Morgunblaðið - 21.02.1991, Side 42
42
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR>1.FEBKÚAR 1991
t/ \/ífr ■fenga/r} okJctir suol/é/S of
f>nzu£)/nu cz /eié'/nni."
TM Rag. U.S. Pat Off.—■•» nghts raMfvad
® 1990 Lo« Angales Tim«* Synd»cst«
HÖGNI HREKKVÍSI
Ósæmileg skattpíning
Til Velvakanda.
Fyrir nokkru voru eyðublöð til
skattframtals send út, sem ekki er
í frásögur færandi, ef ekki hefði
fylgt þeim spjót í hjarta smælingj-
anna, eða þeirra, sem minnst mega
sín í þjóðfélaginu. Kunningi minn,
sem er öryrki, og dvelst á stofnun
fékk ásamt eyðublaðinu, tilkynn-
ingu frá skattyfirvöldunum þess
efnis, að hann ætti að gefa upp
til tekna, það sem Tryggingar-
stofnun ríkisins greiðir stofnun-
Frímerki
Ég heiti Ingrid Nielsen, ég er 50
ára gömul, gift og á fimm drengi.
Ég bý um 20 km frá Næstved, sem
er bær á Suður-Jótlandi. Ég er að-
stoðarkennari við stóran skóla í
Næstved og safna frímerkjum í frí-
tímum. Ég hef mikinn áhuga á frí-
merkjum frá íslandi og vil gjarnan
skipta á nýjum dönskum frímerkj-
um og nýjum íslenskum frímerkj-
um. Þeir sem hafa áhuga á frí-
merkjaskiptum skrifi vinsamlegst
Ingrid Nielsen
Harevænget 4,
Broderup
DK-4733 Tappernnje
Danmark
inni, fyrir dvöl hans þar. Þetta
gera um 70.000 kr. á mánuði, eða
um 840.000 kr. á ári. Maðurinn
hefur engar tekjur nema hina smá-
lúsalegu vasapeninga, eða um
6.000 kr. á mánuði.
Ef hann ætti einhverja eign, sem
gæfi honum nokkr.ar tekjur, þá
yrði sú upphæð sennilega tekin frá
honum og eignin líka, þegar pen-
ingar væru búnir.
Nær þetta nokkurri átt? Hveijir
stjórna þessari aðför að öryrkjum
og hinum öldruðu, sem dvelja á
stofnunum. Biblían segir á einum
stað, að á síðustu tímum, muni
kærleikur alls þorra fólks kólna
og það eru orð að sönnu. Þeir sem
stjórna þessu hljóta að vera með
steinhjörtu og meta mannkærleika
einskis.
Er ekki kominn tími til að oln-
bogabörn þjóðfélagsins rísi upp til
baráttu fyrir mannsæmandi með-
ferð? Það lítur út fyrir að þeir sem
eru í forustu þeirra, sofi algjörlega
á verðinum. Mér finnst að þessir
hópar ættu að sameinast, og bjóða
fram til þings menn, sem vilja í
raun og veru vinna að mannsæm-
andi kjörum þeim til handa. Þessir
hópar hafa um 20.000 atkvæði á
bak við sig, svo að þetta er álitleg-
ur hópur, sem getur haft töluverð
áhrif í þjóðfélaginu, ef hann vill
og þekkir sinn vitjunartíma.
Eggert E. Laxdal
Týndur köttur
Þessi köttur hefur verið týndur
frá því hann fór að heiman frá sér
að Laufbrekku 13, Kópavogi, 8.
febrúar. Hann er eins árs fress,
grábröndóttur með hvíta bringu,
hvítan kvið og lappir og var með
gulllitaða hálsól. Þeir sem kynnu
að hafa orðið hans varir gjöri svo
vel að hringja í síma 43184. Fund-
arlaun.
Þessir hringdu . ..
Samstillt T
áhrif og '
framliðnir
Til Velvakanda.
Menn velta gjaman fyrir sér ráð
gátunni um lífið eftir dauðann.
Marki'.sarOTiðsniallÍ—má—lesa^-gftil
Eilíft líf
Árni Þórðarson hringdi:
„Ég er ósammála því sem Jón
Trausti Haildórsson segir í les-
endabréfi sem birtist sl. föstudag
undir fyrirsögninni Samstillt áhrif
og framliðnir. Þar vitnar hann í
Markúsarguðspjall þar sem segir
frá því er Elía og Móses birtust.
Síðan talar hann um að með sam-
stilltum áhrifum geti fólk komist
í samband við framliðna. En veit
Jón Trausti ekki að í Mósebók er
lagt bann við því að hafa samband
við framliðna? En það er rétt að
Biblían segir okkur að þar er líf
eftir dauðann. Ef við eigum sam-
félag við Jesús Krist þá eigum
við eilíft líf en ef ekki, þá glöt-
umst við.“
Úr
Kvenarmbandsúr með gylltu
armbandi tapaðist á leið frá
Grundarstíg um Bjarkarstíg að
Freyjugötu. Finnandi er vinsam-
legast beðinn að hringja í síma
13180.
