Morgunblaðið - 24.02.1991, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 24.02.1991, Qupperneq 38
38 MORGt.-NBl.APH> FOLK I■ FRfc'i liJM^stíN^t'jIáóur í24: FEBRtjJAR 1991 ÍÞRÓTTIR Körfuboltafjöl- skylda í Njarðvík Keflavík. ÞAÐ er ekki á hverjum degi sem 4 bræður taka þátt í sama leiknum þegar úrvalsdeildin í körfubolta er annars vegar. Þetta átti sér þó stað í Njarðvík um síðustu helgi þegar Njarðvíking- ar léku gegn Þór frá Akureyri. Þetta voru bræðurnir Sturla, Teitur, Gunnar og Stefán Örlygssynir sem allir tóku þátt í leikn- um. Sturla með Þór, en Teitur, Gunnar og Stefán voru í liði Njarðvíkinga sem sigraði örugglega í leiknum. Ekki eru þeir bræður einu fjöl- Þoivaldssyni og Ernu Agnarsdótt- skyldumeðlimimir sem ur, foreldrum Sturlu, Teits, Gunn- stunda körfubolta því þeir eiga ars, tvíburanna Stefáns og Krist- þrjár systur, Margréti, Kristínu ínar, Margrétar og Huldu, áletr- og Huldu, sem allar hafa leikið aðan silfurdisk fyrir framlag körfubolta með Njarðvík. Af þessu þeirra til körfuboltans í Njarðvík. tilefni færðu Njarðvíkingar Orlygi - BB Morgunblaðið/Björn tílöndal Bræðurnir Stefán, Gunnar, Teitur og Sturla Örlygssynir. Systurnar Margrét, Kristín og Hulda Örlygsdætur með silfur- diskinn sem þær tóku við fyrir hönd foreldra sinna. Morgunblaðið/Árni Sæberg Snemma kvölds. Tómas situr fyr- ir en Johanson þreifar sig áfram. A innfelidu myndinni er verkið fullgert. LIST Tómas teiknaður • • á Ommu Lú MATARGESTIR á veitingahús- inu Ömmu Lú urðu vitni að held- ur óvenjulegri uppákomu undir borðum á laugardaginn fyrir viku. Eigandi staðarins, Tómas Tómasson sat þá hátt í fimm klukkustundir fyrir hjá sænskum Iistmálara sem dró upp og næst- um fullgerði á þeim tíma sér- kennilega mynd af Tómasi sem lengst af hefur verið kenndur við Tomma-hamborgara og Hard Rock Kaffi og nú siðast Ómmu Lú. Listamaðurinn, Erling Jo- hanson, hér um bil lauk verkinu, en staðurinn fór að ókyrrast nokkuð er klukkan fór að ganga tólf og ballgestir fóru að tínast inn. Varð því að ráði að verkinu myndi hann ljúka síðar. Það hef- ur nú gengið eftir. Þetta átti sér nokkurn aðdrag- anda,“ segir Tómas og segir frá því að tíu dögum áður hafi Jo- hanson komið í Hard Rock og ver- ið með ýmsar vangaveltur, rætt bæði við son sinn og hann sjálfan. Af varð að hann gerði umrædda mynd af Tómasi í Ömmu Lú og var leikin kammertónlist á meðan þannig að stemmingin var heldur óvenjuleg og matargestir greini- lega forvitnir að sögn Tómasar, sérstaklega er líða tók á „atriðið". Hvort hann væri ánægður með verkið svaraði Tómas: „Þetta er nokkuð skemmtilegt verk, ekki hefðbundið portrett, heldur í nokkr- um Píkassóstíl." Af Johanson þessum er það helst að frétta, að í fórum hans eru Ijós- myndir af verkum eftir hann þar sem þekktir sænskir stjómmála- menn eru fyrirsætur og heyrst hef- ur að hann hafi einnig málað kóngafólk. Hann er búsettur í Frakklandi, en ferðast mikið. Hér á landi verður hann trúlega fram á vor, en ætlar þá að halda til Grænlands. eyjcxn grætia Aðeins 150 sæti Aðeins kr. 19.700,- BarnaverS kr. 13.700,- AUSTURSTRÆT117, SÍMI 62 22 00 Skrifstofan \ Austurstræti 17 er opin í dag frá kl. 13—16. Sími 62 22 00

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.