Morgunblaðið - 21.02.1991, Page 48
Mannbjörg er Steindór GK strandaði
TF-Sif, þyrla Landhelgisgæslunnar, bjargaði átta skipveijum Steindórs GK eftir að báturinn strandaði undir Krísuvíkurbergi í gærmorgun.
Báturinn var lagstur á hliðina er þyrluna bar að og gekk sjórinn yfir skipveijana sem allir voru staddir í brúnni. Voru þeir selfluttir í þremiir
ferðum upp á bjargbrúnina og síðan fluttir til Reykjavíkur af þyrlum Landhelgisgæslunnar og varnarliðsins. Steindór GK 101, sem er 127
brúttólesta stálbátur, var á togveiðum þegar óhappið átti sér stað. Brimið skók bátinn þegar þessi mynd var tekin fyrir hádegi í gær.
Geðdeild fyrir afbrotamenn
líklega opnuð á næsta ári
Lára Halla Maack væntanlega ráðin yfirlæknir deildarinnar á næstunni
Borgarlæknir
kannar veik-
indi barna
í Melaskóla
SKULI G. Johnsen, borgarlæknir,
sagðist ekki vita til þess að um
nýja flensu væri að ræða er hann
var spurður út í frétt Morgun-
blaðsins í gær uni veikindi skóla-
barna, sérstaklega í Melaskóla.
Hann sagði að þegar hefðu verið
gerðar sérstakar ráðstafanir til
að kanna þessi veikindi.
„Það hafa verið mjög litlar fréttir
af inflúensu í borginni," sagði Skúli.
„Það hefur aðeins verið í einstaka
tilfellum sem læknar hafa sagt frá
því. Mér finnst mjög ólíklegt að hér
sé um nýjan flensufaraldur að ræða.
— Hins vegar er ýmislegt annað á ferð-
inni sem getur gert það að verkum
af tilviljun að þetta komi svo mikið
niður á einum bekk. Ég veit ekki til
þess að þessi flensa sem hefur stung-
ið sér niður sé að breiða sig út.“
I frétt blaðsins í gær var, sagt frá
því að aðeins 6 börn af 23 hafi mætt
í einn 11 ára bekkinn í Melaskóla,
hin hafi verið heima vegna veikinda.
_ Willy Brandt
kemur til Is-
lands í júní
WILLY Brandt, fyrrum kanslari
Vestur-Þýskalands, kemur í heim-
sókn til Islands 19. júní nk. i boði
Germaniu, félags aukinna menn-
ingartengsla milli íslands og
Þýskalands. Brandt er heiðurs-
formaður þýska Jafnaðarmanna-
flokksins (SPD) og jafnframt for-
seti alheimssamtaka jafnaðar-
manna.
Þorvarður Alfonsson, formaður
— Germaníu, segir félagið lengi hafa
haft hug á að bjóða til Islands
frammámanni í þýskum stjórnmál-
um. Willy Brandt kemur til landsins
miðvikudaginn 19. júní og heldur
aftur utan laugardaginn 22. júní.
Ekki liggur enn fyrir endanleg dag-
skrá heimsóknarinnar en Ijóst er að
Brandt heldur hér opinn fyrirlestur
sem að öllum líkindum mun fjalla
um framtíðarþróun Evrópu. Þá verð-
ur hann gestur á vorfagnaði sem
Germanía heldur í tilefni komu hans.
Þorvarður sagði Willy Brandt einnig
hafa óskað eftir því að hitta að máli
forystumenn Alþýðuflokksins.
FYRIRHUGAÐ er að koma á fót
hér á landi réttargeðdeild, þar
sem að sögn Ólafs Ólafssonar
landlæknis yrðu 8-10 rúm sem
einkum verða ætluð geðsjúkum
afbrotamönnum. Að sögn land-
læknis er ósennilegt að þessi
deild taki til starfa fyrr en á
næsta ári. Á deild þessari yrði
einnig veitt geðlæknisþjónusta í
tengslum við fangelsin auk þess
sem hún mun væntanlega einnig
hafa hlutverki að gegna varðandi
geðrannsóknir í tengslum við
rannsóknir sakamála.
Á fjárlögum ársins er 12 milljón-
um króna veitt til rekstrar deildar-
innar auk þess sem til ráðstöfunar
eru 8 milljónir frá fyrra ári. Þá
hefur alþingi, að tillögu nefndar
sem dómsmálaráðherra og heil-
brigðisráðherra, skipuðu og skilaði
áfangaskýrslu í desembermánuði,
veitt heimildir til að taka þau lán
sem nauðsynleg eru til að kaupa
eða leigja og innrétta húsnæði fyrir
deild þessa, en gert er ráð fyrir að
hún verði starfrækt í tengslum við
geðdeild Landspítala eða Borg-
arspítala. Einnig er hugsanlegt að
deildin verði rekin í tengslum við
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri
að sögn Finns Ingólfssonar, aðstoð-
armanns heilbrigðisráðherra og
formanns nefndarinnar.
