Morgunblaðið - 21.02.1991, Side 21
MOgGUNBLApiÐ FIMMpCUDAGUR ,21. FEgRÚAR 1991
21
Vaxandi spenna í höfuðborg Albaníu:
Námsmenn fella styttu
af Enver Hoxha af stalli
Rúmlega 700 háskólamenn í mótmælasvelti síðan á mánudag
Vínarborg. Reuter.
ÞÚSUNDIR námsmanna felldu risastóra styttu af Enver Hoxha, fyrr-
verandi leiðtoga albanska kommúnistaflokksins, af stalli á Skander-
begtorginu í miðborg Tirana, höfuðborg Albaníu í gær. Áður höfðu
stúdentarnir efnt til mótmælafundar fyrir utan ríkisútvarpið sem
lýtur forræði kommúnista en þaðan héldu þeir er lögreglumenn
skutu plastkúlum á liópinn.
Lögreglan lét það hins vegar af- unni, sem þeir sögðu vera tákn um
skiptalaust þegar námsmennirnir harðlínustjórn stalínista og myrk-
létu til skarar skríða gegn stytt- asta kafla í sögu landsins. Reyndu
Georgía:
Þrír sagðir hafa fall-
ið í skotbardögum
Mrmlívii Rpufpr
Moskvu. Reuter.
TALSMAÐUR sveitar þjóðernis-
sinnaðra skæruliða í sovétlýð-
veldinu Georgíu sagði í gær að
hermenn innanríkisráðuneytis
lýðveldisins hefðu drepið tvo af
liðsmönnum hennar og prest.
Blaðamaður í lýðveldinu hafði
eftir talsmanni Riddaranna, en svo
nefnist sveitin, að skotbardagar
hefðu brotist út milli liðsmanna
hennar og sovésku hermannanna í
Kvareli, bæ í austurhluta
lýðveldisins.
Talsmenn innanríkisráðuneytis-
ins í Georgíu neituðu að tjá sig um
málið.
Spennan í Georgíu jókst til muna
í vikunni þegar yfirvöld handtóku
Djaba Iosseliani, leiðtoga Riddar-
ana. Blaðamaðurinn sagði að Iossel-
iani hefði verið ákærður fyrir að
bera vopn. Hermenn innanríkisráð-
uneytisins hefðu handtekið skæru-
liða víðs vegar um lýðveldið á und-
anförnum dögum og stöðvað bif-
reiðar á leið til eða frá höfuðborg-
inni, Tbílísí.
Skæruliðarnir beijast fyrir sjálf-
stæði Georgíu en eru ákafir and-
stæðingar forseta lýðveldisins,
Zviad Gamakhurdia, sem hefur
beitt sér fyrir aðskilnaði frá Sov-
étríkjunum. Leiðtogar skærulið-
anna segjast vilja stilla til friðar í
lýðveldinu en forsetinn segir að
þeir gangi erinda Sovétstjórnarinn-
ar, sem vilji að þeir skapi spennu
í landinu og réttlæti þannig aðgerð-
ir til að kveða riiður sjálfstæðisbar-
áttu Georgíumanna.
Sjálfstæðisbarátta Eystrasaltsríkjanna:
Sovétmenn gagnrýna
afstöðu Kanadamanna
Moskvu. Reuter.
SOVÉTMENN sökuðu ríkissljórn
Kanada í gær um hræsni vegna
afstöðu hennar til sjálfstæðisbar-
áttu Eystrasaltsríkjanna á sama
tíma og hún legðist gegn aðskiln-
aði Quebec úr kanadíska ríkja-
sambandinu.
Vítalíj Tsjúrkín, talsmaður sov-
éska utanríkisráðuneytisins, gagn-
Fjöldaupp-
sagriir hjá
Harrods í
Lundúnum
Lundúnum. The Daily Telegraph.
HARRODS-stórverslunin í Lund-
únum hyggst segja um 600 af
4.000 starfsmönnum sínum upp
á næstu þremur mánuðum vegna
mikils samdráttar í sölu.
90 skrifstofu- og sölumönnum
verslunarinnar var sagt upp í síð-
asta mánuði vegna þess að salan
hafði minnkað um 20-30%. Minnk-
andi einkaneyslu, mikilli fækkun
ferðamanna, Persaflóastríðinu og
sprengjutilræðum írska lýðveldis-
hersins að undanförnu hefur verið
kennt um.
„Það er aðeins hægt að álykta
að þeir eigi í meiri erfiðleikum en
við gerðum okkur nokkurn tíma
grein fyrir,“ sagði talsmaður stétt-
arfélags verslunarmanna á svæð-
inu. „Astandið er mjög slæmt. Salan
hefur minnkað verulega. Jafnvel
jólin og vetrarútsala okkar komu
ekki í veg fyrir uppsagnir," sagði
blaðafulltrúi verslunarinnar.
rýndi það sem hann kallaði kana-
díska stefnu um að „þykjast vilja
vernda eigin þjóð annars vegar og
hvetja sjálfstæðisbaráttu í Eystra-
saltsríkjunum hins vegar“.
