Morgunblaðið - 21.02.1991, Qupperneq 22
22
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 1991
FYRIR BOTNI
PERSAFIOA
■ hlWNi hVN
Saka íraka um að hafa
sprengt bænahús í Basra
Washington. Reuter.
BANDARÍSKA varnarmálaráðuneytið vísaði því á bug í gær að
flugvélar bandamanna hefðu varpað sprengjum á bænahús músl-
ima í borginni Basra. írakar hefðu sjálfir sagað hvolfþakið snyrti-
lega af og flutt burtu en síðan hefðu þeir sprengt þak og veggi
efri hæðar moskunnar til að láta líta út fyrir að hún hefði orðið
fyrir loftárás.
Bandaríska herráðið sendi frá sér
njósnamyndir af Al-Basrah mosk-
unni og sagði þær sýna greinilega
hvernig hvolfþak hénnar hefði verið
sagað af. Hefði það verið gert 8.
febrúar sl. og samdægurs hefði efri
hæð hússins verið eyðilögð. Daginn
áður hefði sprengja sem flugvélar
bandamanna hefðu varpað á hem-
aðarleg skotmörk í Basra geigað
og komið niður 100 metra frá mosk-
unni en ekki valdið neinu tjóni á
henni.
„Moskan var skemmd af yfír-
lögðu ráði og tilgangurinn var að
reyna að villa um fyrir fólki og
kenna bandamönnum um tjón á
mannvirkjum sem eru stríðinu óvið-
komandi. Leiðtogar ríkja sem aðild
eiga að fjölþjóðahemum við Persa-
flóa hafa ætíð haldið því fram að
rík áhersla væri á það lögð í loftár-
ásum á írak að valda ekki tjóni á
óbreyttum borgumm eða mann-
virkjum, s.s. bænahúsum, sem ekki
tengdust stríðsvél Saddams Huss-
eins íraksforseta. Bandamenn
gruna hins vegar íraka um að hafa
sprengt mannvirki af því tagi og
skella skuldinni að ósekju á banda-
Reuter
Moskan í Basra sem Bandaríkjamenn segja að írakar hafi sjálfir
skemmt. Bandaríska varnarmálaráðuneytið birti myndina i gær og
sagði hana sýna hvernig hvolfþakið hefði verið losað af og fjarlægt
áður en efri hæð byggingarinnar var eyðilögð með sprengjum.
Hermenn fjölþjóðahersins bíða eftir skipun um innrás í Kúveit;
Nornian Sclivvarz-
kopf segir Iraksher
„að hruni kominn“
Lundúnum, Dhahran, Riyadh. Reuter, The Daily Telegraph.
HERMENN fjölþjóðahersins við Persaflóa búast nú við því að fá
skipun um að hefja mestu hernaðarárás frá heimsstyrjöldinni síðari
á hverri stundu. Norman Schwarzkopf, æðsti yfirmaður þeirra, sagði
í viðtali, sem birt var í Los Angeles Times í gær, að íraksher væri
vað hruni kominn“. Hann kvaðst þó ekki vanmeta hernaðarmátt
Iraka, því þeir hefðu ekki enn verið bugaðir. Hernaðarsérfræðingar
sögðu að þótt loftárásir bandamanna kynnu að hafa valdið írökum
miklu tjóni væru þeir enn þess megnugir að veita harða mótspyrnu.
Schwarzkopf sagði að írakar ist. Hann sagði einnig að íraksher
misstu nú um hundrað skriðdreka
á dag og svo mikið tjón gæti eng-
inn her þolað. „Mat okkar er að
íraksher sé að hruni kominn,“ sagði
Schwarzkopf en varaði við of mik-
illi bjartsýni. „írakar geta enn kom-
ið okkur á óvart á ýmsan hátt.
Þeir hafa ekki verið bugaðir enn.“
Schwarzkopf kvaðst telja að
Saddam Hussein íraksforseti myndi
beita stórskotavopnum og það sem
eftir er af flugvélum sínum til að
gera efnavopnaárásir á fjölþjóða-
herinn þegar landhernaðurinn hæf-
hefði að öllum líkindum ekki verið
eins öflugur í upphafi stríðsins og
talið var. Hermennimir væru ein-
faldlega orðnir þreyttir á átökum
eftir átta ára stríð við írani og hefðu
engan hug á að beijast.
Yfirmenn fjöiþjóðahersins telja
að bandamenn hafí eyðilagt meira
en þriðjung skriðdreka, brynvagna
og stórskotavopna íraka í Kúveit.
Um 10% að auki komi þeim ekki
að notum vegna skemmda. Banda-
menn segjast einnig hafa því sem
næst lamað flugher íraka.
