Morgunblaðið - 21.02.1991, Page 25
24
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. FEBRUAR 1991
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 1991
25
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Aðstoðarritstjóri
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Árvakur, Reykjavík
HaraldurSveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Bjarnason.
Þorbjörn Guðmundsson,
Björn Jóhannsson,-
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal-
stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar-
gjald 1100 kr. á mánuði innanlands. I lausasölu 100 kr. eintakið.
Skilvirkni og
einkavæðing
A
Utþensla hins opinbera, ríkis
og sveitarfélaga, er stórfellt
vandamál, ekki aðeins hér á landi,
heldur víðast hvar þar sem velferð
þegnanna er höfð að leiðarljósi.
Þar sem útþensla opinbera kerfis-
ins hefur gengið einna lengst, á
Norðurlöndum, er leitað leiða til
að draga úr henni og gera rekstur
hins opinbera skilvirkari. Þar er
um og yfir 50% þjóðarframleiðsl-
unnar ráðstafað af því opinbera.
Þetta hefur leitt af sér óþolandi
skattbyrði og kyrking í atvinnulíf-
inu. Á Norðurlöndum er því lögð
höfuðáherzla á það að draga úr
skattbyrðinni og krefjast meiri
hagkvæmni í opinberum rekstri.
Skattpíningin á Norðurlöndum,
ekki sízt í Svíþjóð, hefur dregið
úr hagvexti, valdið flótta fólks og
fjármagns úr landi og dregið úr
vilja borgaranna til að leggja á
sig vinnu. Alls staðar eru nú í
framkvæmd áætlanir um að létta
skattbyrðina og auka þannig ráð-
stöfunarfé fólksins, sem aftur á
móti leiðir af sér vaxtarkipp í
efnahagslífínu.
Fjármálaráðuneytið efndi fyrir
skömmu til ráðstefnu vegna
íslenzkrar utgáfu á skýrslunni
„Norræna velferðarsamfélagið á
aðhaldstímum“. Hún er unnin á
vegum fjármálaráðherra Norður-
landa vegna áætlana um að auka
skilvirkni í opinberri starfsemi. í
skýrslunni er gerð grein fýrir hug-
myndum, nýmælum og aðferðum
til að auka skilvirkni í starfsemi
ríkis og sveitarfélaga. íslendingar
áttu ekki aðild að þessu starfí,
þótt sannarlega hefði ekki af veitt.
í norrænu skýrslunni kemur
glögglega fram, að Norðurlöndin
leggja mikla áherzlu á það að
draga úr umsvifum hins opinbera
og auka hagkvæmni kerfísins.
Þau eru langt á undan Islending-
um á þessu sviði og beita aðferð-
um, sem íslenzkir stjórnmála-
flokkar, sem kenna sig við félags-
hyggju, hafa ekki mátt heyra
minnst á til þessa. Vonandi vakna
þeir upp við vondan draum áður
en íslenzku velferðarkerfi verður
steypt í þá efnahagslegu spenni-
treyju, sem hin Norðurlöndin
leggja höfuðáherzlu á að losa sig
.úr.
í norrænu skýrslunni segir, að
ljóst sé að framvegis verði gerðar
auknar kröfur um skilvirkni í opin-
berri starfsemi, en sú þróun sé
nauðsynleg vegna þess jafnvægis-
leysis, sem víðtæk, opinber um-
svif hafí óumdeilanlega leitt af
sér, auk almennra óska um lægri
skatta. Meira tillit verði að taka
til þarfa einstaklinga og atvinnu-
lífs. Kanna verði beitingu mark-
aðslögmála í ríkari mæli en nú
er gert í opinberri starfsemi.
Margs konar hugmyndir koma
fram um, hvernig stuðla megi að
þessari þróun. Auka verði fram-
leiðni í starfí ríkis og sveitarfé-
laga, m.a. með aukinni samkeppni
milli þjónustu aðila, opinberra
jafnt sem einkaaðila. Efnt verði
til útboða á rekstrar- og stofn-
kostnaðarverkefnum, notenda-
greiðslur verði teknar upp, þar
sem því verður við komið, því sam-
band sé milli veittrar þjónustu og
verðlagningar hennar, ekki sízt í
kerfi sem veitir ókeypis þjónustu.
