Morgunblaðið - 20.03.1991, Síða 9

Morgunblaðið - 20.03.1991, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUÐÁGUR 20. MARZ' 1991 Fákur: / Iþróttafélag eða hestamannafélag? Fræðslufundur verður haldinn í félagsheimili Fáks fimmtudaginn 21. mars kl. 20.30. Framsögumenn verða Jón Albert Sigurbjörnsson, Kári Arnórsson, Sigurður Magnússon og Valdimar Kristinsson. Allir velkomnir. Félagsmenn framvísi félagsslcírteinum. Aðgangseyrir kr. 200,- fyrir utanfélagsmenn. Fræðslunefndin HMBj Eitt símtal og þú ert áskrifandi að spariskírteinum ríkissjóðs Askriftar- og þjónustusímar: 91-62 60 40 og 91-69 96 00 ÞJONUSTUMIÐSTÖÐ RÍKISVERÐBRÉFA B § Þjónustumlöstöð ríklsverðbréfa, Hverflsgötu 6, 2. hæð. Síml 91-62 60 40 9 Skattauppreisnin og alþýðuforinginn Skattauppreisn fiskverkafólks hefst í dag. Verkafólk í fiskvinnslu- stöðvum um land allt leggur niður vinnu til að mótmæla skattaá- þjáninni og krefjast úrbóta. Þessar aðgerðir eru ekki í samráði við verkalýðshreyfinguna, forustuna, sem hefur ekki séð ástæðu til að hamla gegn sífelldum hækkunum skatta og álaga svo- nefndrar ríkisstjórnar jafnréttis og félagshyggju. Ábyrgðin Fonnaður Alþýðu- bandalagsins, Olafur Ragnar Grímsson, hefur nú verið fjármálaráð- herra í rúmlega tvö og hálft ár. Á þeim tíma — tiltölulega skömmum tíma — hefur honum tekizt að hækka skatta og hvers kyns gjöld og álögur meira en nokkr- um öðnun i sögu lýðveld- isins. Til þessa hefur haim notið fulltingis formanns Alþýðuflokks- ins, formanns Framsókn- arflokksins, formanns Borgaraflokksins og Stefáns Valgeirssonar, sem sérstaklega kennir sig við jafnrétti og fé- lagshyggju. Verkafólkið, sem nú gerir uppreisn, ætti að hafa í huga (ekki sizt 20. april nk.) að þing- menn stjórnarflokkanna, sem munu biðla til þess næstu vikumar, bera all- ir sem einn ábyrgð á skattaáþjáninni. Mest em þó svik Alþýðuflokksins við verkalýðinn, því haim hét því hátíðlega fyrir siðustu kosningar, og reyndar fyrst eftir þær líka, að standa gegn hækkun tekjuskattsins. A A bamsskón- um Það er athyglisvert, að skattauppreisnin hófst meðal fiskverkakvenna á Þingeyri. Þótt meirihluti fiskverkafólks þar hafi ákveðið að leggja ekki niður vinnu hefur það engu að siður mótmælt harkalega skattpíningu ríkisstjómarimiar. Það var einmitt þar, sem Ólafur Ragnar Grímsson, Qármálaráðherra, trítlaði um á bamsskón- uin. Honum er gjamt að minnast þess tima er amma hans hossaði hon- um í keltu shmi á Þing- eyri, gaf honum saltkjöt og baunir að borða á sprengidaginn og leyfði honum meira að segja að svipast um i frystihús- inu. Allt frá þessum tima firnist Ólafi Ragnari salt- kjöt og baunir hvorki vera fugl né fiskur nema með fylgi kartöflumús eins og amma hans bar fram með réttinum. Ekki hefur Ólafur Ragnar fræðst mikið um kjör verkafólks þann tíma, sem haim lieiinsótti frystihúsið á Þingeyri. Því það er einmitt þar sem verkafólkið hefur neyðzt til að hefja að- gerðir sítuir gegn skattaáþjánimii, sem þessi fyrrum gestur þess hefur á það lagt. Verka- fólkinu á Þingeyri hefur liklega ekki boðið i grrni, að drengsnáðhm myndi standa að skattpiningu þess þegar hami væri kominn úr stuttbuxun- um. Alþýðuforing- inn Ólafur Ragnar Grímsson siglh- nú undir flaggi alþýðuforingja og mmi gera næstu vikurn- ar á meðan hann klæðist kosningabuxunum. Hann mmi því á næstunni beina athyglinni frá athöfnum sínum i fjármálaráðu- neytinu i þeirri von að almenningur gleymi verkum hans. Þetta kom berlega í (jós, þegar haim talaði tíl þjóðarhmar í eldhús- dagsumræðunum á Al- þingi á dögunum. Þá sagði sjálfur fjármála- ráðherrann m.a., þegar haim fjallaði um kosn- ingastefnu Alþýðubanda- lagsins í skattamálum: „Og það er ánægjulegt fyrir mig sem ólst upp sem lítíll drengur hjá afa minum og ömmu á Þing- eyri og var heimagangur í frystíhúsinu, í smiðjunni og í kaupfélaginu í þessu merka sjávarplássi, að í dag bárust þær fréttír að fiskverkakonur á Þhigeyri hafa einnig tek- ið forustu í að bera þessa stefnu fram. Við Alþýðu- bandalagsmenn fögnum því. Við lýsum yflr stuðn- mgi við þennan málstað fiskvinnslukvennanna á Þingeyri. Við munum taka þátt í aðgerðum fiskvhmslufólks sem krefst þess nú að megin- þáttur í næstu kjara- samningum verði jöfnuð- ur i skattamálum með því að hækka skattleysis- mörkin og auka þannig kaupmátthm í gegnum skattakerfið.“ Gegn sjálfum sér Það er óhætt að segja, að ósvífni fjármálaráð- herrans ríður ekki við einteyming. Af ummæl- unum hér að framan má sjá, að hann tekur undir málstað fiskvimislu- kvemianna og kröfu þeirra um hækkun skatt- leysismarka. Ólafur Ragnar er því að taka undir gagnrýnina á störf sín í fjármálaráðuneytinu — taka undir mótmælin gegn skattpíningar- stefnu hans sjálfs. Það vantar bara að hami fari í verkfall gegn sjálfum sér. VERÐBRÉFAREIKNIN GUR VÍB Verðbréfaviðskipti án fyrirhafnar Verðbréfareikningur VIB er hugsaður fyrir þá sem eiga nokkurt sparifé fyrir og vilja njóta ávöxtunar af verðbréfum á áhyggjulausan og fyrirhafnarlítinn hátt. Ráðgjafi þinn hjá VIB veitir þér persónulega þjónustu, sér um vörslu verðbréfa auk þess að innheimta skulda- bréf, kaupsamninga og húsaleigu. Yfirlit ydIr verðbréfa- eignina er sent út árs^órðungslega. Þannig færð þú heildaryfirsýn yfir ávöxtun fjármuna þinna en lætur ráðgjafa VIB um alla fyrirhöfnina. Verið velkomin í VIB. VIB VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF. Ármúla 13a, 108 Reykjavík. Sími 68 15 30. Telefax 68 15 26. Símsvari 68 16 25. !

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.