Morgunblaðið - 24.02.1991, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 24.02.1991, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIR/INNLENT MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. FEBRÚAR 1991 Fyrsti Islendingurmn sem lærir hönnun golfvalla Hannes Þorstemsson: KENNARINN, kylfingurinn og líffræðingurinn Hannes Þorsteins- son frá Akranesi leggur nú stund á golfvallahönnun hjá samtök- um golfvallaarkitekta í Bretlandi. Hann er einn fjórtán nemenda sem teknir voru í nám hjá samtökunum. í samtökunum er 21 viðurkenndur golfvallaarkitekt víðs vegar að úr Evrópu. Hannes verður því fyrsti menntaði golfvallahönnuðurinn hér á landi. Hannes teiknaði fyrsta golfvöllinn aðeins 16 ára gamall og nú nálgast golfvellirnir, sem hann hefur aðstoðað við hönnun á hér á landi, þriðja tuginn. Hannes Þorsteinsson er líffræð- ingur að mennt og er kennari við Fjölbrautaskóla Vesturlands. Hann er í ársleyfi frá kennslu til að mennta sig í golfvallahönnun hjá samtökum golfvallaarkitekta í Bretlandi. Samtökin ákváðu fyr- ir ári að fjölga golfvallahönnuðum og tóku 14 nýja nemendur í læri. Hannes er einn þeirra en aðeins 21 golfvallaarkitekt telst til þess- ara samtaka, sem eru mjög virt á sínu sviði. „Námið fer þannig fram að hver lærlingur er með einn meist- ara og ég er svo heppinn að vinna undir handleiðslu Donald Steel, forseta samtakanna og eins virt- asta golfvallahönnuðar í Evrópu. Þetta er tveggja ára nám sem er byggt þannig upp að við sækjum fyrirlestra í ákveðinn tíma en síðan er þetta meira og minna vinna við að teikna og hanna velli auk þess að skrifa ritgerðir um golfvelli, þannig að ég vinn að mestu hér heima,“ segir Hannes. Hann sagði að inntökuskilyrði í skólann væru háskólamenntun í einhveiju sem kemur að gagni við gerð golfvalla. Góð þekking á golfleiknum er einnig nauðsynleg og ekki skemmdi það fyrir ef menn hefðu starfað á golfvöllum. Hannes byijaði ungur að hugsa um golfvelli. „Ég hef ekki verið nema 16 ára gamail þegar ég lagði fram tillögu að golfvelli hérna á Akranesi. Þessari tillögu var tekið og síðan fékk ég eitt og eitt verkefni, en síðustu 3-4 árin hafa verkefnin hlaðist upp,“ segir Hannes. Hannes sagði að nóg væri að gera hjá sér við að hanna golf- velli. Þessa dagana er hann með þijá velli á teikniborðinu og fyrir liggur að skoða tvö ný svæði þar sem hugmyndin er að gera golf- velli. Golfvellir á íslandi, sem Hannes hefur aðstoðað við hönn- un á, eru að nálgast þriðja tug- inn, og eru það bæði vellir í eigu golfklúbba, einstaklinga og fé- lagasamtaka. Hann er nú að vinna að 18 holu golfvelli fyrir Odd- fellow-regluna sem á að gera upp við Urriðavatn fyrir ofan Hafnar- fjörð og sagði Hannes að búið væri að móta fyrstu 10 holurnar og ætlunin væri að heija sáningu og frágang i vor. íslenska Járn- blendifélagið er að gera golfvöll á Þórisstöðum í Svínadal og einn- ig hafa bændur, sem eru með svokallaða bændagistingu, rætt við hann um að hanna golfveili. Hannes hefur í samstarfi við John Garner, landsliðsþjálfara ís- lands í golfi, skipulagt og teiknað átján holu golfvöll í Baskahéruð- um Frakklands, niður við landa- mæri Spánar. Verið er að afla nauðsynlegra leyfa til að hefjast handa við völlinn og þegar þau fást munu þeir félagar halda áfram þar sem frá var horfið. Einnig hafa þeir sent hugmyndir að nokkrum golfvöllum í Englandi og eru tvær þeirra í athugun þar í landi. Aðspurður um hvort golfvalla- hönnun gæfi ekki vel í aðra hönd sagði Hannes