Það geti leitt til sparnaðar og
menn geri sér betur grein fyrir
raunverulegum kostnaði. Hætt sé
við því að ókeypis þjónusta sé
misnotuð, en slíkt leiði til sóunar.
Þá er lagt til að einokun verði
aflétt því samkeppni leiði til skil-
virkni.
Mikil áherzla er lögð á aukna
einkavæðingu með breyttu skipu-
lagi þannig, að starfsemin færist
á hendur einkaaðila. Það er gert
með breyttu eignar- eða rekstrar-
formi opinberra stofna. Svo og
með auknu sjálfstæði þeirra og
heimild til að færa fjárveitingar
milli ára og milli verkefna. Ráð-
legt er að beita launakerfi tengdu
frammistöðu og bónuslaunum og
öðrum launahvötum til að auka
framleiðni og skilvirkni.
Sérstaklega er bent á í norrænu
skýrslunni, að verktakasamningar
séu útbreiddir í opinberri mann-
virkjagerð, en ekkert mæli gegn
því sama um rekstur þjónustu-
starfsemi. Það séu mikilvirkustu
aðferðirnar til að auka hag-
kvæmni í opinberum rekstri. Á
þessu sviði hefur þegar mikið ver-
ið gert á Norðurlöndum og af
starfsemi, sem boðin hefur verið
út, má nefna rekstur dagheimila,
velferðar- og forsjárstofnana,
ýmissa heilbrigðisstofnana, aðstoð
við flóttafólk og bágstadda, al-
mannavarnir og snjómokstur.
Verktakasamningar eru gerðir um
fjölbreytilegustu verkefni á veg-
um hins opinbera, allt frá viðhaldi
og hreingerningum til rannsókn-
arstarfsemi.
Er svo komið, að þing og ríkis-
stjórnir á Norðurlöndum gera
kröfur um aukna skilvirkni og
framleiðniaukningu við fjárlaga-
gerð. I Danmörku og Svíþjóð er
gerð krafa um 2-3% framleiðni-
aukningu á ári í stjórnsýslunni.
Þar eru nú gerðar hliðstæðar kröf-
ur og í einkageiranum.
Hér á landi eru ekki horfur á
að kröfur um opinbera þjónustu
muni minnka á næstu árum, ekki
sízt á sviði heilbrigðis-, mennta-
og velferðarmála. Rík ástæða er
því til að taka upp stóraukna
einkavæðingu í opinberum rekstri
til að auka framleiðni og skil-
virkni. Skattheimtan er þegar
komin á yztu nöf. Verði ekkert
að gert verður hún óbærileg.
Steindór GK strandaði undir Krísuvíkurbergi;
Skipverjunum átta bjargað í
þyrlu Landhelgisgæslunnar
Báturinn var lagstur á hliðina og sjórinn gekk yfir skipverja í brúnni
STEINDÓR GK 101, 127 brúttólesta stálbátur úr Garði, strandaði
undir Krísuvíkurbergi, við Selöldu kl. 7 í gærmorgun. Var hann á
togveiðum þegar óhappið átti sér stað. Landhelgisgæslunni barst
hjálparbeiðni kl. 7.02. Sjö karlar og ein kona voru um borð og
tókst þyrlu Landhelgisgæslunnar TF Sif að bjarga þeim heilum á
húfi um borð og selflylja þá í þremur ferðum upp á bjargbrúnina.
Þyrla Landhelgisgæslunnar fór
í loftið frá Reykjavík kl. 7.39.
Voru læknir og sjúkraliðar settir
niður á bjarginu kl. 7.50 og voru
fyrstu tveir skipverjarnir síðan
hífðir um borð í þyrluna kl. 8.07.
Flutti þyrlan skipverjana í þrennu
lagi upp á bjargið.
