Morgunblaðið - 17.03.1991, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 17.03.1991, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIR/INNLENT MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. MARZ 1991' Fegurðardrottning Reykjavíkur: Fallið reynd- ist fararheill Besta afmælisgjöfín, segir Rakel Haralds- dóttir systir fegurðardrottningarinnar SVAVA Haraldsdóttir, 18 ára menntaskólanemi, var krýnd feg- urðardrottning Reykjavíkur 1991 á föstudagskvöldið á Hótel Is- landi. Svava var einnig valin besta ljósmyndafyrirsætan og Sigur- veigu Guðmundsdóttur völdu stúlkurnar sjálfar sem vinsælustu stúlkuna í hópnum. „Ég ætlaði ekki að trúa því þeg- ar nafn mitt var nefnt, hélt að mér hefði misheyrst. Ég var dálít- ið taugaóstyrk fyrst eftir að kjör- inu hafði verið lýst, en það lagað- ist fljótlega. Þetta kvöld byijaði ekki gæfulega hjá mér því þegar við komum fram á sundbolum, í upphafi keppninnar, hrasaði ég í tröppunum á s.viðinu. Ég datt samt ekki alveg en ætli það sé ekki óhætt að segja að fall sé farar- heill,“ sagði Svava í samtali við Morgunblaðið eftir krýninguna. Það er ef til vill undarleg tilvilj- un að systur skyldu taka þátt í fegurðarkeppninni á sama tíma. Eldri systir Svövu, Rakel Haralds- dóttir, tók einnig þátt í keppninni og sögðu þær systur báðar að ekki hefði verið um neinn systraslag að ræða. Rakel átti reyndar af- mæli á laugardaginn og sagði hún að sigur Svövu hefði verið besta afmælisgjöfin sem hún hefði getað hugsað sér. „Þetta er besta afmæl- isgjöfín. Mér leið mjög vel þegar ég heyrði nafn hennar nefnt. Ég er fegin að hún vann. Hún átti það fyllilega skilið," sagði Rakel. „Það var bara gaman að vera með Rakel í þessari keppni. Það var tilviljun að við fórum báðar í keppnina á sama tíma. Ég var beðin að taka þátt í henni í fyrra en ég taldi mig ekki tilbúna þá en sló síðan til þegar haft var sam- band núna. Það var haft samband við okkur sitt í hvoru lagi og við höfðum ekki samráð um að fara báðar í keppnina. Við vissum eigin- lega ekki hvor af annari fyrr en báðar höfðu ákveðið að vera með,“ sagði Svava KGA Systurnar Svava og Rakel Haraldsdætur eftir að Svava hafði verið krýnd fegurðardrottning Reykjavíkur 1991. Á efri mynd- inni sést Eygló Ólöf Birgisdóttir, fegurðardrottning Reykjavíkur 1990, krýna Svövu Haraldsdóttur. Hún er á þriðja ári í Menntaskól- anum í Hamrahlíð, á náttúrufræði- braut, og langar til að halda áfram að læra eftir að því námi lýkur. „Ég hef gaman að því að teikna og langar að fara í arkitektúr þeg- ar ég er búinn með MH,“ sagði Svava. Verkfallsboðun flugmanna: Brot á kjarasamn- ingum aðalástæðan - segir Geir Garðarsson formaður FÍA FUNDUR hefur verið boðaður I kjaradeilu Flugleiða og flugmanna hjá ríkissáttascmjara í dag. Geir Garðarsson, formaður Félags ís- lenskra atvinnuflugmanna, FÍA, segir að höfuðástæða þess að boðað hafi verið til verkfalls séu brot Flugleiða á kjarasamningum við flug- menn, sem kveða á um að hafa skuli samráð við FÍA þegar erlendar áhafnir og vélar eru fengnar til að annast fraktflug félagsins. Flug- menn hafa boðað verkfall 29. mars næstkomandi. Einar Sigurðsson blaðafulltrúi Flugleiða sagði að það væri stefna félagsins að gefa ekki upp laun ein- stakra hópa en ganga mætti út frá að flugmenn væru mjög vel launaðir miðað við aðra hópa í þjóðfélaginu. Hann sagði að mikið væri bókað þann dag sem flugmenn hafa boðað verkfall. Sagði hann mögulegt áð einhveiju flugi yrði flýtt eða seinkað eftir atvikum en hann átti ekki von á því að gripið yrði til leiguflugs. Flugleiðir telja að kröfur flug- manna jafngildi 80% launahækkun en Geir Garðarsson telur að þetta sé íjarri lagi. „Það eru ótal hlutir sem eru