Morgunblaðið - 21.02.1991, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. FEBRUAR 1991
33
Minning:
Guðmundur Aðal
steinn Knudsen
í dag er til grafar borinn hann
afi okkar, Guðmundur Aðalsteinnn
Knudsen. Afi fæddist þann 20. júlí
1909 í Reykjavík, en ólst upp á
bænum Sveinsstöðum á Álftanesi.
Meptan hluta ævi sinnar bjó afi í
Hafnarfirði, þaðan var hann til sjós
á togurum en vann einnig verka-
mannastörf.
Við bræðurnir kynntumst afa þeg-
ar við vorum ungir drengir í
Reykjavík og hann kom oft í heim-
sókn frá Hafnarfirði. Hann hafði þá
gjarnan bækur meðferðis og hann
var sá sem kenndi okkur manngang-
inn og veitti okkur fyrstu innsýn í
heim skáklistarinnar.
Eftir að við fluttumst vestur til
Stykkishólms rofnuðu kynni okkar
um tíma en þegar við komumst á
unglingsár hittum við afa oft. Hann
kom vestur til að vera viðstaddur
fermingu okkar og þá var mikið
skrafað um bækur, sjómennsku,
skák og liðna tíma því afi hafði gam-
an af að fræða okkur um lifnaðar-
hætti þeirrar kynslóðar sem nú fer
fækkandi.
Afi hafði getið sér ágætt orð á
sínum yngri ánim fyrir taflmennsku
og þess nutum við bræðurnir í ríkum
mæli í heimsóknum okkar.
Afi var sérlega bókelskur maður
og fróður um marga hluti, hann var
vel greindur og honum hefði örugg-
lega veist létt að læra ef hann hefði
haft þau tækifæri sem ungu fólki
bjóðastst í dag.
Hann hafði yndi af myndlist og á
æviferlinum tókst honum þrátt fyrir
mikla og erfiða vinnu að safna tais-
verðu safni bóka og mynda, sumra
fágætra. Þessara bóka naut hann í
ríkum mæli á efri árum.
Við kveðjum afa með þakklæti og
hlýju.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.“
(V. Briem.)
Birgir og Svanur
GBC-Skirteini/barmmerki
fyrir: félagasamtök, ráðstefnur,
starfsmenn fyrirtækja, o.m.fl.
Efni og tæki fyrirliggjandi.
OTTO B. ARNAR HF.
Skipholti 33 • 105 Reykjavík
Símar 624631 / 624699
SILKINE GL UR
SNYRTISTOFAN ÁGÚSTA
býður nú hinar vönduðu Backscratchers gervineglur.
Þetta eru þunnar, glæsilegar gervineglur, sem hafa enst vel,
skaða ekki þínar eigin neglur og hægt er að hafa þær án naglalakks.
Einnig bjóðum við Clarins meðferð fyrir andlit, barm
og líkarma og að sjálfsögðu öll önnur þjónusta.
Pantaðu tíma strax í síma 29070.
simuisiom
n
KLAPPARSTlG 16
101 REYKJAVlK
S I M 1 : 2 9 0 7 0
f w
fj
lJ
ÁGÍISTA KRISTJANSOÚTTIR
KRISTlN GUÐMUNDSDÚTTIR
Evrópumarkaðshyggjan
Hagsmumt og valkostn Isiands
EVRÓ HAGSIV IPUMARKAÐSHYGGJAN IUNIR OG VALKOSTIR ÍSLANDS
Ei "tir dr. Hannes Jónsson, fv. sendiherra
Kynnið ykkur allar hliðar mikilvægasta milliríkjamáls okkar í traustu, óháðu og að-
gengilegu heimildarriti. Höfundur gerir sannsýna heildarúttekt á hagsmunum og
valkostum íslands í nýrri Evrópu og stærri heimi. Yfirgripsmikið efni sett fram á
lipru máli og svo skýran hátt, að allir megi skilja hvort gróði eða tap, frelsi eða fjötr-
ar fylgi aðild okkar að Efnahagssvæði Evrópu og EB. Omissandi innlegg í Evrópu-
markaðsumræðuna. Fjöldi mynda og skýringarteikninga. Kilja í stóru broti, 118
bls. Verð kr: 1000,00. Fæst hjá flestum bóksölum og
útgefanda. JjL,
Pöntunarsími (91) 75352.
BOKASAFN FELAGSMALASTOFNUNARINNAR
Pósthólt 9168 - 109 Reykjavík - Slmi 75352
Við kynnum nú fullkomnustu bifreið sem Volvo
hefur nokkru sinni framleitt.
Volvo 960 er búinn nýrri 204 hestafla, 24 ventla,
sex strokka línuvél sem hefur verið í þróun allan
9. áratuginn.
Með þessari vél er ný fjögurra þrepa tölvustýrð
sjálfskipting sem án efa er ein sú fullkomnasta sem
komið hefur fram á síðari árum.
Hemlalæsivörn (ABS) og sjálfvirk driflæsing eru
staðalhúnaður í Volvo 960 og veitir það hifreiðinni
einstaka eiginleika í snjó og hálku.
Mýkri línur svara kröfum nútímans um minni loft-
mótstöðu og rennilegt útlit. Leður- eða plussklædd
innrétting, fullkomin hljómflutningstæki með geisla-
spilara, vökva- og veltistýri, samlæsingá hurðum,
rafknúin sóllúga, hraðastilling (Cruise control) og
margt fleira svara hins
vegar kröfúm um há-
marks þægindi öku-
manns og farþega.
Við hönnun á Volvo 960
var hvergi vikið frá hug-
myndafræði Volvo um
hámarks öryggi far-
þeganna. Volvo hefur nú
fyrstur bílaframleiðanda
komið fyrir innbyggðum
barnastól í aftursæti og hefur þessi uppfinning þegar
unnið til alþjóðlegra verðlauna. Þetta er talið vera
eitt markverðasta framlag til öryggismála í hifreið-
um síðan Volvo fann upp þriggja punkta öryggis-
heltið sem bjargað hefúr fjölda mannslífa.
VOLVO
- Bifreið sem þú getur treyst!
/\
VOLVO 960
VERÐURFRUMSÝNDUR
HELGINA 23. OG 24.
FEBRÚAR
\/
FAXAFENI8 • SÍMI68 58 70
BRIMBORG