Mennirnir voru vel á sig komnir
og allir í flotbúningum. Voru þeir
allir upp.í brú, en sjórinn gekk
yfír skipið, sem valt mikið í grjót-
inu.
Þyrla frá vamarliðinu var einnig
kölluð til en þyrla Landhelgisgæsl-
unnar var að bjarga síðustu þrem-
ur skipveijunum um borð þegar
hún kom á staðinn. Önnuðust
læknar og sjúkraliðar skipverjana
um borð í þyrlu varnarliðsins upp
á bjarginu.
Aðstæður voru mjög erfiðar á
strandstað. Báturinn var mjög
nálægt bjarginu og braut á honum
og gekk sjór yfír bátinn á meðan
björgunin stóð yfir. Var hann kom-
inn á hliðina. Samkvæmt upplýs-
ingum Landhelgisgæslunnar hefði
verið illmögulegt að bjarga mönn-
unum á annan hátt en úr lofti.
Var kominn sjór í bátinn þegar
mönnunum var bjargað og hafði
hann þá misst allt rafmagn. Hæg-
viðri var á staðnum þegar strand-
ið átti sér stað, en mikið brim og
ókyrrð við bjargið.
Þyrla varnarliðsins flutti fimm
skipverja til Reykjavíkur og þyrla
Gæslunnar þrjá. Voru þeir komnir
til Reykjavíkur kl. 8.42. Fiugstjóri
á Sif var Bogi Agnarsson.
Björgunarsveitirnar Þorbjörn í
Grindavík og Fiskaklettur úr
Hafnarfírði voru kallaðar til en
tekist hafði að ná öllum skipveij-
unum úr bátnum þegar björgunar-
menn komu á staðinn. I gær
reyndu þeir að bjarga hlutum sem
bar á land úr bátnum sem lamdist
í sundur í gijótinu við bjargið. Að
sögn Kristbjörns Guðmundssonar,
formanns björgunarsveitarinnar
Fiskakletts, verður bátnum ekki
bjargað. Hann var strax orðinn
mjög skemmdur þegar björgunar-
menn komu á vettvang. Sagði
Kristbjörn að þeir þekktu vel til
staðhátta á strandstað og hefðu
þeir sérstakan búnað til að fara
um bjargið. Taldi hann að hugsan-
lega hefði mátt koiria fluglínu í
bátinn af palli, sem er í um 40
metra fjarlægð frá bátnum
skammt frá Krísuvíkurvitanum,
ef ekki hefði verið hægt að koma
þyrlunni við. Sagði hann að bjarg-
ið væri um 30 metra hátt þar sem
báturinn strandaði.
Sjópróf vegna óhappsins fara
fram í Keflavik.
Þessi mynd var tekin um klukkan 16 í gær. Þá lamdist báturinn í
fjöruborðinu og var þegar orðinn mikið skemmdur. Um borð má sjá
björgunarsveitarmenn, en þeim tókst litlu að bjarga, utan einum
gúmbát. Oðrum náðu þeir upp úr sjónum.
Björgunarsveitarmenn síga niður Krísuvíkurberg, til að freista þess
að bjarga einhveiju úr Steindóri.
Morgunblaðið/RAX
Frá strandstað við Krísuvíkurbjarg skömmu fyrir hádegi í gær. Á
bjargbrúninni sjást menn úr björgunarsveitinni Fiskaklett í Hafnar-
firði, en þeir fóru út í skipið.
Skipbrotsmenn af Steindóri GK:
Skipið á kaf bakborðsmegin
o g slengdist upp í klettana
ÞAÐ voru þreyttir og þvældir skipbrotsmenn af Steindóri GK sem
blaðamenn Morgunblaðsins hittu fyrir í bækistöðvum Landhelgis-
gæslunnar í gærmorgun. Allir utan einn eru þeir frá Sandgerði,
þar af tveir bræðrahópar. Sævar Ólafsson skipstjóri og Asgeir
Gíslason stýrimaður vildu sem minnst láta hafa eftir sér um hvern-
ig strandið bar að höndum en voru sammála um að vel hefði verið
staðið að björgun skipbrotsmanna.