settir fram til umræðu og það getur vel verið að þeir reikni alla skapaða hluti í botn. Það má vel vera að hægt sé að fá út 80% launa- hækkun eða jafnvel meiri, en mér fínnst óraunhæft að slá þessu fram og eins er það gert til að slá ryki í augu fólks,“ sagði Geir. Hann sagði að sett hefði verið fram krafa um fullt vaktaálag, það væri gömul krafa FÍA. Það tíðkaðist allstaðar að vakta- álag væri 33% en væri 15% hjá flug- mönnum. Þá hefðu Flugleiðir stund- að fraktflug í á annað ár einu sinni til tvisvar í viku með erlendum flug- mönnum og vélum þrátt fyrir að kveðið væri á um það í kjarasamning- um að Flugleiðir ættu að semja um þetta flug við flugmenn Flugleiða. FÍA gerði skýlausa kröfu um að staðið væri við þetta ákvæði kjara- samninganna ella yrði flugmönn- um greiddar skaðabætur. Geir sagði að Flugleiðir hefðu ekkert samráð haft við félaga í FÍA um þessi mál og þetta væri höfuðá- stæða þess að boðað hefði verið verkfall. Flugmenn setja einnig fram þá kröfu að flugmenn sem hafa verið ráðnir til Flugleiða, til dæmis frá Amarflugi, njóti þeirrar reynslu sem þeir hafi að baki sem flug- menn. Þá er þess krafist að áhafna- skipti verði höfð þegar flogið er á nóttunni'. Ferðakynning á Hótel Sögn: Fjallað um Austurlönd fjær INGÓLFUR Guðbrandsson heldur áfram að kynna íslendingum heim- inn og undur hans. Hann gerir víðreist og er nýkominn úr langri ferð um Austurlönd fjær. Ingólfur mun fjaila um ferð sína og ferðalög í þeim heimshluta í erindi, sem hann kallar „Ferð inn í fortíð og framtíð" í Ársal Hótels Sögu kl. 4 síðdegis í dag, sunnudaginn 17. mars. Jafn- framt mun hann sýna myndir frá Filippseyjum, Jápan, Taiwan og Thailandi. Meðan dregið hefur verið úr ferða- lögum víða á Vesturlöndum, leita fleiri og fleiri ferðamenn frá Évrópu og Ameríku nú til fjarlægra Austur- landa, þar sem þeir njóta betri þjón- ustu en víðast annars staðar. Japan- ir standa framarlega í ferðaþjónustu og ferðast einnig mikið sjálfir til útlanda, eða um 10 milljónir á síð- asta ári samkvæmt opinberum skýrslum, þ. á m. 700 þúsund nýgift japönsk hjón í brúðkaupsferð. Japan- ir eru vel efnaðir og eyða almennt meira fé en aðrir ferðamenn. Sam- kvæmt frétt frá Reuter var meðal- neysla þeirra í París 1.300 banda- ríkjadollarar á mann á dag. íslend- ingar ferðast líklega ódýrar en flest- ar aðrar þjóðir. Fyrir tilstilli Ingólfs hyggst ein virtasta ferðaskrifstofa Japans bjóða íslandsferðir í náinni framtíð. (Fréttatilkynning) Neyðarnúmer fyrir allt land: Slæm reynsla hefur verið af 000 EITT neyðarnúmer fyrir allt landið er draumur þeirra hjá Pósti og síma og hefur 000 orðið fyrir valinu, þar sem það hefur þeg- ar verið tengt, nú síðast í ísafjarðarsýslu. Það geta allir verið sammála um að slíkt númer er nauðsynlegt því eins og Guðjón Petersen framkvæmdastjóri Almannavarna bendir á, eru neyðar- númerin 136 á öllu landinu en reynslan af 000 er því miður ekki góð. Að sögn Bergþórs Halldórssonar yfirverkfræðings hefur náðst samkomuiag um að 112 verði neyðarnúmer allra Evrópu- landa þegar fram líða stundir. IKeflavík og á Akranesi hefur neyðarnúmerið 000 verið tengt lögreglunni undanfarin ár. Þar eru menn sammála um að 000 sé ekki heppilegt númer. „Reynsla okkar er ekki góð,“ sagði Halldór Jónsson varðstjóri lögreglunnar í Keflavík. „Það er sárasjaldan hringt og til- kynnt um óhöpp en aftur á móti mikið hringt og þá er það vitlaust númer eða krakkar eru að fikta. Ég held að þetta sé óheppilegt númer og hef orðíð var við að númer sem enda á 0 lenda hjá okkur.