Hernaðarsérfræðingar í Lundún-
um sögðu þó að ekki mætti afskrifa
íraska herinn fyrirfram. íraskar
hersveitir í Kúveitborg og við strönd
Kúveits væm enn öflugar, auk þess
sem úrvalssveitirnar og aðrar her-
sveitir gætu enn gegnt hlutverki
sínu. Heimildarmaður innan banda-
ríska hersins í Riyadh sagði að þótt
stríðsþreyta væri væri farin að hijá
einhveijar hersveitir, hefðu loftár-
ásir bandamanna lítil eða engin
áhrif haft á fjölmargar aðrar, svo
sem úrvalssveitirnar.
Samkvæmt fréttum frá Riyadh
er mikill baráttuhugur í hermönn-
um fjölþjóðahersins, sem eru sagðir
bíða í ofvæni eftir því að fá skipun
um að útkljá stríðið. Þeir kunni því
illa að þurfa að bíða lengi í óvissu
eftir skipun um að ráðast inn í
Kúveit nú þegar undirbúningi þeirra
er lokið.
Fríðartíllögur Gorbatsjovs njóta
stuðnings ríkisstjórnar Italíu
Rómaborg. Reuter.
ÍRAKAR myndu hefja brott-
flutning innrásarhers síns frá
Kúveit daginn eftir að komist
hefði verið að samkomulagi um
vopnahlé í Persaflóastríðinu
samkvæmt friðaráætlun
Míkhaíls Gorbatsjovs Sovétfor-
seta, að sögn háttsetts ítalsks
embættismanns.
Áætlun Gorbatsjovs gerir einnig
ráð fyrir ýmsum ráðstöfunum er
eiga að tryggja að ekki verði ráð-
ist á írösku sveitimar meðan þær
hverfa frá Kúveit.
Embættismaðurinn, Nino
Cristofori, sagði blaðamönnum
eftir fund ítölsku ríkisstjómarinn-
ar að Giulio Andreotti forsætisráð-
herra hefði lýst því yfir á fundinum
að tillögur Gorbatsjovs væra í
„fullu samræmi við ályktanir Sam-
einuðu þjóðanna" um innrásina í
Kúveit. Hefði stjómin lýst stuðn-
ingi við tillögur Sovétforsetans þar
sem þær væra í anda samþykkta
Sameinuðu þjóanna. Bandarískir
ráðamenn hafa hins vegar sagt
að friðartillögur Gorbatsjovs
gengju alltof skammt og uppfylltu
ekki skilyrði um tafarlausan og
skilyrðislausan brottflutning íraka
frá Kúveit.
Aðferðir við að hreinsa
jarðsprengjubelti í Kúveit
Lundúnum. The Daily Telegraph.
TALIÐ er að írakar hafi lagt 500.000 jarðsprengjur í Kúveit og
suðurhluta íraks og í raun breytt þessu svæði í eitt risastórt jarð-
sprengjubelti. Búast má við að þessar sprengjur muni orsaka
mestan hluta mannfalls í liði bandamanna hvernig sem innrás í
Kúveit verður framkvæmd.
Sprengjumar eru misjafnlega
öflugar, sumar þeirra era tækni-
undur og innihalda örtölvur sem
stjóma því hvenær og hvernig þær
springa. Þótt þessari tækni hafi
fleygt fram hafa varnir gegn
sprengjunum lítið breyst frá Víet-
namstríðinu, með fáum undan-
tekningum.
Breska brynfylkið er mjög vel
undir það búið að veijast sprengj-
unum. I því era verkfræðinga-
flokkar og fylgir hver þeirra
venjulega þrisvar sinnum fjöl-
mennari hersveit. Nýjasta tækið
sem Bretar hafa yfir að ráða er
Risaslangan svokallaða. Úr því
er skotið átta flugskeytum, sem
draga með sér um 200 metra
slöngu með sprengiefni yfir jarð-
sprengjusvæðið. Þijár fallhlífar
opnast á enda slöngunnar og rétta
hana af er hún kemur til jarðar.
Á örskammri stundu verður gífur-
leg sprenging. Allt að 90% af jarð-
sprengjum á 6 metra breiðu belti
springa. Afganginn af sprengjun-
um verður að plægja upp.
Fyrir framan flest ökutæki
verkfræðingaflokkanna era
sprengjuplógar. Þeir plægja um
3,6 metra breitt belti í jarð-
sprengjusvæðið, lyfta sprengjun-
um og ýta þeim til hliðar án þess
að þær springi. Sprengjugildrar,
eða faldar sprengjur sem springa
þegar hreyft er við einhveijum
hlutum sem þær eru tengdar við,
springa hins vegar fyrir framan
plóginn og valda litlu eða engu
tjóni.