Tveir bræður Sævars, Marteinn
kokkur og Davíð háseti, voru báð-
ir í koju þegar báturinn tók niðri
í klettunum við Selaöldu. „Við
höfum ekki hugmynd um hvað
gerðist. Eg var sofandi í koju þeg-
ar hann tók harkalega niðri og
það má segja að ég hafí rokið á
fætur og ræst hina. Við drifum
okkur síðan upp í brú og fórum í
flotgallana,“ sagði Marteinn. „Þá
var brúin orðin full af sjó og allt
á tjá og tundri þar inni. Sjórinn
gekk yfír brúna og hurðin hafði
brotnað í spón. Það var gífurlegt
brim þarna og aðdjúpt og lá bátur-
inn á hliðinni og slóst til,“ sagði
hann.
Marteinn sagði að einn maður
hefði verið í brúnni, þegar óhappið
varð, en hann vildi ekki tjá sig
um það að öðru leyti.
Steindór GK, sem var 127 lesta
stálskip, hafði farið á trollveiðar
um áttaleytið á þriðjudagsmorg-
unn og hafði veitt 1-2 tonn. Út-
gerð bátsins, Njáll hf. í Garði,
keypti hann frá Þorlákshöfn um
síðustu áramót en þá hét hann
Guðfínna Steinsdóttir ÁR-010.
Báturinn var smíðaður á Seyðis-
firði 1978 og tveimur árum síðar
strandaði hann vestan Dyrhólaeyj-
ar 1980, en þá hét hann Sigurbára.
Björgun var aðeins möguleg
með þyrlu
Sigmar Steingrímsson 1. vél-
stjóri og bróðir hans Ólafur háseti
voru sammála um að biðin eftir
björgun hefði tekið á. „Við biðum
uppi í brúnni og gátum ekkert
gert. Báturinn var kominn á kaf
bakborðsmegin og slóst upp í
klettana stjórnborðsmegin. Það
hefði ekki verið hægt að bjarga
okkur öðruvísi en með þyrlu, við
hefðum aldrei komist upp klett-
ana. Björgunin tókst fullkomlega
og Landhelgisgæslan á þakkir
skildar fyrir frábæra frammi-
stöðu,“ sagði Sigmar.
Marteinn sagði að þeir félagar
hefðu óttast það mest að bátnum
hvolfdi þegar fyllumar slengdu
honum upp í klettana og hann
Steindór GK101 strandaði undir
Krísuvíkurbergi snemma í gærmorgun.
Þyrla Landhelgis-
gæslunnar
bjargaði
mönnunum
upp á bjargið
losnaði af þeim aftur. Hann sagði
að biðin eftir þyrlunni hefði verið
löng í brúnni, hver mínúta hefði
verið eins og klukkustund, þótt
hjálpin hefði í raun borist afar
skjótt. Hann sagði að þetta hefði
getað farið enn verr, því háflóð
var um kl. 9 en þyrla Landhelgis-
gæslunnar var komin á strandstað
um kl. 7.50.
TF-Sif, þyrla Landhelgisgæsl-
unnar, bjargaði skipbrotsmönnum
Morgunblaðið/KGA
Skipbrotsmenn í bækistöðvum Landhelgisgæslunnar við Reykjavíkurflugvöll. Frá vinstri: Marteinn Ólafs-
son kokkur, Vigdís Elísdóttir háseti, Davíð Ólafsson háseti, Sigmar Steingrímsson vélstjóri, Ásgrímur
Sigurjónsson háseli og Ólafur Steingrímsson háseti. Á myndina vantar Sævar Ólafsson skipstjóra og
Ásgeir Gíslason stýrimann.
í þremur ferðum, tveimur í fyrstu
ferðinni og síðan þremur í tveimur
síðari ferðuni. Þyrla varnarliðsins
á Keflavíkurflugvelli tók síðan sex
skipbrotsmanna og flutti þá til
Reykjavíkur.