“ Gísli Björnsson varðstjóri á Akranesi sagði að númerið hefði gefist illa. „Það er alltaf samslátt- ur og mikið um hringingar, sem eru annaðhvort vitlaust númer eða eitthvað annað,“ sagði hann. „Það er mikið um að krakkar eru að fikta í símanum og slá inn 000. Ætil það sé ekki um 95% af hring- ingunum sem ekki eiga erindi en síminn hringir þrisvar til fjórum sinnum á dag. Ég man eftir tveimur til þremur neyð- artilvikum á þessum tveim- ur árum, þar sem hringt var í 000 en þá voru hinir símarnir lausir á stöðinni og hægt að hringja í þá.“ Stefán Jóhannsson varðstjóri á Selfossi, sagði að 000 væri ekki lengur tengt hjá þeim. „Þetta var ónothæft númer og er ekki til hjá okkur lengur," sagði Stefán. „Hér voru stanslausar hringingar þegar hringt var venjulegt símtal milli bæja innan sveitarinnar. Það var mikið reynt til að fá þetta í lag hjá Pósti og síma en þeir réðu ekkert við það.“ Umdæmi lögregl- unnar á Selfossi nær yfir Arnes- sýslu alla og er því rétt að benda á að láðst hefur að taka úr Síma- skránni neyðarnúmerið 000 fyrir Eyrarbakka, Stokkseyri, Flúðir, Hveragerði og Þorlákshöfn. Það númer er ekki lengur í gildi fyrir þessa staði. Lögreglan í Vestmannaeyjum, hafði aðra sögu að segja. Neyðar- númerið þar hafi gefið góða raun þann tíma sem það hefur verið í notkun. Þegar hringt er í 000 gefur lögreglan samband við sjúkrahúsið, björgunarsveit, slökkvistöð, flugtum eða áhalda- hús svo dæmi séu tekin. Rík áhersla er lögð á að númerið sé eingöngu notað í neyðartilvikum og hefur það gengið eftir, til dæm- is vegna hjartatilfella og vegna bruna, þá man fólk eftir 000. Þó kæmi nokkuð oft fyrir að börn væru að fikta í símanum og hringdu í númerið. Bergþór Halldórsson yfirverk- fræðingur hjá Pósti og síma, sagði að Selfyssingar hefðu verið fyrstir með neyðarnúmerið. Því miður væri stutt síðan kvartanir vegna númersins á Selfossi hefðu borist tæknideildinni í Reykjavík og var það ekki fyrr en í vetur að vinna hófst við að koma því í lag. En hér væri um margþætt vandamál að ræða. Meðal annars hefur ekki verið hægt að rekja símtöl þegar hringt er í 000, sem er krafan þegar um neyðarnúmer er að ræða. „Án þess að við séum komn- ir til botns í vandanum þá lítur út fyrir að rekja megi bilunina til ákveðinna undirstöðva frá Sel- fossi,“ sagði Bergþór. „Við vorum að vonum ekki hressir með að þarna hefði orðið óánægja með kerfið að ástæðulausu og teljum okkur geta gert betur.“ Hvað númerið sjálft, 000, varð- ar þá sagði Bergþór, að í fyrstu hefði verið talað um 999 sem neyð- arnúmer. Nú hefðu menn hins vegar orðið ásáttir um 112 sem alþjóðlegt neyðarnúmer í Evrópu og væri Danmörk fyrsta landið sem hefði tekið það upp um leið og símakerfinu var breytt þar fyr- ir skömmu. „Það númer getum við ekki tekiðupp hér núna vegna þess að innan hvers svæðis eru númer, sem byija á 112 og til þess að hægt sé að nota það yrði að leggja niður öll númer sem byijuðu á 11 á öllu landinu," sagði hann. Þegar að því kemur verður áfram svarað í 000 þar til tryggt er að allir hafí áttað sig á 112. Nokkrir staðir á landinu gefa upp önnur sérstök neyðarnúmer og er það í flestum tilvikum sama númer og hjá lögreglu eða slökkvi- liði nema á Blönduósi. Þar er svar- að í neyðarsímann á sjúkrahúsinu, sem er eina stofnunin með sólar- hringsvakt í héraðinu. Guðjón Petersen framkvæmda- stjóri almannavarna ríkisins sagði það brýna nauðsyn að komið yrði upp neyðarnúmeri, sem sinnti dag- legri neyðarþjónustu fyrir allt landið. Kerfi almannavarna næði eingöngu til náttúruhamfara eða stórslysa og er utan við Póst og síma. Enda væri litið svo á að ef til verulegra náttúruhamfara kæmi yrði ekki hægt að treysta á símakerfíð og hafa almannavarnir komið upp sínu eigin fjarskipta- kerfi víðsvegar um landið. BflKSVIÐ eftir Kristínu Gunnarsdóttur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.