Umsóknarfrestur um stöðu yfir-
læknis við þessa réttargeðdeild er
nýlega runninn út og var eini um-
sækjandinn Lára Halla Maack, sér-
fræðingur í réttargeðlækningum,
sem starfað hefur við réttargeð-
deildir erlendis, meðal annars í Lon-
don. Að sögn Finns Ingólfssonar
má búast við að gengið verði frá
ráðningu hennar innan tíðar. Síðan
verði í samráði við yfirlækninn
ákveðið hver'nig frekari undirbún-
ingi starfseminnar verður háttað,
auk þess sem starfssvið deildarinn-
ar verður nákvæmlega skilgreint.
Að sögn Finns er ljóst að rekstrar-
kostnaður deildar sem þessarar er
verulegur og meiri en rekstrar-
kostnaðui- venjulegra geðdeilda.
Erlendis væri algengt að miða við
að tvo starfsmenn þyrfti fyrir hvern
sjúkling.
Að sögn Ólafs Óiafssonar land-
læknis skýrist hár rekstrarkostnað-
ur einkum af því, að þótt gæsluhlut-
verk vegi nokkuð verði lögð höfuð-
áhersla á að fá til starfa sérmennt-
að fólk í meðferð geðsjúklinga.
„Meginmunur á þessari stofnun og
fangelsi er að þarna er fólk sem
er sérmenntað í að veita meðferð
en ekki í gæslu,“ sagði landlæknir.
Að nefndarálitinu, sem framan-
greindar ráðstafanir byggjast á,
stóðu auk Finns Ingólfssonar og
Ólafs Ólafssonar Haraldur Johann-
essen fangelsismálastjóri, Þorsteinn
A. Jónsson, fulltrúi í dómsmála-
ráðuneyti, og Sigurður Jonsson,
aðstoðarmaður dómsmálaráðherra.
Hekla enn að.
GOSIÐ í Heklu er enn í gangi
og fimin hraunár spretta
fram undan gígnum í austur-
hlíðum fjallsins. Ekkert
bendir til að gosið sé í frek-
ari rénun.
Ágúst Guðmundsson, jarð-
fræðingur, segir að hraunflæð-
ið í tveimur ánna sé lítið en þó
nokkuð í hinum þremur. Hann
segir vissar vísbendingar um
að flæðið hafi heldur aukist
síðustu dagana, en það sé ekki
alveg ljóst.
Misnotkun unglings á ster-
um til rannsóknar hjá RLR
Rannsóknarlögregla ríkisins hefur til rannsóknar mál sem
sprottið er af grun um að unglingsstúlku hafi verið útveguð horm-
ónályf, svokallaðir sterar, sem hún hafi notað í þeim mæli í
tengslum við íþróttaiðkun að ljkamsstarfsemi hennar hafi beðið
nokkurn skaða af. Lyfjanefnd ISI hafði frumkvæði að því að mál
þetta var sent til lögreglurannsóknar en samkvæmt upplýsingum
frá landlæknisembættinu er talið að þessum lyfjum hafi verið
smyglað til landsins og að útilokað sé að lyfjunum hafi verið
ávísað af læknum.
Engar uppiýsingar voru fáan-
legar hjá RLR né landlæknisem-
bættinu um mál stúlkunnar, en
samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins mun heilsutjón hennar
ekki vera lífshættulegt.
Matthías Halldórsson, aðstoð-
arlandlæknir, sagði að auk þessa
eina máls sem sent hefði verið til
iögreglurannsóknar hefðu land-
læknisembættinu borist allnokkr-
ar ábendingar um að talsvert af
þessum lyfjum væri í umferð hér
á landi.
Matthías sagði að ekki einungis
gætu lyf þessi valdið stórhættu-
legri brenglun á líkamsstarfsemi
manna, ekki síst þegar um karl-
hormónalyf væri að ræða, heldur
fylgdi hætta á smitsjúkdómum,
svo sem alnæmi, ef steralyf eru
tekin í sprautuformi, eins og grun-
ur leikur á að gert sé.
Matthías Halldórsson sagði að
gerð hefði verið athugun á ávísun-
um lækna á steralyf hér á landi'
og hefði niðurstaðan orðið sú að
þeim væri í svo litlum mæli ávísað
til sjúklinga að útbreidda misnotk-
un mætti einungis skýra með
smygli og ólögiegri dreifingu.