Morgunblaðið - 17.03.1991, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 17.03.1991, Qupperneq 26
26 MORGUNBLAÐIÐ MYNDASOGUR SUNNUDAGUR 17. MARZ 1991 STJÖRNUSPÁ eftir Frances Drake Hrútur (21. mars - 19. apríl) (P* I dag er heppilegt fyrir hrútinn að byrja á skapandi verkefni og sinna mikilvægum símtölum. Einnig mundi hon- um vinnast vel í hvers kyns námi. Naut (20. apríl - 20. maí) íffö Nautið fær ráð úr tveimur átt- um og vísa þau einnig hvort í sína áttina. Það getur sjálft ráðið fram úr vandræðum sínum, hjálparlaust. Tvíburar (21. maí - 20. júní) í» Það er ekki ráðlegt fyrir tvíburann að lána peninga í dag. Hann getur ekki treyst á vin sinn í augnablikinu, en blómstrar i félagsstarfi sem hann hefur yndi af. * Krabbi (21. júrlí - 22. júlí) HS^ Nú er ráð fyrir krabbann að ræða ákveðið viðskiptamál. Hann ætti reyna eftir mætti að láta einkalífið ekki trufla einbeitingu sína. Ljón (23. júlí - 22. ágúst) Dagdraumar kunna að draga úr marksækni ljónsins um þessar mundir. Ættingi þess talar ekki hreint út um hlutina. Meyja (23. ágúst - 22. september) Óvæntur aukakostnaður fellur á meyjuna núna. Hún ætti að haida vel utan um pyngjuna og forðast lántökur. (23. sept. - 22. október) Vogin talar við einhvem í trún- aði í dag. HÚn á nú auðvelt með að ná samkomulagi við annað fóik. Einhver ruglingur gæti orðið heima hjá henni. Sporddreki (23. okt. -21. nóvember) Sporðdrekinn er á réttri leið í vinnunni, en vegna truflana verður honum ekki eins mikið úr verki og hann vonaðist til. Bogmadur (22. nóv. - 21. desember) Bogmaðurinn ætti að sinna áhugamálum sínum í dag. Það verkar ævinlega hvetjandi. Hann á prýðilegt samfélag við bamið sitt, en gerð rétt í því að forðast hvers kyns fjárhags- lega áhættu. Steingeit (22. des. - 19. janúar) & Steingeitin er ósamkvæm sjálfri sér í viðskiptum sínum við annað fólk í dag. Hún ætti að stofna til fjölskylduum- ræðna áður en hún tekur mikil- vægar ákvarðanir sem varða heimilið. Vatnsberi (20. janúar - 18. febrúar) ðh Vatnsberinn á auðvelt með að tjá skoðanir sínar í dag. Sumir þeirra sem hann ræðir við em þó óviðbúnir því að gefa bein svör. Það eru ófriðarblikur á lofti. Fiskar (19. febrúar - 20. mars) '£+t Fiskurinn hefur viðskiptavitið í lagi í dag. Honum er óhætt að kaupa og selja að vild. Hann ætti samt ekki að láta einhvem þvinga sig í krafti vinskapar. Stjörnusþána á að lesa sem dœgradvöl. Spár af þessu tagi byggjast ekki á traustum grunni vísindalegra staðreynda. DÝRAGLENS GRETTIR TOMMI OG JENNI FERDINAND Hér stendur hinn heims- frægi gangbrautavörður á veginum og stjórnar um- ferðinni ... STOPP. HÆGT. Ég er bara að reyna að vinna mitt starf, kunningi! BRIDS Umsjón: Guðm. Páll Arnarson „Ég spila þetta bara nokkuð vel,“ upplýsti suður félaga sína við borðið. Suður gefur; allir á hættu. Vestur Norður ♦ K86 ¥963 ♦ ÁG3 ♦ 7652 Austur ♦ 75 ♦ G10932 ¥ KDG72 llllll ¥84 ♦ 1098 ♦ D7654 ♦ G43 ♦ K Suður ♦ ÁD4 ¥ Á105 ♦ K2 ♦ ÁD1098 Vestur Norður Austur Suður — — — 2 grönd Pass 3 grönd Pass Pass Pass Utspil: hjartakóngur. Suður dúkkaði hjarta tvívegis, fór síðan inn á blindan á spaða- kóng og spilaði laufí. Þegar kóngurinn birtist í austur, dúkk- aði suður og tókst þannig að fríspila laufið án þess að vestur kæmist inn. Og var ánægður með afrekið. Austur leit framan í makker sinn, sá fyrirlitningarsvipinn og ákvað að játa syndir sínar: „Nei, ég er hræddur um að þú hafir ekki spilað mjög vel. Þú dúkkaðir hjartað einum of oft og gafst mér tækifæri til að henda laufkóngnum í þriðja slag. Þá kemst makker alltaf inn á gosann." SKÁK Umsjón Margeir Pétursson Margar skákanna í fyrstu um- ferð áskorendaeinvígjanna voru meingallaðar, einvígið Korchnoi- Sax var t.d. sérlega illa teflt. Þessi staða kom upp í fjórðu einvígis- skák Predrag Nikolic (2.620), Júgóslavíu, og Boris Gelfand (2.700), Sovétríkjunum, sem hafði svart og átti leik. Hvítur lék síðast 25. Hg3-g4. Þýzkur skákáhugamaður, Manuel nokkur Wolbert, hefur bent á nokkuð einfalda vinnings- leið fyrir svart í stöðunni: 25. — Hd2! 26. Dxd2 — Rxb3 og svart- ur verður manni yfír. í staðinn lék Gelfand slakan leik, 25. — Hf8? og skákinni lauk um síðir með jafntefli. Þótt Gelfand sé þriðji stigahæsti skákmaður heims náði hann ekki að tryggja sér sigur gegn Nikolic fyrr en í 45 mín. skákum í framlengingu. Við skul- um rifja upp úrslit áskorendaein- vígjanna: Ivanchuk-Judasin i'h-'h, Anand-Dreev i'h-l'h, Timman-Húbner i'h-2'h, Gel- fand-Nikolic 5'h-i'h, Korchnoi- Sax 5V2-4V2, Jusupov-Dolmatov 6V2-5V2, Short-Speelman 5'h-i'h. f fjórum siðastnefndu einvígjunum þui-fti að framlengja og stytta tímann til að fá úrslit. I fjórðungs- úrslitunum að ári tefla: Karpov- Anand, Gelfand-Short, Ivanchuk- Jusupov og Timman-Korchnoi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.