Morgunblaðið - 20.03.1991, Page 22

Morgunblaðið - 20.03.1991, Page 22
■ MÖRGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. MARZ 1991 Heilsuvemdarstöð Reykjavíkur eftir Maríu Pétursdóttur Getur það verið að Heilsuvernd- arstöð Reykjavíkur verði gerð að hjúkrunarheimili? Væri það ekki að sniðganga upprunalegan tilgang hennar? Forustustarf Líknar um heilsu- vernd mun ekki gleymast, stað- hæfði dr. Sigurður Sigurðsson f ræðu er hann flutti við vígsluathöfn Heilsuvemdarstöðvarinnar 2. mars 1957. Hvað ætli mörgum sé það starf nú ferskt í minni, eða hafi yfirleitt hina minnstu hugmynd um þetta félag áhugamanna sem hét Hjúkrunarfélagið Líkn? Sjónarmið hans er skiljanlegt því að hann þekkti alltof vel hversu seint og trauðlega gekk að vekja fólk til umhugsunar um almenna heilsu- vemd og innræta lærðum og leikum að meta sem bæri þjóðfélagslegt og fjárhagslegt gildi alls forvarnar- starfs. Eftir að skipulögð berklaleit var hafin um allt land kom fyrir að sjúklingar með berklasmit fundust, sem aldrei höfðu kennt sér meins. Eðlilega átti fólk erfitt með að skilja, sérstaklega ef fyrirvinnan, sem svo nefndist, eða húsmóðirin varð að fara á berklahæli. Þetta gat, sérstaklega úti á landsbyggð- inni, þýtt að leysa varð upp heimili um lengri eða skemmri tíma. Það var erfitt að þurfa að fella þann dóm að maður væri með smitandi berkla, og gæti þess vegna „sáð sýkinni út frá sér í allar áttir“ eins og Vilmundur Jónsson landlæknir orðaði það. Fyrir kom að dr. SigTirð- ur, sem þá var berklayfirlæknir, fékk bréf þegar einhver hafði verið dæmdur til hælisvistar. Þar var lát- ið liggja að því að þetta hlyti að vera röng sjúkdómsgreining. Mað- urinn væri það frískur að hann væri fullfær til vinnu. Berklayfir- lækni var að sjálfsögðu raun að fá bréf með ásökunum um skilnings- skort lækna á þeirri röskun á heim- ilishaldi sem þeir væru valdir að. í ræðu sinni hafði dr. Sigurður orð á því hvað frú Christophine Heilsuverndarstöð Reykjavíkur Bjamhéðinsson, formaður og hvat- amaður að stofnun Líknar vorið 1915, hafí verið framsýn, því að þá var heilsuvemdarstarfsemi „um það leyti að byija að ryðja sér til rúms í ýmsum nágrannalöndum vorum“. Markmið félagsins var að annast hjúkmn í heimahúsum og að efla almenna heilsuvernd. En að framgangi þessara mála stóðu margir mætir hugsjóna- og baráttu- menn. Brautryðjandastarf við erfið skilyrði Öðlingurinn Sigurður Magnúson, yfirlæknir á Vífilsstaðahælinu, lét sig ekki muna um það að fara áram saman tvisvar í viku e.h. með áætl- unarbílnum til Reykjavíkur og vinna kauplaust á Berklavarnarstöðinni. Með þessu móti var hægt að veita nauðsynlega læknisþjónustu. Annar ágætismaður, Magnús Pétursson, alþingismaður og bæjarlæknir (síð- ar héraðslæknir), starfaði við Heilsuvemdarstöð Líknar (seinna Heilsuverndarstöð Reykjavíkur) frá árinu 1926 til æviloka og tók ekki laun fyrir þessi störf. Þóknun, sem honum var boðin eftir að hafa starf- að þar fjögur ár, þáði hann með því skilyrði „að þeirri upphæð yrði varið til að röntgenrannsaka sjúkl- inga þá, er til stöðvarinnar leituðu". Árið 1927 tók Ungbarnavernd Líknar til starfa, 12 áram eftir stofnun félagsins, en Berklavarnar- stöðin hafði farið af stað þegar árið 1919. Hjúkrunarkonurnar vora á launum, að vísu ekkert í samræmi við þeirra langa vinnudag og yfir- vinna aldrei reiknuð til launa. Þegar frú Bjarnhéðinsson lét af störfum eftir að hafa