Morgunblaðið - 20.03.1991, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 20.03.1991, Qupperneq 18
'á jðl' KuoAayjm'öiM aiQAjavíuogoM LAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. MARZ 1991 m Að selja Rás 2 V Tj' f f Pa er starfsfolkið eftir Uppþvottavélar eftir Stefán Jón Hafstein Hugmyndin um að einkavæða Rás 2 er áætlun um að koma Ríkis- útvarpinu í þeirri mynd sem við þekkjum á kné. Rás 1 og Rás 2 styðja og styrkja hvora aðra. Með Rás 1 eina yrði RÚV ekki lengur þungamiðja í íslenskri ljósvaka- menningu, heldur jaðarfyrirbrigði — eins og t.d. Menningarsjóður er í bókaútgáfu. Rás 2: aðeins öflug sem hluti af heild Mikilvægi Rásar 2 fyrir Ríkisút- varpið og fjölmiðlamenningu lands- ins er í öfugu hlutfalli við stærð þessarar útvarpsstöðvar sem nú eru hugmyndir um að selja. Mæld á kvarða peninga og manna er Rás 2 afskaplega lítill hlutur af Ríkisútvarpinu. Af rúm- lega 400 manna starfsliði RÚV (út- varp-sjónvarp) eru innan við 20 dagskrárgerðarmenn og tækni- menn sem heita má að séu í fullum störfum á Rás 2. Þar til viðbótar koma lausamenn ýmiss konar. Til dagskrárgerðar sem tengist beint Rás 2 renna um sex prósent af heildarútgjöldum hljóðvarps. Rás 2 skilar hins vegar lang stærstum hluta þeirra hlustenda sem auglýs- endur kaupa aðgang að fyrir rúm- lega 300 milljónir króna í ár. Til dagskrárgerðar á Rás 2 renna 47 milljónir í ár. Það er minna en veija á til að reka svæðisstöðvar á þremur landshomum. Rás 2 er hins vegar jafn öflug útvarpsstöð og raun ber vitni vegna þess að unnið er markvisst að því að nýta hagkvæmni stærðar RÚV í heild. Aðskilin frá RÚV er Rás 2 mjög lítil útvarpsstöð. Hún stækkar hins vegar í eyrum hlustenda vegna þess að hún hefur aðgang að stórri frétt- astofu, góðu plötusafni, svæð- isstöðvum, og samnýtir auglýsinga- deild og skrifstofu með Rás 1. Hún er lítil, hagkvæm, en samt sem áður öflugasta útvarpsstöð á íslandi sé tekið mið af fjölda hlustenda. í Gallup-könnun í nóvember sögðust um 70 prósent landsmanna hlusta á Rás 2 í viku hverri, langtum fleiri en á Rás 1, sem kom næst, eða Bylguna sem er í þriðja sæti. Þess vegna segi ég: einkavæðing Rásar 2 felur í sér að hún verður lögð niður í núverandi mynd — nema Ríkisútvarpið í heild verði að stórum hluta (eða alveg) afhent einkarekstri með einum eða öðrum hætti. Það mun hins vegar ekki á dagskrá Sjálfstæðisflokksins. Flokkurinn ítrekar að hann vilji selja Rás 2 en efla Rás 1. Úr þeirri þversögn verður ekki leyst nema með geypifé, ef það er þá hægt. Hvað er hægt að selja? Sé gengið út frá því að sjálfstæð- ismenn vilji í alvöru efla Rás 1 um leið og þeir einkavæða Rás 2 er afskaplega fátt sem hægt er að selja í raun. í raun er það bara eitt: dreifikerfið. Sendar Rásar 2 (55-60 talsins) eru aðskildir frá sendum Rásar 1, en stöðvarnar samnýta möstur og hús. Lauslega áætlað er sannvirði dreifikerfís Rásar 2 300-400 millj- ónir. Annað sem hægt væri að selja eða leigja aðgang að er: gluggalaus skiki í Útvarpshúsi ætlaður sem geymsluhúsnæði þar sem starfs- menn Rásar 2 hafa aðsetur, aðgang að safni (sem tæpast kemur til greina að selja?), sendingar íþrótta- deildar/fréttastofu (en nýverið hafnaði útvarpsráð beiðni Aðal- stöðvarinnar um að kaupa þá þjón- ustu svo tæpast er slíkt til um- ræðu). Til viðbótar má svo nefna svæðisstöðvar sem bæði þjóna Rás 2 og nota dreifíkerfí hennar. Verða þær til sölu? Með fýrirhugaðri eflingu Rásar 1 ætla ég að not yrðu fyrir þær tvær af 8 hljóðstofum útvarps sem Rás 2 notar og þá tæknimenn sem þjóna henni. Kjaminn er