Morgunblaðið - 21.02.1991, Síða 47
-MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞftÓTTIR
FIMMTUDAGUR -21. FEBRUAR 1991
HANDKNATTLEIKUR / UNDANURSLIT BIKARKEPPNI KARLA
Mætum afslappaðirtil leiks því allir búast
við sigri Víkings, sagði Sigurður Friðriks-
son besti maður IBV í sigrinum á FH
Morgunblaðið/Sigurgeir
Eyjamenn fögnuðu innilega er sigur var í höfn. Hér eru Sigurður Gunnars-
son, Gylfi Birgisson og Þorsteinn Viktorssón.
„Sætur sigur"
- sagði Sigurður Gunnarsson þjálfari ÍBV
Þetta var týpískur bikarleikur
og virkilega skemmtilegt að
spila hér fyrir fullu húsi áhorfenda.
sem voru vel með á nótunum. Við
áttum erfitt með að finna varnar-
taktinn framan af, en svo small
þetta saman hjá okkur. Og þetta
var sætur sigur þar sem sumir okk-
ar eiga við meiðsli að stríða. Gylfi
var sprautaður fyrir leikinn og Si-
guðrur Friðriksson er með flensu,“
sagði Sigurður Gunnarsson, þjálfari
og leikmaður ÍBV, við Morgunblað-
ið eftir sigurinn á FH.
Sigurður sagðist nú í skrýtinni
aðstöðu. Það yrði undarlegt að leika
gegn Víkingi en hann hefur nokkr-
um sinnum leikið með Víkingi til
úrslita í bikarkeppninni og ávallt
sigrað.
Héldum ekki einbeitingu
„Við héldum ekki einbeitingu all-
an leikinn. Svo vantaði Guðjón, en
hann spilar náttúrlega stórt hlut-
verk í liðinu,“ sagði Óskar Ár-
mannsson, besti maður FH. „Auk
þess hafa Eyjamenn verið á mikilli
uppleið undanfarið og það er gríðar-
lega erfítt að spila í þessari ljóna-
gryfju sem höllin hér er. En við
áttum þó að geta gert betur, og
það ætlum við að gera í úrslita-
keppninni um íslandsmeistaratitil-
inn,“ sagði Óskar.
„Við náðum upp góðri baráttu i seinni hálfleik eftir að hafa ver-
ið hálf taugaóstyrkir framan af. Þá small vörnin saman, við náð-
um að keyra upp hraðaupphlaup og það gerði útslagið í leiknum.
í úrslitaleiknum búast allir íslendingar við að Víkingar sigri —
pressan verður á þeim, og við getum mætt afslappaðir í leik-
inn,“ sagði Sigurður Friðriksson, hægri hornamaður ÍBV en hann
var að öðrum ólöstuðum besti maðurinn í jöfnu liði ÍBV í gær-
kvöldi, er Eyjamenn sigruðu FH og tryggðu sér þar með sæti í
úrslitaleik bikarkeppninnar ífyrsta skipti. Þar mæta þeir Víking-
um, og verði Víkingar íslandsmeistarar fara Eyjamenn í Evrópu-
keppni bikarhafa næsta vetur, þó svo þeir tapi í bikarúrslitunum.
Sigfús Gunnar
Guömundsson
skrifar
frá Eyjum
Leikmenn ÍBV byijuðu af krafti
og virtust ætla að rúlla yfir
FH-inga — náðu fljótlega fjögurra
marka forskoti en þá kom fát á
sóknarleik ÍBV og
Eyjamenn áttu í
vandræðum með að
grípa boltann. í kjöl-
farið fylgdi góður
kafli FH og náðu Hafnfirðingar þá
að komast yfir. Voru oftast einu
marki yfir fram að hléi en ÍBV
náði þó að rétta úr kútnum fyrir
hlé og hafði eins marks forskot er
gengið var til búningsklefa.