verið formað- ur í 16 ár tók önnur öndvegishjúkr- unarkona, frú Sigríður Eiríksdóttir, við forastu í þessu umfangsmikla félagsstarfi. Berklavamarstöðin fékk rýmra húsnæði í Kirkjustræti 12 árið 1931 og hasfði þá starfsem- in aukist til muna. En hvílík breyt- ing til batnaðar þegar hægt var að flytja í Heilsuverndarstöðina við Barónsstíg. Árið 1946, ellefu árum'aður en stöðin var vígð, hafði verið lagt fyrir bæjarráð nefndarálit um heilsuvemdarstöð fyrir Reykjavík. Þar er lagt til „að heilsuverndar- starfsemi bæjarins verði sljórnað frá stöðinni, enda þótt sumir þættir heilsuverndarinnar verði framkvæmdir annars staðar í bænum". Spuming er hvort þessi tillaga sé enn í fullu gildi. Liðin eru rúm 30 ár frá vígsludegi og sam- kvæmt lögum um heilbrigðisþjón- ustu frá árinu 1990 eru í Reykjavík starfrækt fjögur heilsugæsluum- dæmi, sem og eðlilegt er í ört vax- andi borg. En hvað er svo orðið um hina fögru drauma forvígismann- anna um að heilsuverndarstöðin fengi að ráða ríkjum í „sloti“ sínu og yrði þar með mótandi heilbrigðis- miðstöð? Það var hún ekki eingöngu fyrir Reykjavík, heldur einnig að vissu leyti fyrir allt landið, fram- kvöðull og fyrirmynd. Þess háttar menningarmiðstöð er engu síður nauðsynleg en margar aðrar. Betra væri fyrir samtímann að varðveita heilsuverndarstöðina sem slíka og hún fái að halda sínu forastuhlut- verki, en að það þurfi síðari tíma menn til að átta sig á þeirri gjörbylt- ingu i heilbrigðisþjónustu íslend- inga sem áhugamenn komu til leið- ar er þeir stofnuðu og starfræktu um langt skeið hjúkranarfélagið Líkn. Bjartsýni á vígsludegi á framtíðarhlutverk HR Ég man vel að hið eina, sem skyggði á gleði frú Sigríðar Eiríks- dóttur og fieiri, var að nýja stöðin var ekki eingöngu ætluð heilsu- vemdarverkefnum. Fallist hafði verið á að 50-60 hjúkranarsjúkling- ar yrðu til bráðabirgða vistaðir á tveimur hæðum heilsuverndar- stöðvarinnar vegna sjúkrarúma- skorts „eða þangað til bæjarsjúkra- húsið hefur tekið til starfa" eins og segir í bréfi formanns sjúkra- hússnefndar til bæjarráðs Reykja- víkur dags. 20. júní árið 1952. Borgarlæknir, dr. Jón Sigurðs- son, skrifaði ítarlega grein í Morg- unblaðið 5. maí 1973 undir fyrir- sögninni: Hjúkrunardeildir í Reykjavík. Þar segir: „Þegar spítal- inn flutti úr Heilsuverndarstöðinni í Borgarspítalann í Fossvogi á ára- mótum 1967-68, var komið upp hjúkranar- og endurhæfíngardeild í Heilsuverndarstöðinni fyrir 35 sjúklinga." Sjúklingarnir áttu sem sagt bara að vera til bráðabirgða. Eftir að Borgarspítalinn tók til starfa vora samt sjúklingar á heilsuverndarstöðinni og eru enn þann dag í dag. Það kom samt fljótt í ljós, að María Pétursdóttir Heilsuverndarstöð Reykjavíkur olli þeim ekki vonbrigðum, sem höfðu gert sér vonir um heilbrigðisþjón- ustu sem yrði vel ágengt. Það var ekki síst því að þakka, að þar komu m.a. til starfa hjúkranarfræðingar, sem höfðu aflað sér Starfsreynslu og þekkingu hjá gömlu Líkn við mun erfiðari aðstæður og voru auk þess sérmenntaðir hjúkranarfræð- ingar. Ein þeirra var Sigrún Magn- úsdóttir, sem varð fyrsta forstöðu- kona stofnunarinnar. í grein sem hún skrifar (Hjúkrunarkvennablað- ið 1957) segir: „Við gerum okkur vonir um að Heilsuverndarstöðin geti með tímanum orðið kennslu- stofnun fyrir læknanema, hjúkr- unarnema og ljósmæðranema.