Morgunblaðið - 24.02.1991, Side 44

Morgunblaðið - 24.02.1991, Side 44
Bögglapóstur um flllt Iflnd varða i i Landsbanki íslands Banki allra landsmanna MORGUNBLADID, ADALSTRÆTl 6. 101 REYKJAVtK TELF.X 2127. PÓSTFAX 6S1S1I, PÓSTHÓLF 1555 / AKUREYRl: HAFNARSTRyETl 85 SUNNUDAGUR 24. FEBRÚAR 1991 VERÐ í LAUSASÖLU 100 KR. Smásíld breyttí þorsk 1 Breiðafírði „BREIÐFIRÐINGAR eru svo mikið á móti loðnuveiðum, þar sem verið sé að taka æti frá þorskinum, þannig að ég er bú- inn að gera samning við þá og koma fyrir alveg æðislega stórri smásíldartorfu í Sandabrúninni norður af Snæfellsnesinu," segir Jakob Jakobsson forstjóri Haf- rannsóknast ofnunar. Jakob segir að þorskurinn við Snæfellsnesið sé úttroðinn af smásíld. „Ég er búinn að segja Breiðfirð- ingum að þetta sé uppbót fyrir loðnuleysið og þeir eru alsælir, því þeir hafa aldrei fengið svona stóran og feitan þorsk eins og núna og smásíldin vellur út úr honum,“ seg- ir Jakob Jakobsson. „Nokkrir kaft- einar af Snæfellsnesi, bæði drag- nótarmenn og netamenn, hafa hringt til mín og þeir eru mjög ánægðir með vertíðina. Mér finnst það vera mjög merkilegt að breyta síld, sem lítið verð fæst fyrir, í rán- dýran þorsk með þessum hætti,“ segir Jakob. Útlit fyrir óbreytt verð búvara Háskólarektor á Háskólahátíð í gær: ^ Morgunblaðið/Árni Sæberg I vetrarsól við höfnina Að mörgu þarf að hyggja við höfnina, jafnt á sumrum sem vetrum og þar eru mörg handtökin unnin. Þegar ljósmyndari Morgunblaðsins kom við í Daníelsslipp í Reykjavíkurhöfn á dögunum voru nokkrir menn að bjástra þar við toghlera. Þó sólin sendi geisla sína yfir höfnina var kuldinn bitur, en um það þýðir ekki að fást þegar ljúka þarf verki. ÚTLIT er fyrir að verð búvara breytist ekki um næstu mánaða- mót. Slátur- og heildsölukostnað- ur kindakjöts mun ekki hækka samkvæmt ákvörðun fimm- mannanefndar, sem ákveður heildsöluverð búvara. Enn hefur ekki verið tekin ákvörðun um "breytingar á vinnslu- og dreif- ingarkostnaði mjólkur, en ólík- legt er talið að um hækkun verði þar að ræða. Fundur verður væntanlega hald- inn í sexmannanefnd um grundvall- arverð landbúnaðarvara til bænda í vikunni. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins er líklegt að um einhveija hækkun verði að ræða á grundvallarverði í nautgriparækt, og til þess að koma í veg fyrir verð- hækkun mjólkur verði niðurgreiðsl- ur á mjólk auknar, en hins vegar verði niðurgreiðslur á dilkakjöti lækkaðar á móti. Háskólasjónvarp fái afnot af dreifikerfi ríkissjónvarpsins Kveðst undrast þegar ráðherrar tjá óánægju sína með skoðanir hans SIGMUNDUR Guðbjarnason, há- skólarektor, sagði í ræðu sinni við brautskráningu kandídata á Háskólahátíð í gær, að skoðana- frelsi og Ijáningarfrelsi væru undirstaða lýðræðisins. „Hefur það stundum vakið undrun mína þegar ráðherrar hafa hringt til að tjá óánægju sína með viðhorf mín og skoðanir á ýmsum málum, sem ég hafði látið í ljósi opinber- lega, til dæmis við tækifæri sem þetta. Þjóðfélagsumræðan má ekki takmarkast við stjórnmála- menn og efnahagsmál, sem er þó oftast raunin," sagði hann. Hann sagði einnig að óskað hefði verið eftir því við ríkissjónvarpið að Háskólasjónvarpið fái endur- gjaldslausan aðgang að dreifi- kerfi ríkissjónvarpsins Frumvarp fyrir þingflokkum: Tekjuskattur fyrirtækja veroi lækkaður í 45% TEKJUSKATTUR fyrirtækja lækkar úr 50% í 45%, samkvæmt laga- frumvarpi, sem er til meðferðar hjá þingflokkum ríkisstjórnaiinnar. Jafnframt er heimild til að leggja skattskyldan hagnað í fjárfestingar- sjóð þrengd úr 15% í 10% af hagnaði, og afskriftarhlutfall liækkað úr 40% í 50%. Að sögn fjármálaráðherra