Gleraugn
Gleraugu töpuðust við Hamra-
borg í Kópavogi. Finnandi er vin-
samlegast beðinn að skila þeim á
Lögreglustöðina eða í verslunina
Saumasporið, Auðbrekku 30.
Frakki
Herrafrakki var tekinn í mis-
gripum í Neskirkju 12. þessa
mánaðar. Sá sem frakkann tók
er vinsamlegast beðinn að hringja
í síma 16706.
Golfkylfa
Golfkylfa var skilin eftir á
æfingasvæðinu á-'Seltjarnarnesi.
Finnandi er vinsamlegast beðinn
að skila henni í Golfskálann eða
hringja í síma 612092.
Hanskar
Sá sem fann brúna leðurhanska
í leið fjögur fyrir tveimur vikum
er vinsamlegast beðinn að hringja
í síma 687397.
Kettlingar
Kettlingar fást gefins. Upplýs-
ingar í síma 21906.
Úr
Úr tapaðist í Vesturbænum á
fímmtudagskvöld. Finnandi er
vinsamlegast beðinn að hringja í
síma 29447 að kvöldinu eða síma
686922 að deginum.
Næla
Silfurnæla með tveimur gyllt-
um plötum tapaðist 15. febrúar,
líklega á leið frá Skúlagötu um
Barónstíg að Landsspítala.
Finnandi er vinsamlegast beðinn
að hringja í Maríu Sveinsdóttur í
síma 623335, fyrir hádegi.
i/sero bnk/ /i£> pee/FA b/zot/mum
Tö'fiJMO/Vt OM ALLT /iÓS/O, tÍÖ/SNt- "
Vík\erji skrifar
ingsályktunartillaga Guð-
mundar H. Garðarssonar, sem
hann hefur lagt fram á Alþingi og
skýrt var frá í Morgunblaðinu síð-
astliðinn þriðjudag, tekur á miklu
óréttlæti og má furðu gegna að slík
tillaga skuli ekki hafa komið fram
löngu fyrr og verið samþykkt.
Tillagan fjallar um margsköttun
iðgjalda til lífeyrissjóða og afnám
hennar. Þingmaðurinn lýsir því, hve
illa er farið með þá þegna þjóðfé-
lagsins, sem spara með það fyrir
augum að eiga náðugt og áhyggju-
laust ævikvöld. Guðmundur skýrir
frá því í tillögunni að iðgjöldin séu
þrísköttuð, þ.e. menn greiði fyrst
skatt af iðgjöldunum, þegar þeir
afla fjárins, sem þeir greiða til líf-
eyrissjóðsins, síðan er sama fjárhæð
aftur skattlögð um leið og menn
fá greitt úr sjóðnum sem lífeyris-
þegar og loks sé skerðing á tekju-
tryggingu frá Tryggingastofnun
ríkisins einnig skattlagning.
Víkveiji hefur áður fjallað um
þetta óréttlæti. í gamla skattkerf-
inu voru iðgjöld til lífeyrissjóða frá-
dráttarbær frá skatti, en þegar
staðgreiðslukerfið kom til var sá
frádráttur afnuminn. Nú spyr skatt-
stjóri ekki einu sinni um iðgjalda-
greiðslur til lífeyrissjóða á skatt-
framtali.
Einnig má minna á dæmi, sem
Víkverji hefur áður tilfært í þessum
pistlum sínum, er hann gaf upp til
skatts fyrir tvær konur, sem báðar
þágu ellilífeyri frá Tryggingastofn-
un. Önnur hafði ásamt manni sín-
um, sem var látinn, greitt í lífeyr-
issjóð alla sína starfsævi. Hún hlaut
því lífeyrisgreiðslur úr Lífeyrissjóði
ríkisstarfsmanna og naut þar af
leiðandi ekki tekjutryggingar. Hin
konan, sem einnig var ekkja, hafði
aðeins greitt í lífeyrissjóð í örfá ár.
og hlaut því sama og engar lífeyris-
greiðslur úr lífeyrissjóði. Hún naut
hins vegar fullrar tekjutryggingar,
auk þess sem hún fékk greiðslur
frá ríkisskipaðri eftirlaunanefnd.
Niðurstaðan var að þegar þetta
dæmi var gert upp, höfðu þessar
tvær konur mjög áþekkan lífeyri,
þ.e. það sem eftir stóð eftir skatta
var svo til sama upphæðin. Sú, sem
ekki hafði sparað til elliáranna stóð
þó alla jafna betur að vígi en hin,
því að hún þurfi ekki að greiða
fastagjald af síma, útvarpi og sjón-
varpi, fékk eftirgjöf á fasteigna-
sköttum o. fl.
Niðurstaða þessa dæmis var að
það borgaði sig engan veginn að
spara, greiða iðgjöld lífeyrissjóð-
anna, þau voru fjármunir, sem í
raun voru glataðir, vegna þessarar
margsköttunar, sem Guðmundur
H. Garðarsson vill nú afnema. Þetta
er réttlætismál að dómi Víkverja,
sem ekki þolir bið.