
kl. 9.30-15.00. Þátttökugjald kr. 18.500.
Námsgögn eru innifalin.
í síma 694940, en nánari upplýsingar eru veittar í símum
Efnið og aðstæður hamla því ekki að þú finnir réttu dæluna í Héðni.
Úrvalið, gæðin og verðið gera okkur kleift að bjóða hagkvæma lausn
fyrir ólíklegustu dæluverkefni.
Langferðabíllinn er
vinnustaður flestra
leiðsögumanna
Fæstir leiðsögumenn hafa leið-
sögn að aðalstarfi enda er aðal ferða-
mannatíminn stuttur, aðeins 2-3
mánuðir. Það þurfa þó alltaf að vera
tiltækir leiðsögumenn yfir vetrar-
mánuðina því stuttar ferðir að vetrar-
lagi aukast hægt og sígandi.
Vinnutíminn er all breytilegur allt
frá stuttri tveggja til fjögurra tíma
ferð til 14-21 dags ferða um landið.
Aðbúnaður er einnig misjafn eftir
ferðum. Sumir fylgja þjóðveginum
og gista á hótelum ásamt hópum
sínum, aðrir borða á hótelum, aðrir
hafa með sér eldhúsbíl og enn aðrir
sjá ummatarinnkaup og jafnvel elda-
mennsku.
Vegna samsetningar hópanna þarf
leiðsögumaðurinn oft að segja frá á
fleiri en einu tungumáli. í öðrum til-
fellum er beðið um ieiðsögumann sem
hefur sérþekkingu á einhvetju sviði,
t.d. varðandi jarðfræði, fugla eða
sögu.
Þá koma hingað hópar sem vilja
ganga um fjöll og firnindi jafnvel
með byrðar á bakinu. í þeim tilfellum
þarf leiðsögumaðurinn að hafa sér-
staka þekkingu á gönguleiðum og
hættum á hálendinu.
Leiðsögumaðurinn og
náttúruvernd
Á íslandi er stórbrotin náttúra sem
hrífur gesti okkar en margir átta sig
ekki á því að hún er viðkvæm og
vandmeðfarin. Mikilvægt hlutverk
íslenskra leiðsögumanna er að gæta
hagsmuna landsins með því að fræða
ferðamennina um séreinkenni ís-
lands og íslenskrar náttúru og gæta
þess að þeir ofbjóði ekki viðkvæmum
gróðri, bijóti hverahrúður eða valdi
landinu skaða á einn eða annan hátt.
Þá gerair leiðsögumaðurinn grein
fyrir stefnu okkar í umhverfismálum
og segir frá þeirri miklu vinnu sem
lögð er í landgræðslu og skógrækt
til þess að stemma stigu við upp-
blæstri og landeyðingu.
Mannþekkjari og diplomat
Það er margt sem getur komið
fyrir á langri ferð. Algengt vanda-
mál eru yfii'bókanir, þá getur þurft
að biðja 'gestina að gista í lélegri
herbergjum en þeir hafa greitt fyrir
eða jafnvel í heimahúsum. í slíkum
tilfellum ríður á því að leiðsögumað-
urinn sé mannþekkjari og takist að
fá fólk til að sætta sig við hið óvænta
sem ekki verður breytt. í öðrum til-
fellum þarf hann að sjá til þess að
ekki sé gengið á rétt farþeganna ef
hægt er að komast hjá því.
Oft þarf að breyta áætlun vegna
færðar og veðurs, í þeim tilfellum
er mikilvægt að undirstrika það já-
kvæða við breytinguna svo farþeg-
arnir fái ekki á tilfinninguna að þeir
hafi bará tapað en ekkert grætt á
henni.
Ekki er unnt að gefa tæmandi
lýsingu á þekkingarsviði og störfum
leiðsögumanna á íslandi, til þess er
starfið of fjölbreytt og margþætt en
hér hefur verið dregin upp einföld
mynd af því helsta í starfi leiðsögu-
manna á íslandi í dag.
Láttu söludeild okkar leysa dælumál þín.
IRON / EDUR miðflóttaaflsdælur
MONO snigildælur
LOEWE
stimpildælur
T.T. ROTAN tannhjóladælur
= HÉÐINN =
SELJAVEGI 2, SlMI 624260
VERSLUN - RÁÐGJOF