þessi: Rás 2, ein og sér, án alls annars sem útvarpið á og rekur er harla lítil útvarpsstöð, mun veigaminni en t.d. Bylgjan. Með öllu því sem fylgirRÚV erhún hins vegar öflugasta útvarpsstöð á íslandi. Hagkvæmnin af núverandi fyrirkomulagi er augljós. Starfsfólk verður einfaldlega ekki selt eins og hver annar búnað- ur. Allra síst á vinnustað þar sem faglært umhverfi og menningarleg markmið eru úrslitavaldur og menn sætta sig við mun verri laun en bjóðast annars staðar vegna slíkra huglægra þátta. Þetta þýðir auðvitað ekki að starfsmenn Rásar 2 hafí einhveija rótgróna andúð á því að vinna fyrir einakfyrirtæki. Síður en svo. Þetta þýðir ekki heldur að við teljum engum öðrum treystandi til að búa til gott útvarp í nafni Rásar 2. Þvert á móti, margir hæfir út- varpsmenn vilja vinna í okkar anda. Þegar ég og aðrir segjast ekki vera til sölu, þýðir það einfaldlega að við áskiljum okkur þann lág- marksrétt að ráða okkur í vinnu, þar sem hvetjum og einum sýnist rétt. Lífíð og sálin í hverri útvarps- stöð er starfsfólkið. En það verður einfaldlega ekki selt. Gagnvart starfsmönnum blasir þetta við: Rás 2 hefur byggst upp sem nútímalegt útvarp sem nýtur mikillar alþýðuhylli vegna margra samverkandi þátta sem tekist hefur að stilla saman. Meginþættirnir sem hér um ræðir eru annars vegar rót- grónar venjur og hefðir, „siðmenn- ing RÚV“ eins og hún hefur mót- ast í 60 ár, og hins vegar nútímaleg viðhorf og starfsvenjur sem margir hinna yngri starfsmanna hafa til- einkað sér og þróað á vettvangi Rásar 2. Þetta tvennt fer saman og því er Rás 2 eins og hún er í dag eng- in tilviljun. Hún er skipulega fram sett svar við því hvernig nútímalegt og menningarlegt almenningsút- varp eigi að vera: virkur dægurmið- ill þar sem reynt er að sameina það besta með því gamla og nýja. Verði Rás 2 einkavædd tel ég líklegt að sú skírskotun til almenn- ingsþjónustu sem nú er unnið eftir verði látin þoka. Dæmin úr einka- rekstrinum blasa við. Þá gerðist það samtímis að Rás 2 rofnaði úrtengsl- um við það besta sem RÚV hefur þróað á þessari öld, og Rás 1 ein- angraðist utan við meginstrauma samtímans. Ríkisútvarpið sem þungamiðja í Stefán Jón Hafstein „Verði Rás 2 einka- vædd tel ég líklegt að sú skírskotun til al- menningsþjónustu sem nú er unnið eftir verði látin þoka. Dæmin úr einkarekstrinum blasa við. Þá gerðist það sam- tímis að Rás 2 rofnaði úr tengslum við það besta sem RÚV hefur þróað á þessari öld, og Rás 1 einangraðist utan við meginstrauma sam- tímans. Ríkisútvarpið sem þungamiðja í menningu í víðum skiln- ingi yrði ekki lengur til og Rás 2 í núverandi anda lögð niður.“ menningu í víðum skilningi yrði ekki lengur til og Rás 2 í núver- andi anda lögð niður. Spurningar Morgunblaðsins um Rás 2 í Reykjavíkurbréfí Morgunblaðs- ins 17. mars eru bomar upp spurn- ingar sem ég vil reyna að svara. — „Hver segir að nýir eigend- ur Rásar 2 myndu hætta allri þjón- ustu við landbyggina?“ Enginn veit neitt um það. Sem Kynferðisbrot og meðferð þeirra Eldavelar Örbylgjuofnar Gœfiatœki fyrír pig og þína! SMITH& NORLAND Nóatúni 4 - Sími 28300 ►.