Morgunblaðið - 21.02.1991, Síða 18

Morgunblaðið - 21.02.1991, Síða 18
18 ____________ Nýr vettvangur MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 1991 Breyting’atillögnr upp á einn milljarð BORGARFULLTRÚAR Nýs vettvangs leggja fram breyt- ingatillögur upp á einn milljarð króna við fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar sem lögð verður fram í borgarsljórn í dag. „Eg er meist- arinn“ út í bók ÚT ER komið hjá Máli og menn- ingu leikritið „Eg er meistarinn" eftir Hrafnhildi Hagalín Guð- mundsdóttur. Verkið var frum- sýnt í Borgarleikhúsinu haustið 1990. Þar er lýst tveimur ungum nem- um í klassískum gítarleik og læri- föður þeirra, meistaranum: I sam- leik þriggja persóna er tekist á við andstæður snilldar og meðal- mennsku, hugsjóna og sjálfsblekk- ingar, og spurt um þær fómir sem listin krefst eigi hún að ná hæstu hæðum. „Ég er meistarinn" er fyrsta bók Hrafnhildar Hagalín Guðmunds- dóttur (f. 1965). Hún stundaði tón- listamám umlangt skeið, en nemur nú leikhúsfræði í París. , Bókin er 85 bls. og er bæði gef- in út í kilju og innbundin. Kápu hannaði Ingibjörg Eyþórsdóttir. Prentsmiðjan Oddi hf. prentaði. Tillögur Nýs vettvangs miða að því að færa um einn milljarð yfir til framkvæmda í velferðarmálum borgarinnar. Að færa lögboðna þjónustu Reykjavíkurborgar við almenning til nútímalegra horfs en verið hefur, eins og segir í fréttatilkynningu. Helstu breytingarnar sam- kvæmt tillögunum er að gert er ráð fyrir að 200 milljónir um fram þær 467 milljónir sem meirihlutinn leggur til að fari í framkvæmdir við öldmnarstofnanir. 125 millj. hækkun til uppbyggingar dag- vistaþjónustu í borginni þ.e. að þrjú ný dagvistarheimili verði full- búin á árinu, en hönnun og byijun- arframkvæmdir hafnar við önnur tvö. 90 millj. hækkun í aukið umferðaröryggi, 150 millj. hækk- un til kaupa og bygginga á félag- legu húsnæði í Reykjavík og að veittar verði 50 millj. til kaupa eða hönnunar og byijunarfram- kvæmda við nýtt Fæðingarheimili. í tillögunum er gert ráð fyrir að fjármagn til ráðhúss verði lækkað um rúmlega 400 milljónir þannig að framkvæmdum við það seinki um 2-3 ár. Eins er gert ráð fyrir að taka fjármagn frá götu- og holræsaframkvæmdum upp á 150 milljónir og að foreldragreiðsl- ur upp á 50 milljónir falli niður, svo eitthvað sé nefnt. Unnið við loðnufrystingu í Eyjum í gær. Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson Loðnufrysting* í Eyjum Vestmannaeyjum. Loðnufrysting hófst í Vestmannaeyjum í gær. Kap landaði afla sem hún fékk á miðunum við Vestmannaéyjar og var fryst í vinnslustöðinni og Hraðfrystistöðinni. í Hraðfrystistöðinni voru fryst 23 tonn en vinnslustöðin frysti 22 tonn. Að sögn verkstjóra I húsunum loðna í Eyjum næstu daga því var loðnan ágæt til frystingar en þó frekar smá. Reyndar sögðu þeir að það gerði ekki mikið til því Japanar vildu allt eins kaupa smá loðnu nú. Búist er við að áfram verði fryst einhveijir sölusamningar hafa verið gerðir og ætla frystihúsin að reyna að frysta nóg til að upp- fylla þá samninga. Viðar Elíasson, verkstjóri í Vinnslustöðinni, sagði að hrogna- fylling loðnunnar sem unnin var hjá þeim í gær væri um 17% og væri það um 2% minna en í loðn- unni sem komin er vestur fyrir Reykjanes. Hann sagðist eiga von á því að frysting gæti staðið yfir í nokkra daga en hrognavinnsla ætti síðan að geta hafíst eftir um það bil viku. Grímur Skýrsla um sorphirðu og endurvinnslu: Ástand sorpmála í andstöðu við ímynd Islands sem ómengaðs lands Hugmyndir um sérstakt umhverfisgjald SORPHIRÐU- og endur- vinnslunefnd umhverfisráðu- neytisins, ásamt Júlíusi Sólnes, umhverfisráðherra, kynnti bráðabirgðaniðurstöður nýút- kominnar skýrslu á blaða- Guðrún Jóhannsdóttir, formaður skólanefndar, flytur ávarp. Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson Hjálmfríður Sveinsdóttir, skóla- stjóri. mannafundi á þriðjudag. Nefndin komst m.a. að þeirri niðurstöðu að ástand sorpmála í landinu væri mjög slæmt mið- að við aðrar þjóðir og í and- stöðu við þá ímynd okkar að ísland sé hreint og ómengað land. A fundinum kom fram að gera þyrfti stórátak til að minnka sorpúrgang lands- manna, sem er nú um eitt tonn á mann á ári. Meginniðurstöður nefndarinnar eru þær að sérstakt umhverfís- gjald verði lagt á efni, sem valda hættulegum úrgangi og að gjaldið standi undir söfnun og förgun slíks úrgangs. Gjald þetta verði lagt á fyrirfram, eða þegar varan er keypt. Þá telur nefndin reglum um merkingar á hættulegum efnum (spilliefnum) mjög ábótavant. Lagt er til að sveitarfélögin sam- einist um að koma á fót byggðas- amlögum til að annast sorphirðu og alla förgun úrgangs frá sveitar- félögunum. Einnig er lagt til að Alþingi veiti 100 milljónum króna Barnaskólinn í Vestmannaeyjum: Ný álma tekin í notkun Vestmannaeyjum. Skólanefnd grunnskólanna í Eyjum bauð til kaffisamsætis í barnaskólanum á laugardag í til- efni af því að ný álma við skólann hefur verið tekin í notkun. Guðrún Jóhannsdóttir, formaður skólanefndar, flutti stutt ávarp þar sem hún rakti byggingarsöguna og sagði frá húsnæðinu. I þeim áfanga sem nú var tekinn í notkun eru fjór- ar kennslustofur, hópherbergi, fund- arherbergi, félagsaðstaða nemenda og skrifstofur fyrir skólastjóra, yfír- kennara og skólaritara. Aðalverktaki við lokaáfanga byggingarinnar var byggingafyrir- tækið 2Þ en nokkrir undirverktakar sáu um ýmsa þætti byggingarinnar. Hjálmfríður Sveinsdóttir, skóla- stjóri, ávarpaði gesti einnig og sagði frá innréttingum og nýjum kennslu- tækjum sem tekin yrðu í notkun í nýju álmunni. Að því loknu var gestum boðið að skoða húsnæðið, en síðan var öllum boðið að þiggja kaffíveitingar í boði skólanefndar, en skólanefnd- arfólk sá sjálft um kaffí og meðlæti Vestmannaeyjabæ að kostnaðar- lausu. Grímur árlega næstu fimm árin til greiðslu hluta stofnkostnaðar við móttöku- stöðvar byggðasamlaga. Heildarúrgangur íslendinga er 225 þúsund tonn á ári eða um 1,6 milljónir rúmmetra. Þetta þýðir að meðaltali eitt tonn á mann á ári eða um 150 þijátíu rúmmetra gámar á dag allt árið um kring af úrgangi. Nefndin telur að stefna beri að því að draga úr því sorpi sem fer til förgunar og segja nefndarmenn það ekki óraunhæft markmið að minnka það úr einu tonni í 500-600 kg á mann á næstu fjórum til fímm árum. Nefndin telur leikreglur ekki nógu skýrar hvað varðar upplýs- ingar til fólks um hvaða vörur verða að spilliefnum og hvaða vör- ur eru umhverfísvænar. Og eins hvaða kröfur eru gerðar til förgun- ar og hvernig á að standa að þeim. Pétur Maack, prófessor og for- maður nefndarinnar, segir að þetta átak muni kosta mikla fjár- muni og nefnir tvo milljarða í því sambandi. Það verði kannað með hvaða hætti megi íjármagna nauð- synlegar aðgerðir til að koma skipulagi sorphirðu og meðferð úrgangsefna og endurvinnslu í við- unandi horf, að sögn Péturs. Hollustuvemd ríkisins hefur gert mat á opinni sorpbrennslu á 33 stöðum á landinu þar sem tek- ið er tillit til staðsetningar og frá- gangs við urðun og loftmengun. Þar kemur fram að á fimm stöðum er ástandið þolanlegt, 18 stöðum slæmt og 10 stöðum mjög slæmt. Þijár sorpbrennslustöðvar eru reknar hér á landi, á Húsavík, ísafirði og Keflavíkurflugvelli. Sú síðastnefnda er sú eina sem er útbúin mengunarvömum þótt sá búnáðúr uppfyllí ekki þær kröfur sem gerðar em til slíks rekstrar í dag. Ástand sorpbrennslustöðvar- innar á ísafirði er slæmt m.t.t. mengunar og staðsetningar. í skýrslunni er yfirlit um ástand sorpförgunar í landinu. Þar kemur fram að í bæjarfélögum eins og Eskifírði, Patreksfirði, ísafirði, Sauðárkrók, Þórshöfn, Seyðisfírði, Neskaupstað, Reyðarfirði og Vest- mannaeyjum, sem allt em fisk- vinnslustaðir, er ástandið talið mjög slæmt. Tværjazz- hljómsveitir á Púlsinum JAZZ verður leikinn á Púlsin- um, Vitastíg 3, í kvöld, fimmtu- dagskvöld, á vegum Heita potts- ins og munu tvær hljómsveitir leika. Fyrri hljómsveitin er skipuð þeim Agli B. Hreinssyni, píanó, Þórði Högnasyni, bassa, og Pétri Grétarssyni, trommur. Jazztríó Égils, Þórðar og Péturs leikur meðal annars íslensk lög, sérstaklega útsett í jazz-stíl, svo sem sönglög eftir Pál ísólfsson, Emil Thoroddsen og fleiri tónskáld auk klassískra jazz-laga. Seinni hluta kvöldsins tekur síðan Jazz-kvintettinn við en hann skipa: Þorleifur Gíslason, saxó- fónn, Reynir Sigurðsson, víbra- fónn, Egill B. Hreinsson, píanó, Þórður Högnason, bassi, og Ma- arten van der Valk, trommur. Þeir spinna ýmis þekkt jazzverk sam- kvæmt sveifluhefð. Tónleikarnir hefjast kl. 22. (Fréttatilkynning)

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.