Morgunblaðið - 21.02.1991, Page 19
19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 1991
Blóðflokkaskráning hrossa:
Hagsmunaaðilar sa.m-
einist um skráningu
- segir Helgi Sigurðsson dýralæknir
HELGI Sigurðsson dýralæknir segir í grein sem birtist nýlega í tíma-
ritinu Eiðfaxa að nauðsynlegt sé að koma á blóðflokkunarkerfi í iiross-
arækt hér á landi til að tryggja árangur í ræktun innanlands og einn-
ig til að tryggja útflutning á hrossum. Telur hann að stefna beri að
því að blóðflokka öll hross sem tekin eru í ættbók, og að skylda ætti
að vera að blóðflokka stóðhesta svo hægt verði að úrskurða í vafamál-
um um faðerni. Telur hann nauðsynlegt að hagsmunaaðilar i hrossa-
rækt, Félag hrossabænda, Landssamband hestamanna og Búnaðarfé-
lag Islands, sameinist um að koma blóðflokkaskráningu á hér á landi
í nánu samstarfi við hið opinbera.
Helgi segir að í hrossarækt sér
hægt að nota blóðflokkun til að stað-
festa uppruna í faðernismálum og
til þess að þekkja einstaklinga aft-
ur. Þá sé blóðflokkun einnig nauð-
synleg við framkvæmd hrossasæð-
inga, og kerfisbundin blóðflokkun
hafi fyrirbyggjandi áhrif á að hross
séu rangt ættfærð. Hann bendir á
að í Svíþjóð hafi um 3% sænskra
brokkara verið rangt ættfærðir áður
en skylda varð þar að blóðflokka
hesta, en við það hefði tíðnin minnk-
að í 0,3% á nokkrum árum. Hann
bendir á að hér á landi sé ekki vitað
hvernig þessum málum sé háttað,
en telur ekki óeðlilegt að álykta að
þessi tala fari aldrei undir 3%, en
líklega sé hún stærri en 5% og geti
jafnvel verið allt að 10%.
Helgi sagði í samtali við Morgun-
blaðið að hann legði áherslu á að
hagsmunaaðilar í hrossarækt sam-
einuðust um að taka upp blóðflokka-
skráningu. „Það er ekkert sem segir
á íslensk hross skuii endilega vera
frá íslandi. Áhugi á ræktun eykst
stöðugt erlendis, eins og vaxandi
sala á ættbókarfærðum hryssum
bendir til, og verðum við því að
vanda okkur enn frekar í rækt-
unarstarfinu. Þjóðveijar eru til
dæmis farnir að selja hross til
Ameríku, og hefur þeim orðið
betur ágengt við það en okkur.
Til að draga úr okkar sölumögu-
leikum erlendis er meðal annars
bent á að tíðni sumarexems sé
meiri í hestum fæddum á íslandi,
auk þess sem ættfærslan geti ver-
ið vafasöm. Við getum ekki setið
kyrrir og sagt að þetta hljóti að
leysast eins og það hefur gert
fram að þessu, og menn verða að
skilja að við megum ekki einangr-
ast. Ég er ekki að segja að við
eigum að fara að blóðsflokka alla
hesta, en við verðu allavega að
blóðflokka topphesta, en þetta er
fyrst og fremst spurning um að
hagsmunaaðilar sameinist um þessa
aðgerð,“ sagði hann.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Helgi Sigurðsson dýralæknir.
Andstaða er á Búnaðarþingi
við breytingu ájarðalögnm
Tillögur um samtengingu Búnaðarþings og Framleiðsluráðs
EITT mál var tekið til fyrri umræðu á Búnaðarþingi í gær, en það
er frumvarp Geirs H. Haarde og Friðriks Sophussonar til laga um
breytingu á jarðalögum, en í ályktun félagsmálanefndar um frum-
varpið er gert ráð fyrir að Búnaðarþing Ieggi til að það verði ekki
að lögum. Alls hafa 27 mál verið lögð fram á Búnaðarþingi, en þar
á meðal er áfangaskýrsla sjömannanefndar um framleiðslu sauð-
fjárafurða og nefndarálit milliþinganefndar til að endurskoða félag-
skerfi landbúnaðarins, en í því er meðal annars gert ráð fyrir sam-
tengingu Búnaðarþings og Framleiðsluráðs.