„Það lítur út fyrir Kanadamenn
séu tvöfaldir í roðinu varðandi það
hvernig þeir nálgast þessi mál. Þeir
reyna að vernda eigin ríkjasamband
á sama tíma og þeir hafa allt aðra
afstöðu til sambærilegra hluta ann-
ars staðar," sagði Tsjúrkín á frétta-
mannafundi. „I -okkar augum eru
þetta ekkert annað en augljós af-
skipti af innanríkismálum okkar
lands,“ sagði hann.
Hann gagnrýndi einnig það sem
hann kallaði þátttöku kanadískra
stjórnarerindreka í eftirlitsstörfum
með þjóðaratkvæðagreiðslu um
sjálfstæði í Litháen fyrr í mánuðin-
um. Kanadískir stjórnarerindrekar
fengust ekki til að láta hafa neitt
eftir sér um málið í gær.
myndsendar
Verð frá 49.900 m/vsk.
Æ SKRIFBÆR <X
'-0
Hverfisgötu 103 - sími 627250
stúdentarnir að draga styttuna í átt
til háskólans þar sem rúmlega 700
albanskir námsmenn hafa verið í
mótmælasvelti í þrjá daga. Tilgang-
ur sveltisins er að leggja áherslu á
kröfur um að nafni háskólans í Tir-
ana, eina háskóla landsins, verði
breytt þannig að nafn Envers Hos-
xha verði fellt úr nafni skólans.
Alexander Meksi, fulltrúi Nýja
lýðræðisflokksins, stærsta flokks
stjórnarandstæðinga, sagði að
hungurverkfallið færi friðsamlega
fram og væri heilsu þátttakenda
enn sem komið engin hætta búin.
Fimmtán læknar eru á vakt til að
fylgjast með heilsu þeirra. „Það
taka 723 námsmenn og 13 prófess-
orar þátt í mótmælunum og þeir
hyggjast halda áfram,“ sagði
Meksi. Stjórnvöld hafa ítrekað hvatt
til þess að mótmælasveltinu verði
hætt.
Gert var ráð fyrir því að fulltrúar
námsmanna myndu eiga viðræður
við Skender Gjinushi menntamála-
ráðherra en óljóst hvenær þær færu
fram.
Hermt var að námsmennirnir
hefðu sent Javier Perez de Cuellar
framkvæmdastjóra Sameinuðu
þjóðanna símskeyti þar sem þeir
vöktu athygli á málstað sínum en
ekki var skýrt nánar frá innihaldi
skeytisins né hver tilgangurinn með
því hefði verið.
Hungurverkfallið hófst á mánu-
dag en áður höfðu 10.000 stúdentar
skólans réynt að fá kröfunum um
nafnbreytingu fullnægt með því að
skrópa í tímum í tvær vikur.
Albanskir blaðamenn og erlendir
stjórnarerindrekar héldu því fram í
gær að vaxandi stuðningur væri við
aðgerðir stúdenta, einkum meðal
verkamanna, sem sýnt hafa sam-
stöðu með því að leggja niður vinnu.
Mikil spenna ríkir í Tirana, höfuð-
borg Albaníu, og hefur her- og lög-
regla mikinn viðbúnað á svo til
hverju götuhorni. Lögregla hefur
umkringt lóð háskólans til þess að
koma í veg fyrir að fleiri gangi til
liðs við hungurverkfallsmenn og til
þess að koma í veg fyrir frekari
mntmæli á skólalóðinni
Reuter
íranir og Rúmenar semja
Roghani Zanjani, varaforseti írans, og Ion Illiescu, forseti Rúm-
eníu, hittust í Búkarest, höfuðborg Rúmeníu, í gær til að skrifa
undir nýjan samning ríkjanna um efnahagslega og tæknilega sam-
vinnu. Myndin var tekin við það tækifæri.
l hálkueyúirinn
• Kemur í vec fyrír hálkumyndun
• Skemmtr ekk; skó, tepþi döks eðs oarket
• Skaðlaus öiium gróðri
• Eyðiieggar ekks iakk og imtíifyagr> fcjiía
• Vlnnur S sirmum nraðar en sait
IBESTAI
Nýbýlavegi 18,
sími 641988
Fæst ó öllum bensínafgreióslum
OLIUFELAGIÐ HF.
VERÐHRUN!
Hreint stórkostleg verðlækkun á öllum vörum
verslunarinnar í dag, á morgun og laugardag.
Ætlum að rýma hressilegafyrir nýjum vörum og bjóðum
því allt á hlægilegu verði.
Sem dæmi má nefna:
ÁÐUR NÚ ÁÐUR NÚ
Skór 80;- 1.890,- Sundskýlur >70Or- 690,-
Barnaskór 990,- Sundbolir 720,-
Bolir 4-r275r 490,- Fótboltar 750,-
Barnaregnkápur ^uöeor- 490,- Veiðihjól ^470;- 1.350,-
Úlpur ^465T- 3.200,- Veiðistangir ^90€r,- 2.900,-
Glansgallar 2.990,- Flugulínur ^2e5T- 990,-
Allt góðar vörur
ATH.:
Veiðidót
fyrir
fermingarnar
Laugavegi 62 - Sími 13508
Sendumí
póstkröfu