“ Hjúkranarnemamir áttu þá að „kynnast vinnubrögðum allra deild- anna og ganga inn á heimilin, bæði í fylgd með hjúkrunarkonum og einar, til hjúkranar og heilbrigðis- eftirlits. Virðist að sú reynsla ætti að geta stuðlað að því að þær skilji betur hin ýmsu félagslegu vanda- mál sjúklinga sinna á sjúkrahúsun- um, sem stundum standa þeim fyr- ir varanlegum bata.“ Hvað hefur svo áunnist? Árangursríkt berklavarnarstarf, betri lífsskilyrði og aukinn skilning- ur almennings á gildi forvarnar- starfs valda því að nú eru hverf- andi litlar líkur á því að við verðum berklum að bráð. Bara það eitt FINNSK MENNINGARHÁTÍD Finnsk kvikmyndahátíS í Háskólabíói H M H H H ►4 >i H H H H H »4 H H H H H H H H H H H H H H H H H H H H H H H »4 H H ►4 H »4 H H H H H H H H H H ►4 »4 H »4 H H »4 H H H H H H H H H H H H >4 ...........-......................- Ariel Mynd um mann, sem reynir að hasla sér völl en smávægileg mistök verða til þess að hann lendir í kasti við yfirvöld. Myndin var valin besta erlenda myndin 1990, að mati kvikmyndagagnrýnenda í Bandaríkjunum. Sýnd kl. 5. Sléttubúar Mynd um hina villtu menn á sléttunni. Leikstj.: Pekka Parikka. Sýnd kl. 7. Kúrekar frá Leningrad á ferð í Bandaríkjunum Mynd um eina verstu rokkhljómsveit í heimi á ferð um Bandaríkin. Gamanmynd eftir Aki Kaurismaki. Sýnd kl. 9. Pessi og Illusia Ævintýramynd, sem sniðin er bæði fyrir böm og fullorðna. Leikstjóri: Heikki Partanen. Myndin hlaut verðlaun Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna á kvikmyndahátíðinni í Berlín 1984. Sýnd kl. 5. Ég réð mér leigumorðingja Henry vill deyja og ræður til sín leigumorðingja. Skyndilega vill hann hætta við, en þá er eftir að stöðva leigumorðingjann. Leikstjóri og handrit: Aki Kaurismaki. Sýnd kl. 7 og 9. (?<S>8 'u’QDE&EECl Amazon Myndin fjallar um tvo gullgrafara, sem komast að raun um, að náttúran lætur gullið ekki af hendi nema goldið sé dýru verði. Myndin er tekiní regnskógum Brasilíu. Leikstjóri: Mika Kaurismaki. Sýnd kl. 5. og 7. Kúrekar frá Leningrad á ferð í Bandaríkjunum (Sjá nánar umfjöllun á öðmm stað íaugl.) Sýnd kl. 9. Bókmenntir, tónlist, vísnasöngur og fleira Miðvikudagur 20. mars: Kl. 20.30 Bókmennta- og tónlistardagskrá á Hótel Borg. Þátttakendur: Rithöfundarnir Lars Huldén og Tiina Kaila frá Finnlandi. ^ Kynnir: Sigurjón Birgir Sigurðsson. Kl. 20.30 Bókmenntadagskrá á Akureyri í umsjón KjellWestöog Timo Karlsson. Fimmtudagur 21. mars: Kl. 20.30 Finnskt bókmenntakvöld í Norræna húsinu með rithöfundunum Tiina Kaila, Lars Huldén og Kjell Westö. Stutt kvikmynd, byggð á sögu Veijo Meris Rinnat (Brjó:stið) sýnd í lokin. Laugardagur 23.mars Kl. 15.00 Vísnatónleikar á Akranesi með finnska vísnasöngvaranum Bosse österberg í samvinnu við Norræna félagið á Akranesi. Kl. 20.30 Vísnatónleikar í Norræna húsinu með finnska vísnasöngvaranum Bosse Österberg. í fundarsal og kaffistofu. Finnskar vísur og finnskir réttir. Aðgangur kr. 500,- Sunnudagur 24. mars: Sýningar af myndbandi (Norræna húsinu. Kl. 15.00 Sjónvarpsmynd um Edith Södergran: „Gráset I Hallonbacken.” Kl. 16.30 Missá on suuri Pohjoinen. (Hvar er stóra Norðrið) Handrit: Rosa Liksom (á finnsku). *Vi H H H H ►4 H H H H H H H H H H H H ►4 ►4 H H H H H ►4 H H ►4 H H H H H H H H ►4 ►4 H H H ►4 a ►4 H H rwwwwwwwwwwwwwwwwwwwwwwwwwwwwwwwwwwwwwwwwwwwwwwwwwwww kAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAA, H H H H H H H H ►4 H ►4 H H t: ►4 H ►4 H H ▼>4 ▲ A4

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.