Bandamenn hafa einnig yfir að
ráða farartæki með hjól að framan
og belti að aftan, sem getur
hreinsað 50 metra langa og tæp-
lega fjögurra metra breiða slóð á
einni mínútu.
Bandaríkjamenn geta einnig
beitt sprengjum, sem dreifa elds-
neytisskýjum yfír stórt svæði.
Þegar kveikt er í þeim valda þau
öflugri sprengingu. Sprengjunum
er yfírleitt varpað úr flugvélum.
Besta vopnið er ef til vill ROB-
AT, fjarstýrt farartæki með ýms-
an búnað gegn jarðsprengjum, svo
sem jarðsprengjuvaltara (sem
svipar til þreskivélar) og sjálfvirkt
merkjakerfí er skilur eftir röð af
fánum til að sýna slóð tækisins.
Ekki er vitað hvort þetta tæki
hefur verið flutt til Saudi-Arabíu.
Amnesty International:
Andstæðingar íraka
einnig sakaðir um
mannréttindabrot
Lundúnum. Reuier.
TALSMENN mannréttindasamtakannna Amnesty International
sögðu í gær að mannréttindabrot tengd Persaflóastríðinu væru fram-
in af stjórnvöldum í nokkrum þeirra ríkja sem sameinast hefðu
gegn Saddam Hussein en erfitt væri að vekja athygli á þeim meðan
öll gagnrýni manna beindist að írökum. Þá sögðu þeir að stjórnir
ríkja heims hefðu ekki gert neitt í gegnum árin til að koma í veg
fyrir alvarleg mannréttindabrot í írak og víðar. „Sums staðar er
vakin athygli á mannréttindabrotum í áróðursskyni en annars stað-
ar eru þau framin í nafni þjóðaröryggis," sagði í yfirlýsingu Amnesty.
Samtökin gagnrýndu bresk
stjómvöld fyrir að hafa handtekið
meira en 50 íraka og menn af öðru
þjóðemi af öryggisástæðum og lá-
tið þá bíða brottflutnings úr landi.
Sagt var að þetta bryti í bága við
alþjóðlegar reglur því fólkinu hefði
ekki verið skýrt nákvæmlega frá
ástæðum fyrir handtöku og því
ekki verið gefin kostur á réttlátri
lagalegri meðferð.
Um þjóðirnar sem standa að fjöl-
þjóðaherliðinu við Persaflóa sögðu
talsmenn Amnesty að þeim ætti
ekki að líðast að þegja um mann-
réttindabrot bandamanna sinna á
sama tíma og þeir notuðu umræðu
um mannréttindabrot andstæðinga
sinna í áróðursskyni. Þeir vöktu
sérstaka athygli á máli bandarísks
hermanns sem var hnepptur í fang-
elsi fyrir að neita að undirbúa send-
ingu hergagna til Persaflóa og
töluðu um hann sem samvisku-
fanga.
í yfirlýsingunni voru langvarandi
mannréttindabrot í írak og meðal
þjóða sem styðja bandamenn í
Persaflóadeilunni fordæmd. „Við
höfum árum saman reynt að vekja
athygli á stórkostlegum mannrétt-
indabrotum í íran, skipulögðum við-
varandi mannréttindabrotum sem
Palestínumenn hafa verið beittir
bæði í ísrael og á herteknu svæðun-
um, á pyntingum og dauðarefsing-
um í Saudi-Arabíu, á pyntingum
og aftökum í Sýrlandi og á pynting-
um og mannshvörfum í Marokkó.“
Þá sagði einnig í yfírlýsingunni að
skýrslur hefðu verið birtar um til-
raunir til að binda endi á handtökur
og pyntingar í Bahrain, Jórdaníu
og Egyptalandi og að fyrir innrás-
ina hefði hvað eftir annað verið
farið fram á að mannréttindi yrðu
virt í Kúveit.
Leiðrétting
í frétt á forsíðu Morgunblaðsins
í gær segir að Jevgeníj Prímakov
sé utanríkisráðherra Sovétríkjanna.
Þetta er ekki rétt. Prímakov hefur
verið sérlegur sendimaður Míkhaíls
S. Gorbatsjovs, forsefy Sovétríkj-
anna, í Persaflóadeilunni en ut-
anríkisráðherra Sovétríkjanna heit-
ir Alexander Bessmértnykh. Morg-
unblaðið biðst velvirðingar á þess-
um mistökum.