verður skattbyrði fyrirtækja óbreytt þrátt fyrir þessar breytingar. Að óbreyttu hefði skattbyrðin þyngst milli ára sem samsvarar 300-500 milljónum vegna lækkunar verðbólgu, en fyrirtækjaskattar eru greiddir eftir á. „Þetta er enn eitt skrefið í kerfis- breytingu á skattlagningu atvinnu- lífsins. Annars vegar er fækkað frá- dráttarliðum og skattstofninn breikkaður, en skattprósentan jafn- framt lækkuð, eins og alþjóðlegar breytingar stefna í. Hins vegar er Terið að aðlaga atvinnulífið því, að verðbólgan er nú blessunarlega lág og við þurfum því að breyta tölu- stærðum í skattkerfinu svo fyrirtæk- in líði ekki fyrir það,“ sagði Ólafur Ragnar Grímsson fjármálaráðherra. Hann sagði að þetta væri einnig skref í að samræma skattlagningu éinstaklinga og fyrirtækja þannig að menn freistuðust ekki til þess að vera með fyrirtæki í einstaklings- rekstri vegna skattaákvæða, og blönduðu þannig ekki einkafjármál- um sínum saman við atvinnurekstur- inn. Skatthlutfall fyrirtækja er nú 50% en einstaklinga 39,74%. í greinargerð segir, að óbreytt lög hefðu í för með sér að skattbyrði fyrirtækja þyngdist um 300-500 milljónir kr. milli áranna 1990-1991. Engu að síður væri áfram gert ráð fyrir að tekjur ríkissjóðs vegna álagningar tekjuskatts á fyrirtæki hækki meira en sem nemur verð- breytingum milli ára, sem stafaði fyrst og fremst'af betri afkomu fyrir- tsékja í fyrra en árið áður. í ræðu sinni fjallaði háskólarekt- or um undirbúning Háskólasjón- varps og sagði að óskað hefði verið eftir því við menntamálaráðuneytið, að Háskólasjónvarpið fái þá fjár- veitingu sem nú er á fjárlögum til fjarkennsiu til að reka nútíma myndver í húsnæði því serh hannað hefur verið í Odda. „Einnig hefur verið óskað eftir því við ríkissjón- varpið að Háskólasjónvarpið fái endurgjaldslausan aðgang að dreifi- kerfi ríkissjónvarpsins með það í huga að sjónvarpa á morgnana beint til skólanna og til almennings á tímum sem ekki eru nú nýttir af ríkissjónvarpinu. Útvarpsstjóri hef- ur heitið stuðningi sínum og mun beita sér fyrir því að Háskólasjón- varpið fái slíkan aðgang að dreifí- kerfi ríkissjónvarpsins. Þá er áform- að að leita til einkaframtaksins, fyrirtækja, banka og stofnana um stuðning við uppbyggingu á mynd- verinu," sagði háskólarektor. Hann greindi einnig frá skipu- lögðu átaki innan Háskólans við þýðingu fræðiorða og nýyrðagerð. Verður þetta starf unnið í samvinnu við sérfræðinga sem starfa í fyrir- tækjum og stofnunum utan Háskól- ans. „Við væntum þess að þið takið þátt í þessu starfi, sendið orða- nefndum ykkar háskóladeilda liug- myndir ykkar og takið nýyrðin í notkun þegar þau berast ykkur til eyrna eða með öðrum hætti. Reynið einnig að fá vini og vinnufélaga til að taka þátt í þessari orðasmíð því þetta er í raun viðfangsefni alirar þjóðarinnar," sagði Sigmundur Guðbjarnason, háskólarektor. Sjá frásögn af ræðu háskóla- rektors á bls. 24 Rúðubrota- faraldur í Eyjum RÚÐUR voru brotnar í þreinur verslunuin í Vestmannaeyjuni aðfaranótt laugardagsins. Virð- ist hálfgerður rúðubrotafaraldur vera í gangi að sögn lögreglunn- ar í Eyjum. Lögreglan hafði uppi á nítján ára pilti sem talinn er hafa brotið eina rúðuna en svo virðist sem sömu aðilarnir hafi ekki verið að verki í öllum tiivikum. Talsvert hefur verið um rúðubrot í Vestmannaeyjum á undanförnum vikum og segir lögreglan að svo virðist sem þau komi í gusum. Stundum sé ekki brotin rúða helgi eftir helgi en svo skelli á helgi eins og nú þar sem margar rúður eru brotnar á einu kvöldi. Kunni lög- reglan engar skýringar á þessum faraldri.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.