í greinargerð með ályktun fé-
lagsmálanefndar um frumvarp til
laga um breytingu á jarðalögum
segir að Búnaðarþing telji það
mikið hagsmunamál allra þeirra,
sem byggja hinar dreifðu byggðir
landsins, að standa vörð um þann
megintilgang núgildandi jarða-
laga, að eignarráð á landi og bú-
seta á jörðum sé í samræmi við
hagsmuni sveitarfélaga og þeirra
sem landbúnað stunda. Því leggist
Búnaðarþing eindregið gegn lög-
festingu þess frumvarps, sem feli
í sér þá breytingu á jarðalögum
að afnema algerlega forkaupsrétt
sveitarfélaga á fasteignaréttind-
um.
Samkvæmt tillögum milliþinga-
nefndar um breytingar á félag-
skerfi landbúnaðarins, sem lagðar
hafa verið fram á Búnaðarþingi,
er meðal annars gert ráð fyrir að
Búnaðarþing kjósi tvo fulltrúa úr
stjórn Búnaðarfélagsins til setu í
Framleiðsluráði, og auk þess sitji
búnaðarmálastjóri Framleiðslu-
ráðsfundi með málfrelsi og tillögu-
rétti. Þá er gert ráð fyrir að fjórir
fulltrúar kosnir af Framleiðsluráði
komi til viðbótar kjörnum fulltrú-
um á Búnaðarþingi, en í greinar-
gerð með tillögunum segir að þessi
samtenging Búnaðarþings og
Framleiðsluráðs sé hugsuð sem til-
raun tii að tengja betur en nú er
leiðbeiningarþjónustuna og fram-
leiðslustjórnun. Ekki er gert ráð
fyrir breytingum á skipan nýkjör-
ins Búnaðarþings að öðru leyti, en
gert er ráð fyrir að frá árinu 1994
verði kjörtímabil Búnaðarþings
þijú ár til samræmis við stjórnar-
kjör í Stéttarsambandi bænda, sem
lagt er til að breytist í sama ára-
fjölda. Gert er ráð fyrir að til árs-
ins 1994 verði áfram unnið að þró-
un og breytingum á skipan Búnað-
arþings og Framleiðsluráðs, en
ekki er gert ráð fyrir að sú fjölgun
sem af tillögunum hlýst verði við-
varandi, heldur verði stefnt að
fækkun og endurskipulagningu
þessara stofnana að þessum
árum liðnum.
Meðal þeirra mála sem lögð
hafa verið fram á Búnaðarþingi
er frumvarp til laga um héraðs-
skóga, þingsályktunartillaga um
kortlagningu gróðurlendis Islands
og frumvarp til laga um ferðaþjón-
ustu. Þá hefur verið lagt fram er-
indi Gunnars Sæmundssonar um
rannsóknir á heyverku í ríullu-
böggum, erindi Búnaðarsambands
A-Húnavatnssýslu um að mótmæla
innflutningi á landbúnaðarvöru
sem hægt er að framleiða hérlend-
is, og lagt hefur verið fram erindi
Egils Bjarnasonar og Gunnars
Sæmundssonar um flutning ýmiss
konar þjónustustarfa frá höfuð-
borgarsvæðinu út á landsbyggð-
ina.
il-lí/KíHI-i
Blomberq
o”
Eldavélar.
4 gerðir - 5 litir.
Gott verð - greiðslukjör
Elnar Farestvdt&Co.hf
BORGARTÚNI28, SÍMI622901.
L«iA 4 stoppar vM dymar
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
Finnur Ingólfsson á vélsleðanum.
Dekkin koma í stað
skíða í snjóleysinu
SNJÓLEYSIÐ hefur plagað
vélsleðamenn um allt land, en
Akureyringurinn Finnur Ing-
ólfsson, sem búsettur er í
Rcykjavík, kunni ráð við því.
Hann setti einfaldlega hjól-
barða undir véisleða sinn í stað
hefðbundinna skíða. Kvað hann
sleðann virka vel á malbikinu en
mælti þó ekki með mikilli notkun.
Að öllu jöfnu hefur hann notað
dekkin í spyrnu á sandspyrnumót-
um á sumrin, þar sem vélsleðar
keppa í opnum flokki.
R YMINGARSALA
í EPAL
Við höldum rýminsarsölu
FIMMTUDAG, FÖSTUDAG,
LAUGARDAG 21. - 23. febrúar
Listi yfir vörurnar, setn seldar verða,
Hggur firammi í versluninni
Húsgögn
Lampar
Gluggatjalda-
efni
HúsgagnaáklæÖi
Opið: Fimmtudag kl. 9-18
Föstudag kl. 9-18
Laugardag kl. 10-16
Bútar
HEWI stuöningsslár
fyrir fatlaöa
Myndir
Smávörur