svo ekki vera. „Hér á landi er engin leið að verða ríkur á þessu. Menn hafa litla peninga til að gera velli og reyna eðlilega að komast af eins ódýrt og hægt er. Erlendis er oft greitt fyrir hönnun sem hlutfall af byggingar- kostnaði, örfáir fá allt að 30%, og þegar völlur kostar 100-200 milljónir þá gefur hönnunin vel af sér. En þetta er hlutur sem ég á alveg eftir að kynnast," sagði Hannes. Morgunblaðið/Jón Gunnlaugsson Hannes við líkan af einni braut á golfvelli. Blóðgjafarnir, sem verða heiðraðir á mánudag. Blóðgjafar heiðr- aðir á aðalfundi AÐALFUNDUR Blóðgjafafélags íslands verður haldinn á Hótel Lind við Rauðarárstíg mánudag- inn 25. febrúar nk. kl. 20.30. Auk aðalfundarstarfa verður sagt frá þriðja alþjóðaþingi Rauða krossins sem haldið var í Hannover í Þýskalandi á liðnu ári og fjailaði um blóðsöfnunarstarfsemi. Á fund- inum verða blóðgjafar heiðraðir sem á síðasta ári hafa náð því marki að gefa blóð 25,50 og 75 sinnum. Blóðgjafafélag Islands verður 10 ára 16. júlí á þessu ári. Alþjóðahvalveiðiráðið: Visindanefndin á fundi í Reykjavík VÍSINDANEFND Alþjóðahval- veiðiráðsins fundar í Reykjavík út alla vikuna. Á fundi nefndar- innar verður aðallega fjallað um ástand langreyðarstofnsins í Norður-Atlantshafi, að sögn Jóhanns Sigurjónssonar hjá Hafrannsóknastofnun. Á fundinum verða um 50 vísinda- menn, til dæmis frá Norðurlöndum, Bandaríkjunum, Bretlandi og Ástr- alíu en sjö Islendingar taka þátt í fundinum. „Þessi fundur er auka- fundur og hluti af heildarúttekt vísindanefndarinnar og Alþjóða- hvalveiðiráðsins á hvalastofnum heims en því starfi átti upphaflega að ljúka árið 1990. Fjallað er um einstaka hópa hvalastofna og í fyrra var hrefnan í Norður-Atlantshafi meðal annars tekin fyrir,“ segir Jóhann Siguijónsson. Bætur almannatrygg- mga hækka um 2,5% BÆTUR almannatrygginga hækka um 2,5% frá 1. mars að telja, skv. reglugerð sem Heil- brigðis- og tryggingaráðherra hefur gefið út. Samkvæmt reglugerðinni hækk- ar til dæmis elli- og örorkulífeyrir (grunnlífeyrir) úr 11.497 í 11.784, full tekjutrygging hækkar úr 21.154 í 21.683, meðlag vegna eins barns hækkar úr 7.042 í 7.218, mæðralaun/feðralaun hækka úr 4.412 í 4.522 og fæðingarstyrkur hækkar úr 23.398 í 23.983. Fullir sjúkradagpeningar hækka úr 981 á dag í 1.006 á dag. Slysadagpening- ar hækka úr 620.80 í 636.30. Evrópskt efnahagssvæði: * * * Avinningur Islendinga minni en aðrar þjóðir geta vænst SAMNINGAR milli EFTA og Evrópubandalagsins um evrópskt efnahagssvæði eru nú að komast á lokastig, og við íslendingar vonumst eftir því að með þeim komi betri tið með blóm í haga. En vegna sérstöðu okkar sem eigum mest allt undir fiskinum, má ætla að beinn þjóðhagslegur ávinningur af þessum samningum verði mun minni en aðrar þjóðir gera sér vonir um. I nýrri greinargerð frá Þjóð- hagsstofnun, um áhrif mögulegrar aðildar Islands að evrópsku efna- hagssvæði, kemur fram að það frelsi, sem verið sé að inn- leiða í Evrópu- bandalaginu á sviði iðnaðar og þjónustu, nái ekki til sjávarútvegs- ins. Því verði ábati íslensks sjávar- útvegs minni af því að tengjast evrópsku efnahagssvæði en sá ábati sem aðrar þjóðir gera ráð fyrir í þeim greinum iðnaðar og þjónustu sem eru öflugastar í þeim löndum. Evrópubandalagið hefur reist tollamúra utan um sjávarútveg sinn og veitir honum um leið mikla fjárhagslega styrki, til að draga úr samkeppni frá löndum utan bandalagsins. Þjóðhagsstofn- un segir að þessi tolla- og styrkjastefna EB valdi íslenskri fisk- vinnslu nokkrum vanda og kosti þjóðarbúið - verulegar fjárhæðir. En yrði hún aflögð, og afnumdir tollar EB 'á mikilvægum sjávaraf- urðum, svo sem söltuðum fiski, skreið, saltsíld, ferskum fiskflök- um og lagmeti, myndu margar nýjar leiðir opnast fyrir íslenskan sjávarútveg á markaði EB, og tekjur af afurðum sem nú eru fluttar út aukast. Því yrði þjóð- hagslegt verðmæti slíkra tolla- lækkana verulegt. Þjóðhagsstofnun bendir einnig á, að þar sem viss hætta sé á að útflutningur ísfisks héðan aukist áfram, vinnsla físks hér heima minnki um leið, sé mikilvægt að ná samningum við EB um að fella þessa tolla niður. Þá myndi sam- keppnisstaða íslenskrar físk- vinnslu batna verulega og allar líkur-séu á því að íslensk fisk- vinnsla eigi verulega möguleika í heimi frjálsra viðskipta með fisk- afurðir og þurfi ekki að óttast framtíðina ef hún keppi við sjávar- útveg annarra landa á jafnréttis- grundvelli. En slíkt þarf að virka í báðar áttir. ísland hefur gert fyrirvara um fjárfestingar útlendinga í fisk- veiðum og frumvinnslu sjávaraf- urða og Þjóðhagsstofnin segir, að hagfræðileg rök mæli með frelsi tii fjárfestinga, því þá aukist npöguieikar fyrirtækja til að stað- setja framleiðsluna þar sem hún er hagkvæmust, erlend fyrirtæki geti flutt með sér tækniþekkingu og markaðssambönd, auk þess sem þau leggi til áhættufé. Hins vegar sé augljóslega veigamikil ástæða fyrir hendi fyrir undan- tekningu, sú að eigendur ákveð- inna íslenskra skipa hafi rétt tii að nýta óveiddan fisk í sjónum án þess að greiða fyrir hann fullt verð eins og gert er í flestum öðr- um atvinnugreinum sem nýta náttúruauðlindir. Þjóðhagsstofnun telur, að for- senda þess að hægt sé að heimila erlendum _ aðilum að fjárfesta í útgerð á íslandi sé sú, að þannig fyrirkomulag verði á úthlutun aflakvóta að erlendu aðilarnir greiði sannvirði fyrir verðmætin. En fleiri forsendur verði að vera fyrir hendi. Þannig sé ekki hægt að leyfa erlendum aðila, sem styrki útgerð sína með alls kyns aðgerð- um, að bjóða í veiðileyfin. í öðru lagi myndi slíkur veiðileyfamark- aður varla skila hlutverki sínu ef sumir gætu selt sínar afurðir á hærra verði en aðrir vegna þess að sjávarútvegur í þeirra löndum nyti sérstakra styrkja. í þriðja lagi sé eðlilegast, að leyfi útlendinga til að nýta aflakvóta á íslandsmið- um sé hluti af samkomulagi þar sem íslendingar fái einnig rétt til að keppa ájafnréttisgrundvelli um veiðjleyfí á miðum annarra ríkja. „Ólíklegt er að allar þessar for- sendur verði uppfylltar í bráð. En ef/þegar þær eru uppfylltar, þá verður erfitt að réttlæta bann við fjárfestingum erlendra aðila í sjáv- arútvegi á íslandi á efnahagsleg- um forsendum. Allar líkur eru á því að við þær aðstæður mundi íslenskur sjávarútvegur og sérs- taklega íslensk útgerð hagnast á því að banni við fjárfestingum erlendra aðila væri aflétt," segir í greinargerð Þjóðhagsstofnunar. Þessi greinargerð er hluti af víðtækri athugun sem nú fer fram á mögulegum áhrifum aðildar ís- lands að evrópsku efnahagssvæði á íslenskan þjóðarbúskap. Þjóð- hagsstofnun, Seðlabankinn, fjár- málaráðuneytið og Byggðastofnun hafa ýmist skilað eða vinna nú að athugunum á ýmsum þáttum málsins og jafnframt er starfandi ráðgjafarnefnd fulltrúa ríkis- stjórnarinnar og atvinnulífsins, sem á að fjalla um málið í heild. Er miðað við að yfiriit nefndarinn- ar geti legið fyrir í byijun næsta mánaðar. BAKSVIÐ eftir Gubmund Sv. Hermannsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.