Marteinn sagði að þessi atburð-
ur sýndi og sannaði að nauðsyn-
legt væri að Landhelgisgæslan
eignaðist fullkomna, stóra björg-
unarþyrlu, fyrr en síðar því svona
slys gerðu ekki boð á undan sér.
„Ég get ekki lýst þessu, ég var
í koju þegar þetta gerðist. En mér
tókst að halda ró rninni," sagði
Vigdís Elísdóttir, 21 árs. Vigdís
hefur verið til sjós í tvö ár og
kvaðst hún aldrei hafa lent i slíku
áður. „Ég hef þó lent í því áður
að festa bát í innsiglingunni í
Grindavík," sagði Vigdís.
Skautahöll Vetrarólympíuleikanna í Noregi:
Islenskur arkitekt 1 úr-
slitakeppni um hönnun
ÍSLENSKUR arkitekt, Guðmundur Jónsson, tekur nú þátt í úrslita-
keppni þriggja arkitektahópa um hönnun skautahallar í Hamar í
Noregi, en höllin á að hýsa skautakeppni á Vetrarólympíuleikunum
í Noregi 1993. Guðmundur sagði í samtali við Morgunblaðið að hann
byggist við harðri keppni um hönnun hallarinnar, en keppinautar
hans eru stærstu og virtustu arkitektastofur í Noregi.
Skautahöllin á að verða um 240
metra löng og 110 metra breið.
Hún verður fjölnotahús og verður
meðal annars hægt að keppa þar í
innanhússknattspyrnu, handbolta,
hlaupum og einnig á að vera hægt
að nota hana sem tónleikahöll.
Húsið á að rúma mest 20 þúsund
manns, en þegar keppt verður í
skautaíþróttum rúrnar hún 10 þús-
und manns, þar af þijú þúsund í
sæti. Áætlað er að skautahöllin
kosti um tvo milljarða íslenskra
króna og hún á að vera tilbúin til
notkunar í desember 1992.
Um miðjan mars verður kunn-
gjört hveijir hljóta hnossið, að
byggt verði eftir þeirra hönnun.
Guðmundur Jónsson vinnur verkið
í samvinnu við A/S Veidekke og
4B Arkitekter A/S. Keppinautarnir
eru annars vegar Ole K. Karlsen,
Niels Torp A/S og Biong & Biong
A/S, hinsvegar A/S Selmer.
Guðmundur sagði í samtali við
Morgunblaðið að því fylgdi vissu-
lega mikill heiður,að ná þetta langt
í svona keppni og vinna til verð-
launa, hins vegar væri auðvitað
eftirsóknarverðast að hljóta fyrsta
sætið og fá að hanna mannvirkið
til fulls og útfæra það í endanlegt
form.
Hann sagði að æ algengara yrði
að hafa tveggja þrepa samkeppni
um þær byggingar sem þarf í sam-
bandi við Olympíuleikana. „Þá er
fyrst forval á einhveijum ákveðnum
ljölda og síðan er farið í svokallaða
lokaða keppni milli þeirra. Þá voru
tólf eftir í þessu verkefni og síðan
var bara keppt og meiningin var
að enda með tvo til þijá sem eiga
þá að keppa enn. í þessu tilfelli eru
þrír hópar eftir sem eiga að keppa
endanlega um þetta. Þeir sem við
keppum við eru má segja stærstu
og virtustu stofur í Noregi. Þetta
verður sjálfsagt hörð keppni," sagði
Guðmundur.
Annar keppinautahópurinn líkir
tillögu sinni við víkingaskip á hvolfi.
Guðmundur var spurður hvort ein-
hver slík líking væri að baki hans
tillögu. „Við eigum eftir að gefa
þessu endanlega mótun, það sem
ræður mótun okkar verks er rúm-
fræðilega formið ellipsa eða spor-
baugur. Það gefur bestu nýtingu á
áhorfendasvæðum, miðað við flat-
armál hússins. Hinir hönnuðirnir,
með þetta víkingaskip á hvolfi,
höfðu uppgötvað þessa sömu kosti,
en aðrir hafa fylgt meira formi
sjálfrar skautabrautarinnar."