Seinni hálfleikur var mjög jafn
framan af og þegar um 14 mín.
voru eftir höfðu FH-ingar náð
tveggja marka forskoti. Þá var far-
ið að fara um fjölmarga áhorfend-
urm í Eyjum, en þá small vörn ÍBV
saman og liðinu gekk allt í haginn.
Á átta mín. kafla gerði ÍBV sex
mörk í röð og þar með út um leik-
inn. Sanngjarn sigur Eyjamanna
var í höfn. FH-ingar léku lengstum
4-2 vöm, sem gafst þeim ekki vel
en Eyjamenn léku lengstum flata
vöm (6-0) sem var góð. Stundum
reyndu þeir að taka þá Stefán og
Óskar úr umferð en þá skoruðu
FH-ingar nær undantekningarlaust
svo Eyjamenn slepptu þeirri vörn
fljótt.
Lið ÍBV var mjög jafnt og áttu
allir leikmenn ágætis leik. Hjá FH
var Óskar Ármannsson lang sterk-
astur. í FH-liðið vantaði Guðjón
Árnason, sem lá heima með mikinn
Sigurður Friðriksson, besti maður ÍBV í leiknum, svífur inn í teiginn og
þrumar boltanum í netið í eitt af sjö skiptum.
hita, og var það skarð fyrir skildi.
Lið frá Eyjum leikur nú í fyrsta
skipti í úrslitum bikarkeppninnar.
Þrír leikmenn liðsins hafa þó orðið
bikarmeistarar: Sigurður Gunnars-
son með Víkingi og Gylfi Birgisson
og Sigmar Þröstur Óskarsson með
Stjörnunni.
Yfirburðir
DEILDARMEISTARAR Víkings sýndu enn einu sinni mikla yfir-
burði, þegar þeir unnu Hauka með 11 marka mun, 32:21, í undan
úrslitum bikarkeppninnar. Þeir byrjuðu með sterkasta liðið, en
allir fengu að spreyta sig og hvergi var veikur hlekkur. Haukar
börðust hetjulega, en höfðu ekki erindi sem erfiði enda áttu
þeir við ramman að rjá. „Þegar við spilum sem heild töpum við
ekki,“ sagði Karl Þráinsson, sem hefur ekki leikið betur í vetur,
við Morgunblaðið. „Við gerðum það sem við gátum," voru við-
brögð Steinars Birgissonar, fyrirliða heimamanna.
Kynnirinn í Hafnarfirði bað um
kraftaverk fyrir leikinn, en það
var til of mikils mælst. Haukar töp-
uðu með miklum mun fyrir Víkingi
í deildarleikjunum
Steinþúr og gestirnir voru
Guöbjartsson ekki á þeim buxun-
skrifar um aij gefa efyr ;
baráttunni um bik-
arúrslitaleikinn. Þeir slógu Hauka
út af laginu með öflugum varnar-
leik, þar sem Hilmar Sigurgíslason
gegndi mikilvægu hlutverki fyrir
framan þéttan múrinn. Hann tók
Petr Baumruk úr umferð og við það
riðlaðist sóknarleikur heimamanna.
Sóknarleikur gestanna var hins
vegar árangursríkur, þar sem sam-
vinnan sat í fyrirrúmi og einstakl-
ingsframtakið fékk að njóta sín,
þegar á þurfti að halda. Til að
mynda skoraði Dagur úr vinstra
horninu, Birgir fyrir utan og Björg-
vin átti lokaorð deildarmeistaranna
með sannkölluðu sirkúsmarki úr
hægra horninu.
Haukar reyndu hin ýmsu varnar-
kerfi; 3-2-1, tóku einn úr umferð,
tvo og þijá, 6-0, en ekkert gekk.
„Við urðum að reyna eitthvað nýtt,
en höfum lítið æft þessi kerfí eins
og 4-2 og gerðum of mörg mistök
— hreinlega réttum þeim boltann
og þeir nýttu sér það,“ sagði Stein-
ar.