Þ0BEBÍMS50H &C0 ABETE™* HARÐPLAST Á BORÐ ÁRMÚLA29, SÍMI 38640 eftir Doru Hlin Ingólfsdóttur Vitað er að talsvert er um að hin alvarlegri kynferðisbrot, svo sem nauðganir og sifjaspell era ekki kærð. Hveijar svo sem ástæður fyrir því era ætti sú staðreynd að gefa tilefni til að bæta meðferð þessara mála. Skiljanlegt er að tregða sé til að kæra brot eins og sifjaspell þar sem nákominn ættingi á í hlut en að konur skuli ekki treysta sér til að kæra nauðgun, jafnvel þó að árásarmaðurinn sé þeim ókunnur, bendir til að gera þyrfti fýsilegri þann kost að kæra. Mál af þessu tæi eru mjög vandmeð- farin enda hafa þau þá sérstöðu að þar er verið að fjalla um tilfínninga- legan skaða fyrst og fremst. Afleið- ingar þessa verknaðar á þolandann era ekki alltaf sýnilegar og veltur á að þeir sem rannsaka og um málið fjalla hafí á því góðan skiln- ing. Þó svo að fæstum kæramálum ljúki fyrir dómi ætti það eitt að fjaila um þessi mál að hafa áhrif ti! vam- aðar. Fordómar Nauðgunarkæram virðist al- mennt tekið með tortryggni. Fréttir í dagblöðum af nauðgunum eru yfírieitt undir yfírskriftinni að nauðgun hafí verið kærð. Hins veg- ar ef fjallað er um annars konar afbrot er yfírleitt talað um að tiltek- dð afbrot hafí verið framið. Mimri-_ hluta kærðra nauðgunarmála lýkur með áfellisdómi og þau eru erfíð í sönnun. Hins vegar er ákaflega fátítt að kona sé uppvís að því að bera mann röngum sökum. Allur vafí er túlkaður sakborningi í vil og þannig viljum við hafa réttarfar- ið. Úrbætur með lögum í meðföram Alþingis er nú fram- varp til laga um opinbera réttarað- stoð. í 11. gr. framvarpsins er kveð- ið á um að þegar við upphaf lög- reglurannsóknar skuli kveðja til réttargæslumann fýrir þann sem ætla má að hafí orðið fyrir broti er varðar 190. eða 194. gr. al- mennra hegningarlaga en þar er um að ræða sifjaspell og nauðgun. Einnig að heimilt sé að kveðja til réttargæslumann fyrir brotaþola varðandi önnur kynferðisbrot, meiri háttar líkamsárásir og frelsissvipt- ingu. Þessi réttargæsla yrði brota- þola að kostnaðarlausu. Þama fá réttargæslumenn nýtt hlutverk varðandi kynferðisbrot, þ.e. að vera skipaðir til að gæta hagsmuna og réttar þess er fyrir brotinu varð. Óbættur miski Á hveiju ári era fáeinum konum dæmdar bætur vegna nauðgunar. Innheimta bótanna er hins vegar á þeirra ábyrgð. Þingskipuð nefnd til að gera tillögur um úrbætur í með- ferð nauðgunarmála lagði m.a. fram þær tillögur fyrir um tveimur árum að lágabreytingáf ýr ðú gé'rðár Dóra Hlín Ingólfsdóttir „En hvort sem brota- þoli er barn, kona eða karl eiga þau þann rétt að vera meðhöndluð af virðingu og tillitssemi.“ þess efnis að ríkissjóður myndi ábyrgjast greiðslu bóta til handa brotaþola og endurkreíja síðan dómþola. Þés'sár' Iagábféýtirigáf hafa enn ekki litið dagsins ljós. í langflestum tilfellum þar sem kon- um hafa verið dæmdar bætur vegna nauðgunar sitja þær uppi með óbættan miskann. Þó svo að bóta- greiðslur komi ekki í veg fyrir þján- ingar era þær viðurkenning á misk- anum og geta bætt skaða að vissu marki. Ekki er hægt að ætlast til þess að brotaþoli upplifí réttlæti í því að vera dæmdar tilteknar bætur en fá þær svo ekki þar sem dóm- þoli er ekki borgunarmaður. Ef miðað er við þær fjárupphæðir sem ríkissjóður greiðir árlega t.d. fyrir réttargæslu sakbominga yrði þama um sáralítinn útgjaldaauka að ræða fyrir ríkissjóð. Máttur hugarfarsins Þó svo úrbætur lagalegs eðlis geti mikið ráðið bót á meðferð kyn- ferðisbrotamála þá vegur líklega þyngst á vogarskálinni af hvaða hugarfari tekið er á málum af þessu tæi. Tryggja þarf að hagsmunir barns sem brotaþola siti ávallt í fýrirrúmi í allri málsmeðferðinni. En hvort sem brotaþoli er barn, kona eða karl eiga þau þann rétt að vera meðhöndluð af virðingu og tillitssemi. Sá er rannsakar á að geta verið nákvæmur án þess að sýna þolanda brots óþarfa tor- tryggni. Höfundur er í framk væmdunefnd Stígamóta og rannsóknarlögreglukona Ijá RLR.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.