Guðmundur kveðst hafa tekið
þátt í keppni um hönnun mann-
virkja á öllum sviðum nema þessu,
þetta sé í fyrsta sinn sem hann
keppir um hönnun íþróttahúss.
Hann hefur starfað í Noregi síðan
hann lauk námi 1981, þar af hefur
hann rekið eigin teiknistofu í rúm
fjögur ár.
Hann teiknaði meðal annars tón-
listarhús sem fyrirhugað er að
byggja í Reykjavík, Kjarvalssafn
• sem einnig er fyrirhugað að byggja,
stækkun Amtsbókasafnsins á Ak-
ureyri og sýningarskála, sem ætlun-
in var að byggja á Spáni í tengslum
við Heimssýninguna þar á síðasta
ári. Hann hefur einnig unnið til
verðlauna í samkeppni í Svíþjóð og
Noregi, þar á meðal fyrstu verð-
launá í norrænni samkeppni um
íslenska raðhúsið í Malmö í Svíþjóð.
Njarðvíkurbær:
Fj árhag’sáætlun bæj-
arsjóðs samþykkt
FJÁRHAGSÁÆTLUN bæjarsjóðs Njarðvíkur fyrir árið 1991 var sam-
þykkt samhljóða á síðasta fundi bæjarstjórnar.
Helstu niðurstöðutölur eru þær
að skatttekjur, þ.e. útsvar, aðstöðu-
og fasteignagjöld eru áætlaðar 25,5
milljónir kr. og tekjur af málaflokk-
um kr. tæpar 57 milljónir. Tekjur
alls eru því áætlaðar 311,5 milljón-
ir kr. Heildarrekstrargjöld eru áætl-
uð kr. 241,5 milljónir og til eigna-
breytinga eru áætlaðar rúmar 70
milljónir kr. eða 27,5% af skatttekj-
um.
Til fjárfestinga og framkvæmda
eru áætlaðar 56,6 milljónir eða um
22% af skatttekjum, og til greiðslu
lána kr. 13,4 milljónir eða um 5%
af skatttekjum.
Stærstu framkvæmdaliðir á ár-
inu verða gatna-, holræsa- og gang-
stéttargerð, um kr. 21,4 milljónir,
átak í að bæta umhverfi Njarðar-
brautar um 5 milljónir kr., endur-
skoðun aðalskipulags 4 milljónir,
framkvæmdir við íþróttavelli um 2
milljónir kr.. Einnig verður fram-
haldið endurbótum á húsnæði
grunnskóla Njarðvíkur og eru í það
verkefni áætlaðar 4,5 milljónir kr..
Stærsti einstaki málaflokkurinn er
fræðslumál, sem taka til sín liðlega
18% af skatttekjum bæjarsjóðs
Njarðvíkur. Næst á eftir koma fé-
lagsmálin með um 14% af skatttekj-
um.
Hækkun iánskjara-
vísitölunnar er 0,2%
Seðlabanki íslands hefur reiknað út lánskjaravisitölu fyrir mars
1991 og er hækkunin frá mánuðinum á undan 0,20%. Þá hefur Hag-
stofa íslands reiknað launavísitölu fyrir febrúarmánuð 1991, miðað
við meðallaun í janúar sl. Er vísitalan 0,1% hærri en í fyrra inámiði.
Umreiknuð til árshækkunar hef- R'eyndist hún 0,2% hærri en í jan-
ur breyting lánskjaravísitölunnar úar. Síðastliðna tólf mánuði hefur
síðasta mánuð verið 2,4% en 8,0% vísitala byggingarkostnaðar hækk-
síðustu þijá mánuði. að um 5,3% en síðustu þijá mánuði
Þá hefur Hagstofan reiknað vísi- um 1,7% sem samsvarar 7,1% árs-
tölu byggingarkostnaðar eftir verð- hækkun.
lagi um miðjan febrúar 1991.