Víkingar gerðu í raun út um leik-
inn fyrir hlé, en gulltryggðu sigur-
inn með því að gera þijú fyrstu
mörkin í seinni hálfleik. „Ég átti
von á meiri mótspyrnu, því Haukar
hafa spilað vel og bikarleikur er
alltaf bikarleikur,“ sagði Guðmund-
ur Guðmundsson, þjálfari Víkings,
sem byijaði leikinn en hætti fljót-
lega vegna eymsla í nára, sem hafa
gert honum lífið leitt að undan-
förnu. „En vamarleikur okkar gafst
vel og það var mjög jákvætt hvað
mörkin skiptust á milli manna."
Magnús Árnason, markvörður,
og Óskar Sigurðsson voru bestir
hjá Haukum, en einn lék fyrir alla
og allir fyrir einn hjá Víkingi.
Morgunblaðið/Bjarni
Alexei Trúfan lét ökklameiðsl lítt á sig fá, var klettur í vörn Víkings og
atkvæðamestur í sókninni. Hér reynir Tékkinn Petr Baumruk að stöðva Sovét-
manninn.
ÍBV-FH 29:25
íþróttamiðstöðin í Vestmannaeyjum, und-
anúrslit í bikarkeppni HSÍ, miðvikudaginn
20. febrúar 1991.
Gangur leiksins: 3:2, 7:3, 8:9, 12:12,
14:13, ,17:15, 21:20, 21:23, 27:23, 29:25.
Mörk ÍBV: Sigurður Friðriksson 7/3, Gylfi
Birgisson 6/3, Jóhann Pétursson 6, Sig-
bjorn Óskarsson 5, Sigurður Gunnarsson
3, Þorsteinn Viktorsson 2.
Varin skot: Sigmar Þröstur Óskarsson
12/1 (þar af 3 er knötturinn fór aftur til
mótheija), Ingólfur Amarsson 2/1.
Utan vallar: 8 mínútur.
Mörk FH: Óskar Ármannsson 8/1, Stefán
Kristjánsson 7/1, Þorgils Óttar Mathiesen
4, Hálfdán Þórðarson 3, Pétur Petersen 2,
Gunnar Beinteinsson 1.
Varin skot: Guðmundur Hrafnkelsson 8/1
(þar af 2 er knötturinn fór aftur til mót-
heija).
Utan vallar: 8 mínútur.
Dómarar: Óli Olsen og Gunnlaugur Hjálm-
arsson og komust vel frá leiknum.
Áhorfendur: Um 700. Fullt hús.
Haukar- Víkingur 21:32
íþróttahúsið við Strandgötu í Hafnarfirði,
undanúrslit í bikarkeppni HSÍ, miðvikudag-
inn 20. febrúar 1991.
Gangur leiksins: 1:0, 1:3, 3:7, 5:11, 7:14,
9:17, 9:20, 11:23, 13:23, 14:25, 17:25,
18:27, 18:30, 20:32, 21:32.
Mörk Hauka: Sveinberg Gíslason 5, Óskar
Sigurðsson 5, Siguijón Sigurðsson 3, Sig-
urður Öm Árnason 2, Steinar Birgisson 2,
Petr Baumruk 2, Pétur Ámason 1, Snorri
Leifsson 1/1.
Varin skot: Magnús Árnason 9/1 (þar af
3/1, er boltinn fór aftur til mótheija).
Utan vallar: 4 mínútur.
Mörk Vikings: Alexej Trúfan 8/1, Ámi
Friðleifsson 6/4, Karl Þráinsson 5, Birgir
Sigurðsson 4, Bjarki Sigurðsson 3, Björgvin
Rúnarsson 2, Dagur Jónasson 2, Ingimund-
ur Helgason 1, Hilmar Sigurgíslason 1.
Varin skot: Hrafn Margeirsson 11/3 (bolt-
inn fór aftur til mótheija eftir tvö varin
vítaskot).
Utan vallar: 4 mínútur.
Áhorfendur: 600.
Dómarar: Gunnar Kjartansson og Árni
Sverrisson.