Morgunblaðið - 24.02.1991, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 24.02.1991, Qupperneq 24
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. FEBRUAR 1991 Háskólarektor við brautskráningu kandídata í gær: Átak við nýyrðagerð er við- fangsefni allrar þjóðarinnar „NÚ, þegar þið hafið lokið háskólaprófi, hafið náð þessum áfanga í lífinu og farið til annarra starfa í þjóðfélaginu, þá vaxa þær kröfur sem til ykkar verða gerðar, kröfur um afköst og ágæti í starfi, kröf- ur um virka þátttöku í rekstri þjóðarbúsins og ákvarðanatöku. Við eigum framtíð í frjálsu landi ef þið kjósið svo, ef þið mótið slíka fram- tið og vinnið að þróun þessa þjóðfélags og velfarnaði," sagði dr. Sig- mundur Guðbjarnason, háskólarektor, í hátíðarræðu sinni við braut- skráningu kandidata á Háskólahatíð í gær. Háskólarektor hvatti kandídata til að kjósa í komandi alþingiskosning- um og að kynna eigin hugmyndir, vonir og væntingar á fundum og í fjölmiðlum. „Ef þið hafið enga skoð- un og látið ykkur litlu skipta þróun samfélagsins þá munu aðrir verða fúsir til að taka af ykkur ómakið og skammta ykkur það litla sem þið fáið,“ sagði háskólarektor. „Lýðræð- ið nærist á skoðunum ykkar og gagnrýni mun betur en á fullyrðing- um stjórnmálamanna og fyrirheit- um,“ sagði hann i ræðu sinni. Vék háskólarektor að mikilvægi skoðanafrelsis í ræðu sinni og sagði: „Lýðræðið er viðkvæmt en skoðana- frelsi og tjáningarfrelsi er undirstaða þess. Hefur það stundum vakið undr- un mína þegar ráðherrar hafa hringt til að tjá óánægju sína með viðhorf mín og skoðanir á ýmsum málum, sem ég hafði látið í ljósi opinber- lega, t.d. við tækifæri sem þetta. Þjóðfélagsumræðan má ekki tak- markast við stjómmálamenn og efnahagsmál, sem er þó oftast raun- in,“ sagði háskólarektor. Háskólasjónvarp Háskólarektor fjallaði um erlendar sjónvarpssendingar á íslandi og vék síðan að fyrirhuguðu Háskólasjón- varpi: „Fyrir skömmu samþykkti Háskóli íslands að leita eftir stuðn- ingi við uppbyggingu á fræðslu- og menningarsjónvarpi Háskólans. Hlutverk þessa Háskólasjónvarps er: 1) að annast fjarkennslu, -2) að efla endurmenntun, 3) að miðla fræðslu- efni til almennings, 4) að fjalla um menningarmál almennt og styrkja íslenska tungu og menningu sérstak- lega,“ sagði hann. Sagði hann að ástæðurnar fyrir þessari hugmynd væru margar en ein væri að sú tilraun sem gerð var til að byggja upp fjarkennslu á veg- um ríkisútvarpsins, hefði ekki tek- ist, en fjarkennsla í sjónvarpi ætti engu að síður erindi hingað ög hefði þetta kennsluform víða gefið góða raun. Þá sagði hann að aðstaða væri í húsnæði því sem hannað var í Odda fyrir myndver og eðlilegt væri að byggja upp nútíma aðstöðu því þeg- ar væri hafi kennsla í hagnýtri fjöl- miðlun við háskólann. „Óskað hefur verið eftir því við menntamálaráðuneytið, að Háskóla- sjónvarpið fái þá fjárveitingu sem nú er á fjárlögum til fjarkennslu til að reka slíkt myndver. Einnig hefur verið óskað eftir því við ríkisútvarp- ið að Háskólasjónvarpið fái endur- gjaldslausan aðgang að dreifíkerfi ríkissjónvarpsins með það í huga að sjónvarpa á morgnana beint til skól- anna og til almennings á tímum sem ekki eru nú nýttir af ríkissjónvarp-. inu. Útvarpsstjóri hefur heitið stuðn- ingi sínum og mun beita sér fyrir því að Háskólasjónvarpið fái slíkan aðgang að dreifíkerfi ríkissjónvarps- ins. Þá er áformað að leita til einka- framtaksins, fyrirtækja, banka og stofnana um stuðning við uppbygg- ingu á myndverinu. Þriðja og í raun veigamesta ástæðan fyrir uppbyggingu Háskól- asjónvarps er að skapa vettvang fyrir þá viðleitni Háskólans að treysta menningarlegt sjálfstæði þjóðarinnar, að auðga íslenska tungu og styrkja sjálfsvitund íslendinga og sjálfsvirðingu," sagði háskóla- rektor. Viðfangsefni Háskólasjónvarps Rakti háskólarektor viðfangsefni Háskólasjónvarps, sem hann sagði í fyrstu einkum verða: IjEndur- menntun - t.d. miðlun á námsefni og námskeiðum sem hafi tekist vel hjá Endurmenntunarnefnd Háskól- ans. Um væri að ræða bæði sérhæft efni fyrir sérfræðinga á ýmsum svið- um og almennt efni, svokölluð menn- ingamámskeið, sem hafí verið mjög eftirsótt af fólki á öllum aldri. 2)F- jarkennsla - fyrir framhaldsskólastig og jafnvel grunnskóla í þeim til- gangi að treysta undirstöðumennt- un. Sagði háskólarektor að slík stuðningskennsla gæti verið mjög örvandi bæði fyrir nemendur og kennara. Síðar ætti svo að stefna að fjarkennslu og samnýtingu nám- skeiða á háskólastigi. 3) Kynning á vísindum og listum í landinu. „Sá þáttur í menningarlífí þjóðarinnar sem erfíðast virðist að kynna er vís- indastarfsemin. Sjónvarpið er mikil- virkast fjölmiðla í slíku starfí. ís- lenska þjóðin gerir vaxandi kröfur til vísindamanna sinna og er mikil- vægt að kynna þá miklu grósku sem nú er í vísindum hér á landi og lýs- ir sér t.d. í stórauknum íjölda mjög góðra umsókna í vísindasjóði um styrki til rannsókna," sagði háskóla- rektor. „Vonir standa til að einkafram- takið skynji og skilji að það hefur hér hlutverki og skyldum að gegna, því að góð almenn menntun er for- senda framfara í þjóðfélaginu, - góð almenn menntun þjónar bæði hags- munum fyrirtækja og stofnana og þá um leið hagsmunum heildarinn- ar. Áþreifanlegur fjárhagsstuðning- ur fyrirtækja og fjármálastofnana yið þessa þróun væri mjög mikilvæg- ur fyrir þessa viðleitni alla,“ sagði hann. íslensk íðorðasmíð Háskólarektor fjallaði í ræðu sinni um skort á íslenskum fræðiorðum sem oft torveldaði kennslu og hvatti kandídata til nýyrðagerðar. „Ör þróun á flestum fræðasviðum og sífelld aukning þekkingar krefst markvissra viðbragða af hálfu Há- skólans til að auðga íslenska tungu að fræðiorðum svo að unnt verði að ræða og rita um vísindi og tækni á íslensku.,“ sagði hann. „Háskólaráð samþykkti á liðnu hausti að beina þeim eindregnu tilmælum til allra háskóladeilda að þær vinni skipulega að því að til verði íslensk fræðiorð eða íslenskt íðorðasafn á kennslu- sviðum deildarinnar. Líta skal á slíka vinnu við nýyrðagerð eða íðorðasmíð sem sjálfsagðan þátt í fræðastarfí kennara og sérfræðinga við Háskóla íslands. Jafnframt mælti háskólaráð Dr. Sigmundur Guðbjarnason háskólarektor. með vissri vinnutilhögun við skipu- lagningu starfsins og skipan orða- nefnda er hafí það verkefni að skil- greina og þýða hugtök og að mynda nýyrði og þá með aðstoð sérfræðinga frá íslenskri málstöð," sagði háskól- arektor. „Háskóli íslands hefur ákveðið að mæta þessari sívaxandi þörf fyrir nýyrði, fyrir ný heiti og hugtök með 'skipulögðu starfi orðanefnda á öllum fræðasviðum Háskólans. Verður þetta starf unnið í samvinnu við sérfræðinga sem starfa í fyrirtækj- um og stofnunum utan Háskólans. Við væntum þess að þið takið þátt í þessu starfi, sendið orðanefndum ykkar háskóladeilda hugmyndir ykk- ar og takið nýyrðin í notkun þegar þau berast ykkur til eyrna eða með öðrum hætti. Reynið einnig að fá vini og vinnufélaga til að taka þátt í þessari orðasmíð því þetta er í raun viðfangsefni allrar þjóðarinnar. Ræktun íslenskrar tungu er og verð- ur að vera metnaður okkar allra, án tillits til starfa eða stöðu í þjóðfélag- inu,“ sagði háskólarektor í lok ræðu sinnar á Háskólahátíð í gær. Heppaíalnaðun: Jakkar fra kc 10.900,- Skor Ira kn 4.900,- Buxur frá kr. 6.500,- Skyrtur (rá kr. 2.500, Dömufatnaður: Kjolarírakr. 4.800,- —9.900, Stutttuixurkr. 4.900,- Fermingarföt í Urvali Skórkr. 6.500,-

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.