Morgunblaðið - 24.02.1991, Síða 1
104 SIÐUR B/C
STOFNAÐ 1913
46. tbl. 79. árg.
SUNNUDAGUR 24. FEBRUAR 1991
PRENTSMIÐJA MORG UNBLAÐSINS
Undirbúningi fyrir stór-
sókn gegn Irökum lokið
*
Irakar samþykkja tillögur Gorbatsjovs
- Hörðustu loftárásir á Bagdad til þessa
- 179 olíulindir brenna í Kúveit
Riyadh, Bagdad, Dhahran, Washington, einhvers staðar í norðurhluta Saudi-Arabíu.
Reuter. Daily Telegraph.
HERSVEITIR bandamanna höfðu í gær lokið undirbúningi fyrir
stórsókn gegn Irökum og voru veðurhorfur fyrir landhernað sagðar
ákjósanlegar. Frestur sem írökum hafði verið gefinn til að að hefja
brottflutning innrásarliðsins frá Kúveit rann út klukkan 17 að íslensk-
um tíma en í gær sáust þess engin merki að Irakar væru á förum.
Útvarpið í Bagdad birti yfirlýsingu sex klukkustundum áður en loka-
fresturinn rann út þar sem sagði að landhernaður væri yfirvofandi
og væru írösku sveitirnar búnar til bardaga. Væri árás bandamanna
dæmd til að mistakast því íraski herinn myndi hefna hennar grimmi-
lega.
Bandamenn hafa undanfarna
daga rutt fótgönguliði og stórskota-
liðssveitum braut gegnum tveggja
til þriggja metra háa sandgarða og
jarðsprengjubelti meðfram landa-
mærum Iraks og Kúveits. Höfðu
margar aðkomuleiðir verið myndað-
ar, sumar langt inn á óvinasvæði,
og hermenn sett upp eftirlitsstöðvar
allt að 20 km innan írösku landa-
mæranna. Um þær mun liðsafli
bandamanna streyma fari svo að
blásið verði til sóknar landhersins
gegn írökum.
Verkfræðideildir bandaríska hers-
ins höfðu jafnframt byggt eldsneyt-
isstöðvar fyrir herþyrlur langt inni
í írak án þess að hafa mætt mót-
spyrnu meðan á verkinu stóð. Not-
uðu bandarískar og franskar árásar-
þyrlur þær til eftirlits- og árásar-
ferða tugi kílómetra innfyrir írösku
landamærin í gær og fyrradag.
Á einum stað í norðurhluta Saudi-
Arabíu óku tugir bandarískra MlAl
skriðdreka, Bradley-bi-yndreka og
brynvarinna flutningavagna inn yfir
landamærin [ suðurhluta íraks árla
á föstudag. Óku þeir um fimm að-
komuleiðir en vegna takmarkana á
fréttaflutningi fengu blaðamenn sem
ferðast með sveitunum ekki að skýra
frá hversu langt inn á íraskt land
var sótt. Útvarpið í Bagdad sagði á
föstudagsmorgun að stórsókn
bandamanna væri hafin en því var
vísað'á bug af hálfu bandamanna.
Yfirmaður franska flughersins við
Persaflóa sagði í gær að ástæðu-
laust væri að bíða með stórsókn
gegn írökum hefðu þeir ekki sýnt
nein merki um að þeir væru að tygja
sig til brottfarar þegar lokafrestur-
inn rynni út. Veðurútlit næstu tvo
sólarhringina væri ákjósanlegt og
því ekki eftir neinu að bíða.
Byltingarráðið í írak samþykkti í
gær friðartillögur Míkhaíls Gor-
batsjovs Sovétforseta sem Tariq
Aziz utanríkisráðhera hafði áður
fallist á. Skýrði Aziz frá þessu á
blaðamannafundi í Moskvu í gær-
morgun og þar vísaði hann á bug
fullyrðingum bandamanna þess efnis
að Irakar hefðu hafið kerfisbundna
eyðiléggingu olíuframleiðslustöðva
Kúveits. Bandamenn birtu hins veg-
ar gervitunglamyndir sem leitt hafa
í ljós að kveikt hafði verið í 179 olíu-
lindum í Kúveit í gærmorgun. Jafn-
framt sögðu Bretar og Bandaríkja-
menn að samþykkt íraska bylting-
arráðsins á friðartillögum Gor-
batsjovs breytti engu þar sem tillög-
urnar fullnægðu ekki skilyrðum
bandamanna fyrir því að hernaða-
raðgerðum yrði hætt við Persaflóa.
Bandamenn gerðu í fyrrinótt
mestu loftárásir til þessa á Bagdad.
Vestrænir fréttamenn í borginni
sögðu borgina hafa skolfið af völdum
linnulausra sprenginga frá þvi síð-
degis á föstudag þar til í dögun í
gær. í birtingu hefðu þeir séð kol-
svarta reykjarmekki stíga til himins
víðs vegar um borgina.
Sjá ennfremur bls. 4.
* .v. .*••/* V' -
ioi------------------I í
Reuter
M1 Al-skriðdreki bandariska hersins ryðst gegnum sandgarða á landamærum Saudi-Arabíu og íraks.
Setningu neyðarlaga hótað í
Albaníu drasri ekki úr ólaru
Vínarborcf. Reuter. ^ J m J
HIÐ nýja forsætisráð Albaníu, sem Ramiz Alia forseti skipaði í fyrra-
dag, hótaði í gær að grípa til neyðarlaga kæmist ekki á röð og regla
í landinu, en komið hefur til mikilla mótmæla umbótasinna í vikunni.
Að sögn albanska útvarpsins
biðu a.m.k. tveir menn bana.í skotr
bardaga við liðsforingjaskóla hers-
ins í Tirana, höfuðborg landsins, í
fyrrinótt en talsmenn stjórnarand-
stöðunnar segja fjóra hafa týnt lífi,
einn lögregluþjón og þijá óbreytta
borgara. Útvarpið sagði að mann-
tjón hefði orðið er hópur fólks
reyndi að ryðjast inn í herskólann
þar sem fulltrúar stjórnmálaflokka,
hersins og fjölmiðla sátu á neyðar-
fundi. Stjórnarandstæðingar sögðu
að fjórir hefðu fallið, fjöldi slasast
og a.m.k. 50 hefðu verið handtekn-
ir. Þeir sögðu fólkið hafa safnast
saman við skólann þegar út spurð-
ist að foringjar í hernum ráðgerðu
að reisa nýja styttu af Enver Hoxha
fyrrum einræðisherra í stað þeirrar
sem felld var af stalli í miðborg
Tirana í vikunni. Hoxha stjórnaði
með stálhnefa í 45 ár og var hatað-
ur af þjóðinni.
Alia setti stjórn landsins af í
Thailand:
Herinn hrifsar völdin
Hangkok. Iteutcr.
HERINN í Thailandi steypti í gær forsætisráðherra landsins, Chatic-
hai Choonhavan, af stóli, án þess að til átaka kæmi, eftir langvarandi
valdabaráttu.
Chatichai var handtekinn á flug-
vellinum í Bangkok þegar hann var
um það bil að fara um borð í flugvél
á leið til Chiang Mai í norðurhluta
landsins ásamt Arthit Kamlang-ek ,
fyrrverandi hershöfðingja. Þar átti
konungur landsins að setja Kamlang-
ek í embætti aðstoðarvarnarmálaráð-
herra. Vopnaðir hermenn hertóku
stjórnarráðið og ríkisreknar sjón-
varps- og útvarpsstöðvar í gærmorg-
un.
„Friðargæsluráð þjóðarinnar, sem
samanstendur af foringjum úr land-
her, sjóher, flugher og ríkislögregl-
unni, hefur tekið yfirstjórn iandsins
í sínar hendur frá og með 23. febrú-
ar 1991 kl. 11.30. Ráðið hefur fulla
stjórn á því sem er að gerast,“ sagði
Sunthorn Kongsompong yfirhers-
höfðingi í yfirlýsingu sem lesin var
í sjónvarpi.
Þetta var 16. valdarán eða tilraun
til valdaráns síðan algjört einræði
var afnumið í landinu árið 1932.
Chatichai, seni er fynverandi hers-
höfðingi í riddaraliðinu, varð forsæt-
isráðherra árið 1988 í fyrstu lýðræð-
islegu kosningum í landinu í meira
en 10 ár. Undir hans stjórn hefur
orðið mikil efnahagsuppsveifla í
landinu. Spenna hefur þó einkennt
samskipti hans og ráðamanna innan
hersins. Sl. miðvikudag tilnefndi
hann Arthit Kamlang-ek í stöðu að-
stoðarvarnarmálaráðherra, en hann
hefur verið andstæðingur og keppi-
nautur þeirra, sem nú fara með
æðstu völd innan hersins, og er talið
að þeir hafi ekki getað sætt sig við
tilnefningu hans í embættið og látið
þess vegna til skarar skríða.
fyrradag og skipaði nýja undir for-
ystu Fatos Nano sem einnig er
forrfiaður forsætisráðsins. í nýju
stjórninni sem skipuð er nær ein-
göngu tæknikrötum eru aðeins tveir
ráðherrar úr fyrri stjórn. Stjórnmál-
askýrendur segja að með því að
skipa hina nýju stjórn hafi Alia lát-
ið undan kröfum stúdenta og lýð-
ræðissinna sem sögðu að umbóta
væri ekki að vænta í landinu meðan
harðlínumenn væru við völd.
Lýðræðisflokkurinn, langstærsti
flokkur stjórnarandstæðinga, sak-
aði stalínista í stjórnkerfinu og fyrr-
um ráðherra um að reyna að koma
á glundroða og kalla neyðarlög yfir
þjóðina með því að hvetja til mót-
mæla gegn umbótum og lýðræði.
Sömuleiðis reyndu nokkrir íhalds-
samir liðsforingjar í hernum að
stofna ráð sem hygðist „setja sig
ofar herforingjum sínum og æðsta
stjórnanda hersins". Skoraði flokk-
urinri í gær á albanska hermenn
að sýna hollustu við stjórnarskrána
og hlýða fyrirmælum æðsta yfir-
manns hersins.
Útvarpið í Tirana birti í gær yfir-
lýsingu frá hópi manna sem höfð-
ust. við í liðsforingjaskóla hersins
þar sem fordæmd var sú aðgerð
lýðræðissinna að fella risastóra
